Helgarpósturinn - 04.02.1983, Síða 11

Helgarpósturinn - 04.02.1983, Síða 11
~tpSsturinn. Föstudagur 4. febrúar 1983 11 ,,Hver sýning verði betri en sú síðasta" Nú þegar íslenski dansflokkurinn stendur fyrir þremur sýn- ingum í Þjóðleikhúsinu á tíunda starfsári sínu, er akkúrat ár síðan hann kom fram síðast (sjá umsögn hér á síðunni). Það fmnst flokksmönnum eðlilega alltof langt hlé. „Þetta verkefnaleysi er okkar stærsta vandamál“, segir Örn Guðmundsson, einn úr hópnum, „ - því það gefur auga leið að það er afskaplega erfitt að halda dönsurum við efnið þegar tækifærin eru svona fá - að ekki sé talað um að vinna ballettinum nýja áhugamenn, en það er honum nauðsyn“. rætt við Örn Guðmundsson, dansara og framkvæmda- stjóra Islenska dansflokksins sem nú sýnir í Þjóðleikhúsinu Örn Guðmundsson ásamt Ásdísi Magnúsdóttur í einu atriði „danssmiðju" ís- lenska dansflokksins: „Erf- itt að halda dönsurum við efnið þegar tækifærin eru fá“. Þrengsli á verkefnaskrá Þjóðleikhússins eru helstu ástæð- ur fyrir verkefnaskorti dans- flokksins - hann hreinlega kemst ekki að með sýningar, vegna þess að leikhúsið er fullbókað öll kvöld. En nú hafa þrjú kvöld verið gefin laus: ein sýning á „Dans- smiðju“ flokksins var á miðviku- dagskvöldið sem leið, önnur er á sunnudaginn og síðasta sýningin á föstudaginn eftir viku. Tilviljun íslenska dansflokkinn skipa tíu manns, og hafa litlar manna- breytingar orðið á þeim tíu árum sem hann hefur starfað. Örn Guðmundsson er einn þriggja karldansara flokksins, og sá þeirra sem mesta hefur reynsl- una, auk þess sem hann er fram- kvæmdastjóri íslenska dans- flokksins. „Það var nú tilviljun að ég fór útí þetta", sagði Örn, þegar Helgarpósturinn innti hann eftir því hvernig hann hefði leiðst útí ballettdans. „Ég er með dans- kennarapróf, og kenndi sam- kvæmisdansa er mér var boðið að taka þátt í Fiðlaranum á þakinu í Þjóðleikhúsinu fyrir mörgum árum. í framhaldi af því fór ég að sækja tíma hjá Listdansskóla Þjóðleikhússins, og hef loðað við þetta síðan“, sagði Örn. Framan af var hann í ballettin- um samhliða danskennarastarf- inu, en 1977 gengur hann í dans- flokkinn, og síðan hefur ballett- inn verið hans aðalvinna. Og þrátt fyrir fá tækifæri til sýninga, er það ærið starf að vera ballett- dansari, og ekki fyrir neina aukvisa. „Ég held að menn verði að hafa alveg gríðarlegan áhuga á ballett, ef þeir eiga að endast í þessu. Þetta kostar mikla vinnu - stöðuga daglega þjálfun allt árið um kring“. Nú í haust hefur dansflokkur- inn æft daglega frá tíu á morgn- ana til fimm sex á daginn, og það gefur auga leið að ballettdansarar 'hafa þrek á við þrautþjálfaða íþr- óttamenn. „Margir karldansarar æfa lyftingar til að halda styrk sín- um, auk þess sem það er ágætt til að öðlast góða tækni við að lyfta“, sagði Örn. Jafnræði kynjanna í dansinum Það stafar að sjálfsögðu af því að karldansarar eru meira not- aðir sem einskonar aðstoðar- menn ballerínanna þegar þær taka sín glæsilegu stökk, og það leiðir hugann að því hvort það sé ekki úr heldur litlu að moða fyrir karldansara miðað við kven- dansara. „Þetta er mikið að breytast. Síðan jazzballett og nútímaball- ett kom til sögunnar hefur tæki- færunum fjölgað mjög mikið. Það er skrifað jafnt fyrir bæði kynin.Enklassíski ballettinn gefur kvenfólkinu miklu fleiri tækifæri, það er rétt“. Þau í íslenska dansflokknum líta gjarnan á sitt starf sem brautryðjendastarf í íslenskum ballett, enda fyrsta fólkið sem hefur af dansinum fulla atvinnu. En er íslenskur ballett í framför? „Já, ég vona það. Við stefnum að minnsta kosti alltaf að því að næsta sýning verði betri en sú á undan og að áhorfendur sjái framför. Við erum ekki eingöngu í klassískum ballett, heldur einn- ig í jazzballet og nútímaballett, auk þess sem við tökum þátt í söngleikjum, og þetta eykur orðaforða dansaranna í dansin- um, ef ég má komast þannig að orði. Islenskir dansarar öðlast þannig miklu víðari yfirsýn en gengur og gerist sumsstaðar er- lendis þar sem algjör skipting er milli klassísks balletts og annarra tegunda. Sú ýfirsýn getur komið sér vel þegar fara á að semja“, sagði Örn að lokum. -GA Listdans er fajlegjjr Þjóðleikhúsið: Danssmiðjan. Listdanssýning íslenska dans- flokksins. Dansahöfundar: Ingibjörg Björnsdóttir, Nanna Ólafsdóttir og meðlimir dansflokksins. Tónlist: Gunnar Reynir Sveins- son, Leifur Þórarinsson, Þórir Baldursson Edvar Elgar, Aram Katsjatúrian og Jean Sibelius. Lýsing: Ingvar Björnsson. Svið og búningar: Guðrún Svava Svavarsdóttir. íslenski dansflokkurinn: Asdís Magnúsdóttir, Ásta Henriksdótt- ir, Birgitta Heide, Guðmunda Jó- hannesdóttir, Guðrún Pálsdóttir, Helena Jóhannsdóttir, Ingibjörg Pálsdóttir, Katrín Hall, Lára Stef- ánsdóttir, Ólafía Bjarnleifsdóttir, Friðrik Thorarensen, Haukur Klausen, Jóhannes Pálsson, Ólafur Ólafsson og Örn Guð- mundsson. Börn úr Listdansskóla Þjóðleikhússins. Mér finnst alltafjafn gaman að horfa á sýningar Islenska dans- flokksins. Það er ekki bara vegna þess að gaman sé að horfa á föngulegt fólk hreyfa sig uppi á sviði heldur vegna þess að vel gerður listdans er í eðli sínu fal- legur. Yfir hreyfingum dansins er seiðmögnuð formfegurð þar sem mannslíkamanum einum er beitt í beinni sjónrænni tjáningu. Það krefst að sjálfsögðu þess að dansararnir hafi nánast full- komið vald yfir líkamanum, búi yfir þeirri þjálfun og ögun sem áralangt nám og ástundun list- dans krefst. Ekki ætla ég að halda því fram að dansarar í íslenska dansflokknum séu fullkomnir, enda má nú fyrr gagn gera, en þeir hafa samt undravert vald á tjáningartæki sínu og það vald hefur sífellt verið að aukast í áranna rás. Þetta er eitt af því sem gerir listdansinn svona heill- andi, að dansararnir eru á plani sem maður getur alls ekki dreymt um að ná sjálfur, jafnvel þó menn séu ballettlegar vaxnir en ég, maður finnur til fullkominnar minnimáttarkenndar og getur kannski þessvegna gefið sig al- gjörlega á vald upplifunarinnar. Á sýningu dansflokksins sem eftir Gunnlaug Astgeirsson frumsýnd var á miðvikudags- kvöld, voru fjórir sjálfstæðir dansar. Fyrsta atriðið hét Dansbrigði og var samið af dönsurunum við tónlist eftir þá Elgar, Katsjatúri- an og Sibelius. Var hér um að ræða mjög fallegan klassiskan ballett sem veitti dönsurunum gott svigrúm til þess að sýna hvað í þeim býr. Annar dansinn heitir 20 mín- útna seinkun og er samin af Ingi- björgu Björnsdóttur við tónlist Gunnars Reynis Sveinssonar. Dansinn er einskonar svipmynd af því sem gerist í flugstöð þegar tilkynnt er um 20 mínútna seinkun. Þetta atriði var mjög fjölbreytt og fjörlegt og töluvert kómískt á köflum. Uppistaðan í tónlistinni voru stef úr alþekktum lögum tengd með djasslegum spuna og var hún oft harla kími- leg. Dansatriðin voru síðan í mjög skemmtilegu samspili við þau hugrenningatengsl sem tón- listin vakti. Þriðja dansatriðið nefndist Hvar? og er samið af dönsurun- um við tónlist eftir Þóri Bald- ursson. Síðasti dansinn á dagskránni heitir Largo y largo, saminn af Nönnu Ólafsdóttur við tónlist Leifs Þórarinssonar. Þessi dans er fremur hægur en ákaflega vel út færður og gerir í rauninni meiri kröfur til dansaranna en fjörlegri dansar. í dansinum er lýst ævi- skeiði mannsins frá æsku til elli. Hann hófst á einkar fallegu atriði þar sem dönsuðu einvörðungu börn úr Listdansskóla Þjóðleik- hússins og lokaatriðið var einnig þeirra. íslenski dansflokkurinn á tíu ára starfsafmæli í vor. Hann er fyrir löngu orðinn fullgildur og ómissandi þáttur í íslensku menn- ingarlífi. Hann hefur fram til þessa sífellt verið að vaxa að þreki og hæfni og bendir þessi- nýja sýning hans ekki til annars en að hann eigi fyrir sér bjarta framtíð ef ytri skilyrði hamla ekki viðgangi hans. Það er metnaðar- mál þjóðarinnar að búa vel að þessu agaða og vaxandi listafólki. Tíu ára afmælið er kjörið tækifæri til þess að skapa flokknum viðun- andi starfsaðstöðu, sem hann býr ekki við núna. Þeim sem ætla sér að sjá þessa ágætu sýningu skal bent á að drífa sig strax því ekki er gert ráð fyrir að hún standi oft til boða. G. Ást. Ur atriðinu 20 mínútna seinkun við tónlist Gunnars Reynis - fjölbreytt og fjörlegt, segir Gunnlaugur m. a. í umsögn sinni. f.ÞJÓOLEIKHÚSHl Garðveisla í kvöld kl. 20 Síðasta sinn Lína langsokkur laugardag kl. 15 uppselt sunnudag kl. 15 uppselt Jómfrú Ragnheidur laugardag kl. 20 Danssmiðjan sunnudag kl. 20 Næst síðasta sinn Litla sviðið: Tvíleikur sunnudag kl. 20.30 Fjórar sýningar eftir Súkkulaði handa Silju þriðjudag kl. 20.30. Miðasala 13.15-20. Sími 11200. LEiKFÉLAG REYKJAVÍKUR SÍM116620 Salka Valka sunnudag kl. 20.30 Forsetaheimsóknin föstudag Uppselt þriðjudag kl. 20.30 Skilnaður laugardag kl. 20.30 Jói aukasýning miðvikudag kl. 20.30 Miðasala í Iðnó kl. 14 - 20.30. HASSIÐ HENNAR MÖM MIÐNÆTURSÝNING í AUSTURBÆJARBÍÓI LAUGARDAG KL. 23.30 Miðasala í Austurbæjarbíói. Kl. 16 - 21. Sími: 11384. ||[~ÍSLENSKA ÓPERAN TÖFRAFLAUTAN föstudag kl. 20.00 Uppselt Sunnudag kl. 20.00 Uppselt Fáar sýningar eftir. Miðasalan er opin milli kl. 15 - 20.00 daglega. Sími 11475.

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.