Helgarpósturinn - 22.11.1984, Blaðsíða 9
Hann á betur heima í
Sjálfstæðisflokknum
með skoðanir á borð
við þær þegar hann
var að hampa VSI í
Alþýðublaðinu.
blaðinu á þessum tíma: „Andstætt
goðsögninni um hann fannst mér
þægilegt að vinna undir stjórn
Jóns. Hann var ekki að krukka í
textann, heldur veitti hann mönn-
um fullt frelsi við skriftirnar en þá
jafnframt- fulla ábyrgð á því sem
menn voru að fara með.“
Um pólitík Jóns vill Helgi hins-
vegar segja: ,,Á formannsstóli er
Jón Baldvin óskrifað blað sém
pólitíkus. Ég þykist samt vita að
hann lendi ekki í sama óláni sem
formaður og til dæmis Þorsteinn
Pálsson í sínum flokki. Jón hefur
dræf til að vinna orrustur í pólitík
sem er gott fyrir pólitíkus og bar-
átta hans síðustu vikurnar sýnir
að hann er að reskjast sem slíkur.
Mér sýnast hagsmunir Jóns Bald-
vins og Alþýðuflokksins fara sam-
an og geri ráð fyrir að hann verði
litríkur formaður."
Margir alþýðuflokks-
menn eru ósammála
því sem Heigi segir, að
hagsmunir Jóns og Alþýðuflokks
fari saman. Hann hefur alltaf ver-
ið urndeildur í flokknum og er
enn. Ástæðurnar eru margvísleg-
ar. Til dæmis eru margir gamlir
flokksmenn ekki enn búnir að fyr-
irgefa honum að hafa staðið í vegi
fyrir algjörri sameiningu Samtaka
frjálslyndra og vinstrimanna og
Alþýðuflokks árið 1974, en Jón
var þá enn liðsmaður SFV og var
ákafur í að hálda því flokksstarfi
áfram. „Þar missteig hann sig
hrapallega að mínu viti," segir
Ragnar Arnalds. Önnur skýring er
þessi: „Það er ekki nóg með, að
Jón Baldvin sé slægur, eins og títt
er um stjórnmálamenn, heldur er
hann óheiðarlegur í þeim leik svo
um munar," segir maður kunnug-
ur stjórnmálum síðustu ára.
„Gleggsta dæmið um þetta er þeg-
ar Vilmundur heitinn Gylfason og
félagar gengu út af ritstjórn Al-
þýðublaðsins vegna afskipta
flokksbrodda í Alþýðuflokknum
af leiðaraskrifum blaðsins. Þá
efndu þeir Vilmundur og Jón til
frægs fundar á Hótel Sögu út af Al-
þýðublaðsdeilunni í kjölfar yfir-
íýsinga Jóns um samstöðu með rit-
stjórninni og sjálfstæði hennar."
Þegar þetta var hafði Vilmund-
ur ritstýrt Alþýðublaðinu á meðan
Jón var í fríi.
„Húsfyllir var á fundinum og
mikil spenna í loftinu, þar sem bú-
ist var við meiriháttar uppgjöri
þessara tveggja manna við for-
ystu flokksins," segir þessi sami
maður. „Vilmundur og Jón sátu
saman við hliðina á ræðupúltinu
og Vilmundur vissi ekki betur en
að þeir Jón Baldvin myndu tala
sömu tungu í samræmi við mörg
símtöl, sem þeir höfðu átt saman.
I upphafi máls Jóns Baldvins var
ekki að heyra annað en hann
stæði með Vilmundi og ritstjórn
Alþýðublaðsins, en skyndilega
sneri Jón blaðinu við og fór að tala
gegn Vilmundi og félögum. í þess-
ari ræðu stakk Jón rýtingi í bak
Vilmundar og tók afstöðu með
flokksforystunni gegn Vilmundi.
Hann var að búa í haginn fyrir
framtíðina," segir þessi viðmæl-
andi Helgarpóstsins um þetta mál.
„Hann talaði þvert ofan í það, sem
hann hafði áður sagt við Vil-
mund."
Margir telja, að með þessu hafi
Jón Baldvin rutt brautina fyrir
„Nýju landi", vikublaði Vilmund-
ar, og stofnun Bandalags jafnaðar-
manna. í raun hafi það verið Jón
Baldvin, sem hafi leikið Alþýðu-
flokkinn grátt með því að verða
óbeint valdur að stofnun BJ.
„Ákafi Jóns við að hreinsa sig af
kommastimplinum hefur líka ver-
ið með svo miklum ofsa að hann
hefur, að því er sumum finnst,
sveiflast alla leið yfir. Margir al-
þýðuflokksmenn eru á því að
hann eigi betur heima í Sjálfstæð-
isflokknum," segir einn krati.
„Hann er of mikill aðdáandi
óhefts frelsis á öllum sviðum. En
ef marka má orð hans á lands-
fundinum stendur það kannski til
bóta hjá honum," segir Guðmund-
ur Árni. „Jón meinti ekkert með
þessu róttæka vinstrahjali sínu á
landsfundinum," segir krati úr
verkalýðsarmi flokksins og heldur
áfram: „Þetta var bara sjónarspil
hjá honum til að afla sér fylgis.
Þessar fréttir eftir landsfundinn
um að Jón væri að færa flokkinn
langt til vinstri voru ágætur
brandari í mesta lagi. Raunveru-
legar skoðanir hans segja allt ann-
að, og nægir þar að líta á skrif
hans í Alþýðublaðið. Þar skrifaði
hann mjög neikvætt um verka-
lýðshreyfinguna, jafnvel með lít-
ilsvirðingartóni um marga verka-
lýðssinna í flokknum. Steininn tók
þó úr þegar hann var farinn að
hampa VSÍ og gerði því hærra
undir höfði í blaðinu en ASl. Við
þetta mynduðust skörp skil í
flokknum. Allt var þetta með þess-
um leiðinlega tóni Jóns; ég einn
veit." Ragnar Arnalds segir:
„Okkur hérna á þinginu kom nú
þessi yfirlýsing Jóns eftir for-
mannskjörið um róttæka vinstri-
stefnu mjög á óvart, og flestir
brostu nú út í annað, enda maður-
inn vel hægrisinnaður í þingstörf-
um sínum." Magnús Reynir frá
ísafirði: „Þessi eindregna vinstri-
stefna af hálfu Jóns kom mér mjög
á óvart. Það lá við að hann biðlaði
til komma. Ég þekki Jón að öðru.
Hann er mikill andstæðingur
kommanna, hefur skömm á
stefnu þeirra og allt að því fyrirlítur
hana. í mínum huga er hann
kommahatari og verður það
áfram."
Ireynd hafa alltaf tvö sjónar-
mið verið uppi í Alþýðu-
flokknum að því er snertir
aðra flokka á vinstri vængnum.
Annað þeirra er að finna öllum
jafnaðarmönnum sameiginlegan
farveg, jafnvel með einhverskon-
ar samstarfi við Alþýðubandalag,
Harkaleg lending er
dálítið Jónsleg.
Háflugið næstu vikur
gæti endað með krassi,
svo mikill skorpumaður
sem hann er.
Sjálfur seaist hann
hafa farið beinlínis í
þjóðhagfræði til að
mennta sig til
forsætisráðherra.
hitt að halda áfram kapphlaupinu
við kommana í stað þess að reyna
að ná sáttum. „Með formennsku
Jóns hefur síðarnefnda sjónarmið-
ið orðið ofan á. Það á að halda
áfram að rífa augun hver úr öðr-
um, þó að lífssjónarmiðin séu svo
til hin sömu," segir einn svekktur
landsfundarmaður.
Menn eru sammála um að Jón
hafi unnið flokksþingið með
mælskunni og þeim sannfæring-
arkrafti sem hann hefur alltaf búið
yfir. „Hann er maður móments-
ins, stemmningarinnar, og getur
sagt rétta hluti á réttum stöðum.
Hann er tækifærissinni andartaks-
ins," segir einn ungkrati og heldur
áfram, „Jón verður í háflugi
næstu vikur, en það gæti endað
með krassi. Harkaleg lending er
dálítið Jónsleg."
Magnús Reynir Guðmundsson
segir: „Jón er rosalegur skorpu-
maður. Hann vinnur sólarhring-
um saman með lægðum á milli.
Það sem ég óttast er að hann hafi
ekki þrek til að endast í for-
mennskunni, svo mikill ákafa-
maður til verka sem hann er.“
Geir Gunnlaugsson, gjaldkeri
krata: „Jón má passa sig. Hann
vinnur ekki heiminn í einni svip-
an. Hann einn er ekki Alþýðu-
flokkurinn og verður að ná því að
geta haldið aftur af sér." Jóhanna
Sigurðardóttir, varaformaður
flokksins: „Það má vera að Jón
þurfi að tileinka sér meira þá
kúnst að vinna med fólki og taka
ákvarðanir í samráði við þá sem
það eiga að gera saman." Árni
Gunnarsson, ritari flokksins: „Jón
er leitandi eldhugi, feikilega þrek-
mikill, orator par excellance og ef
það er eitthvað sem hann þarf að
gæta sín á þá er það þetta: Missa
ekki jarðsambandið, vera ekki of
fljótur að taka ákvarðanir og sýna
biðlund á meðan aðrir melta það
sem hann hefur melt. Ef hann nær
tökum á þessari tillitssemi, held ég
að hann verði farsæll foringi."
egar Jón Baldvin Hanni-
balsson kemur heim á
Vesturgötuna að loknu
stjórnmálavafstri dagsins sest
hann niður með bók og les lengi.
Hann reynir alltaf að taka það ró-
lega heima og gætir þess að taka
ekki vinnuna með heim. Þó stenst
hann oft ekki mátið þegar vel er
farið að nátta. Tíminn milli tólf og
fjögur á nóttunni er hans óskatími
til ræðuskrifa, „einnig sem það
kemur fyrir," segir Bryndís
Schram, „að hann dreymir hrein-
lega ræðurnar. Hann er svo mass-
ívur pólitíkus." Vel fer líka um
hann í mannfögnuði. Hann er
mikill sögumaður og kann þá list
að ýkja, „en þó hann sé mjög ræð-
inn, þá kann hann líka að hlusta,"
segir Bryndís og botnar þetta
svona: „Hann hefur alveg óbil-
andi sjálfstraust á öllum sviðum
nema því sem lýtur að heimils-
rekstri. Ég held að hann hafi mál-
að hérna einu sinni."
\
EXTRA
TILBOÐ
Okkar verð Útsölu- verð
Lambasvið 64.40 74.95
SS sviðasulta 99.00 145.00
Lambahamborgarhr. útb. 339.00 489.00
Lambahamborgarhr. m/b. 199.00 245.00
Londoniamb 249.00 291.60
Hangilæri m/b 229.00 279.00
Hangilæri útb. 329.00 438.00
MS skafís 1/1 I 60.90 84.00
MS skafís 2 I 108.00 149.00
Kaaberkaffi Ríó 1/4 kg 31.25 35.60
Kaaberkaffi Ríó 1/1 kg 118.75 135.35
Kaaberkaffi Diletto 1/4 kg 33.75 38.45
Kaaberkaffi Diletto 1/1 kg 128.25 146.20
Kaaberkaffi Kolombia 1/4 kg 36.25 41.30
Kex Homeblest 25.80 31.00
Kex Maryland 17.25 20.70
Mónu hjúpsúkkulaði 63.95 80.00
Basets lakkrískonfekt 225 g 33.20 41.25
Aldin jarðarberjargr. 1/1 38.90 48.90
Aldin eplagrautur 1/1 35.80 45.00
Aldin ribsberjagrautur 1/1 32.20 40.50
Aldin jarðarberjagrautur 1/4 20.65 25.95
Aldin eplagrautur 1/4 19.10 24.00
Aldin ribsberjagr. 1/4 17.30 21.75
Topp appelsínusafi 1/1 I 43.95 55.35
Topp appelsínusafi sykursn. 1/1 I 64.80 81.45
Sveppir heilir 1/2 ds. 58.90 74.10
Sveppir skornir 1/2 ds. 58.90 74.10
Aspas 1/2 ds. 58.90 74.30
Del Monte ananas 1/1 ds. 76.40 94.50
Del Monte ananas 1/2 ds. 49.95 60.50
Western Pride ananas 1/1 ds. 59.95 76.95
Tkaipine ananasbitar 3/4 ds. 46.80 55.55
Cosas appelsínur 35.90 54.00
Frigg Þvol 1/2 I 21.95 28.40
Frigg fva 550 gr. 29.95 38.45
Frigg íva 3 kg 117.95 150.25
Miel þvottalögur 1 I 23.30 29.70
Wasa þvottaefni 2 kg 87.40 111.40
Wasa þvottamýkir 2 I 52.90 67.45
K-pizza stór 110.00 132.00
K-pizza lítil 93.00 112.00
Opið til kl. 7 á fimmtudagskvöld
Optð til kl. 8 á föstudagskvöld
OpÍð til kl. 4 á laugardag
KJÖTMIÐSTÖÐIN Laugalæk 2.$. ^86511
HELGARPÓSTURINN 9