Helgarpósturinn - 14.06.1984, Qupperneq 6
LOFTTÆMDAR UMBÚÐIR
EFNAINNIHALD:
Eggjahvlta 83,6%
Fita 0,8%
Vatn 9,8%
Salt 2,2%
FRAMLEIÐANDI:
B.E. FISKVERKUN
GAGNHEIÐI 9, SELFOSSI
SÍMI 99-2240
HÖGGDEYFAR
í MIKLU ÚRVALI
Viö opnum kl. 8.30
og höfum
opið í hádeginu
Næg bílastæði
HABERG hC
Skeifunni 5a, sími 84788.
Velkomin
á Laugarvatn
Frístundir:
Seglbrettaskóli,
hestaleiga,
veiðileyfi,
gufubað,
gönguferðir,
sundlaug,
leikvellir, o.fl., o.fl.
Tjaldmiðstöð:
Hjólhýsa- og tjaldstæði,
snyrtiaðstaða og sturtubað,
verslun:
- alm. matvörur,
-samlokur,
- hamborgarar,
- sælgæti, o.fl., o.fl.
Matvöruverslun
Kjötborð, úrval nýlenduvara, hreinlætisvara,
ferðamannavörur. Opið alla daga vikunnar
frá 9-23.30.
ÞJÓNUSTA
(jjfo Kaupfélag Árnesinga
ÚTIBÚ LAUGARVATNI. S:99-6126
Reyðarfjörður:
FYRSTI FRlKIRKJUSÖFNUÐ-
UR LANDSINS STOFNAÐUR
Frá Egilsstöðum liggur leiðin
niður firðina, ekið um Fagradal til
Reyðarfjarðar í fyrstu lotu, stuttur
akstur á vegi sem oftast er í ágætu
standi, varla nema 30 - 40 mínútna
akstur í það mesta.
Búðareyri er hið rétta nafn á
bænum, en Reyðarfjörður hefur
orðið fast í munni fólks. Hér á
staðnum er að finna margskonar
þjónustu við ferðamenn. Gamcilt
hótel er hér að finna, sem rekið er á
vegum Kaupfélags Héraðsbúa, - en
annað er í uppbyggingu, gamalt
hús sem verður stækkað og endur-
bætt á ýmsan hátt.
Innarlega í firðinum er vinsæll
heitur pottur, sem fólk notar sér.
Þetta er smálaug, þar sem gaman
er að slaka á í ferðalaginu.
Á Reyðarfirði Vcir á sínum tíma
stofnaður fyrsti fríkirkjusöfnuður
lcuidsins 1880 og starfaði í 50 ár.
Kirkjur safnaðarins voru á Eskifirði
og á Ketilsstöðum.
Ekki er úr vegi að kanna það á
Reyðarfirði hvort far gefst út í
Skrúð, eyna í mynni fjarðarins.
Skammt fyrir austan bæinn er
væntanleg lóð kísilmálmverk-
smiðju á svokölluðu Framnesi.
Eskifjöröur:
STOLT BÆJARBÚA
SKYGGIR Á SÓLINA
Það tekur vart nema stundar-
fjórðung að aka frá Reyðarfirði á
Eskifjörð, sem stendur utar við
hinn mikla Reyðcirfjörð. Bærinn er
einn þeirra, sem byggst hafa upp í
kringum einkaframtak eins manns
að mestu, Alla ríka, sem hér var
kynntur um daginn í hópi ríkustu
íslendinga.
Og það er ekki annað að sjá en
að íbúamir hér hafi gert það gott á
umliðnum árum, ef dæma má eftir
húsakosti og öðru, sem mætir aug-
anu.
Hólmanes heitir nesið milli
Reyðarfjarðar og Eskifjarðar, fal-
legur staður með fjölskrúðugu
fúgla- og jurtalífi með tveim
tilkomumiklum klettaborgum.
Hólmanes er nú friðlýst svæði.
Upp af nesinu rís Hólmatindur í
nær 1000 metra hæð. Eru Eskfirð-
ingar ekki síður stoltir af þessu
fagra fjalli en Reykvikingar af Esj-
unni. Þó fylgir sá böggull skamm-
rifi að fjallið torveldar sólinni að
skína á Eskfirðinga meira en hálft
árið.
Hótel er á Eskifirði, en í bænum
búa liðlega 1100 manns.
■
6 HELGAFIPÓSTURINN