Helgarpósturinn - 14.06.1984, Síða 9
Skrúður, hin dulúðuga ey:
JÖTUNNINN
GALDRAÐITIL SlN
HINA FRlÐU
PRESTSDÓTTUR
Þegar ekið er frá Reyðarfirði yfir
í Fáskrúðsfjörð er komið að Kol-
freyjustað, prestsetri héraðs.'ns, og
út á Vattarnesið. Þar blasir við eyj-
an Skrúður, fagur og sérkennilegur
hamragnúpur, sem rís hátt úr sæ
úti fyrir Reyðarfirði og Fáskrúðs-
firði.
í Skrúði er hellir mikill og í hon-
um vatn. Nær hellir þessi langt inn
í bjargið. Ekki er víða hægt að
Ienda báti við Skrúð, en sagt er að
sjómenn fyrri tíma hafi hieypt þar á
land í illviðrum. Því miður er fátt
um skoðunarferðir í eyna, en
vissulega myndu ferðamenn hafa
gcunan af heimsókn þangað og er
ferðamálamönnum eystra bent á
þennan möguleika.
Sama er að segja um Papey,
þangað ættu endilega að komast á
ferðir með ferðamannina, en tilboð
um slíkt mun ekki vera til.
Að sjálfsögðu fylgja Skrúði ýms-
ar gamlar munnmælasögur af jötni
einum miklum, sem kallaður var
Skrúðsbóndinn og bjó í hellinum.
Sögðust sjómenn hafa farið inn í
hellinn djúpt og komið þarað jám-
grindum, sem lágu yfir hellinn
þveran. Þar fyrir innan voru híbýli
bóndans, sem sagður var hollvætt-
ur sjómanna og annarra, sem vildu
honum vel.
Skrúðsbónda leiddist einlífið
þegar fram í sótti og segja gamlar
sögur að hann hafi galdrað til sín
prestsdótturina frá Hólmi í Reyð-
arfirði, sem var ung og fríð stúlka.
Er ekki annað vitað en að samfarir
þeirra hafi verið góðar og áttu þau
eina stúlku bama, fríða mjög og
ólíka hinum tröllvaxna föður. Er
það hald sumra að hollvættir þess-
ar búi enn í Skrúði, en ekki skal
neitt fullyrt um það.
Stöðvarfjörður:
EINSTÖK STEINASÖFN
Og áfram ökum við, og nú fram-
hjá Hafnamesi, en þar var áður
mikil verstöð, ein þeirra sem nú
eru í eyði, og allt þar til komið er að
Stöðvarfirði. Gömlu nöfnin á aust-
firsku kaupstöðunum virðast ekki
eiga upp á pallborðið hjá fólki, því í
raun heitir staðurinn Kirkjuból.
Á Stöðvarfirði er útvegurinn alls
ráðcuidi eins og víðast á Austfjörð-
um. Þarna á staðnum er og að finna
steinasöfn, sem vert er að fá að
skoða. Fólk á götunni mun auð-
veldlega geta bent á réttu staðina.
Steinasöfnin, t.d. hjá henni
Petru, em listilega upp sett í húsa-
görðum og virkilega eftirminnileg.
Það er annars ekki lítill fjársjóður,
sem Austfirðingar eiga í fjöllum
sínum, enda hafa útlendingar látið
greipcir sópa í steinaríkinu, látið
slípa steinana, eins og margir
Austfirðingar gera reyndar iíka.
Væri ekki möguleiki á að nýta þetta
sem smáiðnað í landi hér?
Inn af firðinum er stutt dalverpi,
grösugt og víða kjarri vaxið.
Breiödalsvík:
NÝTT OG GOTT HÓTEL
Skammt fyrir innan Breiðdals-
vík, sem er stutt frá Fáskrúðsfirði,
tengist ferðamaðurinn loks hring-
veginum að nýju, enda þótt sú
staðreynd breyti í raun litlu á
ferðalaginu.
Á leiðinni til Breiðdcdsvíkur er
Kambanes, nestáin sunnan Stöðv-
arfjarðar, en þar gerðist það í
seinni heimsstyrjöldinni að þýsk
flugvél gerði árás á staðinn, og
reyndar einnig á Breiðdalsvík. Slík-
ar heimsóknir vom fátíðar á þess-
um ámm, þeim mun meira um
njósnaflug þýsku flugvélanna.
í Breiðdalsvík er nú komið nýtt
og gott hótel, Hótel Bláfell.
BB
Vörumarkaður Si Hveragerði.
Opið írá 9-22 alla daga vikunnar.
Matvörur í miklu úrvali.
Bensín, olíur og bifreiðavörur.
Ferðavörur - grillkol og m.fl.
Yerið velkomin.
Vörumarkaður BB
Breiðumörk 21 Hveragerði, s: 4655
t.
Veitinga og ferdamannaverslun
Opiö daglega frá 9.30 - 23.30
i tilefni af eins árs afmæli Ársels
bjóðum við nú upp á stórglæsi-
legan SALATBAR til viðbótar
við rétt dagsins í hádegi og á
kvöldin.
Fjölbreyttur sérréttaseðill.
Kaffihlaðborð á sunnudögum.
Ferðamannaverslun
Allar nauösynjar í ferðalagið.
Mjólkurvörur, matvörur, hreinlætisvörur.
Avextir, tímarit, dagblöö, sælgæti, öl, ís,
pylsur o.fl.
Touristaverslun
Minjagripir, póstkort, vegakort, ferðahand-
bækur, listmunir og íslenskar prjónavörur.
\
^ i
ili
VORUHUS KA
Selfossi
HELGARPÓSTURINN 9