Helgarpósturinn - 04.02.1983, Blaðsíða 6

Helgarpósturinn - 04.02.1983, Blaðsíða 6
Föstudagur 4. febrúar 1983 17í. tbl. 263. árg. Indriði G. Þorsteinsson Karlar rotta sig saman „Við erum hérna nokkrir kari- pungar sem höfum verið að rotta okkur saman að undanförnu, og erum sammála um að framboð eins og.okkar cigi meira en rétt á sér - það er nauðsyn*4, sagði Ind- riðiG. Þorsteinsson rithöfundur í samtali við Aðalblaðið, en hann og nokkrir félagar hans cru nú að undirbúa Karlpungaframboð hér í Rcykjavik. „Til að fyrirbyggja allan mis- skilning þá viljum við taka fram að við elskum konur. Þær eru dýrlegar, þessar, elskur. Reyndar alltof dýrlegar til að vera að vas- ast í atvinnulífinu, að rnaður tali nú ekki um stjórnmálin**, sagði Jónas Guðmundsson, annar aðstandandi. í þriðju grein draga að stefnu- skrá fyrir hin nýju samtðk segir orðrétt: „Við ökkla allra kvenna. eldri en 21 árs skal festa með þar til gerðum ökklahring úr ryðfríu stáli, keðju, tveggja tommu þykka. Skal lengd keðjunnar vera jöfn vegalengdinni frá vaski, þar sem hún skal fest, og fram að dyrum lögheimilis konunnar". Sagði Hrafn Gunnlaugsson, einn „(slenskra karlmanna", en svo nefnir félagsskapurinn sig j afnan, að þetta atriði, og sú lífsskoðun sem íþvíbirtist; væri kjarninn í stefnu Karlpungaframboðsins. „Konur eiga rétt á því að vera á heimili sínu. og fyrir því munum við berjast", sagði hann. Gunnar fer fram „Á fundi í fyrrakvöld var ég beðinn mjög eindregið að fara fram, og ég hef ákveðið að gera það“, sagði Gunnar Thoroddsen á blaðamannfundi í gær. Hann hygg- ur á framboð í Reykjavík. Aðalblaðið hefur hinsvegar fregnað að ósk fundarmanna hafi verið sú að Gunnar færi fram - þ.e. frani á gang.til að taka símtal frá Akureyri - en að Gunnar hafi mis- skilið óskina. Gunnar fer fram - en kemur hann inn aftur? Öldungar fara fram „Allir verða eldri - það er þunga- miðjan í því sem við höfum fram að færa“, sagði Karl Magnússon, 87 ára, en hann er einn af hvatamönn- unum í framboðsflokki öldunga, sem hyggst bjóða fram hér í þéttbýf inu. „Stefnuskrá okkar er að öðru leyti ómótuð. En við áætlum að hafa hana til fyrir kosningarnar, ef okkur vinnst aldur til“, sagði Karl ennfremur. „Að lokum hvet ég alla til að kjósa okkur strax, því framboðs- listinn endurnýjast mjög hratt. * Hann Siggi gamli á Hóli hrökk af listanum í gær og Mundi, sem tók sæti hans.er ekki vel hraustur." Líkams- ræktarmenn kasta sér í slaginn Líkamsræktarmenn eru nú í al- vöru að velta fyrir sér sérstöku framboði til Alþingis hér í Reykjavík. „Vil teljum okkur fulltrúa allra manna sem hafa líkama. Og þeir eru ekki svo fáir", sagði Finnur Karlsson kraftamaður við Aðal- blaðið, þegar hann kom af mjög. líkamlegum framboðsfundi lík- amsræktarmanna í gærkvöldi. Líkamsræktarmenn koma af fundinum, en á honum var skipst á skoðunum af óvenjulegrl hreinskilni eins og greina má af myndinni Sundurgerðarmenn bjóða fram klofið Jafnir menn sameinast „Bandalag jafnra manna er stofnað utan um hugmyndir. Fínar hugmyndir. Ég til dæmis er alltaf að fá einhverjar skemmtilegar hug- myndir. Ekki satt, Jói?“, sagði Bjarnleifur Páll Markússon alt- muligtmann þegar Aðalblaðið spurðist fyrir um nýjan flokk sem hyggst bjóða fram í öllum kjör- dæmum. „Bandalagið mun fyrst og fremst berjast fyrir auknum réttindum allra sem eru 178 centimetrar á hæð á sokkaleistunum. Við erum fjöl- margir í landinu, og teljum okkur eiga rétt á auknu framboði af fatn- aði í okkar stærð svo eitthvað sé nefnt. Þetta eru ópólitísk samtök“, sagði Bjarnleifur. „Við eigum fleira sameiginlegt", hélt hann áfram. „Við getum allir látið fingurgómana snerta loft á venjulegum íbúðum ef við stönd- um á öðrum fæti og teygjum okkur. Ég er umbjóðandi þessa fólks", sagði Bjarnleifur. Hann hefur opn- að kosningaskrifstofu á Laugavegi „Þessi flokkur komeiginlega til uppúr Gunnarsarminum í Sjálf- stæðisflokknum, Vilmundarvina- félaginu ( Alþýðuflokknum, Möðruvallahreyfingunni í Fram- sóknarflokknuni og Mennta- mannaclítunni í Alþýðubandalag- inu. Við köllum okkur klofnings- flokkinn". Svo segir í fréttatilkynningu sem Aðalblaðinu barst í gærkvöldi frá aðilum sem nefna sig „Starfshóp um klofning". . „Við höfum verið að reyna að koma saman lista að undanförnu, en sjáunt reyndar ekki frarn á að það takist alveg. Við bjóðum því sjálfsagt fram að minnsta kosti þrjá lista, vegna þess klofnings sent því miður hefur komið upp", segir ennfremur í tilkynningunni. ÞINGFRÉTTIR Fundir voru í báðum dcildum Alþingis í gær. í neðri deild var tekið til umræðu frumvarp um umræður við alþingi, eitt af svo- nefndum fylgifrumvörpum bráðabirgðalaga ríkisstjórnar- innar unt umræður almennt. Svavar Gcstsson h'eilbrigðis- og félagsmálaráðherra mælti fyrir fruntvarpinu. í máli hans kont fram að þetta frumvarp væri hugsað til þess að umræður á Alþingi yrðu markvissari og meira í takt við tímann. Sagði hann rökin fyrir því að frumvarp- ið yrði samþykkt vera augljós, þvf eins og málum væri háttað nú færi alltof langur tími í umræður um frumvörp sem væru í eðli sínu lítt ntarkverð. Matthías Bjarnason (S) kvaðst mótfaliinn umræðunni sem hæst- virtur þingmaður væri að reyna að koma af stað urn umræður, og sagði það á engan hátt eðlilegt að ríkisstjórnin væri að skipta sér af umræðum á alþingi, og ailra síst umræðum um umræður. Jóhanna Sigurðardóttir (A) sagði að Alþýðuflokkurinn styddi þetta frumvarp efnislega, en umræðnanna vegna gæti hún ekki tekið undir sjónarmið sið- asta ræðumanns. Kvaðst Jó- hanna Sigurðardóttir telja að þessar umræður um umræður um umræður væru komnar á um- deilaniegt stig. Páll Pétursson (F) sagði aðal- atriðið í þessu máli hafa farið fyrir ofan garð á neðan í þessunt um- ræðum um untræður um um- ræður um umræður, vegna þess að slíkar untræður ættu ekki að fara fram fyrr en á morgun sam- kvæmt dagskrá, og að bráða- birgdafrumvarp ríkisstjórnarinn- ar um utandagskrárumræður leyfði ekki að umræður um unt- ræður urn umræður um umræður færu fram nema utan dagskrár. Samþykkt var með 13 at- kvæðum að vísa málinu til ann- arrar umræðu. í efri deild var tekið fyrir frunt- varp Stefáns Valgeirssonar (F) þess efnis að einstökum þing- mönnum yrði gert kleift að kaupa skuttogara fyrir einstök bæjarfé- lögþegarþeimsvo sýndist, „enda vérði sýnt fram á að kaupin kosti hvert mannsbarn í landinu ekki meira en tíu þúsund krónur árlega", eins og segir í greinar- gerð með frumvarpinu. Spunnust nokkrar umræður um frumvarpið. Karvel Pálmason (A) taldi ekki rétt að miða upp- hæðina við tíu þúsund. Kvaðst hann ekki skilja hvernig sú tala væri fundin og taldi eðlilegra að hafa þetta frjálst. Guðmundur J. Guðmundsson (Abl) spurði þing- heim hvort hann teldi rétt að hinn almenni launamaöur, sern kannski ætti fjögur börn,ætíi að þurfa að greiða tíu þúsund krón- ur á ári fyrir hvern togara sem keyptur væri til landsins. Taldi Guðmundur það fráleitt; níu þús- und væri nær lagi. Matthías Á. Mathicsen (S) kvaðst ekki teija að upphæðin væri aðalatriði í mál- inu, um hana mætti alltaf semja síðar í frjálsum samningum. Aðalatriðið væri að með þessu frumvarpi væri verið að festa í lög ástand sem lengi hefði tíðkast, og það væri aðeins af hinu góða, því ástand sem varað hefði lengi og allir sættu sig við - slíkt væri sjálf- sagt að setja í lög. Engin nefndastörf voru á Alþingi í dag vegna sextugsaf- mælis fyrrverandi hæstvirts þrett- ánda landskjörins þingsmanns.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.