Helgarpósturinn - 17.05.1984, Blaðsíða 24

Helgarpósturinn - 17.05.1984, Blaðsíða 24
FLUGMENN eftir Hallgrím Thorsteinsson myndir Jim Smart og Flugleiöir INIÐUR- STREYMI Sú var tíðin að litið var upp til flugmanna. Það var nánast eins og þeir væru hálfguðir; í sérstöku sambandi við almættið þarna uppi. I það minnsta voru þeir hetjur, hetjur háloftanna. Flugkappar fyrri tíma, menn eins og Balbo hinn ítalski .með hópflugið sitt, voru í augum samtímamanna sinna engu minni hetjur en sægarpcir landa- fundanna miklu. Þetta voru menn sem sigruðu heiminn með því að fljúga í kringum hann. Þeir voru umvcifðir dýrðarljóma. Svo komu geimfararnir. Þeir stálu senunni með því að sigra geiminn, og flug- menn féllu um mörg þúsund fet í áliti. Fieira varð til þess að slá á goð- sögnina um flugmannsstarfið. Al- menningur fór t.d. að ferðast fiug- leiðis. Venjuiegt fólk var hafið upp til skýjanna og rúmlega það. Allt í einu sat cdmúginn í heiðríkjunni veðrum ofar, með vodka og kók, í sömu hæð og á sama hraða og flugmaðurinn. Og fólk fann út að sennilega væri enginn vandi að stýra þotu um loftin blá. Krakkar sögðust meira að segja hafa fengið að stýra. Fullorðna fólkið brosti í kampinn, vissi sem var að sjálfstýr- ingin var á. Nú er öldin sem sagt önnur og það kemur glögglega fram í yfirstandandi kjara- deilu flugmanna hjá Flugleiðum. Þegar almenningur heyrir frá Fiug- leiðum að flugmennirnir vilji í sumum tilvikum 70% hærri laun en þeir hafa á meðan aðrir sætta sig við 5% hækkun, er ekki verið að vanda hetjum háloftanna kveðj- urnar: Hálaunahyski, segir fólk... En flugmenn kæra sig kollótta, segjast ekki þurfa á samúð fólks að halda í launabaráttunni. Þessi af- staða þeirra er hluti af flugmanns- ímyndinni, þetta er áræði og þor. Á enskunni, sem flugmenn nota mik- ið, heitir það að vera „cooi“. En hvað annað felst í því að vera flugmaður? Þægilegur vinnutími til dæmis. Flestir flugmenn sem HP ræddi við nú í vikunni nefndu vinnutímann, þegar þéir voru beðnir um að telja upp kosti flug- mannsstarfsins. Meginkosturinn við vinnutímann er hvað hann er stuttur, og frítíminn þá langur. Strangar reglur gilda um hvíldar- tíma flugmanna, þannig að algeng- ur meðalfjöldi vinnustunda á viku er 25-30. Á sumrin, þegar mun meira er að gera í fluginu, er vinnu- tíminn þó jcifncin lengri, fer upp í 45-50 klukkustundir á viku, segja flugmenn. .Almenningur gerir sér mjög óraunhæfar hugmyndir um vinnu- tímann og kaupið," segir flugstjóri hjá Arnarflugi í samtali við HP. „Fólk heldur að við séum með miklu meira kaup en við segjumst hafa. Ég er til dæmis með 58.000 krónur á mánuði eftir sjö ára starf, og búið. Ég fæ alveg sama kaup hvort sem ég flýg mikið eða lítið, um helgar eða virka daga, og við fáum enga sérstaka næturvinnu greidda. Þetta er kaupið. Erlendis fáum við dagpeninga eins og aðrir sem þurfa að fara erlendis, en þar með eru greiðslur upptaldcir.“ Hæstu flugmannslaun á Islandi eru laun flugstjóra á þotum Flugleiða. Þeir sem hafa hæstan starfsaldur komast upp í um 85.000 króna mánaðariaun. Vegna anna í flugi á sumrin skipta flugmenn fríunum sínum í sumar- og vetrarfrí. Algengt er að þessi frí séu samtals einn og hálfur 24 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.