Helgarpósturinn - 22.04.1983, Side 10
10
‘^WÓÐJ.EIKHÚStéi
Grasmaðkur
Blá aðgangskort gilda.
4. sýning föstudag kl. 20.
5. sýning laugardag kl. 20.
Lína langsokkur
sumardaginn fyrsta kl. 15.
Uppselt.
laugardag kl. 12.
sunnudag kl. 15.
Jómfrú Ragnheiður
sumardaginn fyrsta kl. 20
sunnudag kl. 20.
Síðasta sinn.
Litla sviðið:
Súkkulaði handa Silju
sumardaginn fyrsta kl. 20.30
Miðasala kl. 13.15—20.
Sími 11200
. LEiKFÉlAG
REYKjAVÍKUR
•- SÍM116620
Skilnaður
í kvöld kl. 20.30
laugardag kl. 20.30
Guðrún
10. sýn. fimmtudag kl. 20.30
Bleik kort gilda
sunnudag kl. 20.30
Salka Valka
60. sýn. föstudag kl. 20.30
fáar sýningar eftir.
Miðasala í Iðnó kl. 14—20.30
Óperetta
Næsta sýning föstudag kl.
20.00
Ath.: Breyttan sýningartíma.
Miðasalan er opin milli kl.
15.00—20.00 daglega.
Sími 11475.
hlelgai---------
Föstudagur 22. apríl 1983 Qosturínn
Það er sálin sem blífur
The Undertones - The
Sin Of Pride
Hljómsveitin The Undertones
kemur frá Derry á Norður-Irlandi
og er reyndar vinsælasta hljóm-
sveit sem þaðan hefur komið frá
því um miðjan sjöunda áratuginn,
þegar Them voru upp á sitt besta,
með Ván Morrison í broddi fylk-
ingar.
Undertones slógu fyrst í gegn
árið 1978 með laginu Teenage
Kicks en á eftir komu hvert vin-
sælt lagið á fætur öðru. Þetta
voru lög eins og Fa'mily Entertain-
ment, Here Comes The Summer,
Jimmy Jimmy, My Perfect Cousin
eftir Gunnlaug Sigfússon
og Wednesday Week. Því miður er
ég hræddur um að heldur fáir
kannist við þessi lög hérlendis, því
þau eru þeirrar gerðar sem land-
inn flokkaði undir pönk og neðar
var nú varla hægt að komast í tón-
listarsköpun að mati íslendinga á
þessum tíma. í raun eru lög þessi,
þó undir pönk áhrifum séu,
ekkert annað en hörð popplög og
það af betri gerðinni.
Þess ber einnig að geta að tvær
fyrstu breiðskífur hljómsveitar-
innar fóru inn á topp tíu í Eng-
landi.
Árið 1981 stofnaði hljómsveitin
sitt eigið útgáfufyrirtæki,
Ardeck.og sattað segja bjuggust
menn við að vinsældir þeirrs
myndu nú frekar aukast en hitt..
En margt fer á annan veg en ætlað
er. Mörgum brá heldur en ekki í
brún þegar næsta litla plata
þeirra, sem lagið It’s Going
To Happen var aðallagið á, kom
út. Hljómlist þeirra var gjörbreytt
og nær óþekkjanleg frá því sem
áður hafði verið. Lag þetta fór
aldrei hærra en í 18. sæti vinsæld-
arlistans, þrátt fyrir einróma lof
gagnrýnenda, og það þótti engan
veginn nógu gott, þar sem allar
fyrri plötur þeirra höfðu selst
mun betur.
Á eftir litlu plötunni fylgdi svo
stór plata, sem ber heitið Positive
Touch. Þeir sem vit þóttust hafa á
voru nær allir sammála um að
þetta væri það lang besta sem frá
hljómsveitinni hefði komið, en
aftur skellti almenningur skolla-
eyrum við lofmælum gagnrýn-
enda. Platan komst í 17. sæti vin-
sældarlistans en hvarf þaðan
fljótlega aftur og eiginlega
gleymdist. Enginn virtist vilja vita
af Undertones og þeir urðu að
hætta við hljómleikaferð, sem
þeir fóru í um þessar mundir, því
áheyrendur létu bara ekki sjá sig.
Frá því að þetta var eru nú liðn-
ir um það bil 18 mánuðir og eng-
inn virðist hafa saknað Under-
tones, sem þó hefði verið full
ástæða til að gera, miðað við fyrri
afrek þeirra. Loksins er nú samt
komin ný plata og ef fólk tekur
ekki við sér núna má það taka all-
ar sínar Hjúman Líkur, Fil
Kollinsa og eitthvað þaðan af
verra og stinga þeim þar sem það
vill. Ég held ég haldi mig við
Undertones, vegna þess að The
Sin Of Pride, en svo heitir nýja
platan þeirra, er einfaldlega besta
poppplata sem ég hef lengi heyrt.
Á Positive Touch var það bítla-
tímabilið sem greinilega var aðal-
áhrifavaldur tónlistarinnar, en nú
hafa þeir snúið við blaðinu og
halla sér frekar að soul tónlist og
það með skínandi árangri. Þó að
Motown tónlistin sé kannski
helsti áhrifavaldurinn verða áhrif-
in aldrei svo mikil að um hreina
stælingu sé að ræða.
Sem lagasmiðum hefur þeim
farið mikið fram frá því sem áður
var en þar eru þeir fremstir í
flokki Damian og John O’Neill.
Fjölbreytni í útsetningum hefur
aukist ótrúlega og bregður þar
hinum ýmsu tónbrigðum fyrir.
Áberandi er meiri hljómborðs
notkun en áður en einnig njóta
þeir aðstoðar strengja tríós,
blásara og síðast en ekki síst söng-
sveitarinnar Silvia & the Sapp-
hires.
Öll lögin eru frumsamin, ef frá
eru taldir tveir gamlir standardar,
sem eru Isley Brothers lagið Got
To Have You Back og Smokey
Robinson lagið Save Me, en bæði
falla þau vel að heildarmynd plöt-
unnar. Annars er plata þessi svo
jafngóð að engin leið er að segja
að eitt lag sé endilega betra en
annað. Þau sem ég hef þó einna
mestar mætur á enn sem komið
er, eru auk gömlu laganna
tveggja, Valentines Treatment,
Bye Bye Baby Driver, Love Parade
og ekki síst ballöðurnar tvær
Before Romance og Soul Seven,
sem Feargal Sharkey syngur frá-
bærlega. Raunar er hans hlutur á
plötunni sér kapítuli út af fyrir
sig, því hann hefur aldrei sungið
betur en nú. Honum hefur stund-
um verið líkt við Roger Chapman,
fyrrum söngvara Family, og að
mörgu leyti er sú samlíking ekki út
í hött. Þeir hafa báðir sérstaka
vibrandi rödd Rödd Sharkeys er
þó öllu hærri og mér væri nær, að
minnsta kosti á köflum, að líkja
honum við Tim heitin Buckley.
Ef einhvert réttlæti væri í henni
veröld væri nú margt öðru vísi en
það er. Til dæmis hefði The Sin
Of Pride átt að fljúga beint í
fyrsta sæti vinsældarlistanna, en
svo var þó auðvitað ekki. En von-
andi rætist nú hið fornkveðna
„réttlætið það sigrar að lokum“.
Eða var það annars ekki forn-
kveðið? Hvernig á ég annars að
vita það.
Dexys Midnight
Runners - Geno
Dexys Midnight Runners sló í
gegn árið 1980 með laginu Geno,
sem um nokkurra vikna skeið
vermdi efsta sæti breska vin-
sældarlistans. Þeir þóttu þá und-
arlegir í meira lagi í ýmsum gerð-
um sinum. Til dæmis neituðu þeir
algerlega að ræða við blaðamenn,
en þess í stað keyptu þeir sér pláss
á síðum poppblaðanna og birtu
þar ýmsar skrautlegar yfirlýsing-
ar. Undarlegast uppátækja þeirra
þótti þó það að þegar þeir höfðu
lokið gerð fyrstu breiðskifu sinn-
ar, rændu þeir böndunum (hinum
svokallaða master) og neituðu
að láta af höndum fyrr en útgáfu-
fyrirtæki þeirra hefði endur-
skoðað samninginn við hljóm-
sveitina og hækkað þá upphæð
sem þeir skyldu fá í sinn hlut.
Fyrirtækið gekk að samningum
við þá og platan Seaching For The
Young Soul Rebels leit dagsins
Ijós og gerði það bara nokkuð
gott.Hinsvegar reyndist þeim er-
fitt að fylgja Geno eftir og það var
ekki fyrr en á síðasta ári, þegar
Come On Eileen kom út, að hjólin
fóru að snúast að nýju, en þá var
nánast enginn eftir af uppruna-
legum meðlimum hljómsveitar-
innar, að söngvaranum Kevin
Roland undanskildum. Hann
mun víst einstaklega erfiður í
umgengni drengurinn sá.
Það var ekki fyrir það að Dexys
reyndu ekki að gera neitt, sem
hljómsveitin varð svo lítið áber-
andi sem raun ber vitni. Þeir
sendu frá sér álitlegan fjölda
lítilla platna, sem einhverra hluta
vegna gengu bara alls ekki, þrátt
fyrir að þær væru margar hinar
ágætustu.
Árið 1981 yfirgáfu Dexys
Parlophone, sem fram að því
hafði gefið út plötur þeirra og
gerðu samning við Mercury. Það
virtist þó ekki ætla að breyta
neinu til að byrja með, því plötur
þeirra seldust ekkert betur en
áður þrátt fyrir t.d. útgáfu jafn
ágæts lags og Celtic Soul Brot-
hers. En Come On Eileen breytti
öllu og önnur breiðskífan þeirra
Too Rye Ay fór í fyrsta sæti breska
listans.
Vafalaust hefur Parlophone
þótt súrt í broti að missa hljóm-
sveitina frá sér svona rétt áður en
gæfuhjól hennar fór að snúast á
ný. Þeir áttu þó alltaf einn ágætan
leik í stöðunni og þann leik hafa
þeir nú leikið. Það hefur nefnilega
verið safnað saman þeim lögum
sem út komu á litlum plötum, svo
og þeim sem mestrar hylli nutu af
Soul Rebels.
Auðvitað ber platan nafnið
Geno og þar er það lag að finna
fyrst á fyrri hlið. Ekki get ég
annað en lýst hrifningu minni á
þéssu framtaki, því flest þessi lög
hafa ekki fengist hér áður, að
minnsta kosti ekki í þeim útgáfum
sem hér eru á ferðinni.
Geno og There There My Dear
eru í sömu útgáfu og er að finn á
Soul Rebels. Hins vegar er á plötu
þessari eldri gerð af laginu Dance
Stance, sem reyndar hét Burn It
Down á Soul Rebels. Einnig virð-
ist I‘m Just Looking vera hér í
eldri gerð en ég er þó ekki viss um
að það sé annað en hljóðblöndun-
in sem er önnur en sú sem síðar
kom út. Lagið Keep It var einnig
að finna á Soul Rebels en í allfrá-
brugðinni útgáfu með allt öðrum
texta. Plan B var í endurgerð á Too
Rye Aye, þar sem strengir eru
komnir til sögunnar en hér er það
gamla blásturssveitin sem er mest
áberandi, svo sem í öðrum lögum
á Geno, því ekki voru strengir
komnir við sögu Dexys á þeim
tíma sem þessi lög komu fyrst út.
Þá eru einungis óupptalin fjög-
ur lög af þeim tíu sem á plötunni
er að finna og eru tvö þeirra að-
eins leikin. Allt eru þetta ágæt lög
þó óneitanlega sé ég hrifnari af
þeim sem getið er í upptalning-
unni.
Það kann að vera að það líti
ekki vel út að sex af tíu lögum hafi
fengist hér áður i einni eða annarri
mynd. Raunin er hins vegar sú að
plata þessi er hin þokkalegasta og
velkomin við hlið þeirra tveggja
stóru platna sem áður hafa komið
frá hljómsveitinni. Hún hlýtur þó
óneitanlega að koma siðust í röð-
inni, án þess þó að það dragi
nokkuð úr gildi hennar, því hún er
góð.
SJÓiWAKI1
Föstudagur
22. apríl
20.40 Á dötinni. Birna Hrólfsdóttir les
enn og aftur i henni er alltaf hinn
sami kraftur. Kraftakona hún Birna
og skemmtilegur þáttur. Nauðsyn-
legur listviðburður.
20.50 Prúðuleikararnir. Hver er svona
skynsamur? Að koma með streng-
brúðurnar á undan trúðunum?
Linda Ronstadt syngur nokkur lög
til að redda ástandinu.
21.15 Hringborðsumræður. Formenn
fimmflokkanna ræða saman um
mál málanna, kosningarnar.
Hvernig eigum við að skipta kök-
unni strákar? Strákarl? Hvar eru
konurnar? Ha? Magnús Bjarn-
freösson stjórnar umræðunum. Nú
fer hver að verða síðastur að taka
afstöðu. Eflum sameiginlegt átak.
22.45 Skákaö í skjóli nætur (Night
Moves). Bandarísk kvikmynd, ár-
gerö 1975. Leikendur: Gene Hack-
man, Susan Clark, Jennifer
Warren, Edward Binns. Leikstjóri:
Arthur Penn. Einkaspæjari leitar
að ungri stúlku, en lendir þá á alls
kyns listmunasmyglurum. Hæfi-
leikamikill leikstjóri, en myndin ekki
alveg í samræmi við þaö. Hér má
þó alla vega fá dágóða skemmtun,
svona til að búa sig undir morgun-
daginn.
Laugardagur
23. apríl
16.00 iþróttir. Bjarni Felixson hressir upp
á andlega líðan landsmanna. Ekki
er hún nú góð, líðanin sú. Kosning-
ar I dag, spenna I kvöld.
17.20 Enska knattspyrnan. Hér kemur
þaö, betrumbætt og uppbyggt.
18.20 Fréttir. Tölur af kosningaþátttöku,,
Slæmar horfur.
19.00 Söngvakeppni sjónvarpsstööva í
Evrópu. Bein útsending frá
stærsta bakarii í Munchen í Vestur-
Þýskalandi. Rétturdagsins: Sykur-
húð með glassúri.
21.40 Fréttir. Aftur tölur. Fortölur.
22.00 Þriggjamannavist. Spékoppur á
spékopp ofan.
22.30 Kosningasjónvarp. Guðjón og
Ómar stjórna kvöldinu, sem allir
hafa beðið eftir. Hver stendur með
pálmann í höndunum? Pálmi? Friö-
jón? Hjörleifur? Svavár? Gunnar?
Ragnar? Steingrímur? Tómas?
Ingvar? Allir hinir: Geir? Friðrik?
Albert? Kjartan? Jón Baldvin? Nei
og aftur nei: églll
Sunnudagur
24. apríl
18.00 Sunnudagshugvekja. Ekki veitir
.nú af. Þeir eru líklega margir sem
vakna upp af vondum draumi nú.
Skúli Svavarsson ætlar að reyna að
hugga þá.
18.10 Stundin okkar. Það er líklega best
aö ganga bara aftur í barndóm.
/Eskan er áhyggjulaus. Engar
kosningar, engin verðbólga (aö
minnsta kosti ekki fyrr en á morg-
un), eilif sæla.
22.55 Sjónvarp næstu viku. Tekur þaö
strax miklum breytingum? Maggi
Bjarnfreðs segir okkur allt af því.
21.10 Glugginn. KemurÁslaug Ragnars í
síöasta sinn, rétt eins og Svein-
björn? Um margt fróðlegir og
skemmtilegir þættir.
21.55 Ættaróðaliö. Áfram með breska
framhaldsflokkinn, sem þjóöin
gapir yfir. Ég nenni ekki að horfa á
þetta. Allt of hægfara fyrir minn
smekk. Ég vil bara pang og pang
og bomm, bomm, bomm.
ÚTVAKI’
Föstudagur
22. apríl
9.05 Barnaheimilið. Heldur betur
barnasaga I lagi. Ragna Steinunn
Eyjólfsdóttir skráði.
10.30 Mérerufornuminninkær. Égeris-
lendingur. Allir frændur fjær og
nær. Fitj’uppásinnfingur. Einarfrá
Hermundarfelli segir frá.
11.05 Ég man þá tfð. Hermann Ragnar
Stefánsson fyrrum danskennari
syngur gömlu lögin.
11.30 Frá Norðurlöndum. Þáttaskil við
vatnaskil. Borgþór Kjærnested
segir frá óvenjulegum atburðum og
venjulegum.
17.00 Með á nótunum. Ragnheiður
Davíðs og Tryggvi Jakobs beina
okkur frá umferðarteppunum, eða
reyna að róa taugar okkar.
17.30 Nýtt undir nállnni. Tilraun til að
grípa í hraöfleygan timann. Laf-
móður og illa til reika. Ný lög á nýj-
um tímum.
20.40 Frá Bach-sumarskólanum í Stutt-
gart. Ungirtónlistarmennglimavið
risann góöa.
21.40 Hve létt og lipurt. Höskuldur Skag-
fjörö í fyrsta sinn, en ekki hiö síð-
asta. Vísur?
23.00 Kvöldgestir. Jónas rekur garnirnar
úr...
Laugardagur
23. apríl
9.30 Óskalög sjúklinga. Lóa Guðjóns-
dóttir segir allt af létta.
11.20 Hrimgrund. Mikið eiga börnin gott
að þurfa ekki að kjósa.
13.15 Helgarvaktin. Byrjar hún annars
svona snemma? Beta er alltaf góð.
15.10 I dægurlandi. Svavar Gests undir-
býr okkur undir kosninganóttina og
kjörklefarápið með Ijúffengri tónlist
Góður maöur Svavar.
16.40 íslenskt mál. Margrét Jónsdóttir
segir okkur frá nýjustu uppgötvun-
um I sniðafræöum. íslenskt mál er
nefnilega annaö en franskt mál.
Viö erum breiðari.
19.35 Á tali. Vonandi gekk ykkur vel I dag
stelpur og I kvöld. Þaö var slæmt
með hringborðið. En við sjáum ráð
viö því. Kaupum bara ferhyrnt I
staðinn.
20.30 Sumarvaka. Eitthvað ruglaðir
-greyin. Hvenær kom sumariö? Ég
er bara farinn til suðurfrans.
22.00 Kosningaútvarp. Þá ráöast örlög
okkar. Veslings íslendingar. Þeir
kunna ekki fótum sínum forráö.
Kári JÓnasson ætlar að miðla okk-
ur. Aörir og fleiri miðlar taka þátt í
skemmtuninni.
Sunnudagur
24. apríl
8.10 Fréttir og kosningaúrslit. Æ, þess-
ir timburmenn sigurvímunnar. Þaö
fara margir flatt á þeim núna. Ekki
ég.
10.25 Saltkjöt i beinni útsendingu. Eða
oft má saltkjöt liggja I pækli. Laddi
og Jörundur fara með gamanmál.
Guölast á slíkum degi. Mér er ekki
hlátur I huga.
11.00 Messa. Hugga mig við guösorö i
Dómkirkjunni.
13.30 Úrslitkosninganna. Kári Jónasson
stjórnar þætti með kosningatölum
og viðtölum við frambjóðendur.
Gaman.
14.15 Frá landsmóti fslenskra barna-
kóra. Það er eins með þetta og vin-
ið: batnar meö aldrinum. Þetta er
nefnilega frá 1981.
15.20 Mærin á kiettinum. Lorelei eftir
Heine I islenskum búningi sjö
skálda. Gunnar Stefánsson tekur
saman dagskrá og les ásamt Hjalta
Rögnvaldssyni og Ævari Kjartans-
syni.
16.20 Þankar um Erasmus frá Rotter-
dam og áhrif hans. Séra Heimir
Steinsson flytur siðara erindi sitt.
18.00 Saltogpiparogsitrónusmjör. Það
vantar ekki. Helga Ágústsdóttir les
eigin smásögu.
19.25 Veistu svarið? Það skánar með
hverjum þætti.
21.30 Um sfgauna. Einarskáld Bragi flyt-
ur erindi númer tvö. Góður maður.