Helgarpósturinn - 24.01.1985, Síða 5

Helgarpósturinn - 24.01.1985, Síða 5
verið fastur punktur í kaffihúsa- menningu Reykjavíkur í áratugi. Nú stendur hins vegar til að leggja nið- ur kaffihúsið Hressó og breyta því í vínveitingastað. Eru fyrirhugaðar miklar breytingar á öllum rekstri og verður öllu starfsfólki sagt upp frá og með 1. febrúar. KFUM/KFUK sem eru eignaraðilar að Hressingar- skálanum hafa verið mótfallin því að breyta staðnum í vínveitingahús en ólíklegt þykir að þeirra sjónar- mið verði ofan á og því mega borg- arbúar búast við að nú sé hver síð- astur að drekka kaffisopann sinn á Hressó. . . ^\^^iklar sviptingar hafa ver- ið í veitingabransanum í Reykjavík, ekki síst með tilkomu allra hinna nýju bjórkráa. Nú hyggst eigandi Naustsins, Ómar Hallsson, breyta nýrri álmu Naustsins, Geirsbúðinni, í bjórkrá, loka hana af og opna inn- gang á húsið að austanverðu. Verð- ur áhugavert að fylgjast með því hvar næstu bjárkrá ber niður í borg- inni... Tryggingafélögin eru í mikilli samkeppni og verður rekstur þeirra sífellt erfiðari enda markaðurinn lítill en félögin mörg. Það sem hefur hrjáð félögin eru einkum slæmar innheimtur, aukinn kostnaður við rekstur og slæm skuldastaða er- lendis. Er nú svo komið að fróðir menn í bransanum telja að aðeins stóru félögin á borð við Brunabót, Tryggingamiðstöðina, Sjóvá og Samvinnutryggingar muni lifa sam- keppnina af en tímaspursmál hvenær hin leggi upp laupana. .. lslendingar eru félagsverur eða einna heldur félagaverur. Nýjasta fé- lagið sem við heyrðum að hafi verið stofnað er Félag leiklistarfræðinga. Var það formlega stofnað 18. febrú- ar sl. og var Sveinn Einarsson kos- inn formaður, Hrafn Gunnlaugs- son ritari og Sigurður Pálsson gjaldkeri. Var talsverður hópur leik- listarfræðinga samankominn á þessum stofnfundi en nú munu fé- lagsmenn vera að svipast í gríð og erg eftir fleiri leiklistarfræðingum til að styrkja félagið. .. N ..... að velta því fyrir sér hver verði næsti borgarbókavörður eftir að Elfa Björk Gunnarsdóttir var gerð að framkvæmdastjóra útvarps- ins. Að vísu er hún í ársleyfi frá störf- um, en fæstir gera ráð fyrir því, að hún komi aftur í Borgarbókasafnið. Innanbúðarfólk segir okkur, að eng- in nöfn hafi komið upp í samræðum manna. Hins vegar hafi pólitískir fulltrúar nefnt einhverja einstakl- inga á fundum, en fráfarandi borg- arbókavörður hafi „forðað hugsan- legum slysum", eins og það var orð- að. Annars er á það bent jafnframt, að næsti borgarbókavörður verði tæpast öfundsverður, því Borgar- bókasafnið hafi verið í þvílíku fjár- svelti sl. tvö árin, að elstu menn muni ekki annað eins. .. liandsfundur Sjálfstæðisflokks- ins verður haldinn í vor eins og fram hefur komið í fréttum. Er nú fullljóst að sjálfstæðismenn hyggjast „sverfa til stáls", eins og formaður þeirra lét hafa eftir sér í blöðunum nýlega. Er það deginum ljósara að ekki kalla menn saman landsfund Sjálfstæðis- flokksins í vor til að halda tölur og flytja þakkarávörp heldur liggur fyr- ir fundinum að leggja drög að stjórnarslitum. Er því allt útlit fyrir að efnt verði til nýrra alþingiskosn- inga í haust. Margir sjálfstæðismenn bíða spenntir eftir því hvernig nýja útvarpslagafrumvarpinu reiðir af í þinginu og meta stuðning sinn við núverandi ríkisstjórn í ljósi þess. Ef útvarpslagafrumvarpið hefur ekki verið afgreitt í vor mun mikill meiri- hluti sjálfstæðismanna endanlega gefast upp á stjórnarsamstarfi Sjálf- stæðisflokksins við Framsóknar- flokkinn. .. Tveir þættir vikulega HELGARPÓSTURINN 5

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.