Helgarpósturinn - 04.02.1983, Síða 24

Helgarpósturinn - 04.02.1983, Síða 24
Reikningar Listahátíðar í /'1 Reykjavík fyrir 1982 voru ekki samþykktir á fulltrúa- ráðsfundi hátíðarinnar sem hald- inn var í síðustu viku. Þar var lagt fram endurbætt uppgjör frá Endur- skoðunardeild Reykjavíkurborg- ar, sem gert var að beiðni Davíðs Oddssonar borgarstjóra, en í bréfi til Bergs Tómassonar, borgarend- urskoðanda frá því í nóvember segir borgarstjóri m.a. að hann treysti sér ekki til að boða til full- trúaráðsfundarins fyrr en nánari upplýsingar og sundurliðun liggi fyrir á reikningum hátíðarinnar. í bréfinu, sem er all gagnrýnið á reikninga hátíðarinnar, segir borg- arstjóri að það „stingi mjög í augu“ að gjöld hennar hafi farið kr. 946,132 fram úr áætlun, þ.á m. ýmsir liðir sem ætla mætti að hægt væri að áætla býsna nákvæmlega fyrirfram, t.d. þóknun til lista- manna sem fer kr. 238,387 fram úr áætlun og uppihald 141,662 kr. fram úr áætlun sem þó hafi verið allrúm fyrir. f endurbætta uppgjör- inu sem lagt var fyrir í síðustu viku er samkvæmt beiðni borgarstjóra m.a. sundurliðaður kostnaður við uppihald einstakra listamanna, greiðslur til einstakra verktaka (129,000 rúml. fram úr áætlun) og við akstur sem fór 47,855 framúr áætlun („geysihá tala við ekki stærra fyrirtæki"). Þá segir borgar- stjóri að auglýsingar hafi „verið BÍLALEIGA Mesta úrvalið. Besta þjónustan. Skeifan 9, 108 Reykjavik s. 91-86915 Tryggvabraut 14, 600 Akureyri s. 96-23515 hömlulausar gjörsamlega", en þær fóru 255,000 framúr áætlun. Stað- fest er í uppgjörinu að tap hátíðar- innar nam kr. 750,941. Talsverðar umræður urðu um þessa reikninga á fundinum og það gagnrýnt hve víða kostnaður er umfram áætlun, jafnframt sem gerðar voru athuga- semdir við liði sem taldir voru ó- þarfir svo sem auglýsingasöfnun utan fasts starfsliðs hátíðarinnar. Niðurstaðan varð semsagt sú að reikningarnir voru ekki sam- þykktir.... Þótt Gunnar G. Schram gefi / 1 engar ákveðnar yfirlýsingar í S Helgarpóstsviðtali í dag um framboð sitt til næstu kosninga höf- um við það eftir áreiðanlegum heimildum, að hann hyggi einmitt á slíkt. Heimildir okkar segja, að hann sé þegar farinn að undirbúa þátttöku sína í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins í Reykjaneskjör- dæmi.... Úr heimi stjórnmálanna er / J það líka tíðinda, að á S miðvikudagskvöldið kom saman á Hótel Esju hópur 110-120 manna, sem stofnuðu með sér nýtt jafnaðarmannafélag, sem ætlunin er að sæki síðan um aðild að Bandalagi jafnaðarmanna Vil- mundar Gylfasonar. Á fundinum var kosin undirbúningsnefnd til að huga að drögum að reglum félags- ins og boða til næsta fundar, sem væntanlega verður í næstu viku. f nefndina voru kjörnir: Kristján Jónsson, Sigurjón Þorbergsson, Marinó Birgisson, Skæringur Hauksson og Agúst Einarsson,fyrr- verandi gjaldkeri Alþýðuflokksins og fjórði maður í prófkjöri Al- þýðuflokksins í Reykjavík í síðasta prófkjöri. Enn hefur þessu nýja fé- lagi ekki verið fundið nafn, en á fundinum komu upp margar til- lögur. Þar á meðal voru nefnd nöfn eins og Félag jafnaðarmanna, Landsfélag jafnaðarmanna, Landsmálafélag jafnaðarmanna, og eins var stungið upp á því að nota eitthvert allt annað nafn, sem væri í engum tengslum við jafnaðarstefnuna. Til að byrja með er nýja félaginu ætlað að vera landsfélag, en vitað er að víða um land eru í undirbúningi félög sem ætlað er að tengist bandalagi Vil- mundar. Þannig er vitað, að í Kópavogi verður jafnvel stofnað slíkt félag í næstu viku, og einnig hafa Húsvíkingar og Akureyringar hugsað sér til hreyfings. Ef af slík- um félagsstofnunum verður er ætl- unin að Reykjavíkurfélagið hætti að vera landsmálafélag.... Föstudagur 4. febrúar 1983 o STOPPAR LEKANN STRAX WATERPLUG Sementsefni sem þenst út viö hörönun og rýrnar ekki Viðgerðarefni sem stöðvar rennandi vatn Öruggur árangur AA N r inn V' u ttl !i steinpryði STHORO SYSTEM PRODUCI'S Steinprýöi Stórhöfða 16 sími 83340 - 84780 VT Eins og fram kemur í Inn- f~ J lendri yfirsýn Helgarpóstsins í V dag eru íslenskir stjórnmála- flokkar meira og minna allir í sár- um vegna úrslita prófkjara. Og ef þeir eru það ekki vegna úrslita prófkjara þá eru þeir það vegna þess að prófkjör höfðu ekki verið viðhöfð. Til dæmis er Eggert Haukdal síður en svo sæll með út- komu sína í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins á Suðurlandi og því varð hann hvumsa og hvekktur við þeg- ar formaðurinn, Geir Hallgrímsson hitti hann niðrí þingi í vikunni og sagði að bragði: - Óska þér til ham- ingju með árangurinn. Eggert svar- aði fúll: - Hann náðist nú án mik- illar aðstoðar frá Reykjavík. Og Geir, frekar fúll: - O, aldrei hef ég nú fengið sérstaka hjálp frá þér Eggert minn. Og skildu þar svo tveir prófkjörskandítatar, grautfúlir.... Eggert mun hafa rætt það undanfarið með sínu fólki að bjóða fram sérstaklega á Suðurlandi með sínum heima- mönnum eins og síðast, en þar er hins vegar svolítil fýla líka vegna þess að varamaður hans Siggeir Björnsson sagði sig óbundinn af yf- irlýsingum Haukdals. Einnig er orðrómur á kreiki um að stuðningsmenn Óla Þ. Guðbjarts- sonar og Guðmundar Karlssonar velti fyrir sér sérframboði. En þetta eru mest vangaveltur, enn sem komið er a.m.k.... Vangaveltur eru einnig hafnar varðandi eftirmann sigurveg- ara prófkjörsins, Þorsteins Pálssonar í stöðu framkvæmda- stjóra Vinnuveitendasambands ís- lands. Hafa heyrst nöfn gamalla starfsmanna VSÍ, eins og Brynjólfs Bjarnasonar, áður hagfræðings sambandsins en nú framkvæmda- stjóra Almenna bókafélagsins, og Baldurs Guðlaugssonar, áður lög- fræðings þess en nú starfandi lög- manns. Áf núverandi innanhúss- fólki er nefndur Þórarinn Þórarins- son, lögfræðingur. Þetta eru mest 15 • FOST VERÐTILBOÐ MEÐ UPPSETNINGUM • Margra ára reynsla, og afgreiöslufrestur 4—5 vikur • Lituð eik eöa Ijós fura. • Greiöslufrestur allt aö 7 mánuöir. HRINGIÐ OG VIÐ KOMUM OG HÖNNUM OPIO LAUGARDAGA kl. 9—4. ViT| X f| I llfjl mn mi mhljTjEEnjQjmS i [I i

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.