Helgarpósturinn - 17.05.1984, Síða 19

Helgarpósturinn - 17.05.1984, Síða 19
Nýjasta nýtt af djassi á Listahátíð: Martial Solal og dömu-djassbandið Quintetten Listahátíð var að ganga frá samningum við tvö ailólík djass- númer í vikunni. Þcir er annarsveg- ar um að ræða franska píanistann Martial Solal, en hinsvegar sænsk/ íslensku kvennagrúppuna Quin- tetten. Martial Solal er, fæddur 1920 í Alsír en flutti til Pcirísar við upphaf seinni heimsstyrjaldarinnar. Allar götur síðan hefur hann verið í framlínu evrópska djassins og einkcmlega getið sér gott orð fyrir nútímalega og framsækna list- sköpun í tónlist sinni. „Það er óhætt að telja Solal meðcd cdlra fremstu djassara Evrópu um þessar mundir", segir Vemharður Linnet, djassskríbent HP. Solal er líklega kunnastur fyrir samstarf sitt við Nils Henning, en þeir gáfu út fræga dúó-skífu fyrir nokkmrn ámm. Þá hefur Solal unnið með stirnum á borð við Lee Konitz, en þess má geta að sá var fyrsti er- lendi djassistinn sem sótti íslend- inga heim árið 1949, og John Scho- field sem líka hefur gist ísland. En á Listahátíð verður Solcil einn á ferð. Hann kemur tvisvcu- frcim ásamt píanóinu sínu. I fyrra skiptíð í Háskólabíói annan júní klukkan fimm síðdegis. Kvöldið eftir, þann þriðja júní, tekur hann svo þátt í mikilli djammsessjón í Broadway ásamt íslenskum djassgeggjumm og sænsk/íslensku grúppunni Quintetten. Þá hljómsveit skipa fjórar sænskar stúlkur og ein íslensk, Guðrún Hauksdóttir gítarleikari, sem hefur búið í Svíþjóð nokkur undanfcirin ár. Quintetten gerir út frá Mcilmö og hefur verið við lýði síðustu þrjú ár, eða svo. Þær hafa getið sér gott orð fyrir nútímadjass og einnig hitt, að þær þykja sérlega skemmtilegar á sviði þar sem þær em gjarnar á að leika af fingmm fram. Það heitir að impróvísera. Þegar þetta er pikkað, er ekki enn frá því gengið af hálfu Listahátíðar- nefndar hvenær og hve oft stúlk- urnar koma fram hérlendis. Quintetten frá Svíþjóð; sérlega skemmtilegar á sviði. Martial Solal frá Frans; einn fremsti djassari Evrópu. JAZZ AfHauki og mönnum hans eftir Vernharð Linnet Haukur Morthens sextugur Ótrúlegt en satt; í dag er Sinatra okkar Islendinga sextugur. í fjömtíu ár hefur hcinn sungið dægurlög fyrir okkur og verið sívin- sæll. Kannski kcinn einhver að spyrja hví afmælis Hauks sé minnst í djassþætti og er þvt til að svara að hann er óaðskiljanlegur hluti Eif íslenskri djctsssögu; þótt hann sé sjálfur ekki djasssöngvctri hefur hann stjórnað mörgum ágætum djasshljómsveit- um. Því var þannig varið hér á árum áður að djassleikarar léku fyrst og fremst í dans- hljómsveitum og áðuren staðimir fylltust var djassað af lífi og sál, enda em margir hinir ágætustu sólóar varðveittir á dans- skífum. Haukur Morthens var söngvari í frægustu djasssveit íslenskri: hljómsveit Gunnars Ormslev, er lék á Alþjóðamóti lýðræðis- sinnaðrar æsku í Moskvu 1957. Þar fékk hljómsveitin gullverðlaun fyrir leik sinn og enn má á góðum stundum heyra upptökur með þeim félögum í Moskvuútvarpinu. Auk Gunnars og Hauks skipuðu þessir sveitina: Viðar Alfreðsson, trompet, Ámi Elfar, píanó, Sigurbjörn Ingþórsson, bassa, og Guðjón Ingi Sigurðsson, trommur. Árið 1963 var haldið Alþjóðaæskumót í Helsingfors. Haukur var þar með hljóm- sveit; Jón Möller á píanó, Om Ármannsson á gítar, Sigurbjörn Ingþórsson á bassa og Guðmundur Steingrímsson á trommur. Ég var á þessari hátíð og vorum við íslenskir stoltir af okkar mönnum. Öm og Sigurbjöm fengu gullverðlaun fyrir sólóa sína og band- ið gaf öðrum ekki eftir og vom þó menn á borð við Archie Shepp í bandarísku sendi- nefndinni og John Tchicai í þeirri dönsku. I kvöld verður Haukur með cifmælistón- leika í Háskólabíói og af því tilefni er danski píanistinn', tónskáldið og hljómsveitarstjór- inn Poul Godske staddur hér. Mun hann stjórna stórsveit á hljómleikunum. Godske lék lengi með hljómsveit Jöm Grauen- Megi Haukur Morthens sem lengst hcdda gaards. Scimstarf þeirra Hauks hefur staðið í áfram að efla rýþmíska tónlist á íslcindi. þrjátíu ár. Haukur-Sinatr íslands hefur sungi í 40 á Lokadjammið Sl. fimmtudagskvöld mátti finna flesta ís- lenska djassleikara í Þórscafé. Þar iuku Jazzklúbbur Reykjavfkur og Jazzvakning vetrarstarfi sínu með sveiflukvöldi í minn- ingu Count Basie. Því miður komst heiðurs- gesturinn, básúnuleikarinn og söngvarinn Richard Boone,ekki til landsins vegna yfir- vofandi flugmannaverkfalls, en hann lék með Basie á ámnum 1966-’69. Jazzklúbbur Reykjavíkur hefur staðið fyrir mánaðarlegum sessjónum í vetur og er vonandi að íslenskur djass hverfi ekki af sjónarsviðinu þótt sumar fari í hönd og klúbburinn í frí. Það var dálítið gaman að hlusta á hljóm- sveit Sigurbjörns Ingþórssonar, sem jækkt- ari er sem Bjössi bassi. 3/5 sveitarinnar vom með Hauki í Helsingfors: Bjössi, Örn Ár- mannsson gítarleikari og Jón Möller pían- isti. Stefán Stefánsson blés í tenór með þeim og Þórir Magnússon sló trommurnar. Sigurbjörn og Örn hafa ekki leikið lengi opinberlega fyrr en í vetur og er gleðilegt hversu stórstígum framfömm þeirra hafa tekið þótt langt sé í land að ná fæmi gull- aldaráranna. Jón Möller ber þess merki hversu sjaldan hann hefur tækifæri til að leika djciss en sóló hans í Body And Soul var guils ígildi. Þarna komu fram ýmsir þekktir sem óþekktir og menn gerðu sosum ekkert sem kom á óvart enda dálítið margar sveitir á dagskrá og tími þeirra búinn áður en þær höfðu hitað upp. Hljómleikunum lauk með Big Band ’81 sem Björn R. Einarsson stjómar og léku þeir félagar nokkrar útsetningar sem Salva- dore Nistico skrifaði fyrir Basie heitinn. Sveitin hefur ekki komið fram í rúmt ár og ber þess merki. Það er mikil nauðsyn fyrir djassmenn að hafa lifandi samband við hlustendur. HELGARPÓSTURINN 19

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.