Helgarpósturinn - 22.04.1983, Side 7

Helgarpósturinn - 22.04.1983, Side 7
7 Þórir Steingrímsson og framkvæmdastjóri Islensku óperunnar undirrita leigusamning um afnot Revíuleikhússins af Gamla bíói. Revíuleikhúsið í Gamla bíó Revíuleikhusið er loksins komiö inn úr kuldanum. Um stundarsakir að minnsta kosti. Síðastliðinn mánudag var undirritaður leigu- samningur við íslensku óperuna um afnot af Gamla bíói fram eftir vori. „Gamla bíó er athyglisvert hús fyrir verkefni okkar, en við ráðumst ekki á garðinn, þar sem hann er lægstur, því þetta er dýrt húsnæði. Við ætlum að gera tilraun til að vita hvort fólk vill revíu í svona hús- næði“, sagði Þórir Steingrimsson hjá Revíuleikhúsinu í samtali við Helgarpóstinn. Þetta leysir þó ekki vanda Revíu- leikhússins né annarra frjálsra leik- hópa á höfuðborgarsvæðinu. Samningurinn við óperuna er að- eins gerður til eins mánaðar í senn, ef sambúðin skyldi ekki ganga. Þórir sagði þó, að viðræður hefðu farið fram við ýmsa aðila um fram- tíðarskipan húsnæðismála leik- hópanna, en ekkert hefði enn verið ákveðið. Revíuleikhúsið æfir nú af fullum krafti nýja íslenska revíu, sem hefur það einfalda nafn „Revían“ og er hún eftir mann, sem kallar sig Geir- harð markgreifa. Þar segir frá frjálsum leikhópi, sem er að æfa revíu, en allt gengur á afturfótun- um. Aðalhlutverkið er í höndum Ladda, en meðal annarra leikenda má nefna Pálma Gestsson, Örn Árnason og Kiartan Bjargmunds- son. Leikstjóri er Gísli Rúnar Jóns- son, leikmynd er eftir Steinþór Sigurðsson og tónlist er eftir Magnús Kjartansson. Frýmsýning er áætluð í kringum 5. maí. „Þetta er hundrað prósent revía með tónlist og gríni“, sagði Þórir Steingrímsson. Sigtún á föstudag: Rokk gegn hægri sveiflu „Þessum tónleikum er stefnt gegn hægri sveiflunni, sem nú er í gangi“, sagði Ásmundur Jónsson í samtali við Helgarpóstinn, en hann hefur ásamt Þorláki Kristinssyni undirbúið rokktónleika, sem haldnir verða í Sigtúni á föstudags- kvöldið. Tónleikar þessir bera yfirskrift- ina Við viljum ekki atvinnuleysi og þar verður leikið vinstra rokk. Þetta er þó ekki G-lista pæling. Fjölmargar hljómsveitir koma fram og er þar m.a. að finna vinsæl- asta rokkfólkið í dag. Bubbi og Egó leika, Tappi tíkarrass, Iss, Einars Arnar, Vonbrigði, Bylur og Bað- verðirnir, sem hefur að geyma lið úr Q4U. Aldurstakmark er 18 ár og verð aðgöngumiða er eitt hundrað krón- ur. Tónleikarnir hefjast kl. 21 og standa til kl. 02 eftir miðnætti. A eftir verður lauflétt diskótek. Gróf áferö — meira líf Þorbjörg Pálsdóttir sýnir höggmyndir á Kjarvalsstöðum „Það spyrja mig allir hvers vegna ég hafi höggmyndir mínar holar að innan og með grófri áferð; mönn- um finnst þær óhugnanlegar. En það vakir allt annað fyrir mér en að vekja óhugnað. Mér finnst grófa á- ferðin gefa meira líf en slétt“. Þetta sagði Þorbjörg Pálsdóttir myndhöggvari í samtali við Helgar- póstinn, en Þorbjörg opnaði högg- myndasýningu á Kjarvalsstöðum á sumardaginn fyrsta. Sýningin ber yfirskriftina Börn að leik og eru þar 18 höggmyndir, eintóm börn og ein ófrísk kona. Myndirnar eru gerðar á síðustu ár- um utan tvær, sem Þorbjörg gerði fyrir þrem árum. Höggmyndir Þorbjargar eru all- ar í fullri stærð og hún byrjar vinn- una á því að móta likamsstellinguna í vír. Síðan vefur hún blautu gifs- bandi utan um vírinn. Að lokum klippir hún niður glerræmur, sem dýft er í pólýester og vefur þeim ut- an um gifsið, og myndin er tilbúin. Þorbjörg hefur stundað högg- myndagerð um langt árabil. Hún bjó 16 ár r Svíþjóð, þar sem hún var við nám og vinnu. Þá hefur hún stundað nám hér heima hjá As- mundi Sveinssyni, Sigurjóni Ólafs- syni og Jóhanni Eyfells, sem nú er prófessor vestur í Bandaríkjunum. í tengslum við sýninguna kemur út bók um Þorbjörgu og verk henn- ar. í bókina rita greinar um lista- konuna þeir Ernir Snorrason sál- fræðingur og Jóhann Eyfells pró- fessor, og eru greinarnar á íslensku, frönsku og ensku. Útgefandi er Listhús. Neöanjaröarlest og tískuljón — Nýstárleg leiksýning á Hótel Borg „Hótel Borg hentar ágætlega fyrir uppákomu af þessu tagi,“ sagði Lárus Ýmir Óskarsson. Upp- ákoman er sýning Alþýðuleik- hússins á leikritinu Neðanjarðar- lestin eftir Imamu Amiri Baraka + jass-tónlist sem Tískuljónin, eða Quartetto di Jazz, leika bæði fyrir og eftir sýninguna. Imamu Amiri Baraka er betur þekktur undir nafninu Leroy Jones, þó hann vilji nú ekkert við það kannast. Hann er bandarískur svertingi og kom fram á sjónar- sviðið sem leikritahöfundur fyrir rúmum tuttugu árum og bar þá Leroy nafnið. Hann fjallaði mjög um hlutskipti svartra Bandaríkja- manna í verkum sínum, þótti vera herskár nokkuð og er fram liðu stundir tók hann sér nafnið Imamu og svo framvegis, í því skyni að vera trúr afrískum uppruna sínum. Leikritið Neðanjarðarlestin var frumsýnt fyrir tuttugu árum og fékk þá verðlaun sem besta nýja leikritið i Bandaríkjunum. Leikarar eru aðeins tveir; Guð- rún Snæfriður Gísladóttir leikur hvíta konu, en Sigurður Skúlason er í hlutverki ungs blökkumanns. Þau hittast af hreinni tilviljun í klefa neðanjarðarlestar og taka upp hjal sem í meðförum Leroy Jones - af- sakið, Imamu Amiri Baraka verður táknrænt fyrir samskipti, og um leið átök, hvítra og svartra í guðs eigin landi. Gengur á ýmsu og verða lesendur og væntanlegir sýningar- gestir ekki upplýstir um endalokin hér. Lárus Ymir sagði að leikritið þætti afar gott, það væri vel skrifað og magnað, auk þess að varpa ljósi á fyrrgreind kynþáttaátök. Lárus Ýmir er, meðal annarra orða, leik- stjórinn. Og svo er það jassinn-Gert er ráð fyrir að dagskrá Alþýðuleikhússins hefjist á að giska klukkan níu á kvöldin og þá með því að hljóm- sveitin Tískuljónin leiki jass; am- erískan jass svertingja, að sjálf- sögðu. Tískuljónin er hljómsveit sem var mynduð sérstaklega í tilefni sýningarinnar og er nafnið fengið úr leikritinu. Það mun vera Tómas Sigurður og Guðrún á æfingu á Neðan- jarðarlestinni... R. Einarsson sem er aðalsprauta Tískuljónanna, sem einnig nefna sig Quartetto di Jazz upp á ítölsku. Eftir að þau ljónin hafa lokið leik sínum hefst svo sjálft leikritið en það er fremur stutt og tekur ekki nema rúmar fjörutíu mínútur. Að því loknu koma Tískuljónin aftur fram og Ijúka kvöldinu. Eins og menn vita hefur Alþýðu- leikhúsið verið á hrakhólum und- anfarið en hefur fengið inni á Hótel Borg, að minnstakosti um stundar- sakir. Neðanjarðarlestin hefur ferð sína þar næstkomandi mánudags- kvöld, þann 25. apríl. Tveir glataðir snillingar Eins manns stríðsvél - í_ petta sirm Þrumur og eldingar (Creepshow). Bandarísk kvikmynd, árgerd 1982. Handrit: Stephen King. Leikendur: Hal Holbrook, Adrienne Barbeau, Leslie Nielsen, Carrie Nye, Viveca Ltndfors, E.G. Marshall, Stephen King EdHarris. Leikstjóri: GeorgeA. Romero. ' George A. Romero er einn fremsti hryllingsmyndasmiður Ameríku og hefur- m.a. gert eitt meistaraverk, sem er Night of the Living Dead. Stephen King er frægur hrollvekjuhöfundur og á að baki bók eins og Shining, sem margir kannast við. Sem sagt tveir góðir. Að óreyndu mætti því halda, að hér væri á ferðinni toppmynd. Svo er þó ekki, því miður. Romero sýnir þó og sannar að hann getur haft mjög næmt skyn fyrir hryll- ingsmyndum og þeim brellum,, sem þar gefast vel, eins og t.d. alls kyns dularfullum hljóðum. Hann kann sitt fag. Handrit Stephen King er hins vegar ekki eins gott, hryllingurinn er allt of áþreifan- legur, og þegar manni hefur brugðið einu sinni, bregður manni ekki aftur. Þrumur og eldingar er að því leytinu óvenjuleg mynd, að í stað einnar langrar sögu koma fimm stuttar og umgjörðin um þær er ungur piltur, sem í leyfisleysi les eitt af þessum gömlu góðu hasar- blöðum, þar sem sögurnar lifna við. Það var yfirlýstur tilgangur höfunda, að gera jafnframt gamanmynd og svo fyndna að áhorfandinn öskraði af hræðslu í staðinn fyrir að hlæja. Eitt er víst, að aldrei er hægt að hlæja og varla brosa. En viðkvæmir fá sjálfsagt gæsahúð einu sinni til tvisvar. Og þá fá þeir nokk fyrir sinn snúð. Tæplega hinir. -G.B. Regnboginn: I greipum dduðans (First Blood) Bandarísk. Argerð 1982. Handrit: Michael Kozoll, William Sackheim, Sylvester Stallone, eftir skáldsögu David Morell. Leiksljóri Ted Kotcheff. Aðalhlutverk: Sylvester Slallone, Brian Dennehy, Ridhard Crenna, Jach Slarreit. Hvað gerist þegar þrautþjálfað- ur, löggiltur vígamaður úr her- sveitum Sáms frænda í Víetnam lendir uppá kant við helgar- hermenn úr lögregluliði smábæj- ar heima í Ameríku? Svarið fæst í myndinni First Blood. Myndin er að frádregnu fyrsta korterinu einn samfelldur skæruhernaður Sylvester Stallorie gegn því væru- kæra en ruddafengna samfélagi sem ól hann og gerði úr eins manns stríðsvél. Þegar þessi stríðsvél er stuðuð má verksmiðj- an biðja guð að hjálpa sér. Þetta er ágætlega gerður hasar, ekki sérlega frumlegur að efni en skemmtilega útfærður. Kanda- díski leikstjórinn. Ted Kotcheff sýnir að hann er býsna fjölhæfur fagmaður með jafn ólíkar myndir og The Apprenticeship of Duddy Kravitz og North Dallas Forty að baki. Og Sylvester Stallone, jafn þykkur og freðinn leikari og hann er, þjónar hér mjög þokkaiega hlutverki sínu. Aukaleikarar gera vel við sín hlutverk og gaman að sjá B—myndaleikstjórann Jack Starrett spreyta sig á leik sem löggutuddi sem reyndar drepst heldur snemma. First Blood er sumsé góð af- þreying fyrir þá sem unna hörku- legum hasar. Sem umfjöllun um það hversu stríð er mikill ábyrgð- arhlutur er myndin hins vegar ekki mikið marktækari en of- beldismyndir eru yfirleitt. —ÁÞ. Jack Starrett þjarmar að Sylvester í First Blood

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.