Helgarpósturinn - 24.01.1985, Qupperneq 2
FREJTAPOSTUR
Tillögur forsætisráöherra um stjórnaraðgerðir
Forsætisráðherra lagði undirhúningstillögur um aðgerð-
ir i efnahagsmálum fyrir stjórnarþingmenn á miðvikudag í
sl. viku. Morgunblaðið hefur birt nokkra kafla úr tillögun-
um, sem áttu að vera trúnaðarmál. Olli þessi leki nokkurri
úlfúð en á þriðjudag voru mótaðar tillögur lagðar fram þar
sem m.a. er gert ráð fyrir rekstrarafgangi í ríkisrekstri á ár-
inu, ásamt verulegri endurskoðun á skattakerfinu. Að sögn
forsætisráðherra er gert ráð fyrir að heildarskattbyrði muni
fara minnkandi á næstu árum. Auk þessa er gerð tillaga um
að mörkuð verði stefna til að draga úr ríkisumsvifum.
Olíufélögin vilja verðhækkanir
Olíufélögin hafa farið fram á 6% hækkun á bensíni, 16%
á gasolíu og 21% á svartoliu. Landssamband íslenskra út-
vegsmanna hefur farið þess á leit við ríkisstjórnina að hún
komi í veg fyrir svo miklar hækkanir þar sem þær muni
auka útgjöld fiskveiðiflotans um 370 milljónir kr. á þessu
ári. Ríkisstjórnin ræddi málið og að sögn forsætisráðherra
hefur hún verulegan skilning á sjónarmiðum útgerðarinn-
ar. Lagði hann áherslu á að allar álögur á olíu verði lagðar
niður og sé það mál í athugun. Líkur eru taldar á að Verð-
lagsráð muni fresta umfjöllun um hækkanabeiðnirnar.
Nýrnaveiki í laxi
Landbúnaðarráðherra hefur ákveðið að setja Laxeldis-
stöð ríkisins í Kollafirði i einangrun vegna nýrnaveiki sem
þar hefur fundist. í stöðinni eru nú 170 þús. gönguseiði og
um 500 þús. nýklakin seiði. Veikin hefur ekki enn fundist
í seiðunum en veruleg einkenni reyndust við rannsókn vera
í um 13% klakfisks sem slátrað var. Nýrnaveiki hefur einn-
ig fundist í eldislaxi í fiskeldisstöðinni Sjóeldi í Höfnum.
Fjárhagsáætlun Beykjavíkurborgar
Á föstudag fór fram fyrri umræða í borgarstjórn Reykja-
víkur um f járhagsáætlun fyrir líðandi ár. Staða borgarsjóðs
var betri í árslok á síðasta ári heldur en árið á undan. Heild-
arútgjöld skv. frumvarpinu nema 3.123 millj. króna, hækka
um 30,1%, og heildartekjur 3.125 milljónum, þ.e. 30,2% frá
1984. Að sögn borgarstjóra sameinar áætlunin öflugan
framkvæmdavilja og hófsemi í álagningu. Fjárhagur borg-
arinnar hefur styrkst og segja andstæðingar meirihlutans
að það stafi af því að tekjur borgarinnar hafi fylgt almennri
verðlagsþróun meðan laun hafa að mestu staðið í stað.
íslendingum fjölgaði 1984
Mannfjöldi á íslandi var 240.122 samkvæmt bráðabirgða-
tölum Hagstofu íslands frá 1. des. sl. Fjölgun á einu ári nem-
ur 0,94% sem er minni fjölgun en hefur verið árin þar á
undan.
Breytingar á kjarnfóðurgjaldi
Um síðustu áramót urðu þær breytingar á kjarnfóður-
gjaldi að það var lækkað úr um 100% í um 60% til hefðbund-
inna búgreina en hækkað til aukabúgreina úr 33% í 60%.
Deilur hafa sprottið með stjórnarliðum vegna þessa. Land-
búnaðarráðherra telur breytingarnar byggja á misskilningi
og er greinargerð um málið væntanleg innan tíðar.
íþróttir
Á sunnudag var nýi gervigrasvöllurinn í Laugardal vígður
þegar Luton Town sigraði Reykjavíkurúrvalið í knatt-
spyrnu 3-1.
Fréttamolar
• Ólafur Ragnar Grímsson varaþingmaður hlaut friðar-
verðlaun í háskólanum í Ottawa í nóv. sl. Var þetta fyrst
kunngert í fjölmiðlum í sl. viku. Voru verðlaunin veitt fyrir
merkasta framlagið í afvopnunarmálum á síðasta ári.
• Skeljungur hf. og Olíuverslunin hf. hafa í sameiningu
keypt olíuskip til landsins, Kyndil, til að annast strand-
flutninga á olíu. Skipið kostaði 123 milljónir.
• Iðnaðarráðherra hefur ákveðið að framlengja námaleyfi
Kísilíðjunnar við Mývatn um 15 ár í andstöðu við tillögu
Náttúruverndarráðs um að leyfið verði aðeins framlengt um
5 ár.
• Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins hefur boðað til lands-
fundar í apríl.
• Enn hefur kviknað mikil andstaða við fyrirhugaða rat-
sjárstöðvastaðsetningu á Vestfjörðum og Norðurlandi
eystra.
• Lagt hefur verið til á vettvangi Reykjavíkurborgar að
fresta áður fyrirhugaðri friðlýsingu Elliðaárdals.
• Stefnt er að því að leggja Sædýrasafnið í Hafnarfirði nið-
ur.
• 500 ólögleg myndbönd frá 9 myndbandaleigum á höfuð-
borgarsvæðinu hafa verið tekin úr umferð á vegum Samtaka
rétthafa myndbanda á íslandi.
• Hópur manna var handtekinn á ísafirði um helgina eftir
mikla fíkniefnaveislu.
• Einar örn Stefánsson fréttamaður útvarps hefur verið
ráðinn sjónvarpsfréttamaður til eins árs.
• Kaupmenn hafa lagst gegn hugmyndum um að leggja við-
skiptaráðuneytið níður.
• Halldór Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, telur
það vera brot á samkomulagi stjórnarflokkanna ef Búseti
fær lán úr Byggingarsjóði verkamanna.
• Nefnd sjávarútvegsaðila, sem hefur kynnt sér möguleika
á nýtingu fiskveíðiheimilda íslendinga í lögsögu Bandaríkj-
anna, hefur lagt til að stofnað verði undirbúningsfélag sem
hafi það að markmiðl að taka þátt í sjávarútvegi i Bandaríkj-
unum.
• Verkfall undirmanna á kaupskipaflotanum hefur verið
boðað um mánaðamót hafi samningar ekki tekist fyrir þann
tíma.
;v:::
Auður góða Eddu Heiðrúnar
★ „Nei, ég er sko ekki hrædd
við að ég fái á mig einhvern
„heimskrar-ljósku-stimpil," segir
Edda Heiðrún Backman, sem
leikur Auði, sætu, einföldu og
Ijóshærðu stelpuna í Litlu hryll-
ingsbúðinni.
„Ég hef vanist því að leika
Dúkkulísuleikhús
★ Þau ánægjulegu tíðindi
berast úr Norræna húsinu að
þar megi í framtíðinni eiga von
á að brúðuleikhús verði starf-
rækt. Fyrir skömmu festi
Norræna húsið kaup á brúðu-
leikhúsi sem er ekki eins og við
höfum átt að venjast (þ.e. með
strengbrúðum) heldur er frekar
hægt að tala um „dúkkulísu-
leikhús" þar eð brúðurnar eru
klipptar úr pappír. Þeim er engu
að síður stjórnað eins og
strengbrúðum. Tvær 12 ára
danskar stelpur hafa verið
fengnar til að toga í spottana á
sunnudaginn kemur en þá
verður sýndur Jeppi á Fjalli eftir
Holberg sem Norræna húsið
hefur minnst að undanförnu
með ýmsum hætti. Danskir
leikarar, Svalegangen Teater, Ijá
ólík hlutverk. Núna leik ég t.d.
líka í Þjóðleikhúsinu, stelpu í
Milli skinns og hörunds, sem er
mjög ólík Auði, er með báða
fætur á jörðinni, vel menntuð
o.s.frv. Og ég vil halda áfram að
leika svona ólík hlutverk." Edda
Heiðrún vill greinilega ekki láta
steypa sig í ákveðið mót. Ekki
verður annað sagt en að þetta
hafi tekist með ágætum hingað
til. Hún er nú 27 ára.
Gagnrýnendur og aðrir áhorf-
endur Litlu hryllingsbúðarinnar
hafa verið innilega sammála um
að Edda Heiðrún sé stjarna sýn-
ingarinnar í stílmikilli túlkun
sinni á Auði. Og svo syngur hún
eins og hún hafi aldrei gert
annað. „Þetta var skemmtilegt
hlutverk að vinna og líka erfitt.
Svona stíliseraður karakitúr er
síður en svo einfaldari í túlkun
en „venjulegt" hlutverk. Þetta
er skrautlegt hlutverk, marg-
breytilegt, í því eru margar
ýktar hliðar. Ég breyti röddinni,
hreyfingum. . .átti í erfiðleikum
með þetta, en það hafðist, held
ég."
Edda Heiðrún segist hafa
skoðað og pælt í heimskum
kvikmyndaljóskum fyrri tíma
fyrir þetta hlutverk, Marilyn
Monroe, Jayne Mansfield, o.fl.,
og komist að skemmtilegri
niðurstöðu.
„Auður er ekki eins og þær.
Hún er góð stelpa en hlutverk
hinna voru oft af hinu vonda.
Þær léku „sexy dumb blondes"
sem komust langt á fegurðinni.
Auður hefur hins vegar fallegt
hjarta, sem því miður skilar
henni skammt áleiðis í lífs-
baráttunni."
Það er semsagt ekkert
flagð undir fögru skinni Auðar.fý
persónum raddir en flutningur-
inn er af snældu. Starfsmenn
Norræna hússins tjáðu okkur
að leikhúsið hafi verið keypt að
frumkvæði danska sendikennar-
ans við Háskólann, Usu
Schmalensee sem einkum
hefur borið hitann og þungann
af leikhúsinu.
Litla fólkið okkar hefur
sannarlega ástæðu til að kætast
yfir þessari nýjung, „dúkkulísu-
leikhúsinu", enda þótt flutn-
ingur verksins verði á dönsku;
börnin skipta sér ekki af landa-
mærum málanna; sjón er sögu
ríkari. Sjónleikurinn verður eins
og fyrr segir, á sunnudaginn
kemur og hefst kl. 14.-s!r
2 HELGARPÓSTURINN