Helgarpósturinn - 17.05.1984, Blaðsíða 12
MATKRAKAN
Innan sleiki ég askinn minn
Reykvíska sumcirið lætur á sér standa að
vanda. Ef menn fara of léttklæddir að heim-
an gerir norðangolan þá samstundis að
glænepjulegum viðundrum. Samt hefur
sprottið upp úr maibiki höfuðborgarinnar
einkennilegur blómi: sólbrún ungmenni
klædd eins og tískufrömuðir ímynda sér að
eigi að klæða sig fyrir Safariferð. Og ýmsir af
eldri kynslóðum eru sólbrúnir líkk, mikil
lifandi skeifing.
Nú eru nefnilega þeir sem vinnuvettlingi
geta valdið (eða hvað?!) að undirbúa sig
fyrir sumarfrí á suðrænum pálmaströndum.
Til að geta tekið sig vel út þar er mörgum
nauðsynlegt að grenna sig, brúnka og
teygja í tólum, til að bera uppruna sínum
ekki alltof glöggt vitni. - Og svo þarf náttúr-
lega að öngla saman fyrir ferðinni með
auknum sparnaði og sjálfsafneitunum (þótt
ferðaskrifstofurnar hcífi vissulega brugðist
við kreppunni með fyrirgreiðslu sem sparar
viðskiptavinum þeirra bcinkastjórasmæl-
in).
Men þurfa semsé að grennast og spara.
Einfaidasta lausnin er að sjálfsögðu fasta.
Auk þess myndi hún mjög bæta heilsuna,
hreinsa líkamann cif þeim sora úrgangsefna
sem safnast hefur þar fyrir yfir veturinn.
Verst að lögbundnir föstudagar skuli vera
fyrir bí; þeir voru þó ailltént freistinga-
bremsa. Fjórði föstudagur eftir páska (sá
sem rennur upp á morgun) var t.d. um
rúmlega tveggja alda skeið (1686-1893)
lögskipaður einn allsherjcir iðruncir-, bæna-
og föstudagur, gangsettur af Kristjáni kon-
ungi 5.. Þá skyldi hringja kirkjuklukkum kl.
6, loka öilum verslunum og krám (sem þá
voru vitaskuld ekki< til hér), menn skyldu
veskú ganga tii guðshúss en iáta sér verk úr
hendi detta. (Sbr. Ámi Bjömsson: Saga
daganna, bls. 53).
Opinberlega hét þessi dcigur Hinn al-
mennilegi bænadagur, en íslendingar,
sem þótti víst sem lögskipaðir föstudcigar
væru æmir fyrir, tóku fljótlega upp á að
kalla dag þennan Kóngsbænadag; skildu
hann þannig að þá ætti að biðja alveg sér-
staklega fyrir Danakóngi og hyski hans og
fannst ósvinna að láta gamimar gaula heil-
an dag í blessunarskyni við búsorgir hans,
yfrið að biðja honum guðs blessunar við
messu hverja.
Kóngsbænadagurinn virðist þvf, ef marka
má varðveittan keðskap frá löggiltu tímabili
hans, hafa verið heidur óvinsæll, sbr. eftir-
farandi vísukorn:
Innan sleiki ég askinn minn
ekki er fullur maginn.
Kannast ég við kreistinginn
kóngs- á bænadaginn.
Annað erindi og lengra, um hvemig megi
svindla á kónginum í mat téðan dag, hefst á
þessum yndislegu línum:
Um ísalönd
aukast nú vandræðin.
Fer í hönd
f östudagssu Iturinn.
Fyrir því kvíða margur má
matbráður dóni
(. • •)
Ég gríp frasana á lofti og ráðlegg öllum
matbráðum dónum, yfirlýstum rotinpúr-
um, borðhaldssvínum og matarskepnum,
en einkum og sérílagi elskulegu og dagfars-
prúðu fólki sem játast undir að vera í fram-
anlýstum sumarleyfispælingum að fasta,
1-2 daga í viku, eða alfarið fréim að sumar- '
leyfi. Kostum föstunnar hef ég áður lýst
f jálglega á þessum vettvangi og endurtek þá
því ekki hér og nú. Þess í stað gauka ég að
ykkur tveimur uppskriftum: grennandi,
góðum og pyngjuutanumhaidandi.
En íhugið - fyrir sumarreisuna - hverjar
væntingar þið hafið í fcirteskinu. Er um að
ræða ferð án fýrirheits? Verðiði að henni
lokinni aðeins upplituð mynd á sýningu
haustsins t.a.m. eins og sú sem Einar Már
Guðmundsson hefur málað í Róbinson
Krúsó snýr aftur(1981):
Þrátt fyrir ferðaskrifstofubrjóstin
mæjorkamjaðmirnar og tívígræn augun
er magasintiiveran martröð milli sjússa
þú ert einmana einsog kartöflugras
sem haustið hefur skilið eftir
en
heimspekilegar vangaveltur varanna
fótógrafísk stellingin við barinn
pornótaktarnir úr orðabók eros
gera akademísk höfuðin að engu
— yfir syfjulegu glasinu
ertu sökksess i samförum við einsemdina
sem diggar þetta meiköpp
Æ,æ, um leið og minnst er á kartöflugras
þessa dagana, fer ég að gráta. Það er nú svo.
Hrífandi hrogn
Niðursoðin þorskhrogn eru ódýr og fima
holl. Þau má nota í margvíslegustu rétti, en
þau henta þó alveg sérlega vel í ýmis konar
viðbit út á brauð. Gott er að búa til dágóðan
skammt í einu og geyma í ísskápnum. Hér
kemur uppskrift að einu slíku viðbiti sem er
í feikilegu uppáhaldi hjá mér.
200 g niðursoðin þorskhrogn
u.þ.b. 3 msk majónes
5 msk sýrður rjómi
u.þ.b. 8 msk óhrært skyr
1 msk gott karrý
1 msk franskt sinnep
salt og nýmalaður svartur pipar
Hrognin em stöppuð með gaffli í skál og
síðan er öllu hinu hrært saman við. Það má
alveg breyta hlutföllunum á majónesi, sýrð-
um rjóma og skyri; eða sleppa sýrða rjóm-
anum og nota 1/3 hluta cif majónesi á móti
2/3 hlutum af skyri.
Borðist með brauði og gjaman einhverju
fersku grænmeti, t.d. gúrku og alfalfaspír-
um.
Pönnukökur
með fiskafgöngum
Fleygið aldrei fiskafgöngum; þá má t.d.
nýta í þessar gómsætu pönnukökur. Upp-
skrift handa 4.
Pönnukökudeig:
2egg
2 1/2 dl mjólk
2 1/2 dl hveiti
1 msk matarolía
1/2 tsk salt
Auk þess:
afgangur af beinlausum fiski, soðn-
um eða steiktum
smjör eða smjörlíki til steikingar
timjan
söxuð steinselja
saxaður graslaukur, dill eða púrra
Hrærið pönnukökudeigið þar til það er
kekkjalaust, heliið því þá á pönnuna eins og
um venjulegar p>önnukökur væri að ræða;
en um leið og deigið er komið á pönnuna, er
fiski, kryddi og kryddjurtum stráð yfir. Þeg-
ar neðra byrði kökunnar er bakað, er henni
snúið við eins og venjulegri pönnuköku og
hún bökuð hinum megin. Síðcin eru pönnu-
kökurnar borðaðar vel heitar ásamt t.d.
blaðsalati með edikssósu.
VERSLUNARMIÐSTÖÐ
VESTURBÆJARIN
^ AHar ^
\l£gT,
0
gL^6>£
ÁT
vorur
JllVí
j| á markaðsverði. f &
V B E g
RAFTÆKJADEILD
II. HÆÐ
Raftæki-Rafljós
og rafbúnaður
JL-GRILLIÐ
Grillréttir allan daginn
MUNIÐ OKKAR
HAGSTÆÐU
GREIÐSLUSKILMÁLA
Innkaupin eru þægileg hjá okkur
Svo geturðu líka slappað af í Kaffiteríunni
OPIÐ:
Mánud.-fimmtud. 9-19.
Föstud. 9-20. Laugard. 9-16.
’A A A A. A A
Jli
Jon Loftsson hf.
Hringbraut 121 Sími 106Ö0
“ q ciuqlF
~ L.juuua3j/Í í
rir sundiðkendur
alveg
frábært
Laugaveg 178 - P.O. Box 338 - 105 Reykjavík - lceland
Ekkert shampoo jafnast á við
EL’VITAL
L’OREAL
12 HELGARPÓSTURINN