Helgarpósturinn - 22.04.1983, Síða 13

Helgarpósturinn - 22.04.1983, Síða 13
13 Helgarpóstsviðtalið: María Markan hann Georg. En mitt Iíf og hans var ekki ein- tómur dans á rósum. Þetta var ekki allt saman söngur og létt líf. Og kannski hefur þetta verið erfiðast fyrir Pétur..“ Pétur — stoltið — Pétur, já. Hann er mikið tónlistarséní... „Já, hann er það!“ Það Iifnaði yfir Maríu. — Fannst þér einhverntíma koma til greina, að hann yrði eitthvað annað en tón- listarmaður? „Nei, ég held að það hafi aldrei komið annað til greina. Að minnsta kosti ekki af hans hálfti. Hann var ekki nema fjórtán ára þegar hann keypti sér sjálfur, fyrir sína eigin peninga, sitt fyrsta trommusett — notað af einhverjum öðrum. Þá var hann ákveðinn í að fara ekki í lengra skólanám og var byrjaður að vinna sér inn peninga með hljóðfæraleik á Vellinum. Hann vildi mjög ungur vera sjálf- stæður — kannski of ungur. En svo hefur hann kannski ekki viljað vera mikið heima...“ — Mér hefur skilist að þið séuð mjög sam- rýnd. „Já, það er gott band á milli okkar“. — Mer heyrist þú vera stolt af Pétri? „Já, það er ég. Og ég heid að hann sé bara líka stoltur af mér. Hann er titlaður lektor við tónlistarháskólann í Stokkhólmi og hefur kennt þar í tíu ár“. María var farin að hlæja aftur og smitaði gestinn. Hún tók fram albúm með myndum af Pétri og börnum hans og konu, sænsku listakonunni Anja Notini. „Þegar ég fæ bréf frá henni og strákunum þeirra, þá skrifa þau aldrei annað en „Amma María Markan" utan á!“ — Svo einkasonurinn hefur aldrei brugð- ist? „Pétur? Nei. Það hefur hann ekki gert. Hann ganaði náttúrlega út í vitleysu ungur, varð pabbi 17 ára. Það er allt liðin tíð — drengirnir hans frá þeim tíma eru miklir myndarpiltar. Músíkantar. Mér þykir vænt um hvað Pétri gengur vel í Svíþjóð. Og hann er lítið fyrir að auglýsa sig. Það er ágætt — það er betra að það sé of lítið en of mikið. Ég hef séð marga vitleysuna á því sviði. Það aug- lýsir sig sjálft, sem hann gerir“. Gudda íflóanum — Eigum við að tala svolítið um söng og óperu á íslandi í dag? „Hvers vegna ekki? Ég skal ævinlega verða fyrst til að verða hrifin af þeim sem eru góðir. Ég vil láta þetta unga hæfileikafólk njóta sannmælis. Það tekur ekkert af því neitt frá mér og ég tek ekkert frá öðrum“. — Eru til margar góðar söngkonur í dag? „Mikil ósköp, já. Þessar ungu raddir í dag eru svo brilljant — ég og við, sem erum eldri, höfum kannski meiri þroska í rödd og túlkun, en það kemur allt. Ég vil lifa og láta lifa. Og mikið óskaplega þótti mér vænt um að heyra hana Svölu Nielsen tala um það í þættinum hans Sveins Einarssonar, að ég hafi getað hjálpað henni. Hún hrósaði mér svo mikið, að ég kafroðnaði bara! Það sama gerði Oktavía Stefánsdóttir í þætti Jónasar Jónassonar. Og þó hef ég gert svo miklu meira fyrir aðrar söngkonur þótt þær hafi ekki nefnt það eða þakkað frekar en ég væri Gudda í Flóanum“. — Finnst þér að við eigum söngkonu í dag, sem standi upp úr svo áberandi sé? „Aaa — nú ertu að fara út á hálan ís góði minn. Við eigum margar í góðum klassa, marga söngvara sem vinna mjög vel. En það er ekki hægt að tala svona. Þú yrðir að gista ef ég ætlaði að fara að tala eitthvað um þessar ungu raddir. En ég skal þó segja eitt: stundum er ég hrædd um að við eigum of marga góða söngvara fyrir þennan litla markað. Það er varla að þjóðin beri þetta allt, því auðvitað vilja allir geta lifað á sinni list og sinum söng“. — Nú þurfum við að fara að hætta. En áð- ur en ég kveð langar mig að spyrja um eitt: Nú á að fara að kjósa... ..já, minnstu ekki á það ógrátandi“. — Ertu búin að ákveða hvað þú ætlar að kjósa? „Hvað? Viltu að ég fari að segja þér frá því?“ — Nei, alls ekki. En ertu búin að ákveða þig? „Já, með harmkvælum. Það versta við póli- tíkina núna er hvað þeir tala allir fjandi vel. Ég er eiginlega oftast á sama máli og síðasti ræðumaður. En það sýnist vera mikill grautur í þessu núna..“ — Ertu bjartsýn á framtíð lands og þjóðar? „Já, ég hef alltaf verið bjartsýnis- manneskja. Og ég vil ekki lifa án vonar. Maður verður alltaf að vona það besta — það væri til lítils að vera að reyna ef maður hefði ekki trú, von og kærleika".

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.