Helgarpósturinn - 03.05.1984, Blaðsíða 26
HELGARDAGSKRÁIN
Föstudagur 4. maí
19.35 Tónlistarskólinnn. Bresk teikni-
mynd.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Auglýsingar og dagskrá.
20.45 Á döfinni.
20.55 Dire Straits. Stuttur dægurlaga-
þáttur með hljómsveitinni „Dire
j*Straits" sem leikurtvö lög.
21.15 Paradís samkvæmt tilskipun.
Þýsk heimildamynd frá Norður-
Kóreu sem lýsir landi og þjóð.
22.00 Besti maðurinn. (The Best
Man). Bandarísk bíómynd frá
1964. Leikstjóri Franklin Schaff-
ner. Aðalhlutverk: Henry Fonda,
Cliff Robertson, Lee Tracy,
Shelley Berman og Mahalia
Jackson.
Tveir stjórnmálamenn keppa um
útnefningu til framboðs í forseta-
kosningum í Bandaríkjunum.
Stuðningur ríkjandi forseta er
þeim mikið keppikefli og grípur
annar frambjóðandinn til örþrifa-
ráða til að öðlast hann. Óvenju
góð pólitísk mynd frá Ameríkön-
um, prýdd öndvegisleik og hand-
riti eftir opinskáu leikriti Gore
Vidal. 3 stjörnur.
23.40 Fréttir í dagskrárlok.
Laugardagur 5. maí
16.15 Fólk á förnun vegi. 24. Á bóka-
safni. Enskunámskeið i 26 þátt-
um.
16.30 Enska knattspyrnan.
17.20 Iþróttir.
18.10 Fréttaágrip á táknmáli.
18.20 Fréttir og veður. - Athugið
breyttan tima frétta.
18.45 Auglýsingar og dagskrá.
19.00 Söngvakeppni sjónvarps-
stöðva í Evrópu 1984. Bein út-
sending um gervihnött frá Lux-
embourg þar sem þessi árlega
keppni fer nú fram með þátttak-
endum frá nær tuttugu þjóðum.
21.30 Við feðginin. Tólfti þáttur.
22.00 Einn, tveir, þrir. (One, Two,
Three). Bandarísk gamanmynd
frá 1961. Leikstjóri Billy Wilder.
Aðalhlutverk: James Cagney,
Horst Bucholz, Arlene Francis og
PamelaTiffin.
Útibússtjóri Coca Cola i Vestur-
Berlín og kona hans fá dóttur for-
stjórans til dvalar. Stúlkan leggur
lag sitt við austur-þýskan vand-
ræðagemling og veldur þetta
samband útibússtjóranum
ómældum áhyggjum og útistöð-
um við yfirvöld austan múrsins.
Cagney yfirleikur skemmtilega i
þessum faglega farsa Wilders,
og I.A.L. Diamonds um kalda
stríðið, gildi Kókakóla á alþjóða-
vettvangi o.fl. o.fl. Mikill hraði,
margir góðir brandarar. 3 stjörn-
ur.
23.55 Dagskrárlok.
Sunnudagur 6. maí
Sunnudagshugvekja.
S|fcfO Tveir litlir froskar. 4. þáttur.
18.15Afi og bíllinn hans. 4. þáttur.
18.20 Nasarnir. Myndaflokkur um
kynjaverur, sem kallast nasar,
18.40 Svona verður gúmmi til.
19.00 Hlé.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Sjónvarp næstu viku.
20.55 Norðurlandahúsið i Þórshöfn.
Þáttur frá danska sjortvarpinu,
sem gerður var í Færeyjum í
fyrrasumar, en þá var tekið í
notkun Norðurlandahúsið í Þórs-
i hofn.
21.55 Nikulás Nickleby. Sjöundi þátt-
'*i® ur
22.55 Dagskrárlok.
Föstudagur4. maí
14.00 Ferðaminningar Sveinbjarnar
Egilssonar; seinni hluti. Þor-
steinn Hannesson les (17).
14.30 Miðdegistónleikar.
14.45 Nýtt undir nálinni.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir.
16.20 Síðdegistónleikar.
17.10 Siðdegisvakan.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18 45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19,00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.50 Við stokkinn.
20.00 Lög unga fólksins. Þóra Björg
Thoroddsen kynnir.
20.40 Kvöldvaka.
21.10 Frá samsöng Karlakórs
Reykjavíkur í Háskólabíói 5.
april sl.
21.40 „Helpresturinn", . smásaga
eftir Jörn Riel. Matthías Krist-
iansen lýs þýðingu sína og Hilm-
ars J. Haukssonar.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
22.35 Traðir. Umsjón Gunnlaugur
Yngvi Sigfússon.
23.15 Kvöldgestir - Þáttur Jónasar
Jónassonar.
00.50 Fréttir. Dagskrárlok.
24.00 Næturútvarp frá Rás 2 hefst
með veðurfregnum kl. 01.00 og
lýkur kl. 03.00.
Laugardagur 5. maí
14.00 Listalíf.
15.10 Listapopp.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
17.00 Síðdegistónleikar.
18.00 Miðaftann í garðinum með Haf-
steini Hafliðasyni.
. 18.15 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 „Guðs reiði“. Utvarpsþættir i
fjórum hlutum eftir Matthias
Johannessen. 1. hluti: „Maður
og myndastytta.
20.00 „Sumar í Salzburg“, óperetta
^ eftir Fred Raymond.
%Jpfo.20 Útvarpssaga barnanna.
20.40 Fyrir minnihlutann.
21.15 Á sveitalínunni.
22.00 7,Séndúm heim“, smásaga eftir
Gúnter Kunert.
22.15 Veðurfrengir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22. $5 Harmonikuþáttur.
23.05 Létt sigild tónlist.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
24.00 Næturútvarp frá Rás 2 til kl.
03.00.
Sunnudagur 6. maí
08.00 Morgunandakt.
10.25 Út og suður. Þáttur Friðriks Páls
Jónssonar.
11.00 Guðsþjónusta i Safnaðar-
heimili aðventista i Keflavik.
fmmmmmmmmmmmmm.
Val Hlínar Agnarsdóttur
„Utvarpsneysla mín er tiltölulega lítil “ segir okkur Hlín Agnarsdóttir
leiklistarkennari við Hamrahlíð. ,£n hvað hljöðvarpið um þessa helgi
varðar, hef ég hugsað mér að njóta bamaefnisins sem boðið er upp á. Eg
hef oft ljúft gaman af þáttum eins og Morgunstund bamanna og Við
stokkinn. Þá krossa ég hiklaust við sígilda tónlist. Nei, veistu mér finnst
hún ekkert koma illa út í hljóðvarpinu. Það er mjög afslappandi að
hlusta á þessa tegund músíkur í dagsins önn. Víkjum þá að sjónvarpinu.
Ég sé þarna þýska heimildamynd um Norður-Kóreu sem mér finnst ansi
girnileg. Laugardagsdagskráin höfðar ekki til mín eins og hún leggur sig.
Bíómyndir? Nei, mér finnst leiðinlegt að horfa á þær í sjónvarpskassan-
um. Hvað hinsvegar sunnudeginum viðvíkur, þá krossa ég við snilldar-
lega uppfærslu á Nikulási Nickleby, þá vil ég síður missa af Norður-
landahusinu í Þórshöfn og Ioks er þess að geta að ég er veik fyrir
tékknesku teiknimyndunum sem sjónvarpið býðurupp á, margæ þeirra
em æði smellnar."
Hádegistónleikar.
12.10 Dagskrá. Tónleikar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.45 Nýjustu fréttir af Njálu.
14.15 „Sæll er sá“. Dagskrá frá tón-
leikum í Akureyrarkirkju 25.
mars sl. til heiðurs Jakobi -
Tryggvasyni.
15.15 í dægurlandi.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Háttatal. Þáttur um bókmennt-
ir.
‘17,00 Frá tónleikum Sinfóniuhijóm-
w sveitar íslands i Háskólabiói 3.
Jf þ.m.; síðari hluti.
17.45 Tónleikar.
18.00 Við stýrið.
18.15 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrákvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 Eftir fréttir. Þáttur um fjötmiðl-
un, tækni og vinnubrögð.
19.50 Úr Ijóðum Bólu-Hjálmars.
Valdimar Lárusson les.
20.00 Útvarp unga fólksins. Stjórn-
andi Margrét Blöndal. (RÚVAK)
21.00 Hljómplöturabb Þorsteins
Hannessonar.
21.40 Útvarpssagan: „Þúsund og ein
nótt“.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Kotra.
23.05 Djassþáttur. - Jón Múli Arna-
son.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Föstudagur4. maí
10.00-12.00 Morgunþáttur. Stjórn-
endur: Páll Þorsteinsson, Ásgeir
Tómasson og Jón Ólafsson.
14.00-16.00 Pósthólfið. Stjórnandi
Valdís Gunnarsdóttir.
16.00-17.00 Bylgjur. Stjórnandi Árni
Daníel Júlíusson.
17.00-18.00 í föstudagsskapi. Stjórn-
andi Helgi Már Barðason.
23.15-03.00 Næturvakt á Rás 2.
Rásir 1 og 2 samtengdar með
veðurfréttum kl. 01.00 og heyr-
ist þá i Rás 2 um allt land.
Laugardagur 5. maí
24.00-00.50 Listapopp
00.50-03.00 Á næturvaktinni.
Rásir 1 og 2 samtengdar kl.
24.00 og heyrist þá í Rás 2 um
allt land.
SJÓNVARP
eftir Magnús Torfa Ólafsson
Urkast úr úrkastinu
Barátta kynjanna í skrifstofuumhverfi
hefur verið hugstæð þeim sem settu
saman dagskrá sjónvarpsins um síðustu
helgi. A laugardagskvöld var, eins og
segir í dagskrárkynningu stofnunarinn-
ar, boðið upp á bíómynd um „þrjár skrif-
stofustúlkur, sem oft hafa fengið að
kenna á kúgun og karlrembu vinnuveit-
anda síns“. Þrenningin er svo höfð í
hefðbundnum kynbombustíl, enda Jane
Fonda og Dolly Parton tveir þriðju af
henni. Myndin er frá þeim árum, jíegar
Dolly bjó með Jerry Brown fylkisstjóra í
Kalifomíu, en eftir að hún lét umboðs-
mann sinn básúna út um allar jarðir,
hvemig tölumar hrykkju af barmi sér,
þegar hún þendi sig í sveitasöngvunum.
Ekki er fyir kominn mánudagur en sett
er á dagskrá breskt sjónvarpsleikrit,
Ástir á skrifstofunni, og samkvæmt
Dolly í 9-5 - barátta kynjanna í skrif-
stofuumhverfi.
sömu heimild og áður var til vitnað,
liggur þar til gmndvallar sú skarplega
athugun, að „þar sem karlar og konur
starfa saman, fer ekki hjá því að ástin
mgli einhverja í riminu á vinnustað."
Svona endurtekning á keimlíku efni
gæti bent til að einskær tilviljun sé látin
ráða dagskrárstjóm, en hér skal sett
fram önnur skýring. Einhvem veginn ber
val erlends skemmtiefnis síðustu vikur
þess merki, að verið sé að koma því að í
lok dagskrártímabils, sem lent hefur í(
úrkasti undanfarinn vetur. Vetrardag-
skrá er að ljúka og sumardagskrá fram-
undan, svo þá er eins gott að nota drasl-
ið, úr því búið er að kaupa sýningarrétt-
inn.
Nærtækari skýring er ekki finnanleg á
því, að Apaplánetan skuli bera af meðal
þess sem sýnt er af sjálfstæðum bíó-
myndum og sjónvarpsleikritum þessa
dagana.
Dagskrárstjórn sjónvzups gerir bæði
sjálfri sér og notendum miðilsins óleik
með þeirri meinloku, að nýlegar bíó-
myndir skuli hafa forgang til sýningar.
Bíómyndamarkaðurinn er nefnilega
þannig úr garði gerður að þær nýlegar
bíómyndir sem boðnar em til sjón-
varpssýningar em að yfirgnæfandi
meirihluta úrkastið úr kvikmyndciiðnað-
inum, þær myndir sem ekki gera í blóðið
sitt í kvikmyndcihúsunum og settar em á
boðstóla til sjónvarpsstöðva í því skyni
að bjarga því sem bjargað verður í af-
komu kostnaðarmanna.
En sé litið lengra aftur, standa til boða
til sýningar í sjónvarpi úrvals bíómyndir
frá fyrri ámm í löngum röðum. Þær em
ómissandi þáttur í dagskrám sjónvarps-
stöðva um víða veröld. En til að velja úr
framboðinu þarf þekkingu á kvikmynda-
sögu og tilfinningu fyrir list hvíta tjalds-
ins. Gaman verður að horfa, þegar ein-
hver með þessa eiginleika kemst til
áhrifa í dagskrárstjóm RÚV Sjónvarps.
26 HELGARPÓSTURINN
ÚTVARP
eflirGíslaHelgason
Dagskrárkynning
I viku hverri býður útvarpið lands-
mönnum upp á mjög fjölbreytta dag-
skrá. Þegar maður gerist reglulegur
hlustandi, heyrist fljótlega, að dagskráin
er í nokkuð föstum skorðum. Tiltölulega
lítið rúm er fyrir óvænta þætti, að því er
mér þykir. Helst er það á sunnudögum,
sem gert er ráð fyrir slíkum þáttum. Það
hefur vissa kosti og galla að byggja dags-
krána upp á þennan hátt. Hlustendur
geta gengið að því nokkuð vísu, hvaða
efni er á hverjum tíma. Hins vegar er
hætt við, að dagskráin verði of tilbreyt-
ingarlaus, sé hún höfð í of föstum skorð-
um og svigrúmið of lítið til breytinga.
Á undanfömum árum hefur dagskráin
verið kynnt í blöðum og sum dagblað-
anna birta hana í heild sinni. Hér í eina
Helga Ágústsdóttir - fjölskylduþættirnir
hafa tekist ágætlega.
tíð var dagskrá næstu viku lesin á föstu-
dögum í útvarp. Það þótti mér og fleirum,
sem ekki hafa aðgang að blöðum, stór-
gott. Þessi dagskrárkynning var ein-
hverra hluta vegna lögð niður, en í stað-
inn var látið nægja að lesa dcigskrána á
hverjum degi, eins og enn er gert. Svo
ern glefsur úr henni kynntar í þættinum
,Á virkum degi“. Sú kyúning er ágæt, svo
langt sem hún nær, en mætti vera ítar-
legri. í rauninni nær hún ekki tilgangi
sínum, nema þá sem árétting á fyrri dag-
skrárkynningum. Talið er, að hátt á
sjötta hundrað manna eigi við verulega
sjónskerðingu að að stríða hér á landi.
Svo em allir þeir, sem eiga erfitt með
lestur einhverra hluta vegna. Það væri
því velgjömingur við þennan hóp
manna, sem er einn tryggasti hlustenda-
hópur útvarpsins, að það kæmi til móts
við hann og tæki aftur upp lestur á dag-
skrá næstu viku. Einnig mætti taka upp
sérstakan dagskrárkynningarþátt, annað
hvort einu sinni í viku, eða nota örlitla
stund dag hvem til þess að kynna ein-
stök atriði dagskrárinnar.
Með hækkandi sól breytist dagskráin,
sumir þættir hætta og aðrir koma í stað-
inn. Flest sem ég hef heyrt í vetur hefur
mér líkað vel. Nefni ég þar sérstaklega
umræðuþættina ,Á mili landshluta", en
þeir em góð nýjung í dagskránni. Fjöl-
skylduþættir Helgu Agústsdóttur hafa
tekist ágætlega, Stefán Jökulsson og fé-
lagar em vaxandi útvarpsfólk og Páll
Heiðar er búinn að fá röddina aftur. Þar
sem þetta er minn síðasti pistili í bili, þá
langar mig að þakka lesendum góðar
undirtektir. Það var ætlun mín að reyna
að vera með raunhæfa gagnrýni. Suma
hef ég sært með neikvæðum orðum, en
það var ekki illa meint. Ef gagnrýni á að
vera marktæk, verður hún að vera vel
gerð og uppbyggileg, en talsvert skortir
á það hjá mörgum þeim, sem skrifa slík-
ar greinar í blciðin.