Helgarpósturinn - 03.05.1984, Page 17
„Sandur fer í tökur
undir mánaðamót“,
segirÁgúst
Guðmundsson.
Úthlutun Kvikmyndasjóðs 1984
Urgur í sumum -
aðrir bjartsýnir
eftir Hallgrím Thorsteinsson
Stjórn Kuikmyndasjóðs tilkynnti á máhudaginn uar huernig hún hygðist
skipta þeim 6,5 milljónum króna sem sjóðurinn hefur til ráðstöfunar á
þessu ári.
Sem fyrr komust fœrri að en uildu: Aðeins 16 af 40 umsækjendum sóttu
gull í greipar sjóðsins. Úthlutunin féll þuí í misjafnan jarðueg meðal kuik-
myndagerðarmanna, eins og nœrri má geta.
„Þetta er fjárhagsleg aftaka fyr-
ir mig,“ segir Hrafn Gunnlaugsson í
samtali við Helgarpóstinn. „Ég
hafði gert ráð fyrir í kostnaðar-
áætlun fyrir Hrafninn flýgur að fá
800.000 krónur úr Kvikmyndasjóði
núna, en fékk 200.000. Eg gekk út
frá því að þessi mynd fengi hlut-
fallslega jafn háa úthlutun og Út-
laginn fékk á sínurn tíma, eða
helmingi meira en aðrar myndir
sem þá var veitt til. „Hrafninn" er af
sömu stærðargráðu. Auðvitað hef-
ur ekki myndast néin ófrávíkjanleg
regla í þessum úthlutunum, en ef
miðað er við Útlagann og jafnvel
Húsið, sem hefur fengið styrk þrjú
ár í röð.þá er augljóst að sjóð-
stjómin er ekki sjálfri sér sam-
kvæm í ákvörðunum sínum,“ segir
Hrafn.
„Fjárhagsleg
aftaka“, segir Hrafn
Gunnlaugsson.
Knútur Hallsson, formaður
stjóðstjómarinnar, segir í samtali
við HP, að erfitt sér að gera svona
samanburð, hver einstök umsókn
hafi verið vegin og metin út af fyrir
sig. „Menn taka áhættu, og í þessu
tilviki, Hrafninn flýgur, var til
dæmis reiknað með því að Svíamir
sem tóku þátt í henni væru sterkir
fjárhagslegir bakhjarlar að henni."
Knútur segir, að meginstefnan í
úthlutuninni núna hafi verið að
styrkja fáar myndir, en gera þeim
mun betur við þær útvöldu. Þessi
stefna hafi meðal annars verið val-
in vegna óska Félags kvikmynda-
gerðarmanna og Sambands kvik-
myndaframleiðenda.
Hrafn Gunnlaugsson er hlynntur
þessciri stefnu: „Þetta er rétt stefna
sem þeir eru að taka upp núna. Það
dugir nefnilega ekki að mönnum sé
ýtt á flot og árarnar síðcin teknar cif
þeim, en þetta er einmitt það sem
gerðist í mínu tilviki."
Tvær kvikmyndir fengu lang-
hæstu styrkina núna, 1,8 milljón
króna hvor. Hér er um að ræða
kvikmynd Ágústs Guðmundsson-
ar, sem tekin verður á Kirkjubæjar-
klaustri og þar um slóðir í sumar
og hlotið hefur vinnuheitir Sandur,
og Skammdegi Þráins Bertelsson-
ar, sem Nýtt líf sf. framleiðir.
Kvikmyndasjóður veitti líka
fimm 200.000 króna styrki til jafn-
margra kvikmynda, sem allar hafa
verið frumsýndar á síðustu
misserum. Þessir styrkir eru ætl-
aðir til kynningar og sölu á þessum
kvikmyndum, en þær eru: Hrafn-
inn flýgur, Atómstöðin, Húsið,
Skilaboð tilSöndru ogÁ hjara uer-
aldar.
Þetta er nýr flokkur styrkja hjá
Kvikmyndasjóði og ekki eru allir
kvikmyndagerðarmenn sammála
um nauðsyn slíkrar flokkunar. Við
úthlutun úr Kvikmyndasjóði und-
anfarin ár hefur sama kvikmyndin
gjaman verið styrkt tvö ár í röð -
styrknum skipt. Þannig fékk Húsið
til dæmis 200.000 krónur 1982,
350.000 krónur í iýrra og svo
200.000 krónur til sölu og kynning-
ar á þessu ári. 62-63.000 manns
hafa séð Húsið og þær raddir
heyrðust meðal þeirra kvikmynda-
gerðcirmanna, sem Helgarpóstur-
inn talaði við, að þeim þætti súrt í
broti að mynd sem væri búin að
borga sig, fengi nú aukastyrk. Nær
hefði verið að hjálpa þeim mynd-
um sem hafi verið verr sóttar, enda
sé þessi nýja flokkun aðeins yfir-
varp fyrir neyðaraðsto^ sjóðsins
við tapdæmi í íslenskri kvik-
myndagerð.
„Fögnum færri og
stærri styrkjum“,
segir Þórarinn
Guðnason.
„Félag Kvikmyndagerðarmanna
lagðist gegn því að myndir væru
styrktar í stórum stíl eftir á,“ svarar
Knútur Hallsson. „Til greina kom
að styrkja örfáar myndir eftir á en
það var horfið frá því og ákveðið að
fara mitt á milli í þessu - styrkja
sölu og kynningu á fleiri myndum
með flatri upphæð," segir hann.
Til að auka aðeins á óánægju
þeirra sem sóttu um styrki til
sjóðsins en fengu ekki, hefur kom-
ið í ljós, að aðstandendur Hússins
kannast ekki við að hafa sótt form-
lega um þennan styrk til kynningar
og sölu á myndinni. „Við sendum
inn greinargerð um útlagðan
kostnað við kynningu og sölu á
myndinni", segir Bjöm Bjömsson í
Saga Film.
„Nýirmennáttu að
fáannan sénsinn",
segir Valdimar
Leifsson.
Bjöm segir að auðvitað sýnist
sitt hverjum um þessar úthlutanir.
„Það er vissulega þörf á að kynna
og selja myndir, og það er engin
ástæða til að hafa það gegn ein-
stökum myndum að þær gangi vel.
Það er kannski ekki síst vegna þess
að Húsið hefur gengið vel að
ástæða þykir til að veita fé til kynn-
ingar og sölu á henni og við höfum
lagtgífurlega vinnu í stað starf.“
„Eg fagna því að veittir séu færri
en stærri styrkir," segir Þórarinn
Guðnason, formaður FK. ,£n ég er
ekki alveg jafn sáttur við það að
styrkirnir séu hafðir svona staðl-
aðir, að einstök verkefni séu ekki
metin út frá umfangi."
„Hefði þessum flokki verið
sleppt, þá hefði sjóðurinn getað
veitt í þriðju stóm myndina," segir
Vcddimar Leifsson kvikmynda-
gerðarmaður, sem nú sótti um
styrk fyrir leikna mynd en fékk
ekki. ,J\4ér hefði fundist eðlilegra,
fyrst veitt var til tveggja mynda, að
gefa nýjum mönnum annan séns-
inn,“ segir hann, „en nú er ekkert
annað að gera en að leggja þetta
handrit okkar uppí hillu."
Jón Axel Egilsson sendi líka inn
umsókn um styrk fyrir leikna
mynd, en fékk neitun. Hann gagn-
rýnir Kvikmyndasjóð, eins og fleiri
kollegar hans, fyrir seinagang.
„Með því að tilkynna úthlutunina
svona seint hefur sjóðstjómin
hait dýrmæta mánuði af fólki sem
nýst hefðu í undirbúningsvinnu.“
Jón Axel segist þó ekki ætla að
hætta við myndina fyrr en í fulla
hnefana. Hann hefur stefnt að því
að hefja tökur í haust. Stuðmenn,
með Egil Eðvarðsson og Jakob
Magnússon fremsta í flokki, munu
að líkindum hefja tökur á annarri
Stuðmannamynd í haust, „mynd
sem verður ekki mjög Ieiðinleg,
allavega", að sögn Valgeirs Guð-
jónssonar Stuðmanns. Aðrir sem
sóttu um styrk til að gera leiknar
myndir í ár vom Jón Ottar Ragn-
arssonar, Páll Steingrímsson, Þor-
geir Þorgeirsson og Friðrik Þór
Friðriksson, sem fékk Einar Kára-
son rithöfund í lið með sér til að
gera handrit um skotbardaga, inn-
brotsþjóf og lögreglu í Reykjavík.
Fjórir fengu nú styrk til handrits-
gerðar; Egill Eðvarðsson(,JCuml“),
Kristín Jóhannesdóttir (Pourquoi
Pas slysið), Þórarinn Guðnason
(íslendingar á Hafnarsióð) og Þor-
geir Þorgeirsson (Hvíta tjaldið,
ferðasaga „clones" um ísland).
Undanfcirin ár hefur mikið vantað á
að þeir styrkir sem Kvikmynda-
sjóður hefur veitt til handritsgerð-
ar hafi skilað sér í handritum. „Við
ætlum að ganga eftir því í ríkari
mæli núna að handritum verði
skilað", segir Knútur Hallsson.
„Gott pláss fyrir 10
góðar myndir á ári“,
segir Þráinn
Bertelsson.
En þrátt fyrir allt er útlit fyrir
talsvert kröftugt íslenskt kvik-
myndasumar og -haust. Skamm-
degi, kvikmynd Nys lífs, verður
frumsýnd í haust. Hún er nú í klipp-
ingu. Ágúst Guðmundsson byrjar
að taka „Sand“ undir lok þessa
mánaðen og undirbúningur er í
fullum gangi. Myndin fjallar meðal
annars um afstöðu íslensku þjóð-
arinnar til bandaríska hersins hér á
landi, eins og hún kristallast í litlu
scunfélagi úti á landi og er með
gamansömu ívafi. Ekki er enn búið
að ráða í aðalhlutverkin.
Þráinn Bertelsson segir í samtali
við HP að styrkurinn til myndar-
innar Skammdegi komi sér vel og
að líkindum muni hluti hans renna
í næstu mynd fyrirtækisins sem
verður framhaldsmynd um karakt-
erana sem fóru í fiskvinnu í Vest-
mannaeyjum í Nýju lífi. Nýja
myndin heitir Dalalíf og munu
Karl Ágúst Úlfsson og Eggert Þor-
leifsson leika þessa sömu karakt-
era. í þetta skipti gerast þeir afleys-
ingabændur í Dölunum. Lif og f jör.
„Það er gott pláss fyrir 10 góðar
myndir á ísiandi á ári,“ segir Þráinn
Bertelsson, „en ekkert pláss fyrir
vondar myndir. Þetta er málið.
Það, að ekki þýði að styrkja fleiri en
2-3 myndir á áiri vegna þess að
aðsóknin sé að minnka, er einhver
mesta firra sem ég hef heyrt."
„Ætlum að ganga
harðar eftir
handritum“, segir
Knútur Hallsson.
Sú ákvörðun kvikmyndasjóðs að
hækka verulega framlög til heim-
ildamyndagerðar á þessu ári hefur
fallið í góðan jarðveg hjá kvik-
myndagerðcumönnum. Nu fá fjórir
styrk: Hjálmtýr Heiðdal til að gera
mynd um síldarævintýrið á Djúpu-
vík, Páll Steingrímsson og fleirir til
að halda áfram með mynd sína um
hvalveiðar við íslcind, Sigurður
Grímsson til að gera mynd um
Þumal og Vilhjálmur Knudsen til
að gera mynd um Vatnajökul.
Styrkir þessir nema 250.000 krón-
um hver, en á síðasta ári voru
heimildamyndastyrkimir aðeins
75.000ámynd.
„Ástæðulaust að
hafa það gegn
myndum að þær
gangi vel“,
segir Björn
Björnsson.
Kvikmyndagerðarmenn kunna
líka eflaust að meta hið nýja frum-
varp um kvikmyndamál, sem
Ragnhildur Helgadóttir lagði fram
á Alþingi í gær, miðvikudag. í þessu
frumvarpi er gert ráð fyrir að auka
og fastsetja tekjur Kvikmynda-
sjóðs, þannig að í sjóðinn renni
árlega fé sem nemi áætluðum
söluskatti af kvikmyndum í land-
inu. 1982 hefði sjóðurinn fengið
14,5 - 16 milljónir króna til ráð-
stöfunar. Þannig má gera ráð fyrir
því að ráðstöfunarfé sjóðsins rúm-
lega þrefaldist ef frumvarpið verð-
ur samþykkt.
HELGARPÓSTURINN 17