Helgarpósturinn - 03.05.1984, Qupperneq 24
Ríkisstjórn Helgarpóstsins
RETTIR MENN
j RÉTTUM STÓLUM
eftir Ingólf Margeirsson myndir Jim Smart og Valdis Óskarsdóttir
Ertu þreyttur og leiður á ríkisstjórnum á íslandi?
Ef svarið er já, þá ertu á sama máli og við á Helgar-
póstinum. Alla vega datt okkur í hug að gaman væri
að mynda eins konar draumaríkisstjórn þar sem
réttur maður væri í réttum stól á réttum tíma. Við
létum verða af óskhyggjunni og höfðum samband
við þjóðkunna menn sem við töldum hæfa í störfin.
Síðan var ákveðið að láta stjórnina taka völdin á 5
ára afmæli Helgarpóstsins sem haldið var á dögun-
um á Hótel Borg.
En margt fer örðuvísi en ætlað er. Vegna tíma-
leysis var ákveðið að fella þennan dagskrárlið niður.
Þetta mun vera í fyrsta skipti í íslandssögunni sem
ríkisstjórn fellur á tíma. En til að forða boðskap
þessar einstæðu ríkisstjórnar frá glötun, ákváðum
við í samráði við ráðherra okkar að birta
stefnuræður þeirra í málgagni ríkisstjórnarinnar.
Ríkisstjórn Helgarpóstsins skipa: Flosi Ólafsson
forsætisráðherra, PéturTyrfingsson fjármála-
ráðherra, Ásgeir Hannes Eiríksson menntamála-
ráðherra, Maríanna Friðjónsdóttir samgöngu- og
landbúnaðarráðherra, Hannes Hólmsteinn
Gissurarson félagsmálaráðherra, Sigmar B.
Hauksson heilbrigðis- og viðskiptaráðherra, Ástrós
Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Úlfar
Þormóðsson dóms- og kirkjumálaráðherra.
ViS gefum Flosa Ólafssyni for-
sætisráðherra fyrst orðið. Flosi er,
eins og alþjóð veit, að öllu jöfnu
leikari og rithöfundur.
Málefnasamningur
og stefnuyfirlýsing
forsætisráðherra
„Góðir íslendingar!
Ríkisstjóm sú, sem nú tekur við
völdum undir mínu forsæti, hefur
ásett sér að ráðast gegn aðsteðj-
andi vanda með fljótvirkum og
hnitmiðuðum aðgerðum.
I málefnasamningnum er við
það miðað að tekið sé á vcindcuium
strax og af fullri einurð. Nú verður
ekki Iengur látið sitja við orðin
tóm. Nú verða það verkin sem tala.
Góðir íslendingar. Ég mun nú
flytja yður málefnasamning stjóm-
ar minnar.
1. Ríkisstjóm mín mun kanna
svo skjótt sem auðið er og tíma-
bært getur talist, hvort ekki sé rétt
að gera fmmkönnun á því, hvort
vœnlegt sé að leggja drög að at-
hugunum á mögulegum aðferðum,
Flosi Ólafssonforsætisráðherra: „Ríkisstjórn mín mun kannasvoskjótt sem
auðið er og tímabært getur talist hvort ekki sé tímabært að ráðast að að-
steðjandi vanda vinnumarkaðarins."
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
félagsmálaráðherra: Drakúla greifi
yfir Blóðbankanum.
Ásgeir Hannes Eiríksson mennta-
málaráðherra: Afnumin greidd
sumarleyfi kennara, ríkisútvarpið
lagt niður og listamannalaun og
styrkir felldir niður.
sem gætu leitt til marktækrau- nið-
urstöðu varðandi lausn aðsteðj-
andi vanda og leysa síðan vandann
með þeim hætti.
2. Ríkisstjóm mín mun kanna
svo skjótt sem auðið er og tíma-
bært getur talist, hvort ekki sé
hægt, með hliðsjón af síbreytileg-
um horfum, að leggja drög að sam-
stilltu átaki til lausnar aðsteðjcindi
vanda.
3. Ríkisstjóm mín mun kanna
svo skjótt sem auðið er og tí'ma-
bært getur talist hvort ekki sé rétt
að freista þess að ná samkomulagi
innan ríkisstjórnarinnar um að-
gerðir og viðbrögð. Og leysa vand-
ann með þeim hætti.
4. Ríkisstjórn mín mun kanna
svo skjótt sem auðið er og tíma-
bært getur taJist hvort ekki sé rétt
að leggja á það áherslu á erlendum
vettvangi að vér emm frjáls og full-
valda þjóð og munum ekki farga
sjálfstæði þjóðarinnar og fullveldi,
nema umtalsverðir fjármunir séu í
boði.
5. Ríkisstjórn mín mun kanna
svo skjótt sem auðið er og tíma-
bært getur talist hvort ekki sé
tímabært að kanna drög að að-
gerðum, sem stuðlað gætu að frek-
ari rannsóknum á menntamálum,
dóms- og kirkjumálum, sam-
göngumálum, hundahaidi og orku-
málum. Ríkisstjómin mun freista
þess að gera aðkallandi umbætur
þar sem umbóta er þörf og jafnvel
víðar ef kostur er.
6. Ríkisstjórn mín mun kanna
svo skjótt sem auðið er og tíma-
bært getur talist, hvort ekki sé
tímabært að ráðast að aðsteðjandi
vanda vinnumarkaðarins og mun
beita sér fyrir því landi og Iýð til
heilla og blessunju- að kaup og kjör
verði nú og um alla frcuntið
óbreytt.
Ég lýk svo máli mínu með
stefnuræðu stjórnar minnar:
Stefna vor er að landsmenn grœði
og grœði
24 HELGARPÓSTURINN