Helgarpósturinn - 14.06.1984, Qupperneq 18
abriel O'uggir
höggdeyfar
Á GÓÐU
VERÐI
Póstsendum
samdægurs.
Úrvaliö er
hjá okkur
Sími 36510-83744
G.S. varahlutir
Hamarshöfða 1.
PARKET
Nýtt Nýtt
Einu sinni enn er Tarkett-parket í far-
arbroddi í parket-framleiöslu.
• Á markaöinn er nú komiö parket meö
nýrri lakkáferð, sem er þrisvar sinnum
endingarbetri en venjulegt lakk.
• Veitir helmingi betri endingu gegn risp-
um en venjulegt lakk.
• Gefur skýrari og fallegri áferö.
• Betra í öllu viöhaldi.
• Komiö og kynniö ykkur þessa nýju og
glæsilegu framleiðslu frá Tarkett.
• Alger bylting á íslenska parket-markaö-
inum.
Harðviðarval hf.,
Skemmuvegi 40, Kópavogi,
sími 74111.
Þingvellir:
HILLIR UNDIR
RYKLAUSAN ÞINGVALLAH RING
Þegar útlendingurinn í gulu
regnkápunni strippar sig af flíkinni,
þá er hægt aS mæla með íslensku
veðurfari. Helgarpóstsmenn sáu
þetta reyndar með eigin augum
núna fyrstu helgina í júlí. Hópar
erlendra ferðamanna voru þama á
ferð, og þúsundir innlendra sól-
dýrkenda.
Við mælum reyndar með Þing-
völlum í svona veðri, en slíkt verð-
ur víst ekki hægt að ábyrgjast allt
sumarið. Sólbaðið þama eystra er
hreint afbragð, mun betra en á alit
of heitri sólarströnd, náttúran
margfalt fegurri, það dylst engum.
Syðra er að vísu hægt að fá sendcin
svaladrykk á sundlaugarbarminn;
það er ekki hægt inni í Bolabás.
Og talandi um Bolabás, — þá
dettur okkur í hug hvar í veröldinni
Vegagerðinni hefur tekist að út-
vega þetta ógnarlega vegagerðar-
efni, sem er í spottanum frá mal-
bikaða kciflcinum, framhjá Skógar-
hólum og inn í Bolabásinn. Hvílíkt
stórgrýti!
Þjónustumiðstöðin á Þingvöll-
um er hið mesta þarfaþing og selur
dvarargestum í þjóðgarðinum
nánast flest sem til þarf, en í Val-
höll er sem fyrr allan beina að fá,
gistingu ef menn vilja, góðcin mat í
veitingasal, og þar em vínveitingar
fyrir þá sem það vilja. Flestir láta
sér þó greinilega nægja að renna
við í sjoppunni meðan verið er að
fylla bensíngeyminn.
Þegcir blaðcimaður átti leið um
hlaðið á Þingvallabæ var Stein-
grímur forsætisráðherra, kona
hans og ungur sonur að kveðja eft-
ir boð með Schlúter hinum danska.
Sonurinn myndaði af kappi fugla-
lífið af mikilli bjartsýni, en föðum-
um fannst fjarlægðin um of fyrir
slíka myndatöku. A hlaðinu sveim-
uðu ferðamenn í hitasvækjunni og
knúðu dyra á litlu kirkjunni, —
sem var læst, því miður.
Þar er að skoða merkar altaris-
töflur og cdveg einstaka stemningu.
Við Peningagjá var og slangur af
fólki. Merkilegt er það annars á
þessum helga stað þjóðarinnar
hvað upplýsingar eiga lítið upp á
pallborðið. Skilti með nöfnum og
örfáum upplýsingum em nánast
hvergi. Kemur þetta leiðinlega út
fyrir ferðamenn, og þá sama hvað-
an þeir eru ættaðir.
Tillaga okkar er að átak verði
gert í þjóðgarðinum í því skyni að
fræða fólk meira en nú er gert.
Einnig ætti að vera til sölu stutt-
orður uppiýsingabæklingur um
staðinn. Erlendis er síkt gefið út af
minna tilefni, en mælist hvarvetna
vel fyrir.
Gjábakkavegur svokallaður
virðist stöðugt svolítið afsíðis á
staðnum. Þama er þó glæsilegur
cikvegur og útsýni yfir staðinn með
eindæmum fögur. Vegurinn var
upphaflega gerður vegna þjóð-
hátíðar 1974, en svo fór eins og
margir vita, að sárafáir notuðu
veginn, enda hafði mönnum víst
láðst að upplýsa nægilega um
þennan veg.
Fyrir Reykvíkinga, sem ekki hafa
nýlega lagt leið sína til Þingvalia
eða farið Þingvallahringinn er rétt
að geta þess átaks sem orðið hefur
í vegamálum síðari árin. Frá vega-
mótunum við Mosfellsdal em nú
13 kílómetrar vegar undir bundnu
slitlagi, og þeim kílómetrum á að
fjölga í sumar. Semsé helmingur
ieiðarinnar til Þingvalla er skikkan-
legur, afganginn af veginum ágæt-
ur, en rykið tekur út yfir allcin
þjófabálk; óhollt, hættulegt og
stuðlar að minnkandi ferðamanna-
straumi og bilunum í ökutækjum.
Þingvöllur er hinn prýðilegasti
ferðakostur, hvort heldur er fyrir
Reykvíkinga eða aðra landsmenn.
Þangað er upplagt að fara með
tjaldið og slá þar upp helgarbúð-
um, grilla og hafa það notalegt.
Loftslag er með allt öðm og betra
móti en í Reykjavík, enda kular þar
ekki frá opnu.úthafi.
Lyngdalsheiði:
VANDAMÁLIÐ SEM SNARRÁÐI
RÚTUBI'LSTJÓRINN LEYSTI
Fréttamaður Helgarpóstsins var
að ferðast um fagra staði á Suður-
landi á dögunum og átti þá leið um
Lyngdalsheiði. Ók sem leið liggur
frá Þingvöllum eftir Gjábcikkavegi
og yfir heiðina til Laugarvatns. Á
einum stað á veginum þurfti að
mæta hópferðabifreið frá Helga í
Gröf, HP-rútu. Þama voru góð ráð
dýr. Báðir reyndu ökumenn sitt ítr-
asta, en því miður. Vegurinn var of
mjór fýrir báða.
Bílstjórinn þumlungaðist áfrcim
og hallaði rútunni fskyggilega, fjar-
lægðin milli bíla aðeins örfáir
sentimetrar.
En það er ekki að spyrja að þess-
um vönu mönnum á stóm rútun-
um, sem aldrei hlekkist á, enda
þótt bílarnir séu ekki beinlínis
sniðnir fyrir íslenska vegi. Hann
kom út og hafði með sér nokkra
káta sveina frá Svíþjóð. Næst var
lausu grjóti kastað burt, síðan var
blaðamannsbílnum lyft að aftan,
— og bílarnir gátu haldið hvor sína
leið.
Álit okkar á þessum dugmiklu
bílstjórum vex stöðugt, þeir eru al-
mennt talað einstaklega úrræða-
góðir og taugasterkir menn.
18 HELGARPÓSTURINN