Helgarpósturinn - 03.05.1984, Page 25
Pétur Tyrfingsson fjármálaráðherra grúfir sig yfir fjárlagadæmið.
Ástrós Gunnarsdóttir utanríkisráðherra: Staying alive með heiminn í hönd-
um sér.
það ergóðoeri á Islandi, þó hérsé
láglaunasvœði.
Og þegar hver króna er farin, eða
þá fallin
má fjárlögum bjarga, því réttast
mun gengishallinn.
Og eitt vil ég segja hvað varðar
verðmœtamatið
þaðer vel hœgt að skoða það
gegnum fjárlagagatið.
Já eitt er mjög brýnt. Það er jafn-
rœði kvennaog karla.
En kemstþað í gagnið - tœplega á
nœstunni - varla.
Tvennt erþó víst: Það að á skal að
ósi renna
og að aldrei næst jafnrœði í stöðu
karla og kvenna.
Stjórnin telur að það geti valdið
vanda
efvonleysi gripur menn og þeim
hœttir að standa....
á sama um bílinn, konuna og
krakkana sína
og kjarabót heimta, svo alltsé i
þessu fína.
Og svo er að lokum best að bœnd-
urnir veti
þeir eru búnir að framleiða allt of
mikið afketi.
Fjármál eftir hitastigi
Næstur á mælendaskrá er hátt-
virtur fjármálaráðherra Pétur Tyrf-
ingsson, fyrrverandi trotti í Æsku-
lýðsfylkingunni en núverandi
meðlimur í Alþýðubandalaginu.
Pétur mætti til ieiks á Hótel Borg
án nokkurra skrifaðra blaða; var
reyndar ekki með hripaða punkta
hjá sér. Hann tjáði Helgarpóstinum
að hann flytti alltaf ræður sínar
samkvæmt stemningu og hitastigi
í salnum og því væri tómt mál að
birta ræður hans á prenti. Þar af
leiðandi verður ræða fjármálaráð-
herra eilíft leyndarmál, djúpt graf-
ið í vitund Péturs Tyrfingssonar og
í undirmeðvitund lesenda. Hér er
þó alla vega ekkert gat á ferðinni.
Ásgeir Hannes Eiríksson, pylsu-
sali með meiru, er gamall og dyggur
stuðningsmaður Helgarpóstsins.
Pylsuvagn hans átti ennfremur 5
ára afmæli um svipað leyti og blað-
ið og því má segja að þessir tveir
menningarvitar séu jafngamlir. En
hvað um það. Ásgeir var kjörinn af
ritstjórn sem menntamálaráð-
herra. Ásgeir Hannes Eiríksson
mætir aldrei óundirbúinn til Ieiks. í
vasa bláa blazer-jakkans leyndist
stefnuræða menntamálaráðuneyt-
isins og birtist hún hér með leyfi
ráðherrans.
Menningarbyltingin
1. Skólar verða færðir aftur til
bæjarfélaga og héraðsstjóma og
þau látin reka skólana framvegis
og ráða kennara og starfsfólk.Ævi-
ráðningu kennara lýkur frá og með
morgundeginum og þeim verða
ekki borguð laun fýrir sumarleyfin,
enda hefur þjóðin ekki efni á þann-
ig sportmennsku.
2. Tekin verður upp kennsla í
daglegu lífi fólks: Meðferð heimilis-
tækja, bílvéla, skattaskýrslur,
vöruþekking, samsetning hins
opinbera og fleira sem lýtur að
auðveldari lífsgöngu þegar námi
lýkur.
3. Dregið verður úr Háskóla ís-
lands, enda eiga stúdentar og há-
skólaborgarar yfirleitt fárra kosta
völ um vinnu nema hjá hinu opin-
bera og allt of fáir háskólamennt-
aðir menn em í fremstu röð í at-
vinnulífinu.
4. Ráðuneytið mun forðast alls
konar friðarfræðslu eins og heitan
eldinn, enda lýtur slíkt snakk eink-
um að því að afvopna helstu
bandamenn íslensku þjóðarinnar
og efla cuidstæðinga hennar.
5. Stórlega verður dregið úr náms-
iánum og engum veitt námslán
eða námsstyrkir sem vill steypa
ríkjandi borgaralegu þjóðskipulagi
á Islandi.
Ríkisútvarpið verður lagt nið-
ur og eignir þess seldar.enda ekki
hlutverk þjóðfélagsins að hcilda úti
stofnun af því tagi. Ljósvakinn gef-
inn fr jáls eins og útgáfa á prentuðu
máli. Listamanncdaun, styrkir og
þess háttar lagt niður, enda dafnar
listin aldrei betur en þegar menn
verða að lifa sjálfir á henni.
Til að hvetja frjálst og eðlilegt
listcdíf á íslandi verður fólki leyft að
ráðstafa hluta af sköttum sínum
beint til menningarstofnana að
eigin vali.
Túrismi og
kindaskytterí
Marianna Friðjónsdóttir, lands-
kunnur rallígarpur af veikara kyn-
inu, var samþykkt einróma sem
landbúnaðar- og samgöngumála-
ráðherra í ríkisstjóm Helgarpósts-
ins. Maríanna var með snyrtilega
skrifaða ræðu í pússi sínu er hún
birtist á ballinu umtalaða á Hótel
Borg. Hins vegar fauk í ráðherrann
er stjómin var umsvifalaust felld á
tíma með þeim afleiðingum að hún
reif ræðuna í tætlur. Hefur ekki
spurst til hennar (þ.eas. ræðunn-
ar) síðan. En með diplómatískri
aðstoð tókst að hala upp úr henni
helstu punkta yfirlýsingarinnar.
Helstu hugmyndir Maríönnu um
lausn á landbúnaðarvandanum
byggðust á nýtingu túrisma. Hátt-
virtur ráðherra lagði til að banda-
rískum ferðamönnum yrðu seld
veiðileyfi í afréttir og önnur beiti-
lönd sauðfjár þar sem túristum
yrði leyft að skjóta kindur tcik-
markalaust á færi. Þetta hefði tvo
kosti: I fyrsta lagi yrði mikil verð-
mætcisköpun af erlendum gjald-
eyri og í öðm lagi yrði sauðfé fækk-
að til muna, sem þýddi betri og
fallegri náttúm. Auk þess benti
ráðherra á að slík veiðileyfi tækju
sig vel út á auglýsingaplakötum
erlendis.
Allar útflutningsuppbætur yrðu
felldar niður. í stað þeirra yrði upp-
hæðinni varið í að malbika hring-
veginn og hann sérstaklega aug-
lýstur erlendis sem draumabraut
bílóðra rallímanna. Hins vegar
yrðu ekki medbikaðir afleggjarar
eða aðrir minni vegir til sveita svo
traffík yrði ekki yfirþyrmandi. Mal-
bikun hringvegcir myndi ennfrem-
ur hafa jákvæð áhrif innanlands,
m.a. hafa mikinn spamað á vara-
hlutum í bifreiðar í för með sér.
Greifi Drakúla
Hannes Hólmsteinn Gissurar-
son, áhugamaður um frjálshyggju
og friedmanisma, var kjörinn fé-
lagsmálaráðherra kvöldsins, eins
og frcim kom í ræðu menntamála-
ráðherra.
Hannes Hólmsteinn mætti í hvít-
um smókingjakka og með rauða
nelliku í hnappagatinu. Blómið vair
hins vegar hrifsað úr gatinu strax á
bamum og sást ekki aftur það sem
eftir var kvöldsins. Ræðu sína
hafði Hannes Hólmsteinn punktað
ciftan á nafnspjaldið sitt og gaut oft
og títt á það augum áður en matar-
veislím hófst. Hann var með öllu
ófáanlegur til að gefa upp punkta
við veislugesti en sagðist „leggja
út af ýmsum hugmyndum" sem
hann hefði kynnt sér erlendis. Eins
og alkunna er, dvelur undrabam
frjálshyggjumanna við nám í Stóra-
Bretlandi. Heimiiisfang er okkur
ókunnugt en mönnum bent á
Ragnar Halldórsson forstjóra ÁI-
versins sem hugsanlega hefur
adressuna. Hvað um það; háttvirt-
ur félagsmálaráðherra hvarf til-
tölulega fljótt cd bcdiinu eftir að fcdl
stjórnarinnar var tilkynnt og síð-
ast fréttist til hans í lokaðri viskí--
veisiu Davíðs Oddssonar borgar-
stjóra síðar um nóttina. Davíð vcir
heiðursgestur Helgarpóstsins um-
rætt kvöld. Nokkmm dögum síðar
var félagsmálaráðherra úr landi,
nafnspjaldið týnt og tröllum gefið.
Það náðist þó til Hannesar Hólm-
steins í Bretlandi en þar neitaði
hann að gefa upp stefnuyfirlýsingu
sína en sagði að Helgarpóstsmenn
yrðu að gera sér grein fyrir einni
staðreynd: Það væri það sama að
gera hann að félagsmálaráðherra
og ráða Drakúla greifa sem yfir-
mann Blóðbankans.
Að virkja vitið
Nokkur ágreiningur ríkti meðal
HP-manna um kjör heilbrigðis- og
viðskiptaráðherra. Aðeins einn
frambjóðandi reyndist hæfur í
báða stólana samtímis: Sigmar B.
Hauksson, Iandskunnur útvarps-
maður og gastrónóm. Ræða hans
hljóðaði á þessa leið:
„Það er engin tilviljuh að mér
vom falin þessi tvö erfiðustu ráðu-
neyti, þ.e. heilbrigðis- og við-
skiptaráðuneytið. Eg er eini mað-
urinn í þessari ríkisstjóm sem hef
lagt stund á viðskipti og líkams-
rækt - fer reglulega í Vesturbæjar-
laugina og tek B-vítamín og raunar
einnig C-vítamín.
Mitt fyrsta verk verður sem sagt
að bjóða heilbrigðisþjónustuna út,
svo og sjúkrahúsin. Einnig mun ég
í samráði við háttvirtan mennta-
málcLfáðherra beita mér fyrir því
að fjölgað verði í læknadeild Há-
skólans. Þarna gefast drífandi og
duglegum læknum tækifæri til að
reka sín eigin sjúkrahús. Ríkis-
stjórnin er að öllum líkindum til-
búin til að leigja þeim þær sjúkra-
stofnanir sem til em og taka hæsta
tilboði. Þannig mun skapzist sam-
keppni milli læknanna og sjúkra-
húsanna um hver bjóði ódýmstu
og bestu þjónustuna. Nú þegar er
komin góð reynsla á rekstur ein-
staklinga á sjúkrahúsum og vildi ég
þar nefna SÁÁ og sjúkrahúsið Vog.
Nú er svo komið að þangað fara
menn í meðferð sem hcda jafnvel
aldei bragðað áfengi, þetta er orð-
ið svo vinsælt. Undanfamar
vinstristjórnir hafa tcdað um heil-
brigðisþjónustu - þjónustu og heil-
brigðisgeira - geira. Hér eftir verð-
ur í þessari ríkisstjóm talað um
heilbrigðisiðnað.
Nokkur orð um málefni aldr-
aðra, þ.e.a.s. þeirra sem em 41 árs
og eldri. í málefnasamningi rfkis-
stjórnarinnar hefur verið ákveðið
að ailir íslendingar 41 árs og eldri
eigi rétt á ellilífeyri. Ríkisstjómin
mun beita sér fyrir því að byggð
verði hugguleg elliheimili fyrir
blessað gcunla fólkið suður á
Spáni. Þá þarf þetta blessaða
gamla fólk ekki að hírast hér árið
um kring í frosti, kulda og hríð 8
mánuði ársins. Ríkisstjómin mun
Úlfar Þormóðsson, dóms- og
kirkjumálaráðherra: „Afbrotamenn
dæmdir til að sitja rnessur."
Maríanna Friðjónsdóttir, landbún-
aðar- og samgöngumálaráðherra:
Kindaveiðileyfi handa amerískum
túristum og hringvegurinn malbik-
aður.
vitciskuld greiða farmiðana aðra
leiðina fyrir gamla fólkið. Þessir
flutningar munu án efa verða mikil
lyftistöng fyrir flugfélögin og ferða-
skrifstofur.
Vík ég þá að viðskiptaráðuneyt-
inu.
Störf mín sem viðskiptaráðherra
verða unnin í anda frjáíshyggjunn-
ar. Það fyrsta sem ég mun gera er
að bjóða út bankakerfið á alþjóð-
legum markaði. Þessir ríkisbcuikcir
eru handónýtir og geta enga fyrir-
greiðslu veitt. Þessi ríkisstjóm
mun leggja niður hinn illræmda
söluskatt - enda verður stórlega
dregið úr allri samneyslu sem
vinstristjómirnar hafa komið á.
Vitaskuld verður leyfð bmggun
áfengs bjórs - og mun ríkið hljóta
nokkrar tekjur af þessari fram-
leiðslu. Niðurgreiðslur á kéti verða
lagðar niður en íbúar höfuðborg-
arinnar fá leyfi til að hafa hænur, 2
kindur eða geitur á bak við húsin
sín. Þessi ríkisstjóm mun reyna að
draga úr skattpíningunni eins og
unnt er. Þó verður einn skattur
lagður á lcuidsmenn, þ.e.a^.
hundahald verður leyft en fyrir það
verða menn að borga og það háu
verði. Skattur aí hundum verður sá
sami og af bifreiðum. Þá verða
kettir skattlagðir og verður það
sami skattaflokkur og fyrir létt bif-
hjól.
Staying alive
Utanríkisráðherra Helgcupósts-
ins var Ástrós Gunnarsdóttir,
diskódrottning íslauds. Þessi
afrekskona mætti á harðaspretti
beint úr erfiðri danssýningu á Bíla-
sýningunni og rétt náði að tylla sér
í eldhúsi Hótel Borgar þegar henni
voru tiikynnt úrslitin: Stjómin fall-
in. Áður en hún hvarf af braut lýsti
hún þó yfir stefnuskrá utanríkis-
ráðuneytisins: Að segja ekkert en
láta líkamann tcda. Astrós sagðist
ætla að dansa þöglan dcms við
„Staying alive“ sem væri óskalag
ríkisstjórnarinnar.
Úlfar Þormóðsson, lífskúnstner
og fyrrverandi ritstjóri Spegilins,
þótti sjálfkjörinn í stól dóms- og
kirkjumálaráðherra. Hann tók falli
stjórnarinnar ljúfmannlega, enda
vanur slíkum smáskakkaföllum.
Hins vegar var ráðherrann búinn
að ramma inn stefnuskrá ráðu-
neytisins og hengja upp á vegg yfir
stórri ljósmynd af Þórði Björns-
syni saksóknara ríkisins. Reyndist
það mikið og erfitt verk að ná ræð-
unni niður og úr ramma til prent-
unar í blaðinu. En það tókst og hér
er ræðan:
Stimpilkort og
jarðarfararskattur
,3tarfsemi dóms- og kirkjumála-
ráðuneytis verður samræmd og
munu þau eftirleiðis bera samheit-
ið dómkirkjumálaráðuneyti. Bisk-
upinn yfir íslandi verður ráðu-
neytisstjóri hins nýja ráðuneytis.
Tekin verður upp skyldumæting
í kirkjur landsins og fær hver krist-
inn þegn stimpilkort þar sem sókn-
arprestur staðfestir kirkjusókn
hans. Sá sem ekki getur sannað
kirkjugöngu sína næstliðinn
sunnudag fær ekki afgreiðslu í
ÁTVR.
í sparnaðarskyni verður hætt að
veita messuvín við altarisgöngu
sem og í öðrum stórveislum ríkis-
ins. Þess í stað verður Mangósopi
og kakómjólk á boðstólum, svo og
skyrmysa.
Til að fylla upp í hið margfræga
gat á ríkisfjárlögum verður tekinn
upp jarðarfararskattur, nefndur
langfararskattur. Verður hann jafn-
hár söluskatti hverju sinni og
leggst á samanlagðar þriggja ára
tekjur hins látna síðustu æviárin.
Skattur þessi skal greiddur fyrir
jarðarför. Engan er heimilt að jarða
nema að honum greiddum.
Öll tugthús verða lögð niður,
svo og fangavarðastéttin. Þess í
stað verða afbrotamenn dæmdir
til að sitja hverja þá messu sem
haldin er í sóknarkirkju þeirra, þar
til iðrun þeirra er full. Milli guðs-
þjónusta gisti afbrotamenn í kór.
Er talið að með þessu móti muni
draga mjög úr afbrotum í landinu."
Og fer þá ekki frekari sögum af
ríkisstjóm Helgarpóstsins.
HELGARPÓSTURINN 25