Helgarpósturinn - 04.02.1983, Blaðsíða 14

Helgarpósturinn - 04.02.1983, Blaðsíða 14
14 Föstudagur 4. febrúar 1983 rieigai----- .pðsturinn Kaldar kveðjur Starfsmenn skipasmíðastöðvar í Suður-Afríku voru farnir að hafa áhyggjur þegar þriðja tilraunin til að sjósetja dráttarbátinn Voor- trekker mistókst. Báturinn vildi einfaldlega ekki niður. Rannsókn leiddi í ljós, að nokkrir starfsmenn, sem höfðu verið reknir úr vinnu skömmu áður, höfðu logsoðið bát- inn við dráttarbrautina áður en þeir yfirgáfu staðinn. Mikið skal til mikils vinna Maður nokkur í San José í Kali forníuhefur verið handtekinn og ákærður fyrir stórfelld trygginga- svik. Hann missti fótinn í bílslysi fyrir nokkru og fékk 200 þúsund dali í skaðabætur en var handtekinn þeg- ar kona nokkur gaf sig fram við lögregluna og sagði „bílslysið" hafa verið sviðsett og að hún hefði átt þátt í sviðsetningunni. Annar maður var handtekinn skömmu síðar eftir að konan hafði bætt því við játningu sína, að fóturinn hafi verið tekinn af með öxi áður en bíllinn var klessukeyrður. Steppað gegnum kreppuna Nú verður hægt að fara á stepp- dansi í gegnum kreppuna margum- töluðu. Allt og sumt sem þarf að gera er að fara í tíma í Dansaran- um, nýjum dansskóla Draumeyjar Aradóttur, sem er rekinn í Iðnaðarmannahúsinu í Hafnar- fírði. Draumey kennir hverjum, sem hafa vill, að steppa eins og gert var í Hollívúddmyndunum, sem stund- um eru sýndar í sjónvarpinu á laugardagskvöldum. Draumey varð danskennari hér heima áður en hún hélt „westur" til að sérhæfa sig í steppinu. Skólinn hennar, Dansarinn, starfar eftir nýju kerfi, sem byggist á því að í rauninni er aldrei verið að byrja með nýjan flokk: nýir nemendur eru alltaf velkomnir, segir Draumey. Það fer svo eftir þeim sjálfum hvenær þeir telja sig orðna nógu fótalipra til að sýna steppdansa sína opin- berlega. Innritun er á mánudögum og miðvikudögum kl. 17-20 íTónabæ og á þriðjudögum kl. 17-18 í Iðnaðarmannahúsinu í Hafnar- firði, þar sem kennsla fer fram. Upplýsingar eru veittar í síma 53007. Sænskir krakkar bálreiöír fyrir utan kvikmyndahús í Stokkhólmi. SVlAR VERÐA SÉR TIL ATHLÆGIS — og Danir fylgja i kjölfarið Sænskir krakkar eru bálreiðir þessar dagana vegna banns kvik- myndeftirlitsins þar í landi á sýn- ingum kvikmyndarinnar E.T. fyrir börn yngri en ellefu ára. Þessi kvik- mynd cr nú sýnd hér við góðar undirtektir og ckkert bann - en í Danmörku er hún bönnuð börnum yngri en sjö ára. Sænskir krakkar hafa safnast saman fyrir utan kvikmyndahús, þar sem myndin er sýnd, og mót- Meira rimlarokk Rúnar Þór Pétursson rimla- rokkari og félagar hans í hljóm- sveitinni 3. hæð hafa verið austur í Glóru í Hraungerðishreppi alla þessa viku við að hljóðrita sína fyrstu plötu, fjögurra laga. Rúnar hefur verið á þeysispretti allar göt- ur síðan Rimlarokk fanganna á Litla-Hrauni kom út í vetur og í stað þess að fylgjast með velgengn- inni úr fjarlægð hefur hann stofnað hljómsveit, sem heitir þessu undar- lega nafni, 3. hæð. Lögin fjögur og textarnir við þau eru öll eftir Rún- ar. Ólafur Þórarinsson, vélstjóri og forstjóri í hljóðverinu Nema í Glóru, situr við stjórnvölinn. mælt harðlega ákvörðun kvik- myndaeftirlitsins. Bera þau skilti, þar sem segir m.a.: Barnamyndir eru fyrir börn! Burt með ónauðsyn- lega ritskoðun! Burt með aldurs- takmörkin! og Við viljurn sjá E.T.! Bannið hefur vakið athygli um víða veröld. í Bandaríkjunum hef- ur ekki verið jafn ntikið talað um Svíþjóð og sænsk málefni síðan sænski flotinn var á kafbátaveiðum í Skerjagarðinum. Flestar sjón- varpsstöðvar vestra hafa sagt frá sænska banninu og hlutleysistónn fréttamanna hefur gjarnan mátt hverfa fyrir háði og spotti þeirra. A meðan er myndin um geimkarlinn Iitla sýnd um víða ver- öld. í Bandaríkjunum er E.T. allt að því þjóðhetja - og yfirgnæf- andi meirihluti barna þar í landi hefur séð myndína. Ómar Ragnarsson er engum líkur. Eða hvaða skemmtikraftur annar gæti hafíð skemmtun sína eftir miðnætti, þegar talsverður hluti 500-600 gesta er farinn að eiga í crfíðlcikum með að fylgjast með, svo kurteislega sé til orða tekið, og lagt salinn að fótum sér? Þeir eru miklu fíeiri, skemmti- kraftarnirsem taka ekki í mál að koma fram eftir klukkan ellefu. Þetta gerði Ómar engu að síður sl. laugardagskvöld, þegar Rolf Johansen og kompaní kynntu nýj asta umboð sitt, L’Oreal snyrti- og hárgreiðsluvörur á Hótel Sögu. Hárgreiðslukynningin hafði dregist nokkuð - stóð hátt á þriðja tíma - en Ómar lét það ekkert á sig fá heldur stökk fram á sviðið og reitti af sér brandara. Hann ímyndaði sér til dæmis hvernig brúðkaup þeirra Völu og Gunnars Thoroddsen hefði farið fram: Presturinn spyr Gunnar Dýrasti sígarettu- kveikjari í Jens H. Pedersen, skipstjóri á danska kapalskipinu Peter Faber, sem sjósett var og tekið í notkun fyrr í vetur, er sagður nota dýrasta sígarettukveikjara veraldar. Hann kostaði 85 milljónir danskra króna - og er „med et skib omkring“, eins og danskurinn segir. Jens H. Pedersen hefur síðan í október siglt skipi sínu um Norður- ■ sjó og norðanvert Atlantshaf og gert við sæstrengi. En hann fékkst ekki til að fara af stað fyrr en hann hafði fengið gerðar ýmsar lagfær- ingar á skipinu og stjórntækjum þess. Mesta áherslu lagði hann á að kveikjari yrði á góðum stað. - Þeg- ar ég kaupi nýjan bíl er alltaf síga- rettukveikjari í honum, sagði Pe- dersen við steinhissa yfirverkfræð- inginn. - Það getur ekki verið verra í svona fínu skipi. Og kveikjarann fékk hann. hvort hann vilji ganga að eiga þessa konu og svo framvegis. - Ja, sjáðu nú til, svarar dr. Gunnar. Aður en ég svara spurn- ingunni vil ég víkja að aðdrag- anda þessa máls... Þetta gerði feiknalega lukku. Og ekki var að heyra annað á fagfólki í hárgreiðslu og snyrt- ingu en að mikill fengur væri í L’Oreal snyrtivörunum. Þor- björg Höskuldsdóttir, sem kunn er sem „Doddý sem greiðir henni Vigdísi", sýndi nýjustu hár- greiðslutrixin ásamt fleirum og mátti þar sjá margt fagurlega skreytt höfuðið. heim Hættu að glotta! Það hlaut að koma að því. Nú er orðið hættulegt að brosa of mikið. Samtök bandarískra lækna, sem sérhæfa sig í lagfæringu andlits og munns, hafa gefið út tilkynningu um að brosmildi geti verið hættu leg. Hún geti orsakað ofþreytu í liða- mótum kjálkans og valdið miklum sársauka. Það eru sagðir vera stjórnmálamenn, flugfreyjur og leiðbeinendur á Dale Carnegie- námskeiðum, sem helst geta fengið sjúkdóminn... Jens Pedersen kafteinn not ar kveikjarann dýra um borð í kapelskipinu Peter Faber. Miniar um bine- mannaheimsókn? Hvað er það, sem er með tuttugu og tvo heila og lögreglan er ráðþrota yfír? Svarið er: stúdenta- garður nærri ríkisháskólanum í III- inois í Bandaríkjunum. Þar var einn stúdenta að þvo af sér sokka og nærföt nýlega þegar hann rak augun í hvítan plastpoka uppá hillu. Þegar hann kíkti í pokann kom í Ijós að innihald hans var heldur skelfílegt: 22 heilar í forma- líni. Lögreglan á staðnum er helst á því að um misheppnaðan brandara sé að ræða. „Það er augljóst að við getum ekki skilað heilunum til upphaflegra eigenda en við höfum mikinn áhuga á að skila þeim til réttra eigenda", er haft eftir lög- regluforingja þar. Amerískt tíma- rit stakk upp á að heilarnir yrðu sendir til Washington, þar væru á- reiðanlega einhverjir þingmenn, sem gætu notað þá.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.