Helgarpósturinn - 13.05.1983, Blaðsíða 10
10
Mikið líf er nú að færast í starf-
semi Sambands íslenskra mynd-
listarmanna - SÍM - en samtökin
voru stofnuð fyrir ári. SÍM hefur
m.a. undirbúið launataxta mynd-
listarmanna varðandi störf við sýn-
ingar og fleira, unnið að leigu á
myndlist, lagt drög að stofnun sér-
staks myndlistarsjóðs og barist
fyrir lækkun á tollum á efni til
myndlistar.
SÍM samanstendur af sex mynd-
listarfélögum: FÍM, Myndhöggv-
arafélaginu, íslenskri grafík, Hags-
munafélagi myndlistarmanna,
Textílfélaginu og Leirlistafélaginu.
í Fulltrúaráði SIM sitja tveir full-
trúar úr hverju félagi; alls 12 full-
trúar. Fulltrúaráð skipar fimm
manna stjórn SÍM en auk stjórnar
er kosinn einn varaformaður og
einn vararitari. Formaður SÍM er
Sigrún Guðjónsdóttir.
Fjáröflunarleiöir
SÍM hefur fengið skrifstofuað-
Föstudagur 13. maí 1983!p8sturinn-
SÍM færir út kvíarnar
stöðu í Ásmundarsal og mun í
framtíðinni ráða starfsmann í hálft
starf. Félögin kosta rekstur SÍM en
þar sem samtökin eru stéttarfélag
hljóta þau engan ríkisstyrk. SÍM
hefur ýmsar hugmyndir á prjónun-
um varðandi fjáröflunarleiðir til
starfseminnar.
SÍM berst nú hart fyrir því að
ríkið. myndi sérstakan launasjóð
myndlistarmanna sem yrði í líkingu
við Iaunasjóð rithöfunda. Hug-
mynd SÍM er sú að minnst séu 200
mánaða laun (miðuð við launa-
flokk menntaskólakennara) í
sjóðnum og að sögn stjórnar SIM
er það mál komið á góðan umræðu-
grundvöll, við ráðuneyti og aðra
opinbera aðila.
SÍM er einnig með í undirbúningi
leigu á íslenskri myndlist til sýn-
inga. Enn hefur ekki neinn taxti
verið ákvarðaður í sambandi við
slíka útleigu listaverka, en hann
liggur fyrir innan tíðar, og verður
að einhverju leyti tekið mið af sams
konar myndlistarleigu á öðrum
Norðurlöndum.
Kynning og tollamál
Stjórn SÍM vinnur einnig að kynn-
ingu á íslenskri myndlist erlendis
jafnt sem innanlands. Fyrirhugað-
ar eru svonefndar „pakkasýning-
ar“ um landið og er hugmyndin sú
að viðkomandi hreppar eða sýslur
taki þátt í sýningarkostnaði hverju
sinni.
Þá berst SÍM fyrir lækkun á toll-
um á innfluttum efnivið til mynd-
sköpunar.Myndlistarefni sem olíu-
litir, léreft, penslar og þess háttar er
flokkað undir lúxus - og hátollavör-
ur (75 -110% tollur) og er mikil
greiðslubyrði fyrir listamenn. Þetta
gildir ekki síst um þá sem lifa af list
sinni einni saman.
Inntökuskilyröi og
launataxti
Að sögn stjórnar SÍM hefur hið
nýja samband hlotið mikinn með-
byr menntamálaráðuneytisins, en
nú er mun einfaldara að semja við
einn aðila myndlistarmanna en
ýmis félög eins og áður fyrr.
Inntökuskilyrði nýrra félaga hafa
verið samræmd. Afnumið hefur
verið hið gamla atkvæðakerfi þar
sem umsækjandi varð að hljóta
helming eða tvo þriðju hluta at-
kvæða. Hin nýju inntökuskilyrði
eru unnin eftir norskri og sænskri
fyrirmynd og byggja á ákveðnu
punktakerfi. Tekið er tillit til skóla-
menntunar, sýningahalds og ann-
ars er telst umsækjanda til fram-
dráttar. Þeir sem fullnægja ekki al-
mennum skilyrðum geta gert grein
fyrir verkum sínum og sent inn sér-
staka inntökubeiðni.
Innan SÍM vinnur nefnd sem á-
kveður taxta myndlistarmanna við
störf sem tengjast myndlistarsýn-
ingum, svo sem dómnefndarstörf,
sýningargjald, hönnun sýninga o.s.
frv. Til að mynda mun almenn
vinna við sýningar (án ábyrgðar)
teljast til 17. launaflokks en hönn-
un sýninga og dómnefndarstörf
heyra undir almennan taxta arki-
tekta og auglýsingateiknara.
Nefndastörf um menningarmál
flokkast undir almennar funda-
greiðslur ráðuneyta. — IM.
Liturinn fæddist af dufti
Frá sýningu Hafsteins Austmann í Listasafni ASI — skipar sér í hóp
fremstu vatnslitamálara okkar, segir Guðbergur m.a. í umsögn sinni.
í upphafi máluðu menn andlit
sitt með dufti. Og Iitið var á and-
litið sem ljóð mannsins. Það vakti
sömu kenndir og hljómurinn.
Þeir lituðu þetta ljóð með dufti til
þess að leggja áherslur á ljóðlínur,
einkum augnanna, munnsins og
kinnanna. Þetta gera menn enn í
dag, jafnvel þótt þeir beri ekki
lengur neitt skynbragð á ljóðlist,
hárfínar tilfinningar. Táknið og
efnið verða samt eftir - og andlit
manna þótt þeir hafi glatað því
fyrir löngu.
I upphafi máluðu aðeins heim-
spekingar og ljóðskáld. Nú mála
allir. Og heimspekingarnir leiða
sjaldan hugann að Ijóðlistinni,
þeir eru aliir í hinni „rökréttu
hugsun“: ef A er B, hvað er þá C?
Svar: Hvorki A né B né AB.
En það hvernig vatnsliturinn
varð til, elsti liturinn, er jafn rök-
rétt og þetta en þó miklu ljóð-
rænna, ef svo er hægt að segja um
eitthvað sem er rökrétt. Liturinn
varð til með þessum hætti: Kona
hafði farðað andlit sitt með
dufti. Hún beið unnusta sins und-
ir steini, og þegar hann kom ekki
þá grét hún og tár rann í litinn.
Hún strauk það af með vísifingri
og sá litinn og brá fingurgóminum
á steininn og dró þar mynd af
unnusta sinum. Þetta er nú min
kenning um uppruna litanna, og
ég sel hana ekki dýrt.
Hitt er víst að í Þriðju bók
Anakletas er Iitar fyrst getið í
sögu mannkynsins, í umræðum
Konfúsíusar og námsmanns, á
sjöttu öld fyrir Krist. Náms-
maðurinn Tse-hsia sagði þegar
hann braut heilann um Ijóð í
Ljóðabókinni: Hvað merkir þessi
lína? Og Konfúsíus svarar: í
málaralistinni er hvíti liturinn
notaður síðast’. Eru athafnir við
fórnir þá orðnar í öðru sæti? spyr
námssveinninn. Og Konfúsíus-
svarar að nú sé námssveinninn
orðinn fær um að ræða um
Ljóðabókina.
Af þessu er auðsætt að liturinn
er orðinn æðri efniviðinum, litur-
inn eða hughrif ljóðsins er höfuð-
atriðið, eða hefur að minnsta
kosti öðlast visst sjálfstæði; hann
er ekki aðeins notaður til að lýsa
öðru líkt og hjálpargagn. Ljóð-
lína og myndlína eru það sama.
Næst segir Chuangtse frá því að
Yúan konungur hélt samkeppni
meðal málara. Fjöldi málara
kom, en einn síðastur. Sá fór af-
síðis og fór úr fötunum og stóð
nakinn. „Hann er hinn sanni mál-
ari“, sagði konungurinn. Þetta
gerðist á fjórðu öld fyrir Krist.
Han Fei sagði á þriðju öld fyrir
Krist að það að mála skugga (sem
merkir líka vofur) sé auðvelt.
Skuggi málverksins er andi lit-
anna og sálin sem býr handan við
dauðann, og dauðinn er líf.
Konfúsíus, Chuangtse og Han
Fei voru heimspekingar. Og
sögurnar sem ég stytti og segi frá
eru dæmigerðar sögur um lista-
menn enn í dag.
En látum þetta nægja um kín-
verska bleklist. Verulegur áhugi á
henni vaknaði ekki fyrr en í Iok
síðustu aldar með hinum kynlega
spánverja Fenollosa sem fluttist
til Bandaríkjanna og Ezra Pound
sótti næstum allt ljóðvit sitt i.
Höfuðeinkenni á kínverskri
málaralist eru þau að hin auðu
svæði á myndfletinum skipta jafn
miklu máli og hin sem litir þekja.
I augum vestræns manns er slíkt
ófullgert málverk, en hið ófull-
gerða, auða er jafn mikil full-
komnun og hið þakta; og jafnvel
kannski enn meiri raunveruleiki.
Hinum vestræna manni finnst þó
oft eitthvað vera heillandi við
„ófullgerð" málverk á lokastigi,
en málarinn „lýkur“ þeim jafnan.
Vestræn hugsun og verkvit erú sí-
fellt að fylla tóm.
Hafsteinn Austmann er vest-
rænn málari, hann þekur þess
vegna allan flötinn með litum. En
með sama hætti eða svipuðum og
hinn kínverski notar hann pensil-
inn til þess að teikna með honum
eða draga oftast grófar línur.
Auðsætt er þó að hann beitir ekki
penslinum með sama hætti og
reglur segja fyrir um í kínalist, en
það er í sjálfu sér talsverð íþrótt
að beita pensli að kínverskum
hætti. Af þessum sökum gerir
Hafsteinn lítinn greinarmun á
notkun pensils við olíumálverk og
vatnslitapensils. Það gildir sama
um hann og fjölmarga íslenska
málara, þeir eru í hinum ýmsu
greinum málaralistarinnar en
nota sömu aðferðirnar við þær
allar. Þannig vinnur grafíklista-
maður málverk eins og það væri
grafíkmynd, teiknarinn teiknar
eins og hann væri að reyna að
líkjaeftir málverki o.s. frv. En það
er Hafsteini til happs að málverk
hans eru í eðli sínu náskyld vatns-
litamyndum, vegna þess að hann
leggur höfuðáherslu á blæbrigði
og gagnsæi í staðinn fyrir and-
stæður eða stranga formbygg-
ingu. Málverk hans og vatnslita-
myndir eru þess vegna miklu
fremur mynstur en formbygging.
Hafsteinn nýtur sín einstaklega
vel í vatnslitamyndum, einkum
þeim þar sem hann „teiknar" ekki
um of og leyfir vatnslitunum að
flæða. Því það er eðli vatnsins að
flæða fremur en safnast í tjarnir,
og á jafnt við um það þótt það
hafi fengið í sig aukalit.
Ýmsir málarar, Iíkt og Turner,
teiknuðu undir en leyfðu vatns-
litnum síðan að flæða yfir blý-
antsteikninguna. En þau undur-
samlegu áhrif hverfaef penslinum
er beint sem blýantur væri, jafnvel
þótt litir flæði síðan yfir pensil-
förin.
Vatnslitamyndir eru viðkvæm-
ar, gæddar duttlungum og
draumum fremur en ríkri skap-
gerð fullri af andstæðum. En
kannski er mikil skapgerð einslags
yfirborðsform sem leynir blæ-
brigðum, jafnvel litleysi, sem get-
ur verið einkar fagurt í vatnslita-
myndum og Hafsteinn nálgast
það aðeins á köflum. Kannski er
þetta skýringin á því að bretar eru
bestu vatnslitalistamennirnir.
Því miður hafa íslenskir lista-
menn ekki lagt mikla stund á það
að mála vatnslitamyndir, og ef
þeir gera það þá draga þeir næst-
um undantekningarlaust línur
með penslinum, líkt og Gunn-
laugur Scheving. Ásgrímur er þó
undantekning í síðustu myndum
sínum, sem sýndar voru hjá List-
vinafélaginu árið 1953 að mig
minnir, en síðan ekki söguna
meir.
Hafsteinn Austmann skipar sér
í hóp fremstu vatnslitamálara
okkar. En okkur vantar hugsuði
sem fjalla um flæði og litinn og
eiginleika beggja og andstæður.
Því ef vatnið í vatnslitnum er
flæði, þá er litarefnið festan í hon-
um. Og það eru þessir andstæðu
eiginleikar sem gera litinn svo
vandmeðfarinn og heillandi.
Listamaðurinn sem notar vatns-
litinn verður að íhuga. Vatnslita-
myndin er íhugun.
S.IOkVVAKI*
Föstudagur
13. maí
20.40 Á döfinni. Birna Hrólfsdóttir kynnir
i þætti, sem Karl Sigtryggsson sér
um. Menningarumræöan á fullum
dampi.
20.50 Steinl og Olli. Hafa verið færðir
fram, fræknir kappar stuttir. Botn-
inn er einhvers staðar fyrir norðan.
Hver vill reka smiðshöggið á vfsu-
tetrið?
21.15 Myndbandavæöingín. Myndbönd
eru útbreidd vfðar en á islandi. Hér
ætla Danir að skýra okkur frá
reynslu sinni. Hvort er þaö klám
eða heilaleikfimi?
22.05 Ég söng aldrei fyrir föður minn (I
Never Sang for My Father).
Bandarisk kvikmynd, árgerð 1969.
Leikendur: Melvyn Douglas, Gene
Hackman, Estelle Parsons,
Dorothy Stickney. Leikstjóri: Gilbert
Cates. Hrífandi mynd um fertugan
mann, sem reynir að vera sonur átt-
ræðs föður síns. Gamli maðurinn er
ráðrikur og næstum þvi snargeggj-
aöur. Frábær leikur hjá Hackman
og Douglas. Mynd, sem menn
minnast.
Laugardagur
14. maí
17.00 íþróttir. Bjarni Fel er þá búinn að fá
nóg af lyftingum í bili. Hvernig væri
að fá innanhússknattspyrnuna i
beina útsendingu? Og taka sóns-
inn á að brjóta tækin? Nei!
18.45 Enska knattspyrnan. Nú fer þessu
aö Ijúka og enn hef ég ekki tippað.
20.35 Þriggjamannavist. Síðasti þáttur-
inn. Skyldi gamli maðurinn þá
hrökkva upp af? Ég vona ekki.
Hann er eina manneskjan með viti.
Og svo segja menn að kynslóða-
bilið sé ekki til! Ésús minn.
21.00 Suörænir samkvæmisdansar.
Fengum við ekki nóg af þeim um
daginn? Hér er það keppni um
heimsmeistaratitilinn. Hún fórfram
í Danmörku.
22.00 Að tjaldabaki (Curtain Up). Bresk
gamanmynd, árgerð 1952. Leik-
endur: Robert Morley, Margaret
Rutherford, Olive Sloane. Leik-
stjóri: Ralph Smart. Ánægjuleg
gamanmynd um litiö leikfélag, sem
ætlar sér aö setja á svið hroöalega
lélegt leikrit. Frænka höfundarins
er alltaf að angra leikarana. Út-
koman veröur ekki sem skyldi. Ég
meina myndarinnar. Hæ Smart
beibi!
Sunnudagur
15. maí
18.00 Sunnudagshugvekja. Ólafur
Oddur Jónsson úr Kefflavick
Æsland predikar.
18.10 Alein heima. Og býður hættunni
heim. Finnsk barnamynd um fót-
brotna stelpu, sem veröur að hanga
heima. Hundleiðinlegt. Ég meina
fyrir stelpuna.
18.25 Daglegt Iff í Dúfubæ. Fuglarnir
fljúga og menirnir með. Brúðu-
barnamyndafuglaflokkur frá Eng-
landi.
18.40 Palli póstur. Hann er góöur maður.
Hann kemur með bréfin frá rlka
frænda í Ameríku.
18.55 Sú kemur tfð. Þeir eru búnir að
eyöileggja myndina með þvi að taka
franska taliö út. Annars er þetta
geimferðamynd fyrir börn.
20.40 Sjónvarp næstu viku. Guðmundur
Ingi er enn á ferð. Hann er alltaf að
ferðast.
20.50 Bústaðir á floti. Fuglinn flakkar á
liljunum. Dýralifsmynd frá Sri
Lanka.
21.20 Ættaróðalið. Áfram með smjörið.
Þetta tekur senn enda.
22.10 Nat Adderley. Bróðir Fallbyssu-
kúlunnar heitinnar. Leikur á sax og
fílar þetta vel. Viö líka.
IIÍVAIM*
Föstudagur
13. maí
7.10 Gull i mund. Stefán Jón og vin-
konur hans eru skemmtilegt fólk,
svona rétt eins og ég, nema hvað
þau eru hressari aö morgni dags.
10.35 Það er svo margt að minnast á.
Torfi Jónsson sér um kennsluþátt i
hóþefli minnis. Gamlar minningar
rifjaðar upp.
11.35 Frá Noröurlöndum. Borgþór
bregður sér út fyrir steinana.
14.30 Sara. Er fönguleg stúlka. Hún varð
efni í sögu eftir Johan Skjaldborg.
15.00 Mlðdegistónleikar. Corelli, Vivaldi,
Hummel. Hvar er Adidas?
16.40 Litll barnatfminn. GrétaÓlafsdóttir
leitar aö Hansa litla fyrir norðan.
17.00 Með á nótunum. Fyrst til hægri og
siðan tvisvar til vinstri. Þannig er
pólitíkin í umferðinni. Og endar allt-
af á sama stað.
23.00 Kvöldgestir. Jónas með gráa
skeggið og huggulega brosið, sól-
brúni strákurinn að norðan.
01.10 Á næturvaktinnl. Yfirsælkerinn er
líka sællegur. Ása Jónsdóttir lika
líka.
Laugardagur
14. október-
9.30 Óskalög sjúklinga. Lóa Guöjóns.
Ég þarf ekki að segja meira.
11.20 Hrfmgrund. Solla Halldórs er frá-
bær fyrir krakkana. Enda vön
manneskjan.
13.25 Helgarvaktin. Hrói og Marion leika
sér.
15.10 I dægurlandi. Svavar Gests er alltaf
að koma manni á óvart. Síðast meö
Doris Day og Frankie Lane. Hvað
gerist í dag?
16.40 Islenskt mál. Kannast lesendur við
orðatiltækið: Að kasta keilu í túni og
hvað merkir þaö?
19.35 Á tall. Helga og Edda. Ég segi nú
ekki meir. Svo laumast ég til að
hlusta á þær, en var staöinn aö verki
um síðustu helgi. Ég lofaði bót og
betrun.
20.30 Sumarvaka. Hrærigrautur.
23.00 Laugardagssyrpa. Páll og Þorgeir.
Til hamingju strákur.
Sunnudagur
15. maí
10.25 Út og suður. Hver kemur núna?
Spennan magnast sífellt. Friörik
Páll og fólagi.
11.00 Messa Árni Bergur Sigurbjörnsson
og félagar syngja og leika.
13.30 Frá liðinni viku. Páll Heiðar og fé-
lagar skrafa og skjalla.
14.10 Dagskrárstjóri í klukkustund. Sig-
uröur Helgi Guðmundsson prestur
velur og velur og kvelur sjálfan sig.
15.15 Söngvaseiður. Trausti veður-
barningur og félagar. Þeir tala um
Jón Laxdal, íslenskan sönglagahöf-
und.
16.20 100 ára mlnníng fyrsta íslenska
blaðsins í Winnipeg. Enn einn
presturinn. Séra Björn Jónsson á
Akranesi flytur sunnudagserindi.
17.00 Tónskáldakynning. Sonur prests-
ins, Guðmundur Emilsson,talar viö
Jón Ásgeirsson og kynnir verk
hans.
19.25 Myndir. Jónas er nu alltaf notaleg-
ur rabbari. Ekki rabbarbari.
21.30 Hin týnda álfa Tyrkjaveldis.
Kristján Guölaugsson, Peking?
Flytur fyrsta þátt sinn. Gátan mikla
leyst.