Helgarpósturinn - 30.06.1983, Page 9

Helgarpósturinn - 30.06.1983, Page 9
"^n^sturÍhrL Fimmtudagur 30. júní 1983 — Já, ég geri nú ráð fyrir að vera hérna alla vega af og til, já, já. Næstum því 200 myndir og margar hef ég rammað inn sjálfur enda er ég listasmiður bæði á járn og tré, brúarsmiður og hvaðeina. Allt inn- rammað á sýningunni. Svo kvöddumst við. Stefán Jónsson frá Möðrudal er alveg nýorðinn 75 ára gamall og Listmunahúsið heldur upp á afmælið sem er eiginlega tvöfalt því fyrir sjötiu árum byrjaði Stefán að mála í læri hjá Ásgrími Jónssyni. Að sögn þeirra í Listmunahúsinu hafa margir lagt hönd á plóginn til að gera þessa sýningu veglega með Stefáni. Meðal þeirra eru Morkin- Stefán hjá Vorgleðinni sinni. Sú mynd olli þvflíkri hneykslan þeg- ar hún var sýnd á Lækjartorgi fyrir u.þ.b. aldarfjórðungi að lögg- an tók hana í sína vörslu. „Strollur af hestum, manneskja“ Þetta er dálítið sérkennilegt samtal um málverk því það er tekið í gegnum símann (vegir blaðamennskunnar eru órann- sakanlegir.): Stefán, segðu mér af hverju myndirnar þínar á sýningunni eru. — Strollur af hestum, já hver lestarferðin á fætur annarri og margir myndarlegir klárar í mörg- um litum, skjóttir og móálóttir og já í mörgum litum. Eru þetta hestar sem þú hefur kynnst eða bara hugarhestar? — Allt hestar sem ég þekki, hvað heldurðu menneskja. Ég er svo hestglöggur maður og þekki hvern hest sem ég hef séð og það er hægt að þekkja hvern hest á myndunum, ég er nú listamaður af guðs náð. Þetta eru næstum því 200 myndir hérna í Listmunahúsinu og stór- kostleg listaverk, þau eru til sölu á vægu verði. Ertu með Vorgleðina þarna líka? — Já, en hún verður nú aldrei seld. Það er að koma hingað fólk og það segist nú bara ekki sjá neitt voðalegt við þessa mynd já og svo er Vorgleði 2 hérna líka. Verðurðu þarna sjálfur til að sýna mér myndirnar ef ég kem? skinna listaverkaverkstæði, Hólar prentsmiðja, Myndmót hf og síðast en ekki síst er það Sanitas sem veitir á opnunardeginum sem er á föstu- dag. Gestirnir fá líka að smakka á Hólsfjallahangikjóti og saltreyð úr Mývatni við opnunarhátíðina og eflaust gæti Stefán átt það til að draga nikkuna fyrir okkur og myndirnar sínar líka. Sýningin varir frá föstudeginum 1. júlí til sunnudagsins 10. júlí en Listmunahúsið er opið virka daga frá kl. 10-18 og um helgar frá 14-18 en svo er lokað á mánudögum. Ms urs í textagerðinni og það er það sem ég á erfiðast með að sætta mig við. Það er eftirtektarvert við tón- listarflutning U2 að þar heyrir maður ekki í neinum synthisizer- um eða rafmagnsheilum á þessum tímum þeirrar tækni. Hljóðfæra- skipan þeirra er „gamaldags“, þ.e. bassi, gítar og trommur. Tónlistin er þó ekki forneskjuleg, heldur hressilegt nútíma rokk. Mest á- berandi er dynjandi trommuleik- ur og skerandi gítarleikur. Á War er einnig nokkuð áberandi píanó og kassagítar sem veita góða fyll- ingu. Bassinn er þéttur og söng- varinn, Bono, hefur nokkuð sterka rödd, þó raddsviðið sé ekki ýkja mikið. War er tvimælalaust besta plata U2 til þessa og er hún uppfull af góðum lögum. Þar er helst að nefna Sunday Bloody Sunday, New Years Day, Like a Song... og Surender. Minnsta hrifningu mína vöktu rólegu lögin Drown- ing Man og „40“. Annars vandist ég plötunni ágætlega en það bara tók svolítinn tíma. Heaven 17 — The Luxury Gap Fyrir þremur árum, eða svo, sprakk hljómsveitin Human lík í tvo hluta. Annars vegar voru það söngvarinn Philip Oakey og slides myndasýningarmaðurinn Philip Adrian Wright, sem héldu nafn- inu, og þeirra sögu þarf varla að rekja nánar. Hins vegar voru það hljóðfæraleikarar hljómsveitar- innar, þeir Ian Craig Marsh og Martyn Ware. Þeir stofnuðu fyrir- brigðið British Electric Founda- tion, sem vinna átti að hinum ýmsu hlutum. Þeir stjórnuðu til að mynda upptökum á plötu fyrir diskóflokkinn Hot Gossip og í fyrra gáfu þeir út algerlega mis- heppnaða plötu með ýmsum „gamalmennum" úr popp- heiminum, svo sem Gary Glitter, Sandy Shaw, Tinu Turner, Paul Jones ofl. Þekktast af „prójektum" þeirra Marsh og Ware er án efa Heaven 17, en plata þeirra Penthouse & Pavement naut töluverðra vin- sælda fyrir svo sem einu og hálfu ári. Þá voru einnig vinsæl lög eins og (We don’t need this) Facist Groove Thang og Play To Win. Nú hafa þeir sent frá sér nýja stóra plötu sem ber heitið The Luxury Gap og af henni hefur lag- ið Temptation þegar náð miklum vinsældum. Það fór t.d. í fyrsta sæti breska vinsældarlistans fyrir skömmu. Plötunni Penthouse & Pave- ment var skipt í tvennt. Á annarri hliðinni voru þeir að gera tilraunir með að nota synthisizera og ann- að slikt dót eingöngu, eins og þeir höfðu gert með Human League. Á hinni hliðinni nutu þeir aðstoð- ar einhverra aukahljóðfæraleik- ara og þar var fyrst og fremst að finna góða danstónlist. Var þetta betri hluti annars ágætrar plötu. Síðan P&P kom út hefur margt breyst. Human League, sem eng- inn bjóst við neinu af, hefur náð heimsfrægð og synthisizer bönd hafa sprottið upp í hundraða tali. Jafnframt hafa orðið vinsælar hljómsveitir eins og Haircut 100, með sinn „Monkeesisma“ og ABC með sinn elegans. Mér finnst eins og tónlistin á The Luxury Gap taki svolítið mið af öllu þessu en fyrst og fremst taka þeir þó upp þráðinn þar sem þeir skildu við á danshliðinni á P&P. Það má kannski segja að það sé breiður og vel troðinn vegur sem Heaven 17 ganga að þessu sinni en því er þó ekki að neita að þeirra danstónlist er í flokki þess betra sem er að heyra af þeim vettvangi um þessar mundir. Útsetningar eru líflegar og kennir þar ýmissa grasa. Söngurinn er eins og áður veikasti punkturinn, því Glenn Gregory, söngvari Heaven 17, er sannarlega enginn Caruso, en hann sleppur þó fyrir horn í fíestu sem hann gerir. Ekki ætla ég mér að fara að telja upp nein einstök lög sem eru betri en önnur, Jwí í heild er platan nokkuð góð. Eg hefði þó ekkert haft á móti því að þeir hefðu ekki spilað spilið alveg svona örugg- lega, heldur tekið nokkra sénsa. dóttur. 16.20 Mætti ég biðja um athygli. Siðdeg- istónleikarnir eru æöi spennandi i dag. Máþarfyrstnefna „Þátt“ fyrir blásaraog slagverkshljóðfæri, sem fólagar úr Sisi leika en höfundur er Snorri Sigfús Birgisson. Þá verða og leikin verk eftir Bartok og Strav- insky. Ég er nú hrædd um það lagsm. 17.15 Upptaktur. Bíðum nú viö, hver var það nú aftur sem féll á upptakti í tónfræðinni um árið? Nei, ekki Guðmundur Benediktsson. 19.50 Vlð stokkinn. Sigrún Eldjárn ætlar að segja börnunum sögu fyrir svefninn. Ja, því segi ég það. Þetta er svo sannarlega bjartsýnisþáttur. 21.30 Frá samsöng Karlakórsins Fóst- bræöra I Gamla biól f mai 1982. - Stjórnandi: Ragnar Björnsson. Óli syngur vel. 01.00 Á næturvaktinni er Ásgeir Tómas- son. Ég má aldrei vera að þvi að hlusta á þessum tíma. Laugardagur 9.25 Ferðagaman. Ég hef ekki tekið eftir honum þessum fyrr. En ég hef held- ur engan áhuga ávélbátum. En þaö er heldur aldrei aö vita nema maður fái áhuga. 11.20 Sumarsnældan góðan daginn. Simatfmi og allt það. Ofsa fjör en erfiöar gátur á stundum. 15.10 Listapopp heitir þáttur sem Gunni Sal er alltaf með og hann er endur- tekinn i kvöld kl. 24. Ég veit svei mér ekki hvaöa listapopp hann spilar. Kannski vinsældalista popp, eöa bara allt popp. Ég segi stopp. 16.20 Staldrað við á Laugarbakka. Jón- as Jónasson teygir úr sér og ég býst jafnvel við hann rabbi eilítið. Enda hinn notalegasti maður. 19.35 „Allt er ömurlegt í útvarpinu" - Hann var skárri síðast en á þó langt I land. Segi ekki meira. 21.30 Á sveitalinunni með Hildu Torfa. Hæ frænka. Hann var langsóttur þessi. Sunnudagur 11.00 Messan kemur frá Aðventukirkj- unni. 13.30 Sporbrautin. Einkar létt dagskrá sem kemur frá RÚVAK. 15.15 Söngvaseiður. Nú verður það Einar Markan sem veröur sunginn. Þrí- eykið Ásgeir, Hallgrímur og Trausti sjá um seiöinn þann. 16.00 Heim á leið. Já, bráðum fer ég lika heim. 16.25 I' dómkirkjunni. Kristján Árnason les úr bókinni Málaferlin eftir F. Kafka. Hann á afmæli. 18.00 Það var og... Alls staðar er Þráinn. 19.35 Áslaug Ragnars er með samtal á sunnudegi. 21.00 Hafiö bláa hafið hugann dregur. Eitt og annað um hafið. Þórdis og Sim- on eru iðinn viö kolann. 21.00 íslensk tónlist. Ja, hvaö skyldi verða fyrir valinu aö þessu sinni og hver velur? 23.00 Djass: Blús — 2. þáttur. Jón Múli stjórnar. 9 liíoin ★ ★ ★ ★ framúrskarandl ★ ★ ★ ág»t ★ ★ góð ★ þolanleg p léleg Háskólabíó: Leltin að Dvergunum. (Dance of the Dwarfs) Leikstjórl: Gus Trikonis. Aöalhlutverk: Peter Fonda og De- borah Raffin. Sagnir herma að dvergar leynist í frumskóginum. Hættur eru við hvert fótmál. Leitin að dvergunum er af- burða hraöur þriller og spennandi. Vá. Óþokkinn (Harry Tracy) Bandarisk. Leikstjóri: William A. Graham. Aðal- hlutverk: Bruce Dern, Helen Shav- er, Michael D. Gwynne, Gordon Lightfoot. Harry Tracy er einn af þessum frægu stigamönnum villta vestursins sem svifast einskis. Bíóhöllin: Merry Christmas Mr. Lawrence. Japönsk-bandarísk, árgerð 1983. Handrit Nagisa Oshima og Paul Meyersberg eftlr skáldsögu Sir Laurens var der Post. Aðalhlutverk: David Bowie, Tom Conti, Ryuichi Sakomoto, Takeshi, Jack Thomp- son. Leikstjóri: Nagisa Oshima. „Það er Japaninn Oshima sem gerir myndina og finnst mér hann halla full- mikið á sína eigin landsmenn og finnst mér það varla nægja sem skýr- ing, að myndin byggist á vestrænni bók... Óskandi væri að Oshima og félagar hans fengju aö gera ekta jap- anskar myndir i Japan en þangað til er gott að þeir fái að æfa sig á mynd- um klæðskerasaumuðum fyrir vest- rænan markað". — LÝÓ. Staögengillinn (The Stunt Man). Aðalhlutverk: Peter O’Toole, Steve Railsback, Barbara Horshey. Endursýnd. Trukkastríöið. Aöalhlutverk: Schuck Norris, George Murdock. Áhættan mlkla (High Risk) Banda- risk. Leikstjóri: Stewart Raffill. Aðalhlutverk: James Brolin, Anthony Quinn, James Coburn, Bruce Davison, Lindsay Wagner. Grinspennumynd um fyrrverandi grænhúfu og menn hans. Munu þeir vera hinir mestu innbrotsþjófar. Svartskeggur (Blackbeard's Ghost) Bandarisk. Aðalhlutverk: Peter Ustinov, Dean Jones, Suzanne Pleshette, Elsa Lanchester. Grínmynd um sjóræningjann Svart- skegg, sem skýtur upp kollinum eftir 200 ára dvala. Ungu læknanemarnir (Young Doctors in Love). Bandarisk kvik- mynd, árgerö 1982. Leikendur: Michael McKean, Sean Young, Hector Lizondo. Lelkstjóri: Gary Marshall. Þessi mynd er hættuleg heilsunni: áhorfendurfáóstöövandi hláturskast. Læknanemar bralla margt á Borgó. Atlantlc City. Bandarísk kvikmynd, árgerö 1981. Leikendur: Burt Lancaster, Susan Sarandon. Leik- stjórl: Louis Malle. *** Bæjarbíó: Kattarfólkiö (Cat People). Banda- rísk, árgerö 1982. Leikendur: Nast- assia Klnski, Malcolm McDowell, John Heard. Leikstjóri: Paul Schra- der. Systkini: sambland af mannfólki og svörtum hlóböröum. Ef þau elska mannfólkið, breytast þau í hlébaröa við samfarir og drepa rekkjunautinn. Þokkaleg afþreying og aödáendur Nastössiu Kinski eiga tvimælalaust erindi. Bíóbær: Bermudaþríhyrningurinn. Byggð á samnefndri sögu Charles Berlitz. Þulur: Magnús Bjarnfreðsson. Bókin kom út i Islenskri þýðingu fyrir síöustu jól. í myndinni er leitast við aö svara þeirri áleitnu spurningu hvernig á þvi standi að hundruð skipa og flug- véla hverfi sporlaust i Bermudaþrí- hyrningnum. Regnboginn: Sigur að lokum. Bandarfsk. Aðal- hlutverk: Richard Harris, Michael Beck, Ana De Sade. Þetta er framhald myndarinnar A Man called Horse og fjallar um enska aðalsmanninn, John Morgan sem gerist indiánahöfðingi. I’ grelpum dauöans (Flrst Blood). Bandarísk, árgerð 1982. Handrit: Stallone, o.fl. Leikendur: Sylvester Stallone, Brian Dennehy, Rlchard Crenna, Jack Starrett. Lelkstjóri: Ted Kotcheff. . Austurbæjarbíó: Með hnúum og hnefum. Kllnt East- wood, Þessi spennumynd er endur- sýnd. í kvöld (fimmtudag) eru tónleik- ar. — Sjá tónlist. Laugarásbíó: Besta litla „Gleöihúsið" I Texas. (The Best Little Whorehouse in Texas) Aöalhlutverk: Burt Reynolds Dolly Parion, Charles Durring, Dom Delulse og Jlm Nabors. Þetta er skemmtimynd, með hinum þokkafyllstu stórleikurum. Stjörnubíó: Tootsie. Bandarísk kvikmynd, ár- gerð 1983. Leikendur: Dustln Hoff- man, Jessica Lange, Terry Garr, Charles Durning. Leikstjóri: Sidney Pollack. Dustin Hoffman fer á kostum í aðalhlutverkinu og sýnir afburða- takta sem gamanleikari. Tootsie er ó- svikin skemmtimynd. Maður hlær oft og hefur litið gleðitár I auga þegar upp er staðið. * * * — LÝÓ Leikfangiö. The Toy Endursýnd. Nýja bíó: Vildi ég væri I myndum. (I Ought To Be In Plctures). Bandarfsk. Leik- stjóri: Herbert Ross, Höfundur: Neil Slmon. Aðalhlutverk: Walter Matt- hau, Ann-Margret og Dinah Manoff. Myndin, sem er gamanmynd, fjallar um stúlku sem fer til Hollywood að hitta föður sinn sem hún hefur ekki séð i 16 ár. Tónabíó: Rocky III. Bandarisk, árgerð 1982. Leikstjóri: Sylvester Stallone. Aöal- hlutverk: Sylvester Stallone, Talla Shlre, Burt Young, Mr. T. Þetta er þriðja myndin um hnefaleika- kappann og hefur hún átt geipilegum vinsældum aö fagna I Bandarikjun- um. Regnboginn: Junkman. Leikstjórn og handrit: H.B. Halicki. Aðalhlutverk: H.B. Hallckl. Og vitiöi hver H.B. Halicki er? Þaö er sá sami og gerði myndina Horfin á 60 sekúntum. Sumsé. Gifurlega spenn- andi. Villigeltirnir fénlist Sönghátíð 83: Sönghátiðin hefst með samkomu kl. 20 sunnudaginn 26. júni. Fimmtudagur: Kl. 10—13; Master Class, Glenda Maurice. Kl. 14; Þátttakendatónleikar. Kl. 21; Tónleikar, Elly Ameling og Dalton Baldwin. Föstudagur: Kl. 13—17; Master Class, Elly Ameling Kl. 21; Þátttakendatónleikar. víUinnVir Laugardalshöllin: Á laugardagskvöldið leikur breska hljómsveitin Echo and the Bunny- men, ásamt Deild 1, Grýlunum og Egó. Tónleikarnir hefjast kl. 20. Menningarmiðstöðin við Gerðuberg: Blómasýningu blómabænda lýkur um helgina. Norræna húsið: Laugardagur kl. 15: Unnur Guðjóns- dóttir er með Svíþjóðarkynningu. Laugardagur kl. 17: Unnur Guðjóns- dóttir, kynnir (sland. Austurbæjarbíó: l' kvöld, fimmtudagskvöld kl. 21 verða tónleikar Elly Ameling og Dalton Baldwin. Þetta eru tónleikar sem enginn ætti að láta framhjá sér fara. Safari: í kvöld verða tónleikar með hljóm- sveitunum issl, fitlaranum á bakinu og stormskeri en á sunnudaginn koma fram Þorstelnn Magnússon og hljómsveitin Frakkarnir.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.