Helgarpósturinn - 14.06.1984, Side 3
HEFUR KARL
BRETAPRINS SNÚIÐ
BAKIVIÐ LAXINUM?
- Vopnfirðingar sakna kóngafólksins
Vopnafjörður og sveitímcir þar í
kring er einkar áhugaverður
ferðamannastaður. Þó verður að
segjast eins og er að staðurinn er
talsvert úr cdfaraleið ef svo má
segja. Frá þjóðvegi númer eitt er
langur spölur niður tíl Vopnafjarð-
ar, þó halda margir þangað. Einnig
em talsvert margir sem skoða sig
um á Melrakkasiéttu og á Langa-
nesi og aka síðan Sandvíkmheiði
til Vopnafjarðar og skoða sig um
þar.
Frá Vopnafirði er hægt að aka
yfir Hellisheiði hina eystri, talsvert
mikinn og erfiðan rall-veg, en und-
urfagra leið. Þessi leið er ekki alltaf
opin, helst í júlí og ágúst og betra
að afla sér upplýsinga áður en lagt
er á heiðina. Komið er niður í Jök-
ulsárhlíð og ekið sem leið liggur
inn dalinn tíl Egilsstaða og Héraðs.
Leið sem óhætt er að mæla með,
svo fremi að hún sé opin.
Á Vopnafirði er lítíð en huggu-
legt hótei, sem þau Bjarni Magnús-
son og kona hans Suava Víglunds-
dóttir reka, Hótel Tangi. Furðu
margt hefur verið gert tíl að laða að
ferðafólkið og tekist betur en þeir
bjartsýnustu þorðu að vona. Þama
er í nágrenninu hin konunglega
laxveiðiá, Hofsá, auk þess sem
blankir menn geta stundað sjó-
stangaveiði. Hægt er að leigja sér
hesta og fara um skemmtílegar
slóðir ríðandi, - eða þá á postul-
unum tveimur, ef vill.
Að okkar mati er Vopnafjörður
einkar viðfelldinn staður og góður
heim að sækja.
FRÁ MÝVATNI
YFIR IATLAVÍK
- og stönginni dýft í vatn á Möðrudalsöræfum
eða Jökuldalsheiði
Þegar haldið er yfir Möðmdals-
öræfin stefna víst flestir á Hérað
sem áfangastað, - og þá helst af
öllu Hcdlormsstaðaskóg, náncir tíl
tekið Atlavík, sem margir telja
öðm fremur paradís á lcindi hér og
þurfa menn þá sannarlega ekki að
vera Austfirðingar tíl að hafa þá
skoðun.
En lítum aðeins á akveginn frá
Mývatni tíl austurs. Þegar komið er
á Biskupsháls em menn komnir í
Austfirðingafjórðung. Aksturinn til
Egilsstaða tekur nálægt þrem tím-
um, - hálftími í viðbót og fólk er
komið í skóginn góða.
Á Möðrudalsöræfum og á Jökul-
dalsheiði mun vera möguleiki á
veiði í vötnum. Rétt að spyrjast
fyrir um þetta hjá bændum.
Egilsstaðir:
ÞJÓNUSTA VIÐ FERÐAFÓLK
Það em ekki margir staðir á
landinu þar sem þjónusta við
ferðafólk er stærsti einstaki liður-
inn í atvinnulífinu. Þannig háttar
þó til á Egilsstöðum, nær 1300
manna kauptúni, þar sem ferða-
maðurinn finnur sig sérlega velkom-
inn. Þar er nánast ailt sem ferða-
fólkið þarfnast.
Hótel er í Valaskjálf, - og Ásdís
Sveinsdóttír rekur alltaf eitthvert
sérstæðasta og skemmtilegasta
hótel landsins á Egilsstaðabúinu.
Vcilciskjálf fékk reyndar á baukinn á
dögunum, þegar verðlagsstjóri
gerði könnun á verði veitínga vítt
og breitt um landið, en þar er þó
hægt að fá ágæta þjónustu í mat og
drykk, og gistiaðstaðan splunkuný.
Valaskjálf hýsir einnig fólk í húsi
Menntaskólans á staðnum.
Matsölustaðir em víðar, t.d. við
Lagarfljótsbrú hjá Sigurði Grétars-
syni, og einhvem bita er hægt að fá
á flugvallarkaffinu hans Þráins
Jónssonar, og gott kaffi. Þá er
kaupfélagið með matsölu og Skelj-
ungur er að byggja nýjan matsölu-
stað.
Bílaleigur starfa á Egilsstöðum
af miklum þrótti og flugvöllurinn
er oft eins og einhver vasaútgáfa cif
alþjóðaflugvelli, því þar er einatt
mikið um að vera, flogið tíl og frá
Reykjavík 17 sinnum í viku í það
minnsta, auk þess sem Rugfélag
Austurlands er stöðugt á ferðinni
milli fjarða.
Eins og áhugasamir menn um
veðurfréttir þekkja, þá er hitastig
að sumri oft og einatt hátt á Ey-
vindará, en það er veðurathugun-
arstaðurinn fyrir Héraðið. Þama er
sumablíða með eindæmum mikil.
Sannkallað ferðamannakauptún
státar að sjálfsögðu af alvöru
ferðaskrifstofu, Ferðamiðstöð
Austurlands. Þar geta ferðamenn
fengið allar upplýsingar, auk þess
sem hægt er að kaupa spennandi
hestaferðir í eyðibyggðir í fjórð-
ungnum. Farcirstjóri í ferðunum er
Anton Antonsson, forstöðumaður
Ferðamiðstöðvarinnar, franskur
maður að uppruna, en íslenskari
en cdlt það sem íslenskt getur tcil-
ist. Þessar ferðir eru reyndar aðeins
fyrir þá sem ekki kalla allt ömmu
sína í ferðamennskunni.
Meðal viðkomustaða í hesta-
ferðunum er Loðmundaríjörður,
fallegur dalur, sem nú er í eyði, en •
var blómleg byggð til skamms
tíma.
Frá Egilsstöðum ferðast menn
gjciman um nágrennið, t.d. inn að
Eiðum, en þar er Edda með hótel á
sumrum, að maður tali ekki um
Hallormsstað og Atlavík, en þar er
fegurð og friður í ómælanlegu
magni.
HELGARPÓSTURINN 3