Helgarpósturinn - 29.03.1984, Qupperneq 23
HRINGBORÐIÐ
Holy Smoke
Loksins er talað um að banna
aumingja reykjendum að fá sér
,,smók“, að púa öðru fólki, sem
dæmt er til að sitja á rassi í þetta
30 til 45 mínútur, innilokað í flug-
vél og engin leið að opna glugga.
Eitthvað mun nú ganga á þegar
upp verður tekið og jafnvel
stranglega bannað að reykja á
klósettinu, sem er sá staður þar
sem flestir stela sér fyrsta
nautnafulla innsoginu og eru að
kafna á eftir.
Bátar voru lengi notaðir til að
kynnast þessum indíánaleik; að
brenna lungun með heitri tjöru
og bendir nú allt til þess að nóg
verði af bátum út um allar jarðir
og krakkar geta þá skriðið undir
svo að reyksignöl beri ekki boð
um ljótt athæfi.
Nú verða reykskrattar að búa
sig undir þá staðreynd að venju-
legt fólk vill ekki „fara upp í reyk“
jcifnvel ekki heilögum. Erfitt verð-
ur fyrir nikotinista að fljúga til
dæmis frá Reykjavík til Akureyrar
og byrjað að snjóa á flugbraut og
„við ætlum að fljúga yfir um
stund og vita hvort þetta lagast
ekki...“ segir róleg rödd flugstjór-
ans, sem er kannski að fá sér
smók þarna frammí.
Næst því að halda á glasi með
góðvíni, mun svona „hald" yfir
EyjcLfirði, með tilheyrandi niður-
falli og uppþoti, verka á tóbaks-
löngun.
Eg hékk eitt sinn svona yfir
snjókomu sem virtist bara vera á
flugvellinum, þar til flugstjórinn
tilkynnti að þetta þýddi ekki
lengur... „við höldum nú suður."
Eftir 10 mínútna flug sagði
flugstjórinn okkur að „þeir fyrir
sunnan" hefðu ákveðið að við
færum til Sauðárkróks og stefnd-
um þangað og áætluð lending
eftir 25 mínútur.
Og það gerðum við; lentum í
skafrenningi og vorum látin
þjappast í svokallaða afgreiðslu á
flugvellinum við Sauðárkrók og
ekki sæti nema fyrir vanfærar
konur, konur með fædd böm og
löggilt gamalmenni.
Aðrir stóðu og reyktu.
Við vorum búin að mynnast við
skýin í 95 mínútur og allir reyk-
færir menn púuðu þama í þröng-
um skúr og ekki hundi út sigandi.
Svona hangs yfir flugvöllum og
mjög óviss niðurstaða, verkar
þannig á suma, að bindindis-
menn á næstum allt, gætu hugs-
anlega oltið út úr flugvél, reykj-
andi og blindfullir og byrjaðir að
klæmast við flugfreyjuna.
Úr því ég er byrjaður; áfram
með Sauðárkróksdvöl. Þegar
við biðum þcirna á flugvellinum,
fengum við hvorki vott né þurrt,
né nóg af reyk. Svo kom rútan,
okkur boðið að gjöra svo vel að
vaða veturinn í miðja kálfa og út í
bíl og ekið á Hótel Mælifell.
Þar var veisla með hangikjöti á
eftir súpu, þægilegri þjónustu,
góðu kaffi og verði ykkur að góðu
frá hótelstjóranum. Allir fengu
sér reyk nema auminginn ég og
örfáir unglingar og mig minnir
flugfreyjan.
En Flugleiðir gefast ekki svo
auðveldlega upp fyrir vetri.
Til Akureyrar með ykkur og
búið að útvega rútu og kátan
bílstjóra. Hann opnaði leynihólf
frammí og þar var hvað haldiði
annað en sjónvarpstæki og snjó-
aði þar jafnmikið og úti, enda
sást hvergi í veg, bara stikur. Mig
minnir allir þeir sömu og áður fá
sér smók.
Þegar til Akureyrar kom var ek-
ið á flugvöllinn. Við höfðum nú
verið í loftinu í 95 mínútur, á fót-
unum að stappa lífi í hæla og tær
í 60 mínútur, við þorramatsát í 80
mínútur og í bíl yfir fjöll í 120
mínútur. Allt í reyk.
Konan mín sem ætlaði að
sækja mig á AkureyrarfIugvö 11
eftir kvöldmat, var löngu farin
heim að sofa, enda ég búinn að
vera svo lengi á leiðinni að ég
gæti verið lentur á Kennedyflug-
velli og búinn að fá töskumar.
Já, bráðum reynir á tóbaks-
sinna. Sumir munu verða flúnir
við tilhugsun um reyklausa ver-
öld, fleiri munu vel við una.
Hinn þögli fyrmm minnihluti
óreykfærra manna, er nú eins og
þung alda andúðar sem mun
brotna á þeim sem stendur á
sama þótt þeir reyki krabba í sak-
laust fólk.
Kunningi minn, þessi sem svo
oft kemur að liggja á gólfteppinu
mínu í Reykjavík og horfa á
dauðu fluguna í alabastursljósa-
krónunni, hringdi í mig fyrir
nokkmm dögum.
Ég:
- Já, halló.
- Ert það þú tóbakshatari?
- Þetta er allavega ég, sagði
ég-
- Ertu nú ánægður? Þú sérð
mig ekki framar norðan fjalla.
- Nú?
- Ef ég má ekki reykja mig
norður í flugvél, kem ég ekki, bíl-
veikur maðurinn.
- Hættu bara að reykja!
- Þetta segir skeppnan!
- Þú lifir lengur, sagði ég.
- Hver vill lifa lengur í svona
bannlandi? Láttu opna íbúðina
þína svo ég geti lagst á teppið og
dáið eins og fluga. Og það er
bannað að henda mér. Láttu
brenna mig og settu öskuna í
þessa grefils ljósakrónu úr ala-
bastri. Þá lúrum við saman, flug-
an og ég. Nú skal verða farið upp í
smók! Hoiy smoke!
- Ja hérna, sagði ég og fékk
mér mentolsniff í nefið.
Ekkert shampoo jafnast á viö
EL’VITAL
frá
L’ORÉAL
Laugaveg 178-P.O. Box338-105 Reykjavík-lceland
^ Allar %\
W vörur Jli ^ \
á markaðsverði. 2 jp
SE
■UROCAT
RAFT/EKJADEILD
II. HÆÐ
Raftæki - Rafljós
og rafbúnaður
JL-GRILLIÐ
Grillréttir allan daginn
MUNIÐ OKKAR
HAGSTÆÐU
GREIÐSLUSKILMÁLA
VERSLUNARMIÐSTÖÐ
VESTURBÆJARINS
Innkaupin eru þægileg hjá okkur
Svo geturðu líka slappað af í Kaffiteríunni
OPIÐ:
Mánud.-fimmtud. 9-19.
Föstud.9-20. Laugard. 9-16.
Jli
Jon Loftsson hf.
Hringbraut 121 Simi 10600
HELGARPÓSTURINN 23