Helgarpósturinn - 17.05.1984, Síða 20

Helgarpósturinn - 17.05.1984, Síða 20
„Mitt farartæki er píanóið“ -Helgarpósturinn rœðir við spænska tónskáldið (og stangveiðimanninn) Carlos Santes eftir Ólaf Engilbertsson Hann gekk að píanóinu og hóf leik af fítonskrafti og auðmýkt í senn. Þar kom að hann stóðst ekki lengur mátið að skella olnbogum í tónborðið og hljóðaði af kátínu. Þetta endurtók hann margsinnis. Stúlka skreið inn á sviðið og vatt sér um háls hans og hann allan einsog snákur. Hann lét sem ekkert værri og hélt áfram leik sínum - stúlkan steypti sér kollhnís í kjöltu hans. I lokahrinunni missti hún tangarhaldið og virtist sogast burt sömu leið og hún kom - en meist- arinn lauk leiknum í dramatískri innlifun. Ég ákvað að hljóla í mann- inn. Við Carlos Santos mæltum okk- ur mót í Poliorama-leikhúsinu kvöldið eftir. Þessa daga var hann rauði þráðurinn í leikhúslífi Barce- lona. Músíkuppákoman ,3eet- hoven, hvað gerist ef ég loka fyrir?" var nú endursýnd í Poliorama-leik- húsinu. í öðru leikhúsi, Regina, var ballett á fjölunum með tónlist Santosar. Einmitt þar hafði „Beet- hoven ..." verið frumsýndur í febrúcU" við mikla hylli ásamt öðru stykki,,JVlinimalet-Minimalot", þar sem Santos nötraði, skalf og grenj- aði einn síns liðs í rúma fimm stundarfjórðunga. Hann sat við píanóið þegar við Copiné ljósmyndari birtumst. Við- talið fór fram á kaffihúsi í grennd- inni. „Ég er fyrst og fremst tónlistar- maður," sagði hann aðspurður um uppákomur sínar. .Afturámóti byggjast þessar músíkuppákomur mínar kannski meir uppá notkun líkamans en venjulegur konsert. Leikmynd skiptir mig ekki máli - lýsing nægir mér og þess utan nota ég stuttar kvikmyndir sem ég geri sjálfur. Mér er hinsvegar meinilla við allt tæknibrölt og vélar. Ég kann ekki á nein farartæki nema píanóið ... Aðstoðarfólk mitt er fyrst og fremst söngvarar, ekki leikarar. Þau sem eru með mér í „Beethoven, hvað gerist ef ég loka fyrir?“ eru úr ýmsum áttum. Ein er dansari, önnur söngvari - aðeins einn er leikari. Þetta eru raddir - hin upprunalegu hljóðfæri ... spuni líkamans. Ég byggi mikið upp á rytma ... rytma sem getur, þegar bíest lætur, speglað ástand líkamans ... en tónverkið sjálft er skrifað nákvæmlega, nótu fyrir nótu - það er líkaminn sem spinn- ur út frá því. Það má kannski kalla það leiklist, en þá er líka öll tón- Íistartúlkun leildist. Ég hef meiri áhuga á sambandi við áheyrendur en flestir avantgarde tónlistar- menn ... og legg þvf kannski meira uppúr líkamlegri túlkun. En jafn- vægi á milli túlkenda og áhorfenda er ekki til í dæminu. Raunveruleiki sviðsverksins er að einhver verði þess aðnjótandi - að einhver sjái það og heyri. Við vitum líka að fólk verður strax óttaslegið og vart um sig þegar leikurinn færist út í sal. Fólk kemur ekki til að kasta sér á vald atburðanna - það kemur til að sýnast, fyrst og fremst. Aðal- tómstúndagcunan mitt er að veiða túnf isk, sem ég held að sé að mörgu leyti skylt því að koma fram á sviði. Meirihluti gestanna er svo þrjósk- ur og hvumpinn að hann klippir á línuna án þess svo mikið sem að hamast. Það er huggun að hann skuli gleypa öngulinn. Ef einhver gengur út meðan á leik stendur er það vegna þess að hann hefur eitt- hvað á móti sjálfum sér. Á meðan ég er heiðarlegur gagnvart sjálfum mér á sviðinu hef ég ekki áhyggjur af slíku. Þar gef ég allt sem gefið verður - með einbeitínguna í botíii." Ég bað Santos að segja eitthvað af ferli sínum. „Það eru rúm 20 ár síðan ég hóf að starfa sem tónlistarmaður. Ég hef haldið tónleika og komið fram á ýmsum festivölum í Evrópu, Bandaríkjunum og Suður-Ameríku - þar á meðal 12. alþjóðlega sound-poetry festivalinu í New York. Frá 1978 hef ég unnið sjálf- stætt að minni eigin tónlist. Einnig hef ég gert nokkuð af stuttum kvik- myndum sem ég nota á uppákom- um. Þú sást t.d. í gær Beethoven ganga í hafið. Þetta var mikilvægt í uppbyggingunni, þvf síðan birtist hann raunverulegur í lokin, sem einskonar afturganga, og heimtaði að ég lokaði fyrir.“ En tengslin við sound-poetry - er hann dadaisti? ,Álín verk eru miklu skyldari tónlist - nútímasöng, heldur en sound-poetry, sem ég álít að eigi frekar rót sína í bókmenntunum. Ég er tónlistcumaður númer eitt, tvö og þrjú. Dadaisminn hefur þó alltaf verið ríkur í mínu stússi og vafalaust má sjá hans merki í uppá- komum mínum. Sama má segja um súrrealismann - þá á ég við þenn- an latneska súrrealisma, sem mað- ur vogar sér að kalla hefð í Suður- Evrópu og á kannski meira í mcinni en dadaisminn. Með avantgardist- um seinni tíma getur maður þó tal- að endalaust um álirifavcilda og greint niður í smátt. Ég tel mig hafa fundið mína list og mér líður vel - ég sef einsog hestur." Er hcmn sniliingur? „Ég er enginn snillingur, ég vinn með öðru fólki og meðtek hug- myndir þess. Ég er 42 ára og bý með konu, en hjónaband er mér fjarri skapi. Ég lifi fýrir daginn í dag.“ I sömu mund hrifu tvær ung- meyjar Santos á braut. SÍGILD TÓNLIST Hugsjónarolur stikkfrísins Ég var búinn að klippa út grein eftir Guð- berg Bergsson um daginn og ætlaði að hafa hana hangandi fyrir ofcin rúmið mitt mér til heilsubótar. Hún er um sýningu „túlípana- kynslóðarinnar" í Listasafninu, eða öllu heldur var sú sýning tilefni til pælinga í stöðu lista og listamanna á landinu og nið- urstaðan minnti mig yndislega á Wagner þegar hcinn var að velta fyrir sér óperu- kraðakinu í kringum sig og að sækja í sig veðrið til átaka um Hringinn Niflunga. En það var einsog fyrri daginn, hundurinn ,^em étur allt“ komst í úrklippuna og því var ég með hita í gærkvöldi og langt frá að vera brattur í morgun. En þetta er að lagast. Ég klippti hinsvegar ekki út fréttina af efnisvali Þjóðleikhússins næsta vetur. Hún fór samföst við blaðið í öskutunnuna því mér þykir vænt um hundinn minn. En þrátt fyrir það hefur fréttarskömmin haldið fýrir mér vöku og komið út á mér angistarsvita, svo illþefjandi, að kötturinn hnerrar og fel- ur sig uppi í risi. Þá er að fara með „æðru- leysisbænina" segja sumir og hvort ég hef reynt. En ekki hef ég verið bænheyrður enn, enda í miklu að snúast í himnunum einsog fyrri daginn, hvað svo sem síðar verður. Skuggasveinn, Frænka Charleys og Mað- ur og kona hafa löngum þótt góð skemmtun í sveitum landsins. Því er ekki að neita. Þau eiga líka áreiðanlega eftir að vera á fjölum áhugaleikhúsanna enn um stund, því þetta eru viðráðanleg verk til tómstundaiðju, krefjast engra ofurmannlegra átaka af ör- þreyttu frystihússfólki á sviði og í sal. En eru þetta verðug viðfangsefni þeirra einu listamanna landsins sem búa við sæmileg borgaraleg kjör, íslenskra „þjóðieikara‘7 Auðvitað er mér ljóst að þetta fólk er oft uppgefið eftir að standa í auglýsingagerð, fylliskrallabrilljans og útreiðum og ég veit af fenginni reynslu að það er lýjandi að koma yfir sig húskofa, einkum ef hugarfarið ,Stór, stærri, stærstur" er með í förinni. Þrátt fyrir það er ég alls ekki viss um að „þjóðleikarar" og aðrir ,atvinnuleikarar“ fagni svona ,/epertúari" af heilum hug, því ýmsir þeirra búa yfir talsverðum listrænum metnaði, jafnvel ástríðu. En þeir taka þessu áreiðanlega með þegjandi þögninni flestir-, sumir nöldra þó svo lítið ber á og nokkrir æsa sig í boðum. Svo leika þeir það sem þeim er sett fyrir, stundum vel, oft frábær- lega illa og einum eða tveim tekst upp svo um munar. Starfið er færibandavinna. í þessu felst auðvitað meiri óhamingja en tárum taki. Eins og hjá öðrum ríkisstofnunum er ógjömingur að finna þá sem bera ábyrgð á þessu gæfuleysi. Framavinglamir sem sitja í forstjórastólunum em alltaf stikkfrí „vegna pólitísks þrýstings" (hræðslan við Albert) og ráðgjafar þeirra em ekki mark- tækir vegna þess að allir vita að þeir em þarna aðeins til að skella á skuldinni ef illa fer. Fjárhagslega. Einsog að þjóðleikhús, á landi þæ sem „undirstöðuatvinnuvegimir" em fyrir bókhaldshugkvæmni reknir með stórkostlegu tapi, hafi möguleika á að standa undir sér. Er nema von að fólkið fari á taugum. Okkur er sagt, eða það á að telja okkur trú um, að Iangabarsfyndni á borð við Gæja og „Þaðáað teljaokkur trú um að langabars- fyndni á borð við Gæja og píur, sem kostar í sviðsetningu á við þrjár meðal óperur, geti rétt við hallann og gert háttvirta leik- húsgesti svo bjart- sýna að þeir kaupi sig inn á hvað sem er,“ segir Leifur Þórarinsson m.a. í grein sinni um leik- ritaval Þjóðleik- hússins fyrir næsta vetur. píur, sem kostar í sviðsemingu á við þrjár meðal ópemr (kostaði á við tíu í London þar sem.NT setti hana upp tíl að þóknast milljón túristum í verslunarerindum), geti rétt við hallann og gert háttvirta leikhúss- gesti svo bjartsýna að þeir kaupi sig inn á hvað sem er. Látum þennan halla þeirra lönd og leið, hann hlýtur að vera viðfangs- efni geðspesicúista, en þetta .Jhvað sem er“, hvað er það? Skuggasveinn, frænkan og Maður og kona, eitthvað sem hefur mælst vel fyrir á Broadway í fyrra (vonandi upp- gjör við kynslóðina ’68 eða hommagælur frá Tennessee) og svo West Side Stoiy með vorinu. Gott ef Shakespeare kallinn var þó ekki að villast þama með Ríkharð þriðja, þennzrn sem gerði út Jón Gerreksson að banna bændum hér að selja böm í beitu. Getur hugsast að einhver þjóðleikaranna muni nú hcifa öðlast þann þroska í auglýs- ingabransanum sem þarf í þetta magnaða hlutverk? Svo má líka alltaf skella skuldinni á Villa „ef illa fer“. Mig gmnar þó að raunvemleg ábyrgð liggi einkum hjá leikumnum, öllum og ein- um, og okkur áhorfendum, sem enn ætlum að láta hugsjónarolur stikkfrísins telja okk- ur trú um að „list sé sjálfsagður hlutur" líkt og að éta og ganga öma sinna. PS: Stendur ekki einhversstaðar í lögum eitthvað um skyldur Þjóðleikhússins við ,,list og menningu"? Og eitthvað rámar mig í skyldur þess við óperu sérstaklega. Hins- vegar man ég ekki eftir neinu um ballett, en það er áreiðanlega kölkun. Enda starfar þar dansflokkur með miklum ágœtum, og efalaust má skella á hann ýmsum skuldum ef mikið liggur við. 20 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.