Helgarpósturinn - 27.09.1984, Page 21
Sigurður A. Magnússon:
,,Ég lifði fyrir það eitt að fá að sjá hana aftur.
Tilveran hafði verið dýrðleg á meðan allt lék í
lyndi, lífið var sveipað rósrauðum bjarma. Það
greip mig eitthvert ofurnæmi á tilveruna.“
Rósa Ingólfsdóttir:
,,Maður titraði og skalf. Ég heyrði ekkert sem
sagt var í kringum mig, ég var alveg gjörsam-
lega utan við mig. Mérfannst allt fallegt.“
Helga Bachman:
,, Það er enginn vafi á því, þetta var raunveruleg
ást - sú fyrsta. Ég var frá mér numin. Það hrísl-
aðist um mig unaður þegar hann klappaði mér á
kollinn.“
Þorgeir Ástvaldsson:
„Það er eins og þetta himneska hugarástand,
þessi hreina tilfinning, hverfi inn í einhverja
efasemdarþoku með aldrinum.“
Svo man ég líka að hann fékk mig til
þess að bera með sér móbörur; við
vorum auðvitað bæði á gúmmí-
skónum okkar. Þá beygði hann sig
svo fagurlega í hnjánum til að vega
upp stærðarmuninn á okkur í burð-
inum.
Það er enginn vafi á því, þetta var
raunveruleg ást — sú fyrsta. Ég var
frá mér numin og ég ætla ekki að
lýsa því hvernig mér leið þegar mér
varð þetta ijóst. Konan hans kallaði
mig alltaf elskuna sína og var mér
óskaplega góð, en mér leið eins og
hún væri að ala snák við brjóst sér.
Ég trúði auðvitað ekki nokkrum
manni fyrir þessu, ég var alein með
sekt mína. Mér leið illa. Ég svaf í
litlu sætu kamersi uppi í húsinu og
ég man að þar inni lágu 10—15 ár-
gangar af íslenskri fyndni á bakvið
tjald undir súðinni. Oft gat ég ekki
sofnað fyrir sálarkvöl og þrælaðist í
gegnum þessar bækur. Mér þótti
ekki gaman að þessu og fannst það
ekki fyndið. Annað hvort missir
maður húmorinn við að verða ást-
fanginn eða þá að íslensk fyndni er
bara ekkert skemmtileg.
Þessi hrifning mín af bóndanum
hvarf svo jafn ljúflega og hún kom
og ég jafnaði mig. En meðan á þessu
stóð var þetta hin fullkomna sæla,
sambland af nautn og kvöl. Þetta
var tilbeiðsla, ást er tilbeiðsla. Það
var ekki fyrr en löngu seinna að ég
sagði frá þessu, ekki fyrr en ég fékk
húmorinn aftur.“
Fyrsta ást Þorgeirs Ástvaldsson-
ar, forstöðumanns Rásar 2, var líka
óendurgoldin. „Þetta var ást í fjar-
lægð," segir Þorgeir, „og sennilega
vonlaus. Það tókust aldrei náin
kynni með okkur, leiðir okkar lágu
það langt hvor frá annarri. Ég var í
öðrum bekk í gaggó og hún var
tveimur árum eldri og á undan mér
í skól. .Þetta var eiginlega óyfirstíg-
anlegur aldursmunur.
Tilfinningin var ný fyrir manni,
undarleg og unaðsleg í senn. Það
var eitthvað áður óþekkt sem gerð-
ist innra með mér og þessi tilfinning
var einlit — rósrauð. Og þetta var
hreinræktuð tilfinning, laus við all-
ar efasemdir sem maður fyllist af
um allt og alla eftir því sem maður
eldist.
Ég átti í bölvuðum vandræðum
með mig, ég sá hana á hverjum
degi, kannski oft á dag. Ég fylltist af
komplexum um það hvernig ég liti
út, varð ennþá komplexeraðri þeg-
ar ég ræddi við hana, fór í steik.
Það er kannski þessi sannfæring
sem manni er eftirsjá að, maður
saknar þessarar hreinræktuðu og
efasemdarlausu tilfinningar. Það er
eins og þetta himneska hugará-
stand sem maður komst stundum í á
unglingsárunum, þessi hreina til-
finning, hverfi inní einhverja efa-
semdarþoku með aldrinum.
Ég var svo viss um að hún væri sú
eina rétta fyrir mig. Hún var dökk-
hærð, æðislega falleg, fannst mér,
undursamleg, sú útvalda, og féll al-
gjörlega að þeirri ímynd sem ég
hafði af draumadísinni. Þessi fyrsta
ást mín fékk mig til að líta öðrum
augum á heiminn í kringum mig.
Maður fór að líta á sig í samhengi
við aðra — ég tók upp nýtt hegðun-
armynstur sem ég taldi að félli
henni í geð. Þegar maður lítur til
baka, þá finnst manni þetta kannski
hálf hallærislegt, en samt er þaösvo
heillandi hvað sannfæringin var
mikil hjá mér. Það hlýtur að vera
hvers manns Nirvana að efast ekki.
Ég tjáði henni aldrei ást mína og
sú bæling var auðvitað kvalafull. Ég
fékk ekki tækifæri til að svala til-
finningu af þessum toga fyrr en síö-
ar á lífsleiðinni."
Dægurlög hafa einkennt starfsfer-
il Þorgeirs og þau fjalla oftar en ekki
um ástina í sínum ýmsu myndum.
„Dægurlög spila oft inn á svona
nostalgíu og þetta er merkilegt
fyrirbæri, þessi tregafulla upprifjun
á liðnum tíma. Dægurlög eru oft
sáraeinföld og alls ekkert merkileg
út frá tónlistarlegu eða kveðskapar-
legu sjónarmiði en gildi þeirra felst
oft í nóstalgíunni. Þau snerta eín-
hvern streng í manni þannig að
minningar um liðna atburði og til-
finningar ryðjast fram í hugann."
„All you need is love,“ sungu Bítl-
arnir.
,,Fyrsta kossinn ég kyssti
rjóöa vanga.
Þennan koss ég vil muna
daga langa...“
(Hljomar)
„I don‘t care whatthey say
I won‘t stay in a world with-
out love...“
(Peter and Gordon)
\'ISA kynnir \ öit i
og pjónnstnstaói
VEITINGASTAÐIR:
©
Arnarhóll, Hverfisgötu 8—10 91-18833
Ársel, Austurvegi 3, Selfossi 99-1000
Askur, Suðurlandsbraut 14 91-81344
Bautinn Grill, Hafnarstræti 92,
Akureyri 96-21818
Bixið, Laugavegi 11 91-24630
Blómasalurinn, Hótel Loftleiðir 91-22321
Botnsskáli, Hvalfirði 93-3850
Brauðbaer, Þórsgötu 1 91-24090
Broadway, Álfabakka 8 91-77500
Drekinn, Laugavegi 22 91-13628
Eden, Hveragerði 99-4199
Eika grill, Gnoðarvogi 44 91-35488
Esjuberg, Hótel Esju 91-82200
Félagsheimilið Hvoll, Hvolsvelli 99-8144
Fjarkinn, Austurstræti 4 91-10292
Fossnesti, Austurvegi 46, Selfossi 99-1356
Gafl-lnn, Dalshrauni 13, Hafnarfiröi 91-54477
Goggur, Brekkugötu 3, Akureyri 96-26727
Greifinn Grill, Hamraborg 4, Kópavogi 91-41024
Grillskálinn, Aöalstræti 110, Patreksfirði 94-1452
Gullni haninn, Laugavegi 178 91-34780
Hafnarkaffi, Hafnarbraut 1,
Neskaupstaö 97-7320
Hjá kokknum, Laugavegi 28B 91-18385
Hlíðagrill, Stigahlíð 45—47 91-38890
Hollywood, Ármúla 5 91-83715
Hornið, Hafnarstræti 15 91-13340
Hótel Borg, Pósthússtræti 11 91-11440
Hótel Holt, Bergstaðastræti 37 91-25700
Hótel- og veitingaskólinn, Hótel Esju 91-81420
Kópurinn, Auðbrekku 12, Kópavogi 91-46244
Lauga-Ás, Laugarásvegi 1 91-31620
Lækjarbrekka, Bankastræti 2 91-14433
Naust, Vesturgötu 6—8 91-17759
Potturinn og Pannan, Brautarholti 22 91-11690
Rán, Skólavörðustig 12 91-18686
Safari, Skúlagötu 30 91-23777
Sigtún, Suðurlandsbraut 26 91-685733
Sjallinn, Geislagötu 14, Akureyri 96-22770
Skálafell, Hótel Esju 91-82200
Skiphóll, Strandgötu 1—3, Hafnarfirði 91-52502
Smiðjan, Kaupvangsstræti 3, Akureyri 96-21818
Smiöjukaffi, Smiðjuvegi 14D, Kópavogi 91-72177
Staðarskáli, Hrútafirði 95-1150
Stillholt, Stillholti 2, Akranesi 93-2778
Stjörnusalur (Grill), Hótel Sögu 91-25033
Súlnasalur, Hótel Sögu 91-20221
Sælkerinn, Austurstræti 22 91-11630
Tommahamborgarar, Grensásvegi 7 91-84405
Lækjartorgi 91-12277
R.víkurvegi 68,
Hafnarfirði 91-54999
Torfan, Amtmannsstíg 1 91-13303
Veisluþjónustan, Hafnargötu 25,
Keflavík 92-1777
Veitingaskálinn, Ferstiklu 93-3940
Veitingahöllin, Húsi verslunarinnar 91-30400
Zorba, Laugavegi 126 91-28125
Þingholt, Hótel Holti 91-21050
Þórscafe, Brautarholti 20 91-23335
BRAUÐSTOFUR:
Brauðbær, Þórsgötu 1 91-20490
Nesti, Brauðstofa, Háaleitisbraut 68 91-33615
\ <: Tslií) 11 ic<> V/SA
VISA ÍSLAND
t * t H » i n M I m H p M I M M I " *| n M m lj I M M t H p t « >
HELGARPÓSTURINN 33