Helgarpósturinn - 27.09.1984, Blaðsíða 2
FRÉTTAPÖSTUR
Forystumenn BSBB eru mjög reiðir meirihluta útvarps- í
ráðs fyrir að hanna sjónvarpsauglýsingar sem bandalagið
hafði látið gera til að hjálpa sér í kjarabaráttunni. Meiri-
hluti útvarpsráðs komst að þeirri niðurstöðu að birting
auglýsinganna samræmdist ekki ákvæði útvarpslaga um
auglýsingar stjórnmálasamtaka og skoðanamyndandi
hópa. Meirihlutinn vildi einnig koma í veg fyrir að þarna
væri gefið fordæmi fyrir því að kosninga- eða kjarabarátta
færi fram í ríkisfjölmiðli. Á föstudaginn var samþykkti svo
ráðið að leyfa aftur birtingu auglýsinganna gegn því að sá
texti sem lesinn var inn á þær^yrði látinn hverfa.
Innbrot hjá SÁÁ
Brotist var inn hjá SÁÁ í síðustu viku og unnin þar mikil
■spjöll á húsmunum. Innbrotsþjófarnir rifu og tættu allt
sem þeir komust í tæri við og stálu að auki vídeótæki og
sjónvarpstæki sem samtökin notuðu til fræðslustarfsemi
sinnar. Tjónið er talið nema um 400 þúsund krónum.
Mennirnir hafa verið handteknir.
Útlend fyrirmynd
Kjarabaráttan verður líklega óvenju hörð á næstu man-
uðum því Guðmundur J. Guðmundsson, formaður VMSÍ og
Dagsbrúnar, hefur lýst því yfir að hann hyggist beita sömu
baráttuaðferðum og skæruliðar í Vietnam og Afghanistan.
Þar mun Guðmundur eiga við að hann ætli í pólitískan
skæruhernað því fremur er talið ólíklegt að hann ætli hrein-
lega að murka líftóruna úr Magnúsi Gunnarssyni og félög-
um.
íslenska undrið
ísraelskir fréttamenn og ráðherrar komu á fund Stein-
gríms Hermannssonar forsætisráðherra, þegar hann heim-
sótti land þeirra á dögunum. Þeir vildu allir fá að vita
hvernig tekist hefði að ná niður verðbólgunni á íslandi. í
ísrael er verðbólgan um 400 prósent.
Fimm ára fangelsi
Steinar Guðmundsson, sem varð vinkonu sinni að bana
að Njálsgötu 48 á síðastliðnum vetri, var dæmdur í fimm
ára fangelsi. Ekki var talið sannað að hann hefði ráðið
henni bana af ásettu ráði og hljóðaði ákæran því upp á lík-
amsárás sem hafði dauða í för með sér. Dómnum verður
áfrýjað til Hæstaréttar eins og lög segja til um mál af þessu
tagi.
Hishátt kjötverð
Verðlagsstofnun gerði fyrir nokkru könnun á kjötverði
og reyndist verðmunur vera allt að 316 prósent milli versl-
ana. Eftir fyrsta mars varð sú breyting á að sex manna
nefndin ákvað aðeins verð á heilum og hálfum skrokkum en
hafði áður ákveðið allt verð. Síðan þá hefur álagning verið
geysimisjöfn.
Helmingur handritanna kominn
Danir hafa nú skilað 1084 af handritunum 2000 sem þeir
samþykktu að afhenda íslendingum á tímabilinu frá 1971
til 1996. Árleg umhirða þeirra sem eftir eru kostar danska
rikið tæpar tvær milljónir króna. Meðal ókominna gersema
er handritið af Brennu Njáls sögu.
Þriggja daga laun
Líkur benda til að f jármálaráðuneytð greiði BSRB-mönn-
um ekki nema þriggja daga laun ef úr því verður að þeir fari
í verkfall 4. október næstkomandi. Það er mjög alvarlegt
mál fyrir BSRB sem á ekki digra verkfallssjóði. BSRB-foryst-
an segir að ef fjármálaráðuneytið fari þessa leið sé það lög-
brot en ráðuneytið hafnar algerlega þeirri túlkun.
Kosningar í nóvember?
Komið hefur til tals að skelli frekari verkföll á setji ríkis-
stjórnin á þau lögbann og segi svo af sér og boði til nýrra
kosninga 24. nóvember næstkomandi. Þorsteinn Pálsson,
formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur sagt að flokkurinn
stefni ekki á nýjar kosningar, en þær séu möguleiki.
Langtíma samningar?
Vinnuveitendasambandið vill gera samninga til lengri
tíma en áður hefur verið lagt til og hefur rætt það mál við
Verkamannasambandið og Iðju. Magnús Gunnarsson,
framkvæmdastjóri VSÍ, hefur nefnt þann möguleika að
samningar verði gerðir til ársloka 1985.
Tveir í fangelsi
Tveir piltar, 19 og 22 ára, hafa verið úrskurðaðir i þriggja
mánaða gæsluvarðhald eftir að hafa játað á sig meirihluta
þeirra innbrota sem framin hafa verið í Reykjavík í þessum
mánuði. Þeir hafa bæði stolið miklu og skemmt mikið. Það
voru þessir piltar sem brutust inn hjá SÁÁ. Báðir hafa kom-
ið allmikið við sögu lögreglunnar áður.
Blaðaprent ekki x gang
Ljóst er að ekki kemur til þess að Þjóðviljinn, Alþýðublað-
ið og ný útgáfa af NT undir öðru nafni, verði prentuð með
sérsamningi við Blaðaprent. Félag íslenska prentiðnaðar-
ins sendi Félagi bókagerðarmanna harðort bréf þar sem
segir að ef félagið haldi áfram að gera eöa reyna að gera sér-
samninga eða veita einstökum fyrirtækjum undanþágur
muni FIP ekki setjast að samningaborði með Félagi bóka-
gerðarmanna „hvorki nú né síðar.“
Fréttapunktar
•í fyrri viku kom Helgarpósturinn út í fullri stærð, prent-
aður á meginlandi Evrópu. HP er eina blaðið sem komið hef-
ur út í óbreyttri mynd eftir að verkfall prentara og bóka-
gerðarmanna hófst þ. 10. september.
• Birgir Þorgilsson, markaðsstjóri Ferðamálaráðs, hefur
verið ráðinn ferðamálastjóri.
• Jóhann Hjartarson varð Islandsmeistari í skák 1984.
• Helmingur þjóðarinnar er fylgjandi sáttatillögunni í
BSRB-deilunni en helmingur á móti, samkvæmt skoðana-
könnun DV.
• Ármann Snævarr er að láta af embætti hæstaréttardóm-
ara að eigin ósk.
• Enn er verið að reyna að ná samkomulagi milli matvöru-
kaupmanna og greiðslukortafyrirtækjanna.
2 HELGARPÓSTURINN
Mamma er stolt
af mér
☆ Hún kallar sig Joline, en
sínu rétta nafni vill hún helst
halda leyndu. Ástæðan er
efalítið sú að hún er nektar-
dansmær að atvinnu, og svo
hefur verið um tveggja ára
skeið.
Joline kemur frá Kaup-
mannahöfn, þar sem hún
hefur alið allan sinn aldur.
Og nú, á sínu tuttugasta og
öðru aldursári, er það hennar
æðsta ósk að verða hjúkr-
unarkona í dimmstu skógum
Afríku, enda býst hún ekki við
að geta haft atvinnu af því
alla ævi að fækka fötum.
Gestir skemmtistaðarins
Hollywood sáu hana leika
listir sínar um síðustu helgi,
og mun mörgum hafa þótt
mikið til koma. Sjálf segist
hún hafa afskaplega gaman
af að tína af sér hverja spjör-
ina af annarri á meðan áhorf-
endurnir tísti með augun á
stilkum. Hún væri ekki að
þessu ef hún hefði enga
skemmtan af þessu sjálf.
Joline byrjaði í þessum
bransa af einskærri forvitni
að eigin sögn. Og hún segist
ekki sjá eftir þessum árum
sem farið hafa í fatafækkun-
ina. „Nektardansinn hefur
gefið mér töff reynslu fyrir
lífið. Og verða menn ekki
einmitt að vera töff ef þeir
ætia að komast klakklaust í
gegnum það?“spyr hún
ósköp blátt áfram.
Hún hváir þegar hún er
spurð að því hvort hún sé
ekkert smeyk við að standa
allsnakin frammi fyrir hundr-
uðum æstra áhorfenda.
„Mér finnst einfaldlega
fallegt að sýna það sem ég á.
Ég þarf heldur ekkert að
skammast mín fyrir minn
líkama", svarar hún, en
bætir svo við: „Að minnsta
kosti ekki næstu árin.“
Mamma hennar hvatti
hana fremur en latti til að
halda áfram á þessari braut:
„Nei, húnhefurengareynslu
af þessu sjálf, en segist
hreykin af mér og jafnframt
vera stolt af því að eiga eins
hugrakka og fallega stúlku
og hún segir mig vera. Henni
finnst sem sagt ekkert vera
að þessu, nema síður sé.“
Joline hefur ferðast víða
með nektaratriði sín og taldi
upp ein átta þjóðlönd í
Evrópu sem hún kveðst hafa
heimsótt í þeim eina tilgangi
að fækka fötum. Hún semur
dansana sína sjálf, en segist
bjóða upp á misjafnlega
„villt“ atriði eftir því fyrir
hvaða aldurshópa hún sýni.
„Músík unga fólksins er ein-
faldlega hraðari og meira
æsandi en eldrafólksins, svo
það leiðir af sjálfu sér fyrir
hvorn hópinn ég geri meira.“
Eins og að líkum lætur
hafa drukknir kallar verið að
abbast upp á hana á sjóun-
um. Hún segist þá hafa
þessa reglu: „Ef þeir snerta
mig óbeðnir, vara ég þá við
með grimmu augnaráði, en
ef þeir láta sér ekki segjast
við það, stugga ég við þeim.
Það þarf alla jafna svo lítið að
koma við þessa fullu kalla til
þess að þeirmissi
jafnvægið!"
Einu sinni varð þó undan-
tekning á þessu og Joline er
skemmt við tilhugsunina:
„Það var fyrir sirka þremur
mánuðum úti í Kaupmanna-
höfn að ég var í miðju atriði
þegar þrír huggulegir menn
um þrítugt stigu samtaka upp
4$yiðtöÞMip0r*Égtfi$.,
LXýt rVí» 11 ♦ »t » i'»V»‘t tH'-'i i fi'*'
eiginlega ekki eftir þeim fyrr
en þeir voru farnir að tína áf
sér spjarirnar í takt við mig,
en þetta æsti liðið um allan
helming, - veikara kynið í
hópi áhorfenda þó sýnu
meira - þannig að ég lét
þetta átölulaust. Á endanum
stóðum við öll fjögur
berrössuð á sviðinu við
feikilegt lófaklapp.
Strákunum var síðan kastað,
út held ég, en ég fór að klæða
mig.“
Þess má að lokum geta að
Joline er enn ógift og er nú á
leið til Spánar að hátta sig, ef
einhver vildi elta...*
HELGARPÚSTURINN
Enginn friður
Nú er hann kominn aftur hér
frá Austurlöndum nær.
Hann ætti næst að asna sér
til Austurlandafjær.
Niðri