Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 13.05.1983, Qupperneq 14

Helgarpósturinn - 13.05.1983, Qupperneq 14
14. Föstudagur 13. maí 1983 Jp&sturinrL Skattalögregla og klósettpappír Þegar ég tók þá ákvörðun að flytja að heiman — það var eigin- lega 1976-þá korn skattalögregl- an á mína skrifstofu, tætti allt þar og reif og leit á mig og allt í kring- um mig sem einhvern glæpalýð. Það var þannig, að maður, sem vann hjá skattalögreglunni — Ríkisskattstjóraembættinu heitir það víst — kom á skrifstofuna til að taka bókhaldið. Jújú, gjöriði svo vel, sagði ég. Það var mikið krítiserað hjá mér bókhaldið. Það var meira að segja þannig, að þegar ég kom á skrifstofuna hjá þeim, þá sögðu þeir: Hvernig er það með þig, Ágúst. Þú kaupir allt of mikinn klósettpappír. Þú kaupir svona og svona mikið á mánuði — okkur líkar þetta ekki, þetta er allt of mikill kostnaður hjá þér. Ég spurði á móti hvað þeir væru margir, sem ynnu hjá skattalögreglunni. Eruð þið hver um sig með klósettrúlluna í vasanum? spurði ég. Að sjálfsögðu borgið þið hana sjálfir — ekki látið þið ríkið borga það, sagði ég. Þeir- umræðu — þeir tóku ekki nema aðra nótuna til greina. Við svona aðstæður er ekki hægt að vinna. Þegar maður þarf að verja kannski 60 eða 70% af sinni orku í að rífast við skatta- yfirvöld, þá hugsar maður sem svo: Heyrðu, það er bara best að koma sér úr landi“. Þori ekki að leggja inn gjaldeyri Ágúst Hróbjartsson tekur undir þá skoðun, sem oft heyrist að á íslandi sé allt bannað: „Á ís- landi má ekkert. Það má enginn eiga neitt... íslendingar eru alveg sérstök þjóð úti í Ballarhafi... Við höfum talað hér við Svía, Dani, Englendinga, Þjóðverja, Frakka allra þjóða kvikindi. Hvergi nokkurs staðar þekkist það, að maður megi ekki eiga íbúð er- lendis eða aðrar eignir. í lönd- um þessa fólks má eiga íbúðir er- lendis, fólk getur gert grein fyrir þeim og telur fram á sínum skatta- skýrslum — en heima er allt bann- að nema að eiga sumarbústað á Þingvöllum eða kjallaraíbúð í Reykjavík. Þetta er bara stein- aldarhugsunarháttur — við lifum á 20. öldinni og erum að nálgast þá 21. Þetta hefur þó aðeins skánað, færst í réttlætisátt þegar leyft var að íslendingar gætu átt gjaldeyr- isreikninga heima. En þótt ég ætti — sem ég á — fullt af gjaldeyri, þá þori ég ekki að Ieggja hann inn í íslenska banka. Einn daginn kem- ur ríkisstjórnin og segir manni að nú fái maður ekki að taka þá pen- inga út nema í verðlausri mynt. Maður getur ekki treyst þeim“. — En eigið þið ekki ennþá eignir á íslandi? Sigrún: „Þær voru nú ekki margar“. stjóra. Svo fiðu sjö eða átta mán- uðir þar til nefndin hafði afgreitt málið þótt hún eigi skv. lögum að gera það innan sex mánaða. Þá var ég búinn að eiga fjórar millj- ónir hjá gjaldheimtunni í allan þennan tíma. Og þegar nefndin hafði úrskurðað þá átti ég ekki að borga nema eina og hálfa milljón. Hálf þriðja milljón hafði því legið hjá gjaldheimtunni vaxtalaust í allan þennan tíma. Ég óskaði eftir að fá vexti borgaða af þessu fé en fékk neitun. Sadistar Ég fékk því góðan vin minn, Helga V. Jónsson lögfræðing og endurskoðanda til að fara í mál við gjaldheimtuna. Og málið vann ég! Þá kom það í lög að fólk ætti að fá vexti af umframfé hjá gjaldheimtunni ef það hefur borgað af ófrjálsum vilja“. — Þannig að þú ert ekkert mjög hrifinn af skattrannsókna- deildinni? „Þetta virðast vera sadistar upp til hópa. Þessir menn, sem safnast saman inn á þessar skrifstofur, eru allir sammála um að allir sem reka fyrirtæki séu glæpamenn. Og það sem verra er: þetta eru tómir kommúnistar. Ef maður kemur á skrifstofu hjá ríki eða bæ þar sem vinna tólf manns, þá eru sjö kommúnistar. Þeir sjá allt rautt. Þeir vilja byggja allt á fé- lagslegum grundvelli, fá allt upp í hendurnar og ekki að hafa fyrir neinu. Það er þetta, sem er að drepa allt. Ég er ekkert á móti skattayfirvöldum og skattaeftir- liti. Ég er ekkert á móti því að fólk borgi sina skatta. En ég skal segja þér eitt: það er ekki eitt einasta fyrirtæki í Reykjavík, hvort sem það heitir Flugleiðir eða Sam- band íslenskra samvinnufélaga eða eitthvað annað, sem er hægt skuli það leyft. Eg vil ekki eiga sumarbústað við Þingvallavatn því þar er aldrei sól. Alltaf rigning og rok. Ef einhver vill kaupa sér sumarbústað á Spáni, á þá að segja við hann: Þú ert glæpa- maður og föðurlandssvikari? Það ætti að leyfa fólki að verja sínum peningum til að kaupa eitthvað, sem það gæti nýtt sér, í staðinn fyrir að vera að flytja inn kex og kökur og allskonar helvítis rugl og vitleysu. Á íslandi er allt sem heitir lýðræði og frjálsræði bann- að. Landsbankinn má kaupa hús í útlöndum og jafnvel einhverjir gæðingar innan kerfisins en ein- staklingurinn má ekki gera neitt. Ef hann fer upp fyrir aðra tröppu þá fær hann hamarinn í hausinn og svo er sagt: Nú drepum við þig. Það er þetta, sem mér líkar ekki við“. — En hér líður ykkur vel? Lýðræðið og Franco „Já, hér er ekkert stress, alltaf gott veður og fínt að vera. Ég hef betri afkomu hér en í fasteigna- bransanum heima. Konan er leið- sögumaður. Ég leigi hér íbúðir fyrir útlendinga, sem eiga íbúðir er þeir nota ekki nema í skamman tíma á hverju ári. Þeir biðja mig að annast reksturinn á þessu fyrir sig og fyrir það fæ ég 10% af brúttóinnkomu. Ég hef meira að segja leigt íslenskum ferðaskrif- stofum. Og ef ég á að segja eins og mér býr í brjósti, þá er það þannig að fyrir helmingi minni vinnu heldur en heima þá þéna ég tíu sinnum meira. Við erum resident- ar hér þótt við séum íslenskir ríkisborgarar. Hér borgum við okkar skatta og skyldur og hér er okkar lögheimili. Ég flyt ekki heim fyrr en þar er komið meira lýðræði og frjálsræði“. Miklu meira lýð- ræði hjá Franco heldur en á íslandi — segir Ágúst Hróbjartsson fasteignasali sem fluttist til Mall- prca undan skattpíningu og haftastefnu „kommúnistaríkisins íslands" Það munu vera um tíu þúsund íslendingar í útlöndum. Þótt flestir séu í nokkrum helstu ná- grannalöndum okkar má finna Is- lending í hvaða heimshorni sem er. Og þetta fólk hefur farið að heiman af margvíslegum ástæð- um — margir í nám, margir í vinnu, sumir hafa gifst eða kvænst til útlanda og svo fram- vegis. Sumir hafa farið vegna þess að þeir hafa einfaldlega ekki þolað við á íslandi lengur. Einn þeirra er Ágúst Hróbjartsson, fyrrverandi fasteignasali, sem undanfarin þrjú ár hefur búið á Mallorca á- samt konu sinni, Sigrúnu Guð- mundsdóttur. Útsendari Helgar- póstsins staldraði við í Palma á dögunum og hitti þau hjón og bað þau að segja frá veru sinni á Mallorca og ástæðunni fyrir brottförinni að heiman. „Ástæðan fyrir því að ég fór frá íslandi var ekki sú, að mér þætti ekki vænt um landið mitt“, sagði Ágúst. „Mér líkaði bara ekki skattpíningin, sem er á íslandi og allir þar vita um. Ég rak fasteigna- sölu fíeima í sautján ár, fyrst með lögfræðingi en síðan tók konan mín próf, fékk löggildingu í fast- eignasölu og var eina konan á ís- landi með slík réttindi. vildu vita hvers vegna ég spyrði að því og ég sagði að það væri nú þannig hjá mér, að á skrifstofuna kæmu 50-60-70 manns á hverjum degi, og það fólk þyrfti sumt að fara á klósettið. Þá yrði náttúrlega að vera til klósettpappír þar. Þetta var bara eitt af því, sem þeir voru að setja út á. Þeir settu út á heimasímann, sem ég notaði mikið við fasteignasöluna. Um- framsímtöl voru borguð af fast- eignasölunni. En þeir vildu ekki taka það til greina þótt þeir vissu, að í fasteignasölu notar maður heimasímann ekkert minna en vinnusímann. Þannig er það ein- faldlega — þetta skilja allir, sem einhverntíma hafa þurft að skipta við fasteignasala. Þeir gerðu athugasemdir við að einn daginn hafði ég tekið bensín tvisvar sama daginn. Þegar mað- ur var að flytja fólk á milli íbúða í Hafnarfirði, Reykjavík og Mos- fellssveit þá eyddi bíllinn að sjálf- sögðu bensíni. En það var ekki til Ágúst: „Við eigum íbúð í Skip- holtinu. Ég reiknáði það út, að ef ég myndi selja hana, þá tæki það mig 15—20 ár að flytja peningana yfir til Spánar. Ég reiknaði því dæmið þannig, að fyrst ég kem til íslands einu sinni á ári þá get ég alveg eins átt íbúðina. Þar erum við með mikið af okkar húsgögn- um og vetrarfötum — við höfum ekkert við þau að gera hér, hérna er enginn vetur!“ — Hvernig fór mál þitt hjá skattalögreglunni sem þú kallar svo? „Já, ég ætlaði einmitt að koma að því. Þegar ég var tekinn af skattalögreglunni þá Ienti ég í ein- hvers konar reglu, sem gerir ráð fyrir að maður eigi kost á að borga fjórar eða fimm milljónir — ég tala í gömlum peningum, því við vorum farin fyrir myntbreyt- inguna. Á þeim tíma borgaði ég fjórar milljónir gamlar til gjald- heimtunnar — ríkisskattstjóri sagði að þetta ætti ég að borga og hefði verið vanáætlað á mig. Þessu gat ég náttúrlega mót- mælt og sagt: Jæja, við skulum láta þetta bíða þangað til ríkis- skattanefnd er búin að afgreiða málið. En ég borgaði þessa pen- inga, því að öðrum kosti hefði ég þurft að borga dráttarvexti ef úr- skurður nefndarinnar hefði verið samhljóða úrskurði ríkisskatt- að reka samkvæmt skattalögum. Það er þá dauðadæmt fyrirfram“. Kommúnlstaríkið ísland — Þú hefur verið ósáttur við ríkisstjórnina...? Sigrún: „Allar ríkisstjórnir" (Hlær). Ágúst: „Nei nei. Málið er að ís- land er að verða — og er orðið — eitt stórt kommúnistaríki. Ég vil meina að fólk á íslandi fatti ekki hvað er að ske. Með sama áfram- haldi kemur að því að útifundir verða bannaðir. Ef einhver vill haldaútifundverður hann barinn niður. Þetta er að ske á íslandi. Kommúnisminn er ekkert annað en einræði". — Hvernig vilt þú þá breyta? „Ég vil breyta Islandi í meira lýðræðisríki. Það er alltaf verið að tala um Iýðræði, lýðræði og lýðræði. En lýðræði heima er ekki til. Því miður“. Sigrún: „Ég myndi segja að það vantaði einræðisherra á Islandi — einhvern, sem stjórnaði með harðri hendi. Það veitir ekkert af því, þetta er allt svo stjórnlaust. Það eru svo margir i ríkisstjórn að ef einhver vill gera eitthvað, þá kemst aldrei neitt í framkvæmd". Ágúst: „Ég vil að þessu sé breytt þannig, að ef maður vill eiga sumarbústað á Spáni, þá — Var ekki Spánn einræðis- ríki? „Jú, það er verið að tala um að Spánn hafi verið einræðisríki þeg- ar Franco var. Þegar hann var hérna á sínum tíma þá var Spánn miklu meira lýðræðisríki heldur en ísland. Ég hef haft gaman af því hérna niður í bæ, þar sem stöðumælar þekkjast ekki, að gera samanburð. Eg þekki þetta svolitið heima og ég veit að þar er sagt við lögreglumenn á morgn- ana: Farið þið nú út með illu blóði og sektið nógu marga bíla svo að það komi eitthvað í kassann hjá okkur. Herna bíða þeir stundum fimm og tíu mínútur við bíla, sem hefur verið lagt ólöglega, til að sjá hvort eigandinn kemur ekki. Heima eru þeir eins og naut í flagi. Bara að sekta og sekta nógu mikið. Maðurinn á götunni er eins og fórnarlamb. Það á bara að ná út úr honum peningum“. — Hvað er, að ykkar mati, mest unnið með því að búa hér? „Þetta er ekki spurningin um það að vera rikur og allt það. Þetta er spurningin um að lifa líf- inu. Það getum við hér — áhyggjulaus. — Nú, þetta samtal er búið að vera mjög ánægjulegt. Ég vona að það komist sæmilega til skila. Og hvað varðar skattinn og lýðræðið, þá þarftu ekki,að klípa neitt af þvi!“ — JG/ÓV.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.