Helgarpósturinn - 27.09.1984, Page 9
:
Leitað var til Sigurðar E. Har-
aldssonar^ formanns Kaupmanna-
samtaka Islands, um álit þeirra á
þessu. Hann sagði að þeim hjá
samtökunum fyndist undarlegt að
sjá hvað olíufélögiri væru að gera
með að selja allskonar vörur
óskyldar olíuvörum. Hann segir
einnig: ,3ala á þessum vörum er
yfirleitt í höndum verslunarfólks
en þama eru afgreiðslumenn á
bensínsölustöðvunum, menn sem
eru í Dagsbrún, raunverulega
komnir inn á svið verslunarfélag-
anna. Það kemur undcirlega fyrir
sjónir þegar þeir eru jafnvel að
selja eldspýtur og tóbak. Ég hef
rætt við suma þessara starfs-
manna og mér virðast þeir ekkert
vera yfir sig ánægðir með að þurfa
að standa í þessari sölu.“
Aðspurður sagði Sigurður að
þeim hjá Kaupmannasamtökunum
virtist sem þessi verslun olíufélag-
anna færi fremur vaxandi en hitt;
þó væri það nokkuð mismikið milli
einstakra félaga, t.d. virtist Olís
mest hafa farið inn á þetta svið.
„Verslunarmáti félaganna er
heill kapítuli út af fyrir sig,“ segir
Sigurður. „Það er ekki nokkur séun-
keppni á milli félaganna og það er
hlálegt fyrirkomulag þegar í venju-
legii verslun er allsstaðar verið að
keppa en þessi fyrirtæki standa
þétt saman. í stað þess að láta
neytendur njóta einhvers af hagn-
aði sínum hafa þau lagt heilmikið í
allskonar uppbyggingu eins og all-
ir þekkja og þetta borga bíleigend-
ur.“
Um viðbrögð Kaupmannasam-
takanna sagði Sigurður þau hafa
skrifað öllum olíufélögunum bréf
þar sem farið var fram á viðræður
um þessa verslun olíufélaganna,
„en aðeins eitt þeirra sá ástæðu til
að svara okkur og sagðist ekkert
hafa við okkur að ræða um þessi
mál. Hin hafa ekkert svar gefið. Síð-
an þetta var höfum við ekkert að-
hafst en það má segja að j>etta mál
sé ofarlega á borðinu hjá okkur."
Nokkrar ríkisstjómir hafa haft
það á stefnuskrá sinni að taka
skipulag olíusölu á íslandi til end-
urskoðunar og vcu- ma. í stjómar-
sáttmála ríkisstjómar Gunnars
Thoroddsen sagt orðrétt „að
skipulag á olíuinnkaupum og olíu-
dreifingu verði tekið til athugunar
svo og hvemig tryggt verði að
nauðsynlegt magn birgða af olíu-
vömm sé ætíð til í landinu."
„Núverandi ríkisstjóm vill
stuðla að sameiningu bankakerfis-
ins í landinu en hreyfir ekki við
þrefalda dreifingarkerfinu á olíu,“
segir einn viðmælandi HP.Tillögu-
flutningur á Alþingi hefur nánast
verið reglulegur á undanfömum
áratugum þar sem farið er fram á
sameiningu og jafnvel stofnun
einkasölufélags ríkisins á olíuvör-
um, en glatkistur eða annað séð
um afdrif þeirra. Am.k. hefur al-
menningur ekki séð slíka upp-
stokkun. Þau mál sem nú em uppi
og fjallað hefur verið lauslega um í
þessari grein hljóta þó að gefa til-
efni til að ætla að eitthvað muni
hreyfast í þessum málum á næst-
unni. Við höfum t.d. eftir einum
þingmanni Kvennalistans að þær
athugi nú ýmsa möguleika til að
draga úr tilkostnaði í útgerðinni,
og skoði þá milliliðakostnað í því
sambandi og þann möguleika að
útgerðinni verði gert kleift að
kaupa olíuna beint án milligöngu
olíufélciganna. Málið sé þó enn í
frumathugun en búast megi við til-
löguflutningi frá þeim í vetur.
Hvað hagkvæmt er og hvað ekki
skal ekki dæmt um hér, en ástæða
þykir til að rýna örlítið nánar í
skipulag olíuverslunar á íslandi en
hér er gert. Mun HP fljótlega birta
grein um það efni þar sem ma.
verður leitað álits stjómmála-
manna, rifjaðar upp gamlar deilur
og félögin sjálf skoðuð. Má líta á
viðtölin við forstjóra félaganna hér
sem upphafið að því.
Þórður var spurður um það
hvort hann teldi að kaupin á olíu-
vömm frá Sovétríkjunum hefðu
yfirleitt reynst okkur hagstæð:
„Yfirhöfuð held ég að það megi
segja það. En ég held að algert
frjálsræði væri best í þessum efn-
um og félögin sæju algerlega sjálf
um öll sín olíukaup og hefðu frjáls-
ar hendur með verðlagningu líka.
En það er óraunhæft að gera ráð
fyrir slíku þar sem við hér á landi
eigum svo mikla viðskiptahags-
muni við Rússa og Portúgali. Þó tel
ég að það mætti að ósekju draga
nokkuð úr olíukaupum okkar frá
Sovétmönnum, því viðskiptajöfn-
uðurinn gagnvart þeim er okkur
mjög óhagstæður. Við hjá Olís höf-
um sýnt að þegar við kaupum gas-
olíu á uppboðsmarkaði getum við
gert hagstæðari innkaup. Þetta
getur fullkomlega átt við um bens-
ín líka en það er annað mál með
svartolíuna sem við fáum í miklum
gæðum frá Sovétríkjunum og ég tel
að við eigum að halda Jæim við-
skiptum áfram."
Um þær hugmyndir að sameina
olíufélögin og hvort aðstæður í
olíuversluninni þýddu ekki einok-
unarástand, þannig að ma. væri
nýjum olíufélögum gert ókleift að
komast inn á markaðinn sagði
Þórður m.a.:
„Olíufélögin geta ekkert komið í
veg fyrir að ný verði stofnuð. Þó er
tæpast pláss fyrir öllu fleiri félög á
þessum markaði og ég tel að hon-
um sé mjög vel borgið með þremur
félögum. Sumir hafa þó talað um
að fækka félögunum, - jafnvel nið-
ur í eitt, - en því er ég algerlega
mótfallinn, og tel að það verði síst
neytendum til góðs. Með einu-fé-
lagi væri hér komin á alger einok-
un og við íslendingar höfum nú
ekki góða reynslu af slíku.
Með sjálfráðari innkaupum fé-
laganna getum við náð betri kaup-
um með því að spila á markaðinn,
s.s. þegar um verðsveiflur er að
ræða, og hagað okkar innkaupum
eftir því. Nú er það á veildi Sovét-
manna að ráða því hvenær þeir
lesta farmana til okkar og inn-
kaupsverð ræðst af því hver prís-
inn er á Rotterdammarkaðnum á
þeirri stundu sem lestun fer frcim.
Sovétmenn hafa stundum lestað
löngu eftir að beiðni kemur frá
oklair og stundum áður, þannig að
þetta er mikið í þeirra höndum."
Um samkeppni olíufélaganna
segir Þórður að varðandi aðalolíu-
tegundimar sé samkeppni ein-
göngu um þjónustu, en þó sam-
keppni um aðrar mismunandi olíu-
vömr:
,JVú, svo erum við í ýmsu öðru,
bæði vörum sem koma bíleigend-
um við og fleiru, því þetta em
‘versliiriárfyrírtæRTa iriíldu víðara
sviði heldur en bara helstu olíuteg-
undunum.
Olís er núna að byrja með nýja
línu sem tengist byggingaiðnaðin-
um. Við emm með þéttiefnalínu frá
BP og þykjumst eiga ráð undir rifi
hverju við öllum leka og raka í
byggingum. Svo erum við að byrja
á öðm sem varðar steypuviðgerð-
ir. Emm í sambandi við þekkt fyrir-
tæki erlendis sem býður upp á efni
til þess.
Hvort samkeppnin hafi harðnað
á síðari árum get ég ekki sagt um,
því ég hef aðeins verið í þessu í um
þr jú ár, en á þeim tíma hef ég reynt
að veita hinum félögunum eins
mikla samkeppni og ég hef getað.“
- Em þessar aukaþjónustuvör-
ur, ef svo má segja, stór liður í
heildarveltunni?
.d’að er orðið mjög verulegt.
Allavega em þetta vömr sem skila
okkur töluvert meiru heldur en
bensínið, gasolían og svartolían.
Stjómvöld og verðlagsyfirvöld
passa upp á það að við græðum
ekki á þeim tegundum. Þar er okk-
ur venjulega haldið fyrir neðan
strikið."
Bygging bensínstöðva hefur ver-
ið mikið rædd og miklu skiptir fyrir
olíufélögin hvar þær fá úthlutað
stöðum fyrir stöðvar sínar. Um það
segir Þórður:
„Ég leyni því ekki að mér finnst
Olís hafi verið nokkuð afskipt hér í
Reykjavík í úthlutunum fyrir bens-
ínstöðvar. Við eigum langfæstar
stöðvar hér og á s.l. 15 - 20 árum
hefur stöðvum hinna félaganna
fjölgað miklu meira en okkar. Við
höfðum jafnmargar og hin félögin
þá en nú hafa þau hvort um sig 3 -
4 stöðvum fleiri en við. Okkar
stöðvar em þó mjög góðar og
þetta hefur ekki breytt markaðs-
hlutdeild okkar, því í bensíni hefur
hún aukist á seinustu árum.
Á Akureyri höfum við líka verið
afskiptir í úthlutunum og má nefna
sem dæmi að við kepptum við
Skeljung um lóð sem var úthlutað í
fyrra og töldum okkur eiga mór-
alskan rétt á henni þar sem við
emm með færri stöðvar þar. En
henni var úthlutað til Skeljungs
þannig að við erum auðvitað ekki
ánægðir með svona afgreiðslu
mála. Hvort pólitík ræður veit ég
ekki.“
Almennt séð telur Þórður fyrir-
tækið vera í sókn og rökstyður
það:
,Á síðasta ári jókst markaðs-
hlutdeild okkar, hagnaður varð af
rekstrinum og veltuaukning var
88%, en ef þú tekur hin fyrirtækin
saman þá varð hún þar samtals
77%. Þetta em stórar tölur í veltu
félaganna þannig að 10% munur er
vemlegur og ég get ekki verið ann-
‘ áð en áríægður með það."
HELGARPÓSTURINN 9