Helgarpósturinn - 30.06.1983, Side 23

Helgarpósturinn - 30.06.1983, Side 23
^pBsturinri. Fimmtudagur 30. . j'únlí 1983 23 r' 1 Spegilsmálið hefur ekki farið f A fram hjá neinum sem fylgist með fréttum. Allra síst fer slíkt mál framhjá fjölmiðlamönn- um sem láta sér tjáningar- og prent- frelsi varða. Því hefur þögn Jonasar Kristjánssonar vakið nokkra at- hygli manna innan blaðamanna- stéttarinnar ekki síst vegna þess að Jónas er kunnur fyrir baráttu sína fyrir fyrrnefndum mannréttindum og stjórnar sjálfur útgáfu frjáls og óháðs dagblaðs. Einkum þótti það ósmekklegt þegar hann gaf blaða- manni sínum Herberti Guðmunds- syni grænt ljós á að skrifa frétt um það þegar Spegill var gerður upp- tækur og fékk blaðamaðurinn að leggja huglægt mat á málið og birti „frétt“ á baksíðu þar sem innihaldi Spegilsins voru gefnar neikvæðar einkunnir, sem minntu einna helst á útsíðuleiðara. Helgarpósturinn hefur hins vegar hlerað að hið for- boðna tölublað Spegilsins hafi birt mynd af Jónasi ritstjóra í ræðustól á kappræðufundi stjórnmála- manna í Háskólabíói þar sem hluti af kynningarborða sást í bakgrunni yfir höfði Jónasar og hafði stöfum hans verið hagrætt þannig af útlits- teiknara, að þau mynduðu orðið „Asni“,og er myndinni snúið upp í kokteilasamkeppni þar sem Jónas sinnir dómarastörfum... Kristján Siggeirsson h/f mun f'J innan tíðar opna nýja hús- ✓ gagnaverslun sem selur hin þekktu HABITAT-búsáhöld og húsgögn. Margir hafa velt því fyrir sér hvernig forstjórinn, Hjalti G. Kristjánsson fór að því að hremma umboðið því margir voru á höttun- um eftir þessu alkunna merki. Skýringin er nú fundin. Sonur Hjalta hefur verið í viðskiptanámi í London og fékk starfsþjálfun hjá HABITAT-fyrirtækinu þar í borg... Prófaðu BILALEIGA Mesta úrvalið. Besta þjónustan. Skeifan 9, 108 Reykjavik s. 91-86915 Tryggvabraut 14, 600 Akureyri s. 96-23515 Útvarpsmennirnir góð- f i kunnu, Stefán Jón Hafstein og Ævar Kjartansson, hafa lagt höfuðin í bleyti undanfarna daga við að leggja drög að vetrar- dagskrá hljóðvarps. Meðal nýjunga sem til greina koma í vetrardag- skránni er „magasínþáttur“ síð- degis þar sem blandað efni yrði framreitt á svipaðan máta og í morgunútvarpi Stefáns Jóns og félaga í vetur. Útvarpsmenn bíða nú spenntir eftir niðurstöðum hlust- endakönnunarinnar, sem þeir hafa staðið að. Niðurstöðurnar eru væntanlegar í júlí.... Ð Afram með útvarpið. Aðstöðuleysi hefur háð Þorgeiri Ástvaldssyni, ný- ráðnum forstöðumanni Rásar 2. Hann hefur ekki getað hafið undir- búning útsendinga að neinu marki ennþá vegna þess að hann vantar skrifstofu, borð, stól, síma... allt. Þetta stendur þó til bóta. Við heyr- um að bráðabirgðaaðsetur rásar- stjórans verði í húsi Félags íslenskra leikara við Lindargötu, nálægt Þjóðleikhúsinu. Þar hefur útvarpið tekið herbergi á leigu fyrir Þorgeir, og þar verður líka aðsetur leiklistar- stjóra útvarpsins, Jóns Viðars Jóns- sonar.... Eins og fram kom í Helgar- ! J póstinum í fyrri viku þá er y framlag Islendinga til þróun- araðstoðar ekki beysið. Allveruleg hækkun varð þó á framlaginu árið 1982 en í ár lækkar það aftur. Ekki var það þó einskær áhugi á þróun- araðstoð sem blossaði upp í fyrra. Helsta ástæðan fyrir auknu fram- lagi var sú, að ríkið keypti R/S Bjart til að nota hann við Græn- höfðaeyjar. Skip þetta er tæplega tuttugu ára gamalt og var í eigu Framkvæmdasjóðs ríkisins. Sjóð- urinn var í vandræðum með skipið sem var verkefnalítið og safnaði skuldum. Það var því ákveðið að vinstri höndin keypti skipið af hægri hendinni — auk þess sem sú tók einnig erlent lán til kaupanna — og ekki skaði hve vel þetta kom út í bókhaldinu... Föstudagurinn fyrsti júlí er f i merkisdagur í sögu íslenskrar fjölmiðlunar. Þetta er sem- sagt fyrsti 1. júli sem íslenska sjón- varpið sendir út. Sáralítið verður um innlenda dagskrárgerð í þessu fyrsta júlísjónvarpi. Frétta- og fræðsludeild sjónvarps vinnur nú þó að tveimur myndum, um Skaft- árelda og um Viðey... Líneik 100% bómuilarfatnaður frá 71 Ekki er að efa að hin gríðar- Y J lega aðsókn að tívolíinu .✓ á Miklatúni kemur blóðinu á hreyfingu í þeim fjölmörgu at- hafnamönnum íslenskum sem dreymt hefur um að setja hér á fót skemmtigarð af þessu tagi. En stað- reyndin mun þó vera að fjárhags- legt stórgróðafyrirtæki er tívolí ekki, vegna þess hve dýr leiktækin eru, og skiptir því miklu að ná inn sem flestum áhorfendum á sem stystum tíma. Það hefur aðstand- endum Miklatúnstívolísins tekist, ekki síst vegna atriðis loftfimleika- flokksins sem kennir sig við Bauer, en ýmsir hafa fengið hroll við að horfa á hann leika listir sínar í suð- austan áttinni illræmdu... Lausn á spilaþraut S 6-3 H 6-5-4 T Á-8-4 L Á-D-G-6-2 S G-10-9 H D-10-7-3 T G-10-6-5 L 9-3 S D-8-7-4 H G-8 T D-7-2 L K-10-8-7 S A-K-5-2 H Á-K-9-2 T K-9-3 L 5-4 Nú, þegar þú sérð leguna ertu sjálfsagt langt kominn að leysa þrautina. Austur, sem er með K-10-8-7 í laufi, gefur örugglega þegar þú svínar laufa gosanum, svo að þú færð aðeins tvo laufa- slagi. Öryggisspilamennskan er sú að gefa fyrsta laufaslaginn. Aust- ur fær slaginn og lætur hjarta sem þú gefur. Þú tekur næsta slag og nú svínarðu gosanum sem austur tekur á kóng. En nú áttu þrjá frí- slagi í laufi og spilið er unnið. HARMONI: Stærð 150x200 cm, með útvarpi. ROMANS: Stærð 180 x 200 cm, með náttborðum. Jón Loftsson hf. Munið okkar hagstæðu greiðsluskilmála. HRINGBRAUT121 - SÍM110600 LAUGAVEGUR 28 °X Opið mánud.—föstud. kl. 9—6. £7- Bolir, Pils, buxur, jakkar, o.fl. Ný rakara- og hársnyrtistofa ^ ,v:i, m: ■: VfyiíM1 JUM 'yi - í-'tN Gallerí Snyrtivöruverslunin Simi 26105 Við kynnum v-| snyrtivörur é sél verði: Naglalökk á kr. 67. Varaliti ó kr. 145. ,ar Lady Rose lega góðu Pöntunarsími 26850 Permanent — strípur — litanir — herra-, dömu- og barna- klippingar. Ólafur Ægisson og Elín Björk. 3 augnskugga i boxi á kr. 140. Ath. Kynnum nýja tegund af indíánamold, TERRA AFRICA, sem inniheldur rakabindandi efni og leyfir húðinni að anda, kr. 175.

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.