Helgarpósturinn - 24.01.1985, Side 8

Helgarpósturinn - 24.01.1985, Side 8
 Tafla 1 ALLT LANDIÐ Fjöldi Hlutfall Hlutfall atkvæða þeirra sam tóku afstööu Alþýðuflokkur 63 8.5 15.3 Framsóknarflokkur 79 9.9 17.8 Bandalag jafnaðarmanna 24 3.0 5.4 Sjálfstæðisflokkur 176 22.0 39.7 Alþýðubandalag 66 8.3 14.9 Samtök um kvennalista 29 3.6 6.5 Flokkur mannsins 1 0.1 0.2 Óákveðnirtetla ekki aö kjósa eða skila auðu 257 32.1 Vdja ekki svara 100 12.5 800 100.0 99.8 « > • V . « , . j, . —. ■ ■ • ‘ * - • - - — • - - •• • • e*- „ • a - Tafla II Fjöldi þingmanna í hlutfalli við heildaratkvæðamagn skv. könnuninni með hliðsjón af núverandi skiptingu og einnig miðaö við að þingmenn sóu 63 talsins. Núverandi Skipting þing- Skipting þing- skipting sœta miöað við sæta miðaö við 60 þingmenn. Skoðanakönnun 63 þingmenn 19. og 20. jan. Alþýðuflokkur 6 9 10 Framsóknarflokkur 14 11 11 Bandalag jafnaðarmanna 4 3 4 Sjálfstæðisflokkur 23 24 25 Alþýðubandalag 10 9 9 Samtök um kvennalista 3 4 4 60 60 63 Tafla III Reykjavík Hlutfall Hlutfall þeirra sem tóku afstöðu Alþýðuflokkur 7.0 14.1 Framsóknarflokkur 3.0 6.0 Bandalag jafnaðarmanna 4.3 8.7 Sjálfstæðisflokkur 21.3 43.0 Alþýðubandalag 8.3 16.8 Samtök um kvennalista 5.3 10.7 Flokkur mannsins 0.3 0.7 Óákveðnirþetla ekki að kjósa eða skila auðu 37.3 Vilja ekki svara 13.0 99.8 100.0 Tafla IV Reykjanes Hlutfall Hlutfall þeirra sem tóku afstöðu Alþýöuflokkur 10.0 18.7 Framsóknarflokkur 3.0 5.6 Bandalag jafnaðarmanna 3.5 6.5 Sjálfstæðisflokkur 25.0 46.7 Alþýðubandalag 7.0 13.1 Samtök um kvennalista 5.0 9.3 Flokkur mannsins 0.0 0.0 Óákveðnirtetla ekki aö kjósa eöa skila auðu 32.0 Vilja ekki svara 14.5 100.0 99.9 Tafla V Staða ríkisstjórnarinnar Fjöldi Hlutfall Hlutfall atkvæða þeirra sem tóku afstöðu Styðja ríkisstjórnina 261 32.6 46.0 Styðja ekki ríkisstjórnina 306 38.3 54.0 Óákveðnir 133 16.6 Neita að svara 100 12.5 800 100.0 100.0 Um síðustu helgi var gerð skoðanakönnun, sem beindist að tveim mikilvægum þáttum ís- lenskra stjórnmála, þ.e. fylgi stjórnmálaflokkanna og stöðu rík- isstjórnarinnar. SKÁÍS — Skoð- anakannanir á fslándi sáu um könnunina, eins og fyrri kannanir s^n\ þirst hafa í Helgarpóstinum frá því 1982. Hringt var i 800 ein- staklinga, 18..ára og eldri, -með jafnri skiptingu milii kynja skv. töhruúrtaki sem unnið var eftir skrá Landsímans um símnotendur (einkasíma). Spurt v«u, í fyrsta Iagi: Ef kosid yrdi til Alþingis í dag, hvaöa flokk eöa samtök mundiröu kjósa? Og í öðru iagi: Styöur þú eöa stydOtþú ekki ríkisstjórnina? Á meðfylgjandi töflum má sjá mikilvægustu niðurstöður þessar- ar könnunar. Á töflu I má sjá heild- arskiptingu úrtaksins fyrir allt landið. Samkvæmt venju er sér- staklega gerð grein fyrir þeim sem eru óákveðnir, segjast ekki ætla að kjósa eða segjast ætla að skila auðu. Þessi hópur er nú 32,1%. Þá er einnig gerð grein fyrir þeim hópi, sem alls ekki vill svara og er mikilvægt að honum sé haldið að- skildum frá hinum fyrri. í þessum hópi eru nú 12,5%. Ef ofangreindum tveim hópum er sleppt og einungis tekið mið af þeim sem taka afstöðu má gera samanburð við niðurstöður síð- ustu alþingiskosninga. Þá er einn- ig fróðlegt að gera samanburð við Skoðanakannanir sem gerðar hafa verið allt frá því fyrir kosningar. Ef einungis er miðað við heild- -arhlutfall atkvæða mi reikna út fjölda þingmanna. Við sh'kan tít— reikning er þó mikilvægt að hafa t huga mismunandi vægi einstakra kjördæma og reglur um skiptingu uppbótarþingsæta. Á töflu II er gerður samanburður á fjölda þing- manna skv. núverandi skiptingu og fjölda þingmanna miðað við niðurstöður könnunarinnar, þ.e. þá sem tóku afstöðu. Fram kemur að Alþýðuflokkurinn er í verulegri sókn og er þessi uppgangur flokksins enn meiri ef litið er á skoðanakannanir sem gerðar hafa verið frá því eftir kosningar. Staða Bandalags jafnaðar- manna og Samtaka um kvenna- lista verður ekki skýrð nema með því að líta sérstaklega á Reykjavík og Reykjaneskjördæmi en í könn- uninni kemur fram að þessir flokk- ar eiga fylgi sitt nær eingöngu í þessum tveim fjölmennustu kjör- dæmum landsins. Þetta kemur nánar fram í töflu III og IV. Að því er varðar núverandi stöðu ríkisstjórnarinnar er ljóst að hún nýtur ekki mikils stuðnings landsmanna. £f Jitið er Á oiður- stöðurnar 1 heild kemur í Ijós að einungis 32,6% landsmanna styðja ríkisstjóinina, 38,3% styðja • hana^kki ðg"t6,6%\ríljá ekkieða treysta sér ekki til að tjá afstöðu sína til ríkisstjórnarinnar, og 12,5% neita að svara. Ef litið er einungis á þá, sem taka afgerandi afstöðu með eða á móti ríkis- stjórninni, kemur í Ijós að 54% styðja ekki ríkisstjórnina en 46% styðja hana. Niðurstöður könnun- arinnar leiða í ljós, eins og við mátti búast, að stuðningsmenn stjórnarandstöðuflokkanna styðja heldur ekki ríkisstjórnina. Hins vegar kemur í ljós að allverulegur hópur þeirra sem styðja Sjálfstæð- isflokkinn styðja ekki ríkisstjórn- ina en stuðningsmenn Framsókn- arflokksins standa yfirleitt með stjórninni. SKÁÍS/BJ. Svavar Gestsson, formaður Alþýðubandalagsins: Stjórninfrá og efnt verði til kosninga Svavar Gestsson, formaður Al- þýðubandalagsins, sagðist út af fyrir sig telja útkomu flokks síns lága (14,9% yfir landið), „en hún bendir þó til þess, að við eigum að hafa möguleika á því að verða í kosningum í kringum 20% eftir snarpa kosningabaráttu sem við erum vön að heyja," sagði Svavar. „Reynslan sýnir, að við erum yf- irleitt heldur lægri í skoðanakönn- unum heldur en í kosningum. Það sem vekur athygli í þessu er fylgis- aukning Alþýðuflokksins. En ég minni á, að fylgi Vilmundar heit- ins Gylfasonar, sem menn bera gjarnan saman við þessa herferð Jóns Baldvins Hannibalssonar, var mun meira á sínum tíma. Ég tel að þetta fylgi nú sé toppur hjá Al- þýðuflokknum en botn hjá Al- þýðubandalaginu. Mér sýnist, að fylgisaukning Alþýðuflokksins, samkvæmt þessari skoðanakönn- un, sé fyrst og fremst á kostnað Bandalags jafnaðarmanna og Samtaka um kvennalista. Fylgis- aukning Alþýðuflokksins virðist snerta fylgi Alþýðubandalagsins og Framsóknar mjög lítið, Sjálf- stæðisflokksins eitthvað, en þó minna en maður átti von á. Könnunin sýnir að ríkisstjórnin er óvinsæl, og það er náttúrlega ekkert annað fyrir hana að gera en að biðjast lausnar, og þegar það kemur svo í ljós, að forystuflokkur stjórnarinnar, Framsóknarflokk- urinn, er minnsti flokkurinn í tveimur fjölmennustu kjördæm- um landsins, þá ættu menn nú að geta dregið af því þann lærdóm að það sé affarasælast fyrir þjóðina að slík stjórn segi af sér. Það er augljóst mál, að stjórn undir slíkri forystu getur ekki end- urspeglað vilja kjósenda í kjör- dæmum landsins í neinu jafnvægi. Samkvæmt þessari skoðanakönn- un ætti að efna til kosninga," sagði Svavar Gestsson. Friðrik Sophusson, varaformaður Sjálfstæðisflokksins: Það hefur heldur slegið í bakseglin „Það vekur athygli í þessari könnun, eins og svo mörgum öðr- um, hve margir eru óákveðnir og hve margir vilja ekki svara. Einnig er það athyglisvert að stjórnar- flokkarnir hafa samanlagt talsvert meira fylgi en ríkisstjórnin. Það segir sína sögu,“ sagði Friðrik Sophusson, varaformaður Sjálf- stæðisflokksins. „Þá virðist Alþýðubandalagið, sem er stærsti stjórnarandstöðu- flokkurinn, tapa fylgi til Kvenna- listans, sem hefur verið í mikilli samkeppni við Alþýðubandalagið. Þótt útkoman í þessari könnun sé síður en svo afleit er okkur sjálf- stæðismönnum ljóst að heldur hefur slegið í bakseglin um sinn. Við höfum ákveðið að halda landsfund í apríl. Á honum gefst tækifæri að endurmeta stöðuna og þétta fylkingar. Ég er bjartsýnn og trúi á vaxandi byr Sjálfstæðis- flokksins á næstunni." — Hvaða skýringu gefur þú á því að heldur hafi slegið í baksegl- in, eins og þú orðar það? „Skýringin er auðvitað sú, að okkur hrakti nokkuð af leið eftir að hafa náð gífurlegum árangri með því að taka verðbólguna nið- ur úr 130% í um það bil 15%. Þá þurftum við að ganga að kjara- samningum sem hafa leitt tii nýrr- ar verðbólguöldu. Hún verður auðvitað að líða yfir, en hún gerir það vonandi á mjög stuttum tíma.“ — Ef þessi könnun endurspeglar raunveruleikann, telur þú þá að þið þyrftuð að endurmeta stjórn- arsamstarfið? „Kosningar eru veruleiki, könn- un er bara könnun, þannig að þessar tölur hafa engin áhrif á stjórnarsamstarfið," sagði Friðrik Sophusson, varaformaður Sjálf- stæðisflokksins. 8 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.