Helgarpósturinn - 22.04.1983, Side 16

Helgarpósturinn - 22.04.1983, Side 16
 I Hörð á minni skoðun Alveg ferlega reið „Heima hjá mér heför alltaf verið talað mikið um pólitík, stundum hef ég ekki þolað það en nú er mér farið að finnast þetta fjandi spenn- andi. Ég hef alltaf haft ákveðnar skoðanir og það hefur stundum far- ið í taugarnar á félögunum. Sósía- listar þykja nefnilega alveg stór- hættulegir. Einu sinni var ég alveg lögð í einelti út af þessum skoðun- um mínum, en núna finnst mér ég Umsjón: Helga Haraldsdóttir og Páll Pálsson „Ég hef alltaf fylgst með þeim, en var nýlega að gera verkefni í skólan- um um stríð og frið og fékk þá áhugann fyrir alvöru. Ég varð alveg ferlega reið við þá tilhugsun að allt það sem mig dreymir um geti ein- hverjir úti í heimi eyðilagt fyrir mér. Þið sem eruð orðin fullorðin hafið prófað svo margt skemmtilegt og rómantískt og mér fannst eins og ég fengi aldrei að gera neitt svoleiðis. Mín kynslóð fær kannski aldrei að sýna hvað í henni býr“. Klukkurnar í Nagasakí — Hvernig kynna krakkar sér þessi mál? „Ég las greinar í Tímariti Máls og menningar og líka bók sem heitir „Stöðvun kjarnorkuvígbúnaðar“. Þegar ég las hana gerði ég mér fyrst grein fyrir því hvað þetta er allt orð- ið stórt í sniðum og geigvænlegt. í þeirri bók lýsa fórnarlömb kjarn- orkusprengjunnar í Hírósíma reynslu sinni og það er alveg hræði- lega sterkt. Ég held líka alveg sér- staklega mikið upp á ljóðið „Klukkurnar í Nagasakí“ eftir Hjört Pálsson; þegar maður les það er hægt að ímynda sér svo vel hvað þetta er hryllilégt. Annars hef ég reynt að lesa allt sem snertir þessi mál, í haust las ég t.d. „Blómin í ánni“ og varð fyrir varanlegum áhrifum af henni“. Verða að pæla meira í þessu — Finnst þér unglingar hafa mikinn áhuga á pólitík? „Nei, mjög lítinn. Strákarnir hafa þó oftast einhverja skoðun,' það er meira en hægt er að segja um marg- ar stelpur. Það er skítt hvað stelpur pæla litið í pólitik, ég skil þetta alls ekki, nema þeim finnist eitthvað ókvenlegt við það. Unglingar verða að pæla meira í þessu, sérstaklega friðarmálunum. Þetta er heimur sem við unglingarnir eigum eftir að taka við“. „Þegar ungt fólk deyr af slys- förum segir það fullorðna: „Æ, hvað þetta var sorglegt. Það var í raun ekki búið að fá að njóta sín“. Þetta er alveg satt. Einu sinni þegar ég var lítil og vin- kona mín var nýbúin að missa ættingja, sagði hún við mig: „Arna, finnst þér ekki hryllilegt að deyja og gleymast og svo máist kannski meira að segja nafnið af legsteininum á endanum". Og við strengdum þess heit að gera eitt- hvað, sem fólk myndi síðan muna eftir þegar við værum dánar, en þá datt okkur ekki í hug að við fengj- um ekki tækifæri til að afla okkur frægðar eða það yrði kannski eng- inn legsteinn á leiðinu okkar og ekkert nafn til þess að mást af. Þetta finnst mér óttalega sorglegt. Mér finnst óttalega sorglegt, ef við fáum kannski ekki að sýna það sem í okkur býr“. Þetta er bútur úr ræðu sem Arna Kristín Einarsdóttir 14 ára nemandi í Æfinga-og tilraunadeild K.H.Í. flutti nýlega á fundi í Háskólabíói þar sem krafist var kjarnorkulausra Norðurlanda. Við fengum Örnu til að ræða aðeins við okkur. sósíalistar þykja alveg siórhœttulegir ..svo margt skemmtilegt og rómantískt skítt hvað stelpur þœla lílið í pólitík hafa lært mikið af því tímabili. Ég stend alltaf hörð á minni skoðun“. — Hvenær fórstu svo að hugsa um friðarmál? ■STUða Arna Kristín Einarsdóttir: Segir Einar Haugur fljótlega eft- ir að við erum sest niður til að spjalla yfir kaffibolia á Horninu. „Islenska nýbylgjan er runnin sam- an við fatatískuna. Fólk kemur til að sýna sig og sjá aðra en ekki til að hlusta á músikina.“ Heimir Haugur: „Já, nýbylgjan er komin í horn. Ég meina, þetta hlýtur að vera spurning um eitthvað annað og meira en að semja lög, fara á Borgina og spila þau og svo aftur heim að semja ný lög, fara með þau á Borgina og spila þau og- svoframvegis ogsvoframvegis. Við viljum spila á fleiri stöðum, — ó- líklegustu stöðum: úti í hrauni og úti á götu..“. Bergsteinn Haugur: „Sko, draumurinn er að halda tónleika í Garðakirkju, þá hljótum við að fá annað fólk tilað hlusta á okkur en þetta venjulega Borgargengi“ Einar Haugur: „Það er mesti misskilningur að við séum mjög samrýndir. Við þekkjumst varla þegar tónlistinni sleppir. Við erum mjög ólíkir og hljómsveitin skiptist eiginlega í tvennt ef ekki bara alveg í fernt. En við höfum mikla trú á okkur og finnst við betri en margt af því sem býðst hér.“ Heimir Haugur: „Það hvað við erum ólíkir er miklu frekar það sem knýr okkur áfram en sundrar okk- ur. Tónlist okkar er mjög persónu- leg, við höfum úr miklu að moða og erum því bjartsýnir á framtíðina" Einar Haugur: „Málið er að við erum allir snillingar!1 Heirnir Haugur: „Þetta er hans álit, það eru kannski ekki allir sam- mála honum. En ég er næstum sam- mála, við höfum mikið að segja fyrir íslenska músikí* Yið erum - og við verð- um Heigi Haugur: „Við erum að minnsta kosti sammála um að vera ósammála. Og annað sem við erum sammála um er að við komum aldrei til með að syngja á ensku. Þetta er íslensk hljómsveit með ís-‘ lenska tónlist!' Einar Haugur: „Við syngjum mikið um karaktera sem okkur finnast ógeðslegir. Svo eigum við líka mikið af klámtextum!1 Heimir Haugur: „Við höfum samt ekki komist niður á neitt fast í textamálum. Við erum allir að ‘skrifa og viðfangsefnin eru jafn ó- lík og við erum sjálfir. Samt viljum við helst hafa textana mjög stutta og hnitmiðaða, allt oní 10% af þeim tíma sem tekur að flytja lagið. En við notum mikið gömul sjald- gæf orð og stuðla og höfuðstafi við textagerðina!1 Einar Haugur: „Image? Jú,við reynum að tengja saman músikina og eitthvað annað, til dæmis liti. Svo fólk heyri ekki bara heldur sjái líka. Ég meina, við verðum að not- færa okkur möguleika sviðsins, ekki bara standa og spila. Við vilj- um líka fá fólk til að rífa sig upp úr hvítvínsmóralnum og dansa og hrífast með. En það er alveg á hreinu að tónlistin er númer eitt.tvö og þrjú hjá okkur, ekki imagið!1 Helgi Haugur: „Við ætlum alls ekki að taka upp plötu fyrst og reyna svo að fylgja henni eftir. Við ætlum ekki að flaska á þvi eins og svo margir aðrir. Við viljum ekki alltaf spila sömu lögin eins og þarf að gera þegar verið er að kynna plötu, við viljum sífellt halda áfram að skapa eitthvað nýtt.“ Einar Haugur: „Við viljum hafa sem víðtækast starfssvið. Við spil- um allir á mörg hljóðfæri og hann Bergsteinn syngur alveg listavel. Við höfum því marga og góða möguleika“ Heimir Haugur: „Við viljum gera góða tónlist sem lifir, ekki eitthvað sem fólk fær leiða á og ælir yfir eft- ir að hafa heyrt tuttugu sinnum. Við viljum vera svo góðif að fólk geti ekki gleymt okkur.“

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.