Helgarpósturinn - 14.06.1984, Page 7
Seyðisfjörður:
LITRÍKIR
FERÐALANGAR
MEÐ FERJUNNI
Ferð niður á Seyðisfjörð er sann-
arlega nokkurra bensínlítra virði.
Margur leggur leið sína þcingað
með stefnuna á eina útibú ATVR á
geysistóru svæði, ætlar kannski að
fá sér rauðvín með steikinni, sem
borða á í Atlavík!
En Fjeirðeirheiðin heillcir marga,
útsýnið og fallegu fossamir,
Systrafossar og Gufufoss. Og þegar
komð er niður í dalinn gerist sum-
arveðrið oft heitt og gott, því þama
er sannkallaður „pottur", svo
skjólgott er fyrir flestum veðrum.
Seyðisfjörður er skemmtilegur
kaupstaður. Fljótlega finnur fólk að
þama andar af gamaJli norskri hefð
í húsagerðarlist, sem hingað flutt-
ist fyrir atbeina Otto Wathne fyrr á
öldinni. Hér em heilar húsaþyrp-
ingcír norskra húsa sem vom inn-
flutt. Viðhald þeirra flestra hefur
verið mjög gott.
Af er sá bragur, sem hér ríkti
þegar sfldinni var landað á Seyðis-
firði meira en á öðrum stöðum á
landinu. Bragurinn er allur frið-
sældarlegur og rólegur, nema þá
helst á fimmtudögum þegar Norr-
öna kemur með ferðafólkið. I síð-
ustu viku komu 700 ferðamenn
með skipinu. ,í»að var eins og hellt
væri úr málningarfötum yfir bæ-
inn“, sagði einn íbúanna, „það
verður allt svo litríkt, þegar ferða-
mennirnir hellast yfir bæinn. Það
lifnar yfir öllu.“
Það hendir marga, sem til Seyð-
isfjarðar koma, að Iengja dvölina.
Þama er ágætis aðstaða í Haföld-
unni, gömlum verbúðum, sem
Þóra Guðmundsdóttir hefur breytt
í góðan gististað, og ekki er verðið
á gistingu fráhrindandí, 240 krónur
á manninn og ekki nema 180 krón-
ur ef menn em félagar í Farfuglum.
Þá er gamla hótelið búið að opna.
að nýju, Hótel Snæfell, sem Pétur
Jónsson smiður innréttaði að nýju
og rekur nú. Þóra Guðmundsdóttir
teiknaði innréttingar.
„Við emm hér í samvinnu, ekki
samkeppni," sagði Þóra, þegar við
ræddum við hcina. Þóra er annars
við nám í húsagerðariist í Árósum í
Danmörku og er að ljúka við nám
sitt. Kvaðst hún vonast til að geta
haldið áfram að reka gistiheimilið
sitt, þegar námi lyki.
Seyðisfjöröur:
SKOTIST ÁTRILLU
í LOÐMUNDARFJÖRÐ
Auk þess að skoða Seyðisfjörð
og næsta nágrenni er rétt að benda
á ótal margar gönguleiðir, sem
ferðamálafólk staðarins mun
benda fólki á.
Þar á staðnum er líka hægt að
renna fyrir fisk frá einhverri af
mörgum bryggjum þessa dæmi-
gerða fiskimannabæjar. Hægt er að
fá þorsk, silung eða einhvem flat-
fisk á öngulinn og þarf enga sérlega
heppni til, það bítur á hjá flestum
sem reyna.
Þá er heldur ekki úr vegi að
kanna hvort trillukarlamir hafa
ekki tök á að skutla fólki yfir í Loð-
mundarfjörð. I Loðmundarfirði býr
enginn lengur, og Sigurður hrepp-
stjóri, sem lengi vel var eini íbúi
dcilsins, er nú látinn. í Stakkahlíð er
nú boðið upp á gistingu í svefn-
pokum á lágu verði. Náttúmlífið í
Loðmundarfirði er einslakt og
mun töfra margan ferðcimcinninn.
Hótelfólkið á Seyðisfirði mun
áreiðcinlega liðka fyrir þessum
ferðeimöguleika, og trillukarlarnir
em áreiðanlega sanngjamir á prís-
ana, ef við þekkjum þá rétt.
Neskaupstaður:
EKIÐ UM HÆSTA
FJALLVEG LANDSINS
Margur ferðamaðurinn álítur að
leiðin frá Eskifirði um Oddsskarð
yfir til Neskaupstaðar, stærsta kaup-
staðar Austfjarða, sé torfarin og
hættuleg. Þetta er hinn mesti mis-
skilningur. Leiðin er hin prýðileg-
asta, ekki hvað síst á sumrin.
Oddsskarð er í 705 metra hæð
yfir sjávarmáli og hæsti fjallvegur
landsins. Útsýn þaðan á góðviðris-
dögum er alveg sérstök. Leiðin er
ekki nema 25 kílómetra löng og
ekið er í gegnum vegargöng, sem
liggja í 632 metra hæð. Verstu far-
artálmar gömlu leiðarinnar vom
sniðnir af með göngunum, sem
opnuð vom 1967.
Neskaupstaður er hinn myndar-
legasti bær. Svo feu'ið sé út í pólitík-
ina, þá hefur sósíalisminn ráðið
áratugum saman í Neskaupstað,
meðan Alli ríki handan Svartafjalls
var allur í einkaframtakinu. En
hvað um það. Neskaupstaður er
enn einn dæmigerður fiskimanna-
bær og hefur sín séreinkenni eins
og menn munu skjótt finna.
Ágætt hótel, Egilsbúð, er í Nes-
kaupstað, góð sundlaug, og tjald-
stæði í fólkvanginum austan við
bæinn.
Ertu á leið til EYJA?
Við skipuleggjum allar ferðir til Eyja.
Útvegum fyrsta flokks gistingu eða svefn-
pokapláss, og allt þar á milli. Skipuleggjum
skoðunarferðir, bátsferðir, fundi, ráðstefnur,
vörusýningar eða listviðburði.
Öll ferðaþjónusta á einum stað.
- Öryggi fyrir ánægjulegri dvöl -
r FERÐASKRIFSTOFA
VESTMANNAEYJA f
Símar 98-2800 & 98-2850
Telex 2259 TRAVEY is
ALEX farskrárkerfi FLUGLEIÐA
Vesturvegur 10, Vestmannaeyjum
Pósthólf 260
900 Vestmannaeyjar
HÓTEL TANGI
VOPNAFIRÐI
Tjaldstæði - Almenn ferðamannaþjónusta -
Sundlaug í Selárdal
Gisting - Matsala - Bátsferðir- Sjóstangaveiði -
Handfæri - Silungsveiðileyfi í Hofsá - Hestaleiga
-Golfvöllur
HÓTEL TANGI
HELGARPÓSTURINN 7