Helgarpósturinn - 22.04.1983, Side 22

Helgarpósturinn - 22.04.1983, Side 22
22 armanna 6—8 þingmenn og Kvennalistar 3—5. Þótt þetta séu vissulega ekki endanlegar tölur er þó lítill vafi á að þær fara nærri lagi. í fljótu bragði kann að virðast að þessar kosningar boði því stórtíðindi í íslenskum I stjórnmálum. Fjórflokkakerfið sem við höf- ! um búið við um nokkurt skeið, þar sem visst jjafnræði hefur verið með flokkunum, þó stærð þeirra hafi verið misjöfn, virðist vera að riðlast og upp að koma sú staða að einn stór hægriflokkur standi andspænis mörgum litl- um „félagshyggjuflokkum". Þetta getur þó engan veginn talist öruggt. Áður hafa komið Quo vadis? Geir Hallgrímsson og Albert Guðmundsson eiga annríki fyrir höndum eftir kosningar „Við svíkjum aldrei vini okkar“, sögðu Ól- afur Jóhannesson og Albert Guðmundsson um leið og þeir brostu og horfðu kumpánlega hvor í annars augu í umræðuþætti sjónvarps- ins í fyrrakvöld. Það vakti nokkra athygli hve vel þeir Iétu hvor að öðrum, Albert fór hörðum orðum um Vilmund fyrir að skrifa illa um Ólaf, og Ólaf- ur lagði áherslu á að flugstöðvarmálið væri hann búinn að klára fyrir stjórn, sem ekki innihéldi Alþýðubandalagið. Nokkrum af stjórnmálafréttamönnum blaðanna þótti þetta gagnkvæma bakklapp í sjónvarpsþættinum aðeins enn ein vísbend- ingin um það hvert stefndi eftir kosningar: í „sterka" stjórn Sjálfstæðisflokks og Fram- sóknarflokks. ótt vissir meinbugir hafi verið á öllum þremur skoðanakönnununum sem birtar voru um fylgi flokkanna í kringum síðustu helgi, sýndu þær allar mjög svipaðar niður- stöður. Þær eru sjálfsagt flestum kunnar. Kannanirnar sýndu að Alþýðuflokkurinn fær u.þ.b. 4—6 þingmenn, Alþýðubandalagið 8—11, Sjálfstæðisflokkurinn 24—26, Fram- sóknarflokkurinn 10—14, Bandalag jafnað- Þegar Reagan Bandaríkjaforseti ákvað að senda þrjá ráðherra sína til Mexíkó, létu tals- menn hans í veðri vaka að erindi utanríkisráð- herrans, fjármálaráðherrans og viðskiptaráð- herrans til nágrannaríkisins í suðri væri að leiða Mexíkómönnum fyrir sjónir villu síns vegar í málefnum Mið-Ámeríku og beita til þess viðskiptaþvingunum ef annað ekki dygði. Nú er bandarísku ráðherraheimsókn- inni í Mexíkóborg lokið, og í ljós kemur að það er bandaríska ráðherranefndin sem látið hefur í minni pokann. r I yfirlýsingu frá utanríkisráðherrum land- anna fellst Shultz utanríkisráðherra á það sjónarmið Mexíkóstjórnar, að nauðsyn beri til að koma á viðræðum og samningaumleit- unum, til að stilla til friðar í innanlandsófriði og milliríkjaværingum í Mið-Ameríku. Und- anfarnar vikur hefur verið mikið um funda- höld forseta og utanríkisráðherra þeirra landa á svæðinu sem búa við þjóðkjörnar stjórnir. Þar hafa tekið þátt forustumenn Mexíkó, Costa Rica, Panama, Venesuela og Kólumbíu. Niðurstaða af fundahöldum þeirra er yfirlýs- ing, birt fyrir viku siðan, þar sem hvatt er til að allir erlendir hernaðarráðunautar verði á brott úr löndum Mið-Ameríku, stöðvaðar verði vopnasendingar þangað erlendis frá og stríðandi aðilar gangi til samninga um frið. Með yfirlýsingunni eftir fundinn í Mexíkó- borg hefur Bandaríkjastjórn gefið ádrátt um inn ný öfl í íslensk stjórnmál og náð verulegri fótfestu, án þess að staða gömlu flokkanna breyttist verulega. Samtök frjálslyndra og vinstrimanna eru síðasta dæmið um þetta. Hvort kvennalisti verður t.d. boðinn fram í al- þingiskosningum um næstu framtíð er í besta falli mjög óvíst, og sömuleiðis er Bandalag jafnaðarmanna alveg óráðin gáta þegar til lengri tíma er litið. Það eru því skiptar skoð- anir um það hvort þessar niðurstöður skoð- anakannananna tákni tímamót í íslenskri pólitík. Ef svo fer sem horfir, er enginn vafi á því að forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir mun veita Geir Hallgrímssyni, formanni Sjálf- stæðisflokksins, umboð til að mynda ríkis- stjórn eftir kosningar. Nota bene: Ef Gunnar Thoroddsen biðst lausnar fyrir sig og ráðu- neyti sitt strax þegar úrslit liggja fyrir. Slíkt er auðvitað venjan. Alltjént mun þó stjórn hans sitja áfram þar til ný stjórn hefur verið mynd- uð, og sú starfsstjórn getur gert þær ráðstaf- anir sem hún telur þurfa þykja. Að Geir fái umboð til stjórnarmyndunar eftir kosningar er hægt að sjá fyrir með nokk- urri vissu. Þá taka hinsvegar spádómarnir við. Hvað gerir hann við umboðið? Líkastil mun að vinna að friðargerð, hverjar svo sem efnd- irnar verða. Staða bandarísku ráðherranna til að beita þrýstingi í viðræðum við Mexíkóstjórn varð að engu, þegar New York Times birti leyni- skjöl frá fundum Reagans forseta með ráðu- nautum sínum frá síðustu tveim árum, þar sem Iögð eru á ráð um starfsemi leyniþjónust- unnar CIA í Mið-Ameríku. Þar er fjallað um undirróður gegn stjórn Sandinista í Nicara- gua, stuðning af Bandarikjanna hálfu við valdarán herforingja í Guatemala, viðleitni til að etja fylkingum skæruliða í E1 Salvador hverri gegn annarri og loks átti að reka smiðs- höggið á þessar hernaðaraðgerðir með póli- tískri viðleitni til að „einangra Mexíkó“. Hernaðarstefnan, sem Reagan fól CIA að framkvæma i Mið-Ameríku, hefur þvert á móti orðið til að einangra Bandaríkin, en fylkja um afstöðu Mexíkó þeim ríkjum Rómönsku Ameríku sem búa við sæmilega traust stjórnarfar og liggja að ófriðarsvæð- inu. Þar á ofan hafa uppljóstranir banda- rískra blaða og þingnefnda orðið til þess, að upp er komin á Bandaríkjaþingi hreyfing til að taka fram fyrir hendur Reagans og CIA í Mið-Ameríku. í gildi er lagaákvæði, kennt við Edw.ard P. Boland, formann eftirlitsnefndar Fulltrúa- deildar þingsins með leyniþjónustustarfsemi. hann sjálfur fara á stúfana með Albert Guð- mundsson sér við hlið. Hvert forsætisráð- herraefni flokksins er veit líklega enginn nú. Samkvæmt skoðanakönnunum mun Sjálf- stæðisflokkinn vanta 5 til 7 þingmenn til að ná hreinum meirihluta á þingi. Það er þvi ljóst, ef við höldum okkur áfram við niður- stöður skoðanakannanna, að Alþýðuflokkur- inn mun ekki fá nógu marga þingmenn til það dugi flokkunum tveimur í 32 þingmanna meirihluta. Ný viðreisn virðist því ekki koma til greina. Samstarf við kvennalistann mun ekki heldur duga Sjálfstæðisflokknum á sömu forsendum. Ef þingmenn Bandalags jafnaðarmanna standa við yfirlýsingar sínar fyrir kosningar, eins,og verður að ganga útfrá að þeir geri, fara þeir ekki í stjóm, hvorki með Sjálfstæðismönnum né öðrum. Þá komum við að Alþýðubandalaginu. Á tímabiii í vetur voru uppi raddir í flokknum um að samstarf við Sjálfstæðisflokkinn í rík- isstjórn væri ekki óhugsandi, einkum ef haft væri að leiðarljósi að slíkt samstarf væri myndað í kringum ákveðnar aðgerðir í efna- hagsmálum og því væri ekki ætlað að standa yfir nema í eitt til tvö ár. Núna þegar Alþýðu- bandalagsmenn sjá fram á slæma kosningu eru slíkar hugmyndir að mestu úr sögunni. Þar á bæ þykir ekki vænlegt að hlaupa í fang- ið á íhaldinu eftir að hafa tapað í kosningum. Töluvert margir virðast hinsvegar á því að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar- flokks liggi á borðinu og benda gjarnan á hluti eins og þá sem grein þessi hófst á máli sínu til stuðnings. Innan þess flokks eru þó æði margir á þeirri skoðun eins og í Alþýðu- bandalaginu að eftir tapkosningu, ef t.d. þingflokkurinn fer niður í 12 til 13 manns, þá sé það hið mesta glapræði að verða „hækja" Sjálfstæðisflokksins. Orð Ólafs og Alberts byggist meir á persónulegum kunningsskap þeirra tveggja en pólitískum líkindum. Þá sé 8NNLEND VFIRSVN Þar er Bandaríkjastjórn bannað að verja fé til aðgerða, sem beinast að því að kollvarpa stjórn Nicaragua eða egna til illinda milli þess og grannríkisins Honduras. Þingmenn úr eft- irlitsnefndinni með leyniþjónustustarfsemi hafa farið um þessi lönd til að kynna sér mála- vexti, og þeir staðfesta að Boland-ákvæðiðl hafi verið þverbrotið. CIA veitir skæruhern- um Contra, sem berst fyrir að steypa stjórn Sandinista, bæði þjálfun, vopn og fé, sér hon- um fyrir hæli í Honduras og lætur forustunni í té vitneskju um ferðir og viðbúnað stjórnar- hersins en hennar er aflað með AWACS könn- unarflugvélum. Boland þingmaður er ekki á því að láta Reaganstjórnina hafa sig og þingið að fíflum með þessum hætti. Hann hefur efnt til funda í eftirlitsnefndinni, með leyniþjónustustarf- semi og boðað þar nýja tillögu, með orðalagi sem útilokar að unnt sé að fara í kringum nú- gildandi lagaákvæði með þeim hætti sem rík- isstjórnin og CIA hafa gert. Tveir af fulltrúum í eftirlitsnefnd Öldunga- deildarinnar með leyniþjónustustarfsemi, þeir Moynihan frá New York og Leahy frá Ver- mont, hafa lýst sig sammála sjónarmiðum Bolands, sem njóta stuðnings flestra ef ekki allra í nefnd hans. Sömuleiðis hefur Howard Baker, leiðtogi repúblikana í Öldungadeild- inni látið í ljós áhyggjur af leynistarfsemi á vegum Bandaríkjastjórnar í Mið-Ameríku. Á fundi í þeirri undirnefnd utanríkismála- nefndar Fulltrúadeildarinnar, sem fjallar um samskipti Bandaríkjanna við önnur Iönd í Ameríku, var í síðustu viku tekist á um af- stöðuna til aðfara stjórnar Reagans í Mið- Ameríku. í hverri atkvæðagreiðslunni af ann- arri voru tillögur forsetans felldar. Bæði var þar um að ræða beiðni um 50 milljóna dollara aukafjárveitingu til hernaðaraðstoðar við stjórnina í E1 Salvador og fjárveitingar í sama skyni á árunum 1984 og 1985. Þar á ofan sam- þykkti nefndin, að taka fyrir alla aðstoð, „beina eða óbeina“ við uppreisnarmenn í Nicaragua, nema skýlaus samþykkt beggja deilda Bandaríkjaþings kveði á um annað. Bandarískir þingmenn hafa gert sér tíðför- ult til E1 Salvador, síðan ríkisstjórn þeirra tók að hlutast til um borgarastyrjöldina þar í landi. Rökstuðningur stjórnar Reagans fyrir stuðningi við innrás skæruliða frá Honduras í Nicaragua, er að með því sé verið að hindra liðveislu Sandínistastjórnarinnar við skæru- liða í E1 Salvador. Bandaríkjaþing hefur aftur á móti byggt sínar heimildir til hernaðarað- stoðar við stjórnina í E1 Salvador á því, að ó- friðurinn þar sé af innlendum rótum runninn, mestu skipti að grafast fyrir þær með pólitísk- um breytingum, eigi friður að fást. Traust bandarískra þingmanna á heildind- um og stefnu Reagan-stjórnarinnar í Mið- Ameríku hefur ekki eflst við framkomu henn- ar í þeim tveim málum, sem mesta athygli hafa vakið á áralöngu blóðbaði í E1 Salvador. Morð á bandarískum nunnum varð fyrst til að Með allt á hælunum í Nicaragua. (Teikning úr Philadelphia Inquirer). Þingmönnum hrýs hugur við kviksyndinu í Mið-Ameríku mun vænlegra fyrir flokkinn að taka sér frí, eftir 12 ára stjórnarsetu. Um þetta eru þó skiptar skoðanir. Einnig hefur verið bent á að þegar Geir Hallgrímsson, Albert Guðmunds- son, Steingrímur Hermannsson og Ólafur Jó- hannesson fari að ræða saman í alvöru um stjórnarmyndun þá muni persónuleg tog- streita vefjast fyrir. Að öllu samanlögðu má vera ljóst að stjórn verður ekki mynduð án Sjálfstæðisflokksins. Forystumenn hans munu hinsvegar ekki eiga sjö dagana sæla að fá aðra flokka til liðs við hanrt. Auðvitað eru til fleiri möguleikar en hér hafa verið nefndir — þriggja flokka stjórn t.d. og minnihlutastjórn flokksins með stuðningi Bandalags jafnaðtu-manna. Stjórnarmyndun- in verður samt erfið. Eins og ástand mála er í dag þykir ekki lík- legt að gengið verði til annarra kosninga strax í sumar vegna kjördæmamálsins. Brýnna er talið að gera efnahagsráðstafanir sem duga á verðbólguna, og það mun taka lengri tíma en nokkra mánuði að sjá árangur af slíku. Stjórnarkreppa gæti hinsvegar orðið til þess að þessar kosningar færu fram í sumar. Ef ekki tekst að mynda nýja ríkisstjórn í maí- mánuði er óliklegt annað en gengið verði til seinni kosninganna, sem kemur hvort sem er að fyrr eða seinna. Á meðan sæti ríkisstjórn Gunnars Thor- oddsen, nú eða utanþingsstjórn, sem ýmsir eru farnir að tala um sem raunhæfan mögu- leika. Sá sami Gunnar Thoroddsen, sem eftir kosningar verður utan þings er gjarnan nefnd- ur sem leiðtogi slíkrar stjórnar. Það yrði ef til vill endir við hæfi á kænskufullum stjórn- málaferli Gunnars Thoroddsen að hann sæti enn um sinn í forsætisráðherrastólnum. beina athygli bandarísks almennings á aðför- um morðsveita hægri manna í landinu. Þær starfa undir verndarvæng hers og stjórnvalda og hafa tugi þúsunda mannslífa á samvisk- unni. Eftir morðin á nunnunum var um skeið tekið fyrir alla bandaríska aðstoð við stjórn E1 Salvador. Hernaðaraðstoð hófst á ný, þeg- ar fjórir menn voru handteknir og sakaðir um ódæðið. Allt voru þetta óbreyttir byssumenn og ekki blakað við neinum foringja. Mál sak- borninga er enn óútkljáð. Nú hafa þau tíðindi gerst, að skipt hefur verið um hermálaráð- herra í E1 Salvador. Við tekur Vides Casa- nova, yfirforingi þjóðvarðliðsins, og segja talsmenn skæruliðahreyfingarinnar, að hann sé einmitt sá sem ábyrgð ber á nunnumorðun- um. Hinn atburðurinn sem heimsathygli vakti, var morðið á Romero erkibiskupi. Hann var skotinn fyrir framan altari í dómkirkjunni i San Salvador 24. mars 1980. Engin eftirmál urðu eftir það víg, og ekki vitað að nein við- hlítandi rannsókn hefði farið fram. Nú er komið á daginn, að bandaríska sendi- ráðið í San Salvador kannaði málið niður í kjölinn, en skýrslum þess var stungið undir stól í Washington, og Reagan svipti embætti- sendiherrann sem fyrir rannsókninni stóð. Romero erkibiskup beitti áhrifum embætt- is síns til að vekja athygli á hryðjuverkum dauðasveitanna og stemma stigu við atferli þeirra. Skýrsla bandaríska sendiráðsins skýrir svo frá tildrögum að biskupsmorðinu, að tylft foringja í öryggissveitum yfirvalda hafa kom- ið saman í mars 1980, til að ræða viðbrögð við mannréttindabaráttu erkibiskups. í forsæti á fundinum var Roberto d’Aubuisson, núver- andi forseti stjórnlagaþings E1 Salvador. Fundarmenn komust að þeirfi niðurstöðu, að erkibiskup væri maður þjóðhættulegur, og vörpuðu hlutkesti um hver í hópnum skyldi „njóta þeirrar sæmdar“ að vinna á honum. Los Angeles Times, sem birtir þessar upp- lýsingar, segir að hvorki utanríkisráðuneytið né CIA hafi gert nokkurn skapaðan hlut til að fylgja eftir vitneskju sem í skeytum sendiráðs- ins felst, og verið hefði gullvæg fyrir hvern þann sem fletta vildi ofan af dauðasveitunum og stemma stigu við illvirkjum þeirra. Blaðið bendir einnig á álit þingnefndar í Washington, sem í fyrra átaldi CIA og aðrar leyniþjónustur Bandaríkjanna fyrir að leiða hjá sér hryðju- verk hægri manna í E1 Salvador, þar á meðal morðið á Romero erkibiskupi, svo og vitn- eskju um þátt d’Aubuisson í athæfi morð- sveitanna. Þvert á móti ákvað stjórn Reagans, að veita ráðbana erkibiskups vegabréfsáritun til að heimsækja Bandaríkin.

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.