Helgarpósturinn - 22.04.1983, Blaðsíða 24

Helgarpósturinn - 22.04.1983, Blaðsíða 24
joosturinn 24 Albert Guðmundsson keppist nú við að lýsa því yfir að auðvitað verði for- manni Sjálfstæðisflokksins falið að mynda stjórn eftir kosningar; ekki sér þótt hann sitji í efsta sæti list- ans. En nú fullyrða traustir heim- ildarmenn í þeim herbúðum að Al- bert muni að sjálfsögðu krefjast formennsku í flokknum eftir „væntanlegan“ sigur í kosningun- um um helgina (rigni og snjói ekki allt í kaf). Og sem formaður muni hann að sjálfsögðu verða forsætis- ráðherra. Sjálfstæðismenn munu á- kveðnir í að láta kjósa tvisvar í sum- ar. Því er væntanleg krafa um að landsfundi Sjálfstæðisflokksins verði flýtt og hann haldinn fyrir seinni kosningarnar. Þar yrði kraf- ist nýrrar forystu í flokknum og hver væri betri til að taka við af Geir Hallgrimssyni, sem færi með nokk- urri reisn og kannski sem forsætis- ráðherra (eins og Gunnar), en ein- mitt „sigurvegarinn“ í Reykjavík, Albert Guðmundsson... Albert hefur gætt þess /'l að hafa nokkra sérstöðu i kosningabaráttunni. Helena dóttir hans stjórnar mikilli kosn- ingaskrifstofu en samskiptin við kosningaskrifstofu flokksins í Val- höll eru í algjöru lágmarki. Á sum- ardaginn fyrsta heldur Albert sína prívat kosningahátíð. Aðrir fram- bjóðendur flokksins vita ekki vel hvernig á að taka slíkum glæsibrag og kalla starfsmenn á skrifstofunni hjá Helenu „hulduherinn“... r* 1 Töluverð spenna ríkir nú um / i það hver muni hljóta stöðu forstöðumanns Rásar tvö hjá Ríkisútvarpinu. Djobbið er býsna eftirsótt svo sem sjá má af því að umsækjendur voru fjórtán talsins. Listi með tíu nöfnum hefur verið birtur opinberlega, en fjórir úr hópnum óskuðu 'nafnleyndar af ókunnum orsökum. Við höfum nú frétt að tveir þessara fjögurra séu þeir Einar Sigurðsson fréttamaður og Stefán Jón Hafstein morgun- hani, sem áður hafði lýst því yfir í blöðum að hann hefði ekki áhuga á þessari stöðu. Á hinn bóginn er okkur sagt að Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, sem mjög hefur verið nefnd í sambandi við um- sækjendur, sé ekki meðal þeirra sem leyna nafni sínu, og raunar að engin kona hafi sótt um Rás tvö. Allt strákar! Nýjar sendingar af bómullargarni og mohairgarni - Sjón er sögu ríkari Póstsendum daglega Ingólfsstrœti 1 (qeant Gamla bíói) Sími16764 Vortískan í prjónagarni- Nýjar uppskriftir Líklega verður enn um sinn f' \ bið á því að fyrrnefnd for- ✓ stöðumannsstaða verði veitt. Það er útvarpsstjóri, Andrés Björnsson, sem skipar í stöðuna, en ekki menntamálaráðherra eins og BÍLALEIGA Mesta úrvalið. Besta þjónustan. Skeifan 9, 108 Reykjavik s. 91-86915 Tryggvabraut 14, 600 Akureyri s. 96-23515 yfirleitt hefur verið talið, en út- varpsstjóri mun ekki taka ákvörðun fyrr en að fenginni umsögn út- varpsráðs og einkum og sér í lagi stjórnar útvarpsins. Því er nú beðið eftir Guðmundi Jónssyni, fram- kvæmdastjóra útvarpsins, en hann er um þessar mundir staddur í Venesúela. Þar syngur hann nú hlutverk gluggapússarans í óperu Atla Heimis, Silkitrommunni, sem sýnd er á mikilli leiklistarhátíð.Sem fyrr er helst talað um að Helgi Pétursson, fréttaritari í Washing- ton, muni hreppa hnossið þegar þar að kemur. Ekki ku allir útvarps- menn vera jafnhrifnir af þeirri til- hugsun... r*'l Frá því Helgarpósturinn birti / J skoðanakönnun um fylgi S flokkanna 15. apríl hafa tvær aðrar kannanir fylgt í kjölfarið; fyrst Hagvangskönnun sem birtist í Morgunblaðinu daginn eftir og svo könnun sem gerð var viku síðar og birtist í DV 18. apríl. Af þessum þrem köpnunum eru aðeins tvær (þ.e. könnun SKÁÍS og Hagvangs, sem birtust í Helgarpóstinum og Morgunblaðinu), sem birta niður- stöðurnar fyrir Reykjavík sérstak- lega. Ef þessar kannanir eru bornar saman kemur glöggt fram eini stóri mismunurinn í þessum skoðana- könnunum. Mismunurinn liggur í hlutfalli Sjálfstæðisflokksins. í SKÁÍS könnuninni er gert ráð fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn fái 40.8% atkvæða í Reykjavík og 5 menn kjörna. í Hagvangskönnuninni er ráð gert fyrir að Sjálfstæðis- flokkurinn hljóti 50.0% atkvæða og 6 menn kjörna. Hér er því um að ræða 9.2% mismun. Það er mjög athyglisvert að DV birti engar tölur eða spá fyrir Reykjavík enda þótt könnun DV sé gerð viku á eftir hin- um könnununum. Ef gerður er nákvæmur saman- burður á niðurstöðum þessara þriggja kannana á grunvelli atkvæðamagns er munurinn ekki stórvægilegur fyrir landið í heild. Mjög greinilega hefur komið fram hjá talsmönnum allra þriggja skoð- anakannana, að áætlun um þing- mannatölu getur verið mjög breyti- leg og þar ræður mestu fjöldi kjör- dæmakosinna þingmanna Fram- sóknarflokksins. Einnig hafa tals- menn lagt á það áherslu að kannan- irnar mæla fyrst og fremst stöðu flokkanna á þeim tíma sem þær eru gerðar. Að vísu mætti draga þá ályktun af leiðara Jónasar Krist- jánssonar í DV frá 18. apríl („eftir viku fáum við að sjá hvor skekkjan er verri“) að þetta sé einhverskonar stjörnuspá en ekki skoðanakönn- un. En hvað sem því líður hefur DV ekki treyst sér enn til að birta stjörnuspá sína fyrir Reykjavík... Samanburður á skoðanakönnunum SKÁÍS og Hagvangs fyrir Reykjavík SKÁÍS Hagvangur atkv. % þingm. atkv. % þingm. Alþýðuflokkur 23 9.6% 1 15 5.4% 0 Framsóknarflokkur 20 8.3% 1 17 6.1% 1 Bandalag jafnaðarm. 34 14.2% 2 42 15.1% 2 Sjálfstæðisflokkur 98 40.8% 5 139 50.0% 6 Alþýöubandalag 38 15.8% 2 40 14.4% 2 Samt. um kvennalista 27 11.3% 1 25 9.0% 1 240 100.0% 12 278 100.0% 12

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.