Helgarpósturinn - 14.06.1984, Síða 14

Helgarpósturinn - 14.06.1984, Síða 14
FLugfélag Austurlands mm Avsruni* Fljúgið með ^ ^ Flugfélagi Austurlands frá Egilsstöðum til: Bakkafjarðar Vopnafjarðar Borgarf jarðar eystri Neskaupstaðar Breiðdalsvíkur Hafnar í Hornafirðí Reykjavíkur Otsýnisflug í áætlunarflugi Góöur kostur Feróist áhyggjulaust um ísland. Við bjóðum eftirtaldar ferðir ísumar. Askja - Sprengisandur 12 daga tjaldferð. Verðkr. 12.000.- Brottför alla mánudaga frá 18. júni til 20. ágúst. Reykjavík - Sprengisandur - Mývatn Alla miðvikudaga og laugardaga í júlí og ágúst. Mývatn - Sprengisandur - Reykjavík Alla fimmtudaga og sunnudaga i júlí og ágúst. Öræfi - Kverkfjöll - Sprengisandur, 12 daga tjaldferó. Verð kr. 12.500.- Brottför alla mánudaga frá 25. júní til 6. ágúst. Töfrar Suðurlands, 7 daga hótelferð. Verð kr. 9.500.- Brottför á fimmtudögum frá 24. maí til 13. september. I öllum ferðunum er innifalið: Gisting, fullt fæði og leiðsögn. í Mývatnsferðunum er nestispakki innifalinn. Bókið timanlega. Allar nánari upplýsingar Feröaskrifstofa Guömundar Jónassonar Borgartúni 34,105 Reykjavík, simi 83222 Gullfoss-Geysir: ERU ÞETTA NÚ ÖLLÓSKÖPIN! - spurði blaðaljósmyndarinn sem sá Gullfoss í fyrsta sinn Einhverju sinni var blaðamaður, sem þetta ritar.á ferð ásamt öðrum blaðamanni, Þráni Bertelssyni, kvikmyndaleikstjóranum víð- kunna, og Braga Guðmundssyni, blaðaljósmyndaranum ágæta á Vísi. Bragi gat komist skemmtilega að orði og það gerði hann sannar- lega, þegar hann barði Gullfoss augum í fyrsta sinn: „Eru þetta nú öll ósköpin", sagði hann og skotr- aði augunum út um regnbarðar rúðurnar á því sem kallað var veit- ingaskáli við þennan mikilúðlega foss. Ef ætlunin er að aka hringinn frá Selfossi að Geysi og Gullfossi eftir Skeiðum og Hreppum og aftur til baka niður Biskupstungnabraut til Selfoss að nýju, þá er það prýðis hugmynd. Það er 57 km langur veg- ur eftir Hreppum og Hrunamanna- vegi að Brúarhlöðum, leiðin rétt hálfnuð. Á þessari leið er komið að Flúð- um, en þar er ferðamennska í há- vegum höfð og hótel starfandi auk Skjólborgar, sem eru skemmtileg smáhýsi, sambyggð, með heitum potti fyrir utan hvert herbergi. Þessar vistarverur eru sérlega góð- ar, stór og góð herbergi, rúmin prýðileg og gott baðherbergi, auk heita pottsins, sem flestir nýta sér vel. Á Brúarhlöðum er djúpt gljúfur í Hvítá og að sjálfsögðu brúað vel. Héðan er stuttur vegur norður á bóginn að Gullfossi, sem við ráð- leggjum fólki eindregið að skoða vel og fá sér góðan göngutúr um svæðið. Héðan liggur stuttur vegur að Haukadal. Geysir á að gjósa öðru hvoru í sumar á sunnudögum og hafa margir ferðamenn þegar fengið að sjá tignarleg gos þessa frægasta goshvers í heimi. Ef heppnin er ekki með, þá má þó alltaf sjá Strokk, sem þrumar úr sér með stuttu millibili. Til baka liggur leiðin að Laugar- vatni - eða þá niður Biskups- tungnabraut. Eflaust stöðva flestir við Kerið í Grímsnesinu, en það er 50 - 60 metra djúpt með vatn í botninum, gamaill sprengigígur. Skammt fyrir neðan Kerið er Þrastaskógur, en þar er ágætur veitingaskáli í fögru umhverfi. Nú er búið að brúa Sogið á þessum stað þar sem það rennur í Hvítá/ Ölfusá og er til mikilla bóta. Ennþá betra er þó að hinn illræmdi vegur undir Ingólfsfjallí hefur nú verið lagður undir almenniiegt vega- gerðarefni, bíll og farþegar eru því ekki í stórhættu í urðinni, sem þama var áður. ÓDÝRAR FERÐIR AÐ GULLFOSSIOG GEYSI - og á Stokkseyri og Eyrarbakka, og þar er einmitt margt aö skoða Sérleyfisbílar Selfoss h.f. bjóða i sumar upp ó ódýrar ferðir frá Reykjavík á ferðamannaslóðir austan Hellisheiðar, sem margir munu hafa áhuga á að fara /', ekki síst aðkomufólk í Reykjavík, og reyndar eru ferðirnar ekkert síður fyrir Reykvíkinga sjálfa, ef þeir vilja láta aðra aka fyrirsig. Ein ferðin er að Gullfossi, Geysi og að suðurströndinni en þar er ekið um Selfoss og niður til Eyrar- bakka og Stokkseyrar, sem margir munu hafa ánægju af að skoða. Brottfarir daglega frá BSÍ kl. 09.00. Verðið er aðeins 390 krónur, ein- stakt tilboð. Þá er boðið upp á Gullfoss- Geysisferð fyrir 480 krónur. Farið er daglega frá BSÍ kl. 09.00. Mögu- leiki á að gera viðdvöl í Hveragerði eða á Selfossi. Loks er suðurstrandarferð fyrir aðeins 210 krónur. Farið kl. 09.00 daglega frá BSÍ austur á Eyrar- bakka og Selfoss. Komið þangað kl. 10.30 og viðdvöl tíl kl. 1230. Þar- næst er ekið tíl Selfoss og Hvera- gerðis og hægt að hafa viðdvöl til kl. 1630 eða til kl. 19.00. Á Stokkseyri er margt að skoða, fádæma falleg fjara, með miklu fuglalífi og búð Þuríðar formanns. Á Eyrarbakka er ,,Húsið“ byggt 1755, og á Baugsstöðum er rjóma- búið, sem nú er orðið safn. 14 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.