Helgarpósturinn - 22.04.1983, Blaðsíða 9

Helgarpósturinn - 22.04.1983, Blaðsíða 9
.þösturinn. Föstudagur 22. arpíl 1983. 9 Þegar lygamúrjnn hrvnur Þjóileikhúsid: Grasmabkur eftir Birgi Sigurðsson. Leikstjóri: Brynja Benediktsdóttir. Leikmynd og búningar: Ragnheiður Jónsdóttir^ Lysing: Arni Baldvinsson. Leikendwr: Margrét Guðmundsdóttir, Gísli Alfreðsson, Sigurður Sigurjóns- son, Halldóra Geirharðsdóttir/María Dís Cilia, Hjalti Rögnvaldsson. Til hliðar á dökku og drunga- legu sviði, stásstofu á velmegandi heimili iðnrekandans, stendur rauður plussstóll í einhverskonar rókókóstíl og stingur mjög í stúf við þungan og klunnalegan hús- búnaðinn umhverfis. I rauða plussstólum situr miðaldra kona í rauðum velúrfötum, grafkyrr að öðru leyti en því að hún kreppir i sífellu fingurna og réttir úr þeim. Konan er greinilega búin að fá sig fullsadda á því lífi sem hún lif- ir. Drungalegt umhverfi hennar á sviðinu er táknrænt fyrir líf henn- ar sem einhver mara hvilir yfir og Svo lítur út um tíma að konan standi eftir sigri hrósandi, en það líf sem hún hefur átt hefur eytt henni svo að eftir að það hefur verið gert upp megnar hún ekki að halda áfram. Systursonur konunnar og dótt- irin á heimilinu eiga sér hinsvegar lífsvon en ekki fyrr en þau hafa losað sig við tálsýnir og blekk- ingardrauma. Dóttirin komst að því að draumurinn sem hún hefur átt um gott líf með sinni fögru og góðu móður, fyrri konu manns- ins, er blekking. Systursonurinn er að ná sér eftir sjálfsmorðstil- raun sem hann gerði eftir ástar- sorg, en hefur nú öðlast nýja trú á lífið, þó að hann sé ekki með öllu laus við blekkingar. Hann er einnig í verkinu sá sem hlustar á aðra er mestanpart hlutlaus en verkar samt sem hvati á atburða- rásina. Grasmaðkur er fjórða leikrit Birgis Sigurðssonar. Hin eru Pét- ur og Rúna, Selurinn hefur grafið í fortíð aðalpersónanna og höfundur kann vel þá list að tína það fram í hæfilegum skömmtum og skapar þannig bæði spennu og eftirvæntingu. Því ekki eru öll kurl komin til grafar fyrr en rétt undir lokin og endirinn verður einnig óvæntur. Leikstjórinn nýtir sér vel breidd sviðsins í Þjóðleikhúsinu til þess að leggja áherslu á fjarlægðina milli hjónanna og verður oft í sýningunni skemmtilegt sjónrænt spil í hreyfingum leikaranna um sviðið. Túlkun leikstjórans sýnist mér ganga i þá átt að gera per- sónurnar að „venjulegu fólki“ e.t.v. venjulegra fólki en textinn gefur endilega tilefni til. Margrét Guðmundsdóttir leik- ur konuna. Þetta er vandasamt og erfitt hlutverk og gerir Margrét þvi að mörgu leyti góð skil, en ég get ekki að því gert að mér fannst vanta nokkra dýpt í persónuna. Gísli Alfreðsson leikur mann- inn og er það hlutverk ekki eins Grasmaðkur í Þjóðleikhúsinu ann — vel saman sett leikrit sem á brýnt erindi við samtím- fjölþætt og konan, a.m.k. framan af leiknum. Gísli skapaði skýra mynd af þessum manni og náði mjög vel að túlka yfirborðs- mennsku hans og sjálfbirgings- hátt ekki síður en lítilmótleikann sem undir býr og seinna kemur í ljós. Sigurður Sigurjónsson skilaði býsna góðri mynd af frænda konunnar og ofnotaði ekki tæki- færi til skopfærslu. Tvær ungar stúlkur skipta með sér hlutverki dótturinnar og fór Halldóra Geirharðsdóttir með það á frumsýningu. Hún var sannast sagna sérdeilis hress í hlutverki táningsins og var gaman að sjá svo unga stúlku spjara sig jafn vel á sviðiriu. Hjalti Rögnvaldsson brá upp lítilli en traustri svipmynd af bróðurnum sem kom heim. Dæmisagan um grasmaðkinn sem verður að fiðrildi sé hann ekki troðinn niður er oft sögð í þessu leikriti. Það fer að vísu öllu meir fyrir þeim sem eru troðnir niður eða troða sig niður en hin- um sem verða að fallegum fiðrild- um. Það er æskan sem á sér þessa von. Það fer ekkert á milli mála að höfundur á brýnt erindi við nú- tímann og samlanda sína hér og nú. Er ekki einmitt nú við þessar kosningar sem sú kynslóð»sem lifað hefur við lífslygi og blekk- ingu, eftirsókn eftir vindi og því sem mölur og ryð fá grandað, er að skila þrotabúi sínu í hendur næstu kynslóðar og unga fólkið skal heldur betur passa sig á því að verða ekki lífslyginni og blekk- ingunni að bráð. G.Ást. stóllinn sem hún er föst í er jafn mikið stílbrot á sviðinu eins og draumur hennar um líf er í því lífi sem hún lifir. Maðurinn sem konan á er pabbadrengurinn sem erfði fyrir- tæki pabba og byggði það upp með honum. Hann hefur allt sitt líf reynt að þóknast pabba og líkj- mannsaugu og Skáld-Rósa. Ef ég man nógu vel þá voru fyrstu tvö leikritin Ijóðræn og táknsæ, en um leið raunsæisleg ádeila á lífs- gæðakapphlaup og hlutadýrkun nútímaþjóðfélagsins þar sem mannleg verðmæti eiga fullkom- lega í vök að verjast. í báðum verkunum er eindregin boðun ast honum. Hann var því áður sundkappi eins og pabbi og á eitt Viðeyjarsund að baki. Hann er einstaklega ánægður með sjálfan sig, er eiginlega fullkominn eða því sem næst að eigin áliti. En hann er ekki heill. Hann hefur úti- lokað frá vitund sinni allt sem er honum óþægilegt úr fortíðinni, það er, eins og hann segir, bannað að minnast á yngri bróður hans og fyrri konuna á heimilinu, og það er ýmislegt fleira sem ekki þolir dagsins ljós. Nú hefur konan komist að nokkru um hann sem hún vissi ekki áður og bróðir hans er kom- inn til landsins eftir margra ára útivist. Það er því farið að hitna æði mikið undir fótunum á manninum. Hann er neyddur til þess að standa augliti til augliti við sjálfan sig og sitt fólk svo að lífslygi hans hrynur til grunna og hann stendur berskjaldaður og lítilmótlegur eftir. annarskonar lífs, draums um fá- brotið líf þar sem mannleg verð- mæti fá að njóta sín. í Skáld-RÓsu er lögð mun meiri áhersla á per- sónuna sjálfa, sálarlíf hennar og eiginleika frekar en samfélags- lýsinguna. Rósa er manneskja sem gengur með mannlegri reisn gegnum líf sitt þó hún eigi mjög í vök að verjast. Mergurinn málsins er sá að hún er heil í sjálfri sér og sínu lífi sem er meira en hægt er að segja um flesta sem í kringum hana eru. Að þessu leyti er skyldleiki með Skáld-Rósu og Grasmaðki, því þar er einmitt meginatriði um- fjöllunarinnar spurningin um að vera heill eða ekki eða réttara sagt hvaða afleiðingar það hefur að vera óheill gagnvart sjálfum sér. Grasmaðkur- er að mínu áliti mjög vel saman sett leikrit. Per- sónurnar eru fáar en skýrar, sam- tölin eru mjög lifandi og eðlileg. Það er margt sem liggur djúpt llíóill ★ ★ ★ ★ framúrskarandl' ★ ★ ★ ágat ★ ★ gáft ★ þolanleg Q léleg Háskólabíó: Leitin að eidinum (La Guerre du Feu). Frönsk-kanadísk kvlkmynd, árgerð 1981. Leikendur: Rae Dawn Chong, o.fl. Leikstjóri: Jean- Jacques Annaud. Bráðskemmtileg mynd um hvernig forfeður okkar fóru að því aö leita að eldi, elskast, og margt fleira. Ný- bakaður óskarsverðlaunahafi, sem átti aö taka hér á landi. Sýnd.kl. 7. Húsiö-Trúnaðarmál. fslensk kvik- mynd, árgerð 1983. Handrit: Björn Björnsson, Snorri Þórisson og Eglll Eðvarðsson. Leikendur: Lilja Þóris- dóttir, Jóhann Slguröarson, Þóra Borg, Helgl Skúlason, Róbert Arn- flnnsson, Brfet Héðlnsdóttlr. Leik- stjórl: Eglll Eðvarðsson. Húsið er vönduð spennumynd, sem vafalaust á eftir að höfða til margra. Hún bervitni um meiri fagkunnáttu en aðrar islenskar myndir til þessa. Meö skáldlegum neista I mótun viöfangs- efnisins heföi hún oröiö verulega eftirminnileg. — Á.Þ. Bíóbær: Heitar Dallasnætur (Hot Dallas Nights). Bandarfsk kvikmynd, ár- gerð 1981. Leikendur: Hiliary Summer, Raven Turner, Tara Flynn, Leikstjóri: Tony Kendrick. J.R. og félagar skemmta sér á heitum sumarnóttum. Very hot. Bíóhöllin: * Þrumur og eldingar. — sjá umsögn í Listapósti Prófessorinn (Nothing Personal). Bandarisk kvikmynd, árgerð 1981. Leikendur: Donald Sutherland, Suzanne Somers, Lawrence Dane. Leikstjóri: George Bloomfield. Sutherland er i aðalhlutverki prófes- sors, sem getur ekki neitað neinum um neitt. Dag nokkurn er hann beö- inn um að fara til Washington og mót- mæla byggingu flugvallar. Þá lendir hann heldur betur i ævintýrum. Njósnari leynfþjónustunnar (The Soldier). Bandarfsk kvikmynd. Leikendur: Ken Wahl, Alberta Wat- son, Klaus Klnski, William Prince. Leikstjóri: James Gllckenhaus. Bondstællinn á fullu og má Bond sjálfur fara að vara sig. Ævintýri og ' hasar á milli Cia og Kgb. Leikurinn berst um allan heim eins og vera ber. Allt á hvolfi (Zapped). Bandarfsk kvikmynd. Leikendur: Scott Baio, Wlllie Ames, Robert Mandan, Felice Schachter. Lelsktjóri: Robert J. Rosenthal. v ** ‘ Amerfskur varúlfur f London (Amerfcan Warewolf in London). Bresk-bandarísk árgerð 1981. Leik- endur: Jenny Agutter, David Naughton. Leikstjórl: John Landls. Lltll lávaröurlnn (Llttle Lord Faun- telroy). Bresk kvlkmynd. Lelkend-. ur: Ricky Schroeter, Alec Guinness. Hugljúf barnamynd um litinn lávarö, sem hittir stóran. Fram f sviðsljósiö (Being there). Bandarisk kvikmynd með Peter Sell- ers. *** Regnboginn: I greipum dauöans. — sjá umsögn i Listapósti. ** Drápssveitln (Zebra Force) Banda- rísk kvikmynd. Leikendur: Mike Lang, Richard Scatty. Þjófnaöur, á- tök og væntanlega eltingarleikur við lögguna. Hörkuspenna bönnuö börn- um. Síðasta ókindin (Last Jaws). Banda- rísk-ftölsk kvikmynd. Leikendur: Hames Franciscus, Vic Morrow. Ó- kindin lætur ekki aö sér hæöa, en viö getum þó huggaö okkur viö, aö þetta er sú síðasta. Syndum óhrædd á morgun. Frægðarverkið (Something Big). Bandarfsk kvfkmynd, árgerð 1971. Leikendur: Dean Martin, Brlan Keith, Honor Blackman, Leikstjóri: Andrew V. McLaglen. Dean Martin leikur vondan glæpamann f villta vestrinu f kringum 1870. Erlendir dómar eru fremur neikvæðir, en viö dæmum fyrir okkur sjálf. Laugarásbíó: *** Týndur (Misslng). Frönsk-banda- rfsk, árgerð 1982. Leikendur: Jack Lemmon, Sissy Spacek. Leikstjóri: Costa Gavras. Gráttu ekki, þetta er aðeins elding (Don’t Cry, It’s only Thunder). Bandarfsk kvikmynd, árgerð 1981. Lelkendur: Dennls Christopher, Susanne Salnt George. Leikstjóri: Peter Wemer. Vletnam undir lok 7 áratugarins og stríðiö i fullum gangi. Ungur banda- rískur hermaður stelur öllu steini léttara og selur á svörtum markaði. En dag nokkurn tekur hann svo upp á þvi aö hjálpa nunnu, sem annast munaðarlaus börn. Þeir eru góðir strákarnir. Kl. 5 og 9. Stjörnubíó: Tootsie. Bandarfsk kvlkmynd, ár- gerö 1982. Leikendur: Dustln Hoff- man, Jessica Lange. Lelkstjórl: Sidney Pollack. Hoffamn leikur at- vinnulausan leikara. Til þess að bjarga málunum setur hann á sig gervibrjóst og rass og fær hlutverk. Síðan verður hann/hún vinsæl(l) og ástfangin(n). Flækja. Frumsýnd á laugardag. Geimstöð 53 (Adroid). Bandarfsk kvikmynd, árgerð 1982. Lelkendur: Klaus Klnski, Don Opper, Norbert Weisser. Leikstjórl: Araon Llpstadt. Hasar og daglegt líf um borð í geim- stöö einhvers staöar lant uppi á himn- inum. Kinski er alltaf skemmtilegur. Saga heimslns 1. hlutl (Hlstory of the World — Part 1) Bandarfsk. Ar- gerö 1981. Handrlt og leikstjórn: Mel Brooks. Aöalhlutverk: Mel Ðrooks, Dom DeLouise, Madeleine Khan, Harvey Korman. * Nýja bíó: Diner. Bandarisk kvikmynd, árgerö 1982. Lelkendur: Steve Guttenberg, Daniel Stern, Mickey Rourke, Kveln ’ Bacon. Handrit og stjórn: Barry Levlnson. Fimm gamlir vinir og daglegt lif þeirra. Vandamál i hjónabandi, hjú- skaparhugleiðingar, veðmál og fleira og fleira. Bráðhugguleg gamanmynd um alvöru lífsins. Tónabíó: Nálaraugað (Eye of Needle). Bresk kvikmynd, gerð eftir samnefndri skáldsögu Ken Follet. Lelkendur: Donald Sutherland, Kate Nelligan, lan Bannen. Lelkstjóri: Richard Marquand. Síöari heimsstyrjöldin er í algleym- ingi. Nálaraugaö er dulnefni á þýsk- um njósnara. Hann kemur næstum upp um mikið leyndarmál banda- manna. Hörkuspenna. Austurbæjarbíó: *** Á hjara veraldar. Islensk kvikmynd, árgerð 1983. Leikendur: Arnar Jónsson, Helga Jónsdóttir, Þóra Friðriksdóttir. Handrit og stjórn: Kristin Jóhannesdóttir. Á hjara veraldar er ótrúlega þaul- hugsað verk, — í smáu og stóru. Kristin leikur sér i tima og rúmi og dregur fram fjórar megin vlddir kvik- myndalistarinnar með sérkennilegri hætti en ég minnist aö hafa sóö áöur á hinu hvita tjaldi — mynd, texta, hljóö og leik.. Hreinn galdur i lit og cinemaskóp. Bæjarbíó: ** Harkan sex (Sharky’s Machlne). Bandarisk, árgerð 1982. Leikendur: Burt Reynolds, Rachel Ward. Lelk- stjórl: Burt Reynolds. Lögreglu- foringi, háklassahóra og eiturlyf, á- samt pólitík. Oft býsna snaggaraleg ög skemmtileg. Samt ekki nógu. MÍR-salurinn: Trúnaður. Sovésk kvikmynd, árgerð 1977. Leikendur: Kirill Lavrov, Margarita Terkhova, Irina Miros- hnltsenko. Leikstjóri: Viktor Tregu- bovits. Finnar fengu fyrirheit um fullt sjálfstæöi i kjölfar Októberbyltingar- innar, en þegar sendinefnd þeirra kemur til Rússlands til aö óska eftir formlegri fullveldisviöurkenningu, kemur babb i bátinn. Bréf hennar er nefnilega stilaö á vitlausa aöila. Sýnd á sunnudag kl. 16. Öllum heimili ó- keypis aðgangur. viMiiinVir Hótel Loftleiðir: Á laugardag kl. 14 hefst kvikmynda- hátíð Samtaka áhugamanna um kvik- myndagerð. Keppt veröur til verð- launa í tveim aldursflokkum, 20 ára og eldri og yngri en 20 ára. Sigur- myndirnar verða sýndar i norrænni samkeppni, sem haldin veröur hér á landi i sumar. tónllst Norræna húsið: Á laugardag kl. 13 heldur finnski bari- tónsöngvarinn Matti Tuloisela fyrir- lestur um helstu söngverk og tón- skáld Finna og skýrir mál sitt með tón- dæmum. Á laugardag kl. 15 heldur svo finnski píanóleikarinn Gustav Djupsjöbacka fyrirlestur um finnska óperu og skýrir hann einnig mál sitt með tóndæmum. Sigtún: Rokk gegn atvinnuleysi á föstudag- inn kl. 21—02. Þeir, sem leika eru Egó, Tappi tlkarrass, iss, Vonbrigði, Bylur og Baðverðirnir. Aögöngumiði kostar kr. 100 og aldurstakmarkið er 18 ár. Menningarmiðstööin í Breiðholti: Slmon Ivarsson og Arnaldur Arnars son halda gitartónleika á sunnudag kl. 17. Leikin verða verk eftir Haydn, Mozart og fleiri.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.