Helgarpósturinn - 14.06.1984, Side 7

Helgarpósturinn - 14.06.1984, Side 7
Seyðisfjörður: LITRÍKIR FERÐALANGAR MEÐ FERJUNNI Ferð niður á Seyðisfjörð er sann- arlega nokkurra bensínlítra virði. Margur leggur leið sína þcingað með stefnuna á eina útibú ATVR á geysistóru svæði, ætlar kannski að fá sér rauðvín með steikinni, sem borða á í Atlavík! En Fjeirðeirheiðin heillcir marga, útsýnið og fallegu fossamir, Systrafossar og Gufufoss. Og þegar komð er niður í dalinn gerist sum- arveðrið oft heitt og gott, því þama er sannkallaður „pottur", svo skjólgott er fyrir flestum veðrum. Seyðisfjörður er skemmtilegur kaupstaður. Fljótlega finnur fólk að þama andar af gamaJli norskri hefð í húsagerðarlist, sem hingað flutt- ist fyrir atbeina Otto Wathne fyrr á öldinni. Hér em heilar húsaþyrp- ingcír norskra húsa sem vom inn- flutt. Viðhald þeirra flestra hefur verið mjög gott. Af er sá bragur, sem hér ríkti þegar sfldinni var landað á Seyðis- firði meira en á öðrum stöðum á landinu. Bragurinn er allur frið- sældarlegur og rólegur, nema þá helst á fimmtudögum þegar Norr- öna kemur með ferðafólkið. I síð- ustu viku komu 700 ferðamenn með skipinu. ,í»að var eins og hellt væri úr málningarfötum yfir bæ- inn“, sagði einn íbúanna, „það verður allt svo litríkt, þegar ferða- mennirnir hellast yfir bæinn. Það lifnar yfir öllu.“ Það hendir marga, sem til Seyð- isfjarðar koma, að Iengja dvölina. Þama er ágætis aðstaða í Haföld- unni, gömlum verbúðum, sem Þóra Guðmundsdóttir hefur breytt í góðan gististað, og ekki er verðið á gistingu fráhrindandí, 240 krónur á manninn og ekki nema 180 krón- ur ef menn em félagar í Farfuglum. Þá er gamla hótelið búið að opna. að nýju, Hótel Snæfell, sem Pétur Jónsson smiður innréttaði að nýju og rekur nú. Þóra Guðmundsdóttir teiknaði innréttingar. „Við emm hér í samvinnu, ekki samkeppni," sagði Þóra, þegar við ræddum við hcina. Þóra er annars við nám í húsagerðariist í Árósum í Danmörku og er að ljúka við nám sitt. Kvaðst hún vonast til að geta haldið áfram að reka gistiheimilið sitt, þegar námi lyki. Seyðisfjöröur: SKOTIST ÁTRILLU í LOÐMUNDARFJÖRÐ Auk þess að skoða Seyðisfjörð og næsta nágrenni er rétt að benda á ótal margar gönguleiðir, sem ferðamálafólk staðarins mun benda fólki á. Þar á staðnum er líka hægt að renna fyrir fisk frá einhverri af mörgum bryggjum þessa dæmi- gerða fiskimannabæjar. Hægt er að fá þorsk, silung eða einhvem flat- fisk á öngulinn og þarf enga sérlega heppni til, það bítur á hjá flestum sem reyna. Þá er heldur ekki úr vegi að kanna hvort trillukarlamir hafa ekki tök á að skutla fólki yfir í Loð- mundarfjörð. I Loðmundarfirði býr enginn lengur, og Sigurður hrepp- stjóri, sem lengi vel var eini íbúi dcilsins, er nú látinn. í Stakkahlíð er nú boðið upp á gistingu í svefn- pokum á lágu verði. Náttúmlífið í Loðmundarfirði er einslakt og mun töfra margan ferðcimcinninn. Hótelfólkið á Seyðisfirði mun áreiðcinlega liðka fyrir þessum ferðeimöguleika, og trillukarlarnir em áreiðanlega sanngjamir á prís- ana, ef við þekkjum þá rétt. Neskaupstaður: EKIÐ UM HÆSTA FJALLVEG LANDSINS Margur ferðamaðurinn álítur að leiðin frá Eskifirði um Oddsskarð yfir til Neskaupstaðar, stærsta kaup- staðar Austfjarða, sé torfarin og hættuleg. Þetta er hinn mesti mis- skilningur. Leiðin er hin prýðileg- asta, ekki hvað síst á sumrin. Oddsskarð er í 705 metra hæð yfir sjávarmáli og hæsti fjallvegur landsins. Útsýn þaðan á góðviðris- dögum er alveg sérstök. Leiðin er ekki nema 25 kílómetra löng og ekið er í gegnum vegargöng, sem liggja í 632 metra hæð. Verstu far- artálmar gömlu leiðarinnar vom sniðnir af með göngunum, sem opnuð vom 1967. Neskaupstaður er hinn myndar- legasti bær. Svo feu'ið sé út í pólitík- ina, þá hefur sósíalisminn ráðið áratugum saman í Neskaupstað, meðan Alli ríki handan Svartafjalls var allur í einkaframtakinu. En hvað um það. Neskaupstaður er enn einn dæmigerður fiskimanna- bær og hefur sín séreinkenni eins og menn munu skjótt finna. Ágætt hótel, Egilsbúð, er í Nes- kaupstað, góð sundlaug, og tjald- stæði í fólkvanginum austan við bæinn. Ertu á leið til EYJA? Við skipuleggjum allar ferðir til Eyja. Útvegum fyrsta flokks gistingu eða svefn- pokapláss, og allt þar á milli. Skipuleggjum skoðunarferðir, bátsferðir, fundi, ráðstefnur, vörusýningar eða listviðburði. Öll ferðaþjónusta á einum stað. - Öryggi fyrir ánægjulegri dvöl - r FERÐASKRIFSTOFA VESTMANNAEYJA f Símar 98-2800 & 98-2850 Telex 2259 TRAVEY is ALEX farskrárkerfi FLUGLEIÐA Vesturvegur 10, Vestmannaeyjum Pósthólf 260 900 Vestmannaeyjar HÓTEL TANGI VOPNAFIRÐI Tjaldstæði - Almenn ferðamannaþjónusta - Sundlaug í Selárdal Gisting - Matsala - Bátsferðir- Sjóstangaveiði - Handfæri - Silungsveiðileyfi í Hofsá - Hestaleiga -Golfvöllur HÓTEL TANGI HELGARPÓSTURINN 7

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.