Helgarpósturinn - 27.09.1984, Blaðsíða 5
Stríðsmálning nútímans
☆ Forfeður okkar, þessir í
eldgamla daga, máluðu sig í
stríðslitum og skóku vopn
gegn andstæðingnum uns
þeir keyrðu í hann. Baráttan
hefur lítið breyst nema að því
leyti er varðar útbúnaðinn.
Hann er orðinn öllu dannaðri
en áður tíðkaðist og það sem
er ekki hvað síst merkilegt
við þróunina; stríðsmálning-
unni er ekki lengur makað í
andlitið heldur á sjálf tólin.
Þá er ekki lengur notast við
liti unna úr náttúrulegum
aðföngum, heldur einfald-
lega túss. Auk þessa virðist
svo sem árásargirninni hafi
farið aftur, því í stað þess að
ganga milli bols og höfuðs á
andstæðingnum eins og
forðum, standa stríðsmenn
nútímans nú nánast kjurrir,
gjarnan á fjölmennum stöð-
um, eins og til að sýna mátt
sinn og megin en ekkert
meir. Þó eru ýmis teikn á lofti
um að þetta með aggresívi-
tetið sé að breytast, sér í lagi
uppi á lítilli eyju norður í
Ballarhafi. Hún heitirvíst
ísland eða eitthvað svo-
leiðis...*
Birna Þórðardóttir á heimili
sínu í Krummahólum. Á bak
við hana má sjá hluta af þeim
sextán afsvörum sem hún hefur
hingað til fengið frá útvarpsráði
vegna umsókna sinna um frétta-
mannsstöðu hjá stofnuninni, en
þessum stöðluðu miðum heldur
hún vel til haga.
Sautjánda umsókn Birnu
☆ Laus er staða fréttamanns
á útvarpinu. Enn veit HP ekki
nema um eina sem
örugglegaætlar að
sækja um hana. Hún heitir
Birna Þórðardóttir og verður
þetta í sautjánda skiptið sem
hún sækir um starfann, en í
fyrri umsóknum sínum hefur
hún aldrei svo mikið sem
komiðtilgreinavið ráðningu.
Við spyrjum Birnu hvað valdi
þessari þrautseigju hennar.
„Mig langar einfaldlega að
vinna við þetta starf. Ég tel
mig hafa hæf ileika til þess og
ekki síður gilda menntun."
- Hvers vegna telurðu að
þér hafi ekkert orðið ágengt í
þessari viðleitni þinni?
„Það er býsna fróðlegt að
velta því fyrir sér. Mér kemur
til hugarþýskaorðið
Berufsverbot, en kannski er
það einum of gróft í þessu
sambandi. Ég veit ekki. Ég
hef aldrei heyrt neinar skýr-
ingar frá þessum mönnum
sem velja í stöðuna hvers-
vegna mér hefur ætíð verið
hafnað, utan einu sinni að
þeir kölluðu mig í prufu. Að
öðru leyti hafaviðbrögðin við
þessu brölti mínu ekki verið
nema þau að ég hef fengið
þessi kurteislegu og stöðl-
uðu afsvör útvarpsráðs þar
sem það þakkar mér þann
áhuga sem ég hafi sýnt
stofnuninni með umsókn
minni."
- Og þær eru sem sagt
orðnar sautján núna!
Ætlarðu að halda áfram á
þessari braut, nema náttúr-
lega að þú hreppir hnossið
núna?
„Ég er nú orðin svo íhalds-
söm í þessari afstöðu minni,
að ég fer varla að hætta að
skrifa þessum mönnum í
bráð. Ef þeim fara hins vegar
að leiðast þessar bréfa-
skriftir mínar þá vildi ég
gjarnan fá hreinskiptið svar
frá þeim þar sem þeir segðu
jeinfaldlega að þeir óskuðu
alls ekki eftir mér til vinnu í
allri framtíð. Ég held áfram
að sækja um þangað til ég fæ
þettaafsvar."
- Heldurðu að pólitík ráði
einhverju um það að þú
hefurekki enn hlotiðnáðfyrir,
augum ráðsins?
„Ja, hvað heldurþú?"
- Mér skilst að þú sért ansi
rauð.
„Fyrst þú segir það þá er
ekki úr vegi að skoða þetta
lið sem aflar frétta fyrir RUV.
Ef það er ekki vegna pólitísks
litar sem það fékk inni þarna
þá er það vegna fjölskyldu-
tengsla, semernæstflottast.
Vitaskuld er pólitískur kvóti í
þessum fréttamannsráðn-
ingum, enda útvarpsráð
skipað út frá leikreglum
flokkshollustunnar. Náttúr-
lega er ég ekki í náðinni hjá
þessum köllum, en svei mér
ef ég fer að láta það hafa
nokkur áhrif á þann áhuga
sem ég hef á fréttamennsk-
unni.“ ★
Skuggi
Sá ég skugga út um glugga
menn að grugga seið og brugga
ský ský ský ský!
Degi er tekið að halla á ný.
ÞAÐ ERU AÐ MINNSTA KOSH TVEIR HLUTIR
ÓMISSANDI FYRIR ÞIG Á FERE>\LÖGUM
VISA ÍSLAND
i * 4 '■
.1.1 í >]
HELGARPÓSTURINN 5