Helgarpósturinn - 04.02.1983, Side 20

Helgarpósturinn - 04.02.1983, Side 20
20 Föstudagur 4. febrúar 1983 .-0S ’ar-—— stunnn^ Risið Fyrrverandi drykkjumenn komu upp dvalarstað fyrir fyrrverandi drykkju- menn: er stökkpallur Eitt af heimsmetum okkar ísiendinga er sagt vera i fjölda endurreistra ofdrykkjumanna - alkóhólista. Freeport og SAÁ eru tvö lykilorð sem allir þekkja. Flestir vita líka um Sogn, Silungapoll, Staðarfell í Dölum, meðferðar- stöðina að Vífilsstöðum og göngudeild fyrir áfengissjúklinga á Landspítal- anum. Á öllum þessum stöðum fá áfengissjúklingar meðferð sem er ætlað að hjálpa þeim til að hætta að drekka. Og árangurinn er talinn ganga kraftaverki næst. En að lokinni meðferð á slíkum stofnunum losna menn úr því verndaða umhverfi sem þær veita þeim. Á þeim tímamótum geta margir þeirra spurt sjálfa sig: „Hvað nú?“ Mörgum veitist erfitt að komast yfir þann þröskuld sem þá er yfir að fara. Takast á við lífið á ný. í rauninni eiga margir aðeins um tvennt að velja: Eiga á hættu að falla enn fyrir Bakkusi eða fá inni á öðru þeirra tveggja heimila sem er ætlað að styðja fyrrverandi drykkjufólk fyrstu sporin í nýju lífi - áfengislausu og oft líka einmana, eigna- og aðstöðulausu lífi. Annað þessara heimila hefur verið rekið á vegum borgarinnar í húsi við Ránargötu undanfarin sjö eða átta ár. Hitt er til húsa að Stakkholti 3 og nefnist Risið. Nafnið hefur loðað við heimilið frá því starfsemi þess hófst árið 1977 í risi í húsi við Brautarholt og flutti seinna niður í Tryggvagötu. Og þá eins og nú voru það einstaklingar, sem ráku heimilið; fyrrver- andi áfengissjúklingar sem höfðu farið í meðferð. Áttu i ekkert hús að venda Ólafur Grímsson geðlæknir á göngudeild Landspítalans hefur verið með í þessu frá byrjun. Ekki sem fulltrúi heilbrigðiskerfis- ins, heldur sem einstaklingur sem hefur áhuga á málefnum drykkjumanna. „Þetta byrjaði með því, að nokkrir menn sem höfðu verið í meðferð á Vífilsstöðum höfðu áhuga á að koma upp heimili fyrir menn sem áttu ekki í neitt hús að venda eftir veru sína þar. Ég kom inn í þetta nán- ast strax, því þeir höfðu samband við mig og spurðu hvort ég gæti verið þarna til aðstoð- ar ef eitthvað kæmi uppá og þeir þyrftu að leita til læknis", segir Ólafur við Helgar- póstinn. Síðan hefur hann verið í stöðugum tengsl- um við Risið, sækir þangað vikulega hús- fundi, sér um að afgreiða allar umsóknir um dvöl 'þar, er læknisfræðilegur ráðgjafi og situr í stjórn Líknarfélagsins Rissins, sem sér formlega um rekstur heimilisins. Segja má, að Jón Guðbergsson sjúkraliði og starfsmaður Félagsmálastofnunar Reykjavíkur.sé kominn inn í rekstur Rissins á svipaðan hátt og Ólafur - en úr „hinum enda“ heilbrigðiskerfisins. „Ég hef vitað af Risinu síðan það byrjaði í risinu. En þá hafði ég meira afskipti af því sem starfsmaður Félagsmálastofnunar. Það var ekki fyrr en heimilið flutti þaðan niður í Tryggvagötu og reksturinn var stokkaður upp, fjórum árum síðar, að ég varð „hús- maður“ og fór inn í stjórn Líknarfélagsins. En þá kom ég líka inn sem einstaklingur, ekki sem „kerfiskall", og það má kannski segja, að ég hafi troðið mér þarna inn, fyrst og fremst vegna þess mikla áhuga sem ég hef á þessum málum. Ég hef líka gagn af þeim í starfi mínu, get vísað skjólstæðing- um mínum í Risið eigi þeir í ekkert hús að venda“, segir Jón Guðlaugsson við Helgar- póstinn um tengsl sín við Risið. Og þeim ber saman um það, Ólafi og Jóni, að það sé einmitt afar mikilvægt fyrir heimilið að þar líti enginn á þá sem fulltrúa „kerfisins" né sérfræðingasem geti allan vanda leyst. Þeir koma þar sem einstak- lingar, og þeir sem búa í Risinu taka þá eins og hverja aðra félaga, enda sinna þeir þarna hugðarefni sínu endurgjaldslaust í frítíma sínum. „Er fyrírliði þessa hóps“ Risið hefur yfir að ráða 23 herbergjum, rúmgóðri setustofu, borðstofu og eldhúsi á þremur hæðum í annarri álmu þessarar stóru byggingar við Stakkholt, sem er í eigu Hampiðjunnar, og einni hæð í annarri álmu hússins. Þetta eru samtals um 1500 fermetr- ar. Þar ræður ríkjum Guðlaugur Sveinsson, sjálfur fyrrverandi drykkjumaður, mat- reiðslumaður að iðn. „Ég vil nú alls ekki kalla mig forstöðu- mann. Ég er bara fyrirliði þessa hóps, enda bý ég ekkert öðruvísi en þeir“, segir Guð- laugur við Helgarpóstinn, þegar við lítum inn til hans. Og mikið rétt. Herbergið hans er ekki öðruvísi en önnur herbergi að öðru leyti en því að þar er reiknivél á skrif- borðinu og bunkar af nótum og reikn- ingum. „Hér eru núna 24 menn, einum fleiri en við höfum eiginlega rúm fyrir, en á hinn bóginn höfum við tekið allt að 25 menn inn á heimilið. Það hefur verið mikil ásókn að komast hingað og við höfum ekki nándar nærri við; menn bíða vikum saman eftir plássi", segir Guðlaugur. Og hann heldur áfram: „Aðal atriðið er, að þetta er stórt heimili, ekki stofnun. Hér búa menn og stunda héðan vinnu meðan þeir eru að átta sig og venjast því að standa einir. Við gerum aðeins þær kröfur sem eru gerðar á öllum venjulegum heimilum. Þær eru fyrst og fremst í því fólgnar að menn geri grein fyrir sér ef þeir eru fjarverandi, láti vita af sér til að við þurfum ekki að hafa neinar óþarfa áhyggjur af þeim. Og að sj álf- sögðu bönnum við meðferð áfengis og ann- arra vímugjafa hér innan húss og gerum auk þess þá kröfu að menn mæti á húsfundum sem eru haldnir vikulega og komi einu sinni í mánuði á fund með heimilislækninum þar sem farið er yfir heilsu manna. Þeir sem biðja um að reglur séu hengdar upp eru að kasta ábyrgðinni á aðra. Varðandi dvölina hér setjum við engin tímamörk. Slíkt væri aðeins til að byggja upp kvíða hjá mönnum strax - það væri að byrja á öfugum enda. Það er einmitt ein- Það eru ekki margir sem halda Risinu gangandi: Frd vinstri eru Ólafur Grímsson lœknir, Jón Guðlaugsson, Þráinn Ingimund- arson, félagi í Líknarfélagi Riss- ins, og Guðlaugur Sveinsson yjyrirliði hópsins“ eins og hann kallar sig sjálfur. Fleiri eru þeir ekki!

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.