Helgarpósturinn - 13.05.1983, Síða 17
hlelgai------
,posturinn.
17
fT'l Mörgum kemur spánskt fyrir
J sjónir skipulagsbreyting sú á
y Bæjarútgerðinni í Reykjavík
sem borgarstjórnarmeirihlutinn í
Reykjavík hefur látið vinna og virð-
ist staðráðinn í að berja í gegn.
Mönnum er nefnilega fyrirmunað
að sjá annað en að i reynd þýði þetta
aðeins aukna yfirbyggingu hjá fyr-
irtækinu og hefur læðst að mönn-
um sá grunur að allt sé þetta ekki
annað en heljarmikið sjónarspil,
gert í þeim tilgangi einum að koma
Ragnari Júlíussyni á toppinn í fyr-
irtækinu en hann þykir metnaðar-
fullur maður í meira lagi...
Undanfarna viku hefur hér á
h \ landi verið staddur forstöðu-
.S maður nútímalistasafns Am-
sterdamborgar, Fodorsafnsins, og
vinnur hann að undirbúningi fyrir
gagnkvæma kynningu á því sem er
efst á baugi í þessari grein hérlendis
og í Hollandi. Velur hann átta ís-
lenska myndlistarmenn til að sýna í
safninu næsta haust, en þeir Sig-
urður Guðmundsson og Magnús
Pálsson velja síðan jafnmarga
hollenska listamenn til að sýna hér
um svipað Ieyti. Það er Nýlistasafn-
ið í Reykjavík sem skipuleggur ís-
Ienska þáttinn í þessu máli, en verið
er að leita fjárstuðnings ríkis og
borgar við þetta skemmtilega fram-
tak. Hollenska ríkið veitir fjár-
stuðning við þarlenda þáttinn. Ým-
islegt fleira er í athugun í sambandi
við þessa gagnkvæmu myndlistar-
kynningu, þ.á m. verður sýning á ís-
lenskum bókverkum í Amsterdam
og hollensk vídeólist sýnd hér...
Hópur ungra Iistamanna
/ \ vinnur nú ötullega að því
að koma á fót nýjum stað
sem sameini lista- og skemmti-
þörf Reykjavíkurbúa. Heyrst hefur
að hópurinn hafi fengið augastað á
húsnæði við Hringbraut (við hlið
JUhússins) en meðal eigenda þess
er Jón Hjaltason Óðalsbóndi.Lista-
mennirnir ungu hafa hug á að
þarna fari fram ýmisleg listastarf-
semi svo sem leiksýningar, mál-
verkasýningar, tónlistarkvöld, upp-
lestur og uppákomur ýmislegar.
Aðstandendur hafa einnig áhuga á
að stunda veitingasölu en á þar við
erfiðleika að etja, því eitthvað virð-
ist vínsala veia annmörkum háð í
okkar ágæta landi...
Hljóðlát bylting varð í tón-
J listarheiminum íslenska um
S daginn þegar samningar
náðust milli Tónskáldafélags ís-
lands, fámenns nóps klassískra tón-
skálda, sem ráðið hefur ferðinní í
STEF og þar með sjóðum og fjár-
munum sem allir höfundar afla, og
FA, Félags alþýðutónskálda, sem í
eru höfundar léttrar tónlistar. í
framhaldi greinar Helgarpóstsins
um þessi mál í vetur var boðað til
samningafunda og eftir nokkurt
þref var samþykkt að höfundar
léttrar tónlistar öðluðust jafnan rétt
og höfundar klassískrar til að ráð-
stafa tekjum tónskálda af opinber-
um flutningi, þ.e.a.s. tekjum
STEF...
Starfsvikur svokallaðar eru
/' farnar að setja mikinn svip á
skólastarf víða um land.
Austan frá Höfn í Hornafirði heyr-
um við, að þar hafi nemendum
gagnfræðaskólans tekist að fá eina
slíka eftir nokkurt þref við skóla-
yfirvöld. Nemendum níunda
bekkjar átti síðan að vera í sjálfs-
vald sett hvert þeir færu þessa vik-
una. Meðal nemenda var stúlka
nokkur, sem vildi endilega fara á
sjóinn. Þegar hún bar þessa ósk
upp við einn kennaranna, fékk hún
blákalt nei, hún hefði ekkert að
gera á sjóinn. Stúlkan sagðist þá
mundu kæra þetta fyrir jafnréttis-
ráði, sem hún og gerði. Jafnréttis-
ráð hringdi austur og stúlkan fór á
sjóinn og var þar alla vikuna...
rjA Fátt hefur vakið eins mikla at
f~J hygli í íslenska „viðskipta
S heiminum" að undanförnu
og skipting stórfyrirtækisins
Karnabæjar. Mun Guðlaugur Berg-
mann taka við rekstrinum að mestu
leyti, en hinn aðaleigandinn, Hauk-
ur Björnsson, fékk stórhýsi fyrir-
tækisins við Fossháls í sinn hlut.
Sagt er ástæðan fyrir skiptunum
hafi verið sú að þeir Guðlaugur og
Haukur hafi ekki átt skap saman,
og greint á um Ieiðir í rekstri fyrir-
tækisins. Er sagt að Haukur hafi
viljað breyta rekstrarfyrirkomulagi
fyrirtækisins verulega og leggja
aðaláhersluna á innflutning tísku-
varnings, en Guðlaugur hafi hins
vegar viljað halda áfram eigin
framleiðslu og saumaskap, þótt illa
áraði fyrir slíkan rekstur...
r« 1 Nokkrir aðilar, m.a. Um-
1 ferðarráð og samtök öku-
kennara hafa nú hafið
undirbúning að gerð æfingasvæðis
fyrir ökukennslu á höfuðborgar-
svæðinu, og vonast þessir aðilar til
þess að fá stuðning Reykjavíkur-
borgar og sveitarfélaganna á svæð-
inu, auk ríkisins. Talið er að kostn-
aður við gerð æfingabrauta verði
um ein og hálf milljón króna, og er
þá m.a. gert ráð fyrir að hluti bún-
aðar svæðisins verði vatnsúðunar-
og frystikerfi, þannig að unnt sé að
búa til svell og hálku á brautinni,
jafnvel í sól og sumaryl. Þess má
geta að slík æfinga- og kennslu-
svæði eru mjög víða erlendis og er
ungum ökumönnum víða ekki
sleppt út í umferðina fyrr en þeir
eru taldir hafa sannað hæfni sína á
æfingabrautunum....
r< 'l Leikfélag Akureyrar hefur
YJ nú ákveðið að ráðast í það
S stórvirki að færa upp söng-
leikinn „My Fair Lady“ næsta
haust. Munu æfingar hefjast á
næstunni og mun Þórhildur Þor-
leifsdóttir verða leikstjóri. Gera
Akureyringar sér vonir um að
„Lady-in“ verði álíka kassastykki
hjá þeim og var hjá Þjóðleikhúsinu
hér á árum áður, en fá verk sem tek-
in hafa verið þar til sýninga munu
hafa gefið af sér eins góðar tekjur.
Akureyringar hyggjast fá liðsstyrk
„að sunnan“ við sýninguna og allar
líkur eru á því að Ragnheiður Stein-
dórsdóttir fari með hlutverk Elísu í
sýningunni. Þá er einnig búist við
því að Hjalti Rögnvaldsson gangi til
liðs við norðanmenn og fleiri leik-
arar hafa raunar verið tilnefndir...
Allar líkur eru taldar á
/ 1 því að pólski handknattleiks-
S\ þjálfarinn Bogdan sem náð
hefur frábærum árangri með Vík-
ing undanfarin ár muni taka við
þjálfun Garðabæjarliðsins Stjörn-
unnar næsta ár, auk þess sem hann
mun þjálfa íslenska handknatt-
leikslandsliðið. Fiögur eða fimm
félög báru víurnarí Bogdan þegar
ljóst var að hann myndi ekki endur-
nýja samning sinn við Víking, og
mun kappanum hafa litist best á
Garðabæjarliðið, ekki síst vegna
þess að það mun eiga efnilega yngri
menn sem sá pólski er sagður hafa
áhuga á að móta...
Það vakti töluverða athygli
f' I á sínum tíma þegar Vik-
vr|unni tókst að krækja í
Ford-models-keppnina frá Tísku-
blaðinu Líf en þátttaka í keppni
þessari þykir mjög eftirsóknarverð
fyrir ungar stúlkur enda góð verð-
laun og vel launuð atvinna í boði
fyrir þær sem lengst ná. Nú mun
Tískublaðið Líf koma með krók á
móti bragði og er sagt að það hafi
náð samningum við eitt stærsta og
þekktasta fyrirsætufyrirtæki í
heirni sem efnir til svipaðrar keppni
og Ford-models hefur verið með.
Munurinn mun þó fyrst og fremst
vera sá, að fyrirtækið sem Líf
samdi við er miklu stærra en Ford-
models, og verðlaun Ford að-
eins smápeningar hjá því sem í boði
er hjá hinu.
Eæp nu geta allir farið að mála
- Hér kemur tilboð sem erfitt er að hafna.
ALNINGAR-
TILBOÐ
‘J Ef þú kaupir málningu fyrir 1.500 kr. eða
meir færðu 5% afslátt.
O Ef þú kaupir málningu fyrir 2.200 kr. eða
meir færðu 10% afslátt.
O Bf þú kaupir málningu fyrir 3.600 kr. eða
^ ■ meir færðu 15% afslátt.
Ef þau kaupir málningu i heilum tunn-
um, þ.e. lOOIitra, færðu 20% afslátt og i
kaupbæti frían heimakstur hvar sem er á
Stór-Reykjavikursvæðinu.
HVER BYÐUR BETUR?
Auk þess ótrúlega hagstæðir greiðsluskilmálar.
Ath.: Sama verð er í versluninni og málningarverksmiðjum.
OPIÐ: mánud.—fimmtud. kl. 8 — 18.
Föstudaga kl. 8—19.
Laugardaga kl. 9—12.
BYGGINGAVORUR
Munið
aðkeyrslu frá
Sólvallagötu
Hringbraut 120 Sími málningardeild: 28605.
BÖRNIN FÁ 50% AFSLÁTT
DRAUMAFERÐ
FJÖLSKYLDUNNAR
TIL MALLORKA
27. maí
SANTA PONSA: Ein allra vinsælasta bað-
strönd á Mallorka. Jardin del sol — Nýtt og glæsi-
legt íbúðahótel alveg við sjóinn.
PUERTO DE ANDRAITX: Mini folies lúxusvillur í
fjölskylduparadís.
Á skrifstofu okkar erum við með
myndband frá gististöðum okkar.
FERÐASKRIFSTOFAN
Verið velkomin og fáið nánari
upplýsingar um liagstætt verð og kjör.
LAUGAVEGI 66 SIMI 28633
✓