Helgarpósturinn - 14.06.1984, Page 9

Helgarpósturinn - 14.06.1984, Page 9
Skrúður, hin dulúðuga ey: JÖTUNNINN GALDRAÐITIL SlN HINA FRlÐU PRESTSDÓTTUR Þegar ekið er frá Reyðarfirði yfir í Fáskrúðsfjörð er komið að Kol- freyjustað, prestsetri héraðs.'ns, og út á Vattarnesið. Þar blasir við eyj- an Skrúður, fagur og sérkennilegur hamragnúpur, sem rís hátt úr sæ úti fyrir Reyðarfirði og Fáskrúðs- firði. í Skrúði er hellir mikill og í hon- um vatn. Nær hellir þessi langt inn í bjargið. Ekki er víða hægt að Ienda báti við Skrúð, en sagt er að sjómenn fyrri tíma hafi hieypt þar á land í illviðrum. Því miður er fátt um skoðunarferðir í eyna, en vissulega myndu ferðamenn hafa gcunan af heimsókn þangað og er ferðamálamönnum eystra bent á þennan möguleika. Sama er að segja um Papey, þangað ættu endilega að komast á ferðir með ferðamannina, en tilboð um slíkt mun ekki vera til. Að sjálfsögðu fylgja Skrúði ýms- ar gamlar munnmælasögur af jötni einum miklum, sem kallaður var Skrúðsbóndinn og bjó í hellinum. Sögðust sjómenn hafa farið inn í hellinn djúpt og komið þarað jám- grindum, sem lágu yfir hellinn þveran. Þar fyrir innan voru híbýli bóndans, sem sagður var hollvætt- ur sjómanna og annarra, sem vildu honum vel. Skrúðsbónda leiddist einlífið þegar fram í sótti og segja gamlar sögur að hann hafi galdrað til sín prestsdótturina frá Hólmi í Reyð- arfirði, sem var ung og fríð stúlka. Er ekki annað vitað en að samfarir þeirra hafi verið góðar og áttu þau eina stúlku bama, fríða mjög og ólíka hinum tröllvaxna föður. Er það hald sumra að hollvættir þess- ar búi enn í Skrúði, en ekki skal neitt fullyrt um það. Stöðvarfjörður: EINSTÖK STEINASÖFN Og áfram ökum við, og nú fram- hjá Hafnamesi, en þar var áður mikil verstöð, ein þeirra sem nú eru í eyði, og allt þar til komið er að Stöðvarfirði. Gömlu nöfnin á aust- firsku kaupstöðunum virðast ekki eiga upp á pallborðið hjá fólki, því í raun heitir staðurinn Kirkjuból. Á Stöðvarfirði er útvegurinn alls ráðcuidi eins og víðast á Austfjörð- um. Þarna á staðnum er og að finna steinasöfn, sem vert er að fá að skoða. Fólk á götunni mun auð- veldlega geta bent á réttu staðina. Steinasöfnin, t.d. hjá henni Petru, em listilega upp sett í húsa- görðum og virkilega eftirminnileg. Það er annars ekki lítill fjársjóður, sem Austfirðingar eiga í fjöllum sínum, enda hafa útlendingar látið greipcir sópa í steinaríkinu, látið slípa steinana, eins og margir Austfirðingar gera reyndar iíka. Væri ekki möguleiki á að nýta þetta sem smáiðnað í landi hér? Inn af firðinum er stutt dalverpi, grösugt og víða kjarri vaxið. Breiödalsvík: NÝTT OG GOTT HÓTEL Skammt fyrir innan Breiðdals- vík, sem er stutt frá Fáskrúðsfirði, tengist ferðamaðurinn loks hring- veginum að nýju, enda þótt sú staðreynd breyti í raun litlu á ferðalaginu. Á leiðinni til Breiðdcdsvíkur er Kambanes, nestáin sunnan Stöðv- arfjarðar, en þar gerðist það í seinni heimsstyrjöldinni að þýsk flugvél gerði árás á staðinn, og reyndar einnig á Breiðdalsvík. Slík- ar heimsóknir vom fátíðar á þess- um ámm, þeim mun meira um njósnaflug þýsku flugvélanna. í Breiðdalsvík er nú komið nýtt og gott hótel, Hótel Bláfell. BB Vörumarkaður Si Hveragerði. Opið írá 9-22 alla daga vikunnar. Matvörur í miklu úrvali. Bensín, olíur og bifreiðavörur. Ferðavörur - grillkol og m.fl. Yerið velkomin. Vörumarkaður BB Breiðumörk 21 Hveragerði, s: 4655 t. Veitinga og ferdamannaverslun Opiö daglega frá 9.30 - 23.30 i tilefni af eins árs afmæli Ársels bjóðum við nú upp á stórglæsi- legan SALATBAR til viðbótar við rétt dagsins í hádegi og á kvöldin. Fjölbreyttur sérréttaseðill. Kaffihlaðborð á sunnudögum. Ferðamannaverslun Allar nauösynjar í ferðalagið. Mjólkurvörur, matvörur, hreinlætisvörur. Avextir, tímarit, dagblöö, sælgæti, öl, ís, pylsur o.fl. Touristaverslun Minjagripir, póstkort, vegakort, ferðahand- bækur, listmunir og íslenskar prjónavörur. \ ^ i ili VORUHUS KA Selfossi HELGARPÓSTURINN 9

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.