Helgarpósturinn - 24.01.1985, Síða 23

Helgarpósturinn - 24.01.1985, Síða 23
BRIDGE eftir Friðrik Dungal Bridgekeppni aldarinnar Síðari grein Peter Weichsel sótti mig næsta dag og ók mér til Hilton-hótelsins. Hann var vongóður. Sannfærður um að við mundum vinna. Hann taldi í mig kjarkinn og ég varð nýr og vonbetri maður. Þennan seinni dag vorum við í okkar fínustu fötum. Það getur verið að andstæðingar okkar hafi litið á okkur sem einhverja aum- ingja daginn áður, en nú sáu þeir að við gátum líka verið fínir. Hefði ég deginum áður ekki séð hvernig hendur Forquets titruðu, hefði ég haldið að þeir hefðu ekkert tauga- kerfi. „Vondur dagur í gær, Alan,“ sagði Forquet við mig þegar hann sá mig. „Buona fortuna í dag.“ Lancia-sveitin breytti hjá sér. Nú spilaði Garozzo við Forquet. Báðir salir voru þéttsetnir af áhorfend- um. Forquet og Garozzo spiluðu við okkur Peter og sátu norður og suð- ur. Þeir sögðu sex spaða þar sem möguleikarnir voru aðeins 45%. Til þess að vinna spilið þurftu svín- urnar að liggja rétt og tromplegan varð að vera eins góð og æskilegt var. Hvorttveggja var þeim í hag. Spennan eykst Loftræstingin var í fullum gangi. Það var kalt í herberginu, en samt lak svitinn af mér. Ég stóð upp, gekk út að glugganum og velti því fyrir mér hvort ég ætti að hoppa út um gluggann eða leggjast á bæn. Við vorum í hvínandi vandræð- um. Ég vissi að Granovetter og Rubin myndu ekki segja sex spaða. Árangurinn var 39 Impar niður og tuttugu og níu spil áttum við eftir að spila. Forquet og Gar- ozzo brostu. Það gerði Ed Whele líka og kættist yfir því að þurfa ekki að afhenda Lancia-bílana. Ég kom aftur að borðinu og horfði á Peter. í augum hans var ekkert vonleysi. Þau voru þrungin af hörku. „Pass,“ sagði Garozzo og vildi flýta fyrir sögnum. „Eitt grand," sagði Peter. Röddin var há og skýr, en kuldaleg. Sagnir enduðu á því að við sögðum fjóra spaða. Við hefðum unnið sögnina á móti öll- um öðrum en Forquet og Garozzo. Vörn þeirra var meistaraleg. Byrj- endum er kennt að gefa andstæð- ingunum aldrei færi á að trompa eða kasta af sér. Forquet og Gar- ozzo gáfu mér tvisvar slík tæki- færi og veiktu þarmeð trompstöðu mína. Svo spiluðu þeir þannig að það varð hrein ágiskun hjá mér hvar tíguldrottningin var. Venjulega spila ég afar hratt, en nú hugsaði ég mig um í tíu mínút- ur hvar drottningin væri. Ef ágisk- un mín var röng, tapaði ég spilinu, en á hinu borðinu myndi það vinn- ast, því Rubin og Granovetter gætu ekki spilað svona magnaða vörn. Þannig voru spilin: Garozzo S 5-3 H Á-7-6-5-2 T D-9-8-2 LD-5 Sontag Weichsel S K-9-7-4-2 S Á-G-6 H 9-3 H D-G T K-G T Á-10-5-4-3 Forquet 'SD-10-8 H K-10-8-4 T 7-6 L G-8-4-3 Austur og vestur í hættu. Sagnir: vestur norður austur suður 2 tíglar pass 1 grand pass 3 spaðar pass 3 tíglar pass pass pass 4 spaðar pass pass Opnun Peters á einu grandi sýndi 13—15 punkta og jafna skipt- ingu. Tveir tíglar hjá mér merktu Þegar ,,bláa sveitirí‘ meö Omar Sharif í broddi fylkingar spilaöi viö bandarísku meistarana voru fimm bifreiöir í pottinum. að ég hefði áhuga á úttekt í ein- hverjum li.t. Þrír tíglar Peters neit- uðu að hann ætti fjórlit í spaða eða hjarta, en ætti minnst fimmlit í tígli. Þrír spaðar sýndu að ég ætti fimmlit þar og bæði hann um að fara í úttekt þar ef hann gæti, eða segja þrjú grönd ætti hann aðeins tvo spaða. Garozzo lét hjartatvist- inn. Hugmyndaríkt útspil. Forquet tók slaginn með kóngi og lét hjartafjarkann sem Garozzo tók með ás. Og hann hélt áfram með hjarta, sem ég trompaði í blindum og henti sjálfur laufi. Lítið lauf úr borði, sem ég tók með ásnum. Spilaði trompi og svínaði gosan- um, sem Forquet tók með drottn- ingu. Hann lét aftur hjarta sem ég trompaði. Svo kom tígull sem ég tók á kónginn og tók síðan síðasta trompið. Nú átti ég að spila frá eig- in hendi og þetta voru spilin sem eftir voru: Garozzo S- H - T D-9-8 L D Sontag borðið S 7 S- H - H - T G T Á-10-5 L 10-7 L K Forquet S- H - T 7 L G-8-4 Ég varð að fá alla slagina til þess að vinna spilið. Ég lét tígulgosann. Garozzo var ofurrólegur eins og •venjulega, lét áttuna. Nú stóð ég á krossgötum. Átti ég að láta gos- ann flakka upp á það að Garozzo ætti drottninguna, eða átti ég að taka á ásinn og trompa síðan tígul- fimmið með síðasta trompinu? Tæki ég seinni kostinn varð drottning að vera blönk hjá Forqu- et og síðan kæmist ég inn í borðið á laufakóng til þess að taka á tíuna. Ég hugsaði mig um í tíu min- útur. Þá lét ég gosann flakka í þeirri von að Garozzo ætti drottn- inguna. Hann hafði hafið vörnina einkennilega og spilamennska hans fannst mér benda til þess að daman væri hjá honum. Það var mikill hugarléttir þegar í ljós kom að ég hafði spilað rétt. Lancia- sveitin vann auðveldlega sína fjóra spaða því þar var útkoman tígull, sem auðveldaði spilaranum að vinna spilið. Við unnum enga Impa á spilinu, en það var ekki minna virði að við töpuðum engu. Andstædingarnir reidilegir Nú fór keppnin hægt og sígandi að snúast okkur í hag. Ég varð bjartsýnni með hverjum vinningi. í þriðja spili unnum við f jóra Impa. í því fjórða unnum við þrjá. Mun- urinn var orðinn minni. Lancia hafði lækkað úr 39 Impum í 32. Þetta voru að sjálfsögðu engin ósköp, en ég fann að við vorum að komast í betra form, höfðum meira sjálfstraust og vorum farnir að spila hraðar. Vorum semsagt að komast í eðlilegt form. í fimmta spili unnum við 6 Impa, svo nú var munurinn 26 Impar. Næstu sex spil voru jöfn. I sjöunda spili græddum við tvo, svo nú var mun- urinn orðinn 24. Mér þótti vænt um áttunda spilið. Þannig voru sagnir: Forquet: Einn spaði. Sontag: Þrjú lauf (veikt kall). Garozzo: Þrír spaðar. Weichsel: Fjögur lauf. Forquet: Fjórir spaðar. Sontag: Fimm lauf. Ég fór í fimm lauf í þeirri trú að þetta væri ódýr fórn gegn fjórum spöðum í hættunni. Ég var viss um að þeir myndu vinna þá. Það var rangt hjá mér. Þeir gátu aldrei unnið fjóra spaða. Og aftur var ályktun mín röng. Það vorum nefnilega við sem unnum fimm lauf. Ellefu Impar þar, svo munur- inn var kominn niður í þrettán. Ég glotti yfir öxl mína á Ed Whele og hann var agndofa með munninn galopinn. Nú var komið að Lancia-sveitinni að standa upp og ganga að glugganum sér til hressingar. Enga Impa unnum við í niunda spili. Við unnum tvo Impa í síðasta spilinu, þegar Belladonna fór tvo niður í þrem spöðum, en Peter, sem spilaði sama spilið hjá okkur, fór aðeins einn niður. Síðdegisspilamennskunni var lokið. Við vorum 11 Impum neðar en bláa sveitin og nú átti að spila tuttugu spil til úrslita um kvöldið. Garozzo kom til mín og sagði: „Þú spilaðir mjög vel.“ „Farðu þá vel með okkur í kvöld,“ sagði ég. „Nei, það ert þú sem átt að fara vel með okkur.“ Við félagarnir fórum á japansk- an matsölustað, en ég hafði enga matarlyst. Einhverju smávegis þrælaði ég ofan í mig en fór svo út að ganga. Sjálfstraust mitt var ekki sem best og ekki bætti það úr að Peter og Nancy kona hans lentu í ein- hverju hjónarifrildi. Nancy er fyrsta flokks bridgespilari og segja mætti mér að hún sé besti kven- kynsbackgammonleikari heims. Hún var líka kapteinn í liði okkar. En „innanríkis" erjur þeirra hjóna nennti ég ekki að hlusta á og fór. Ég fór að hugsa um hvernig kvöld- ið yrði. Við Peter mundum senni- lega lenda í lokaða herberginu og spila við Belladonna og Garozzo. Það myndi henta Peter vel, því þá vorum við á skerminum og allir gátu fylgst með okkur. Peter myndi njóta þes að allir gætu séð hann og fylgst með honum. Fyrra kvöldið ákváðum við hverjir ættu að vera andstæðingar okkar, svo nú var ákvörðunarrétturinn þeirra. Persónulega var ég sann- færður um að við myndum lenda á móti Garozzo og Belladonna. Garozzo hafði orðið svo gramur yfir hve lengi þeir Rubin og Grano- vetter voru að spila, að hann krafðist þess af keppnisstjórninni að eitthvað væri gert til þess að fyrirbyggja slíkt. Því myndi hann krefjast þess að spila við Peter og mig. Þess utan myndi Lancia-sveit- in hafa sínar ástæður til þess að láta sína bestu menn spila gegn okkur Peter. Það voru þvílík ó- grynni af áhorfendum að ég þurfti að skáskjóta mér til þess að kom- ast í sæti mitt. Meðal áhorfenda sá ég ótal fræga bridgespilara. Þarna var Sam Staymann og A1 Roth, svo einhverjir séu nefndir og voru þeir umkringdir af aðdáendum sínum. Einnig milljónamæringurinn kín- verski C.C. Wei, sá sem fann upp Precisions-kerfið, ásamt konu sinni Kathy, sem er sérlega aðlað- andi og lifandi kona. Margir áhorf- endur höfðu farið heim fyrra kvöldið þegar okkur gekk svona illa. En núna, þegar við vorum að- eins ellefu Impum lægri, voru sal- irnir alveg þéttskipaðir af fólki, svo að það var hrein martröð. Lee du Pont var viðstödd alla keppnina. Hún var þarna til þess að hvetja Garozzo vin sinn. Ágiskun mín var rétt. Andstæð- ingar okkar voru Belladonna og Garozzo, sem venjulega var við- mótsþýður og elskulegur maður í allri framkomu, en var nú reiðileg- ur á svipinn og allt að því rudda- legur. Belladonna var eins og stór, ergilegur bangsi. Það væri synd að segja að þeir hafi verið aðlað- andi. Mesta bridgekeppni ævinnar Mér var það ljóst að við vorum að hefja þá bridgekeppni sem yrði sú mesta í lífi okkar. Svo var ég enn hálfgramur yfir því að Peter þurfti endilega að fara að rífast við konuna sína. Mér var það ljóst, að framkoma andstæðinganna var til þess ætluð að hræða okkur Peter, en mér var algjörlega sama. Ég var staðráðinn í að gera mitt besta. Síminn hringdi. Okkur var til- kynnt að sjónvarpstækið væri komið í lag og að við ættum að koma strax og hefja spilamennsk- una. Að tveim spilum loknum var staðan sú sama. Bláa sveitin hafði ennþá 11 Impa forskot. í öðru spil- inu sögðum við Peter sex grönd. Við þurftum á einni svínu að halda í tígli. Hún brást. Einn niður. Forquet og Sharif sögðu líka sex grönd. Það fór eins fyrir þeim. í þriðja spili sögðum við Peter fjög- ur hjörtu og unnum þau. Þar unn- um við tíu Impa. Þannig var spilið: vestur norður austur suður Garozzo Weichsel Bella- donna Sontag pass pass pass 1 hjarta pass 3 hjörtu pass 4 hjörtu pass pass pass í hinu herberginu gengu sagnir þannig: vestur norður austur suður Rubin Forquet Granov Sharif etter pass pass pass 1 hjarta 2 tíglar 3 tíglar dobl 4 hjörtu pass pass pass Bæði liðin buðu semsagt fjögur hjörtu, en við Peter unnum okkar sögn en Forquet og Sharif fóru einn niður. Þannig voru spilin: Weichsel SÁ-G H 8-7-5-2 T 5-4 LK-6 Garozzo S 6-3 H K T K-10-7-6-3-2 L Á-10-8-4 Belladonna S D-9-4-2 H D-9-3 TD-8 L G-7-5-3 Sontag SK-5 H Á-G-l 0-6-4 T Á-G-9 L D-9-2 Við okkar borð sögðu Garozzo og Belladonna aldrei neitt. Gar- ozzo hafði því engar upplýsingar og vildi ekki spila út frá sínum há- spilum. Valdi að láta út spaða. Ég tapaði þessum auðsæju þrem slög- um, þ.e. einu laufi, einum tigli og einu hjarta og vann 420. Við hitt borðið varð hin djarfa sögn Rubins, tveir tiglar, til þess að spilið tapaðist. Út kom lítill tígull, sem var eina spilið sem gat hnekkt sögninni. Þegar Granovetter dobl- aði þrjá tígla, vissi Rubin hverju hann átti að spila. Eftir þrjú spil var staðan sú, að við vorum einum Impa lægri en andstæðingarnir. Þá var það eftir- tektarvert, að Belladonna var far- inn að tala við sjálfan sig á ítölsku. Svitabað Allt gekk ágætlega hjá okkur Peter gegn Belladonna og Gar- ozzo, en Rubin og Granovetter urðu miður sín gegn Forquet og Sharif. Hið andlega álag varð þeim um megn, svo að Granovett- er gaf Rubin rangt svar samkvæmt kerfi þeirra og enduðu þeir í fjór- um hjörtum, þar sem hálfslemma var á borðinu og Belladonna og Garozzo hirtu. Við vorum 22 lmpum undir þeg- ar sjö spil voru eftir. Mér fannst allt vonlaust fyrir okkur. Þess utan bil- aði loftkælingin svo að hitinn varð lítt bærilegur. Reykskýin héngu yfir spilaborðinu. Garozzo var meira að segja farinn úr jakkanum og búinn að losa um hálsbindið. Belladonna þurrkaði svitann af sér með silkiklút. Hann var í svita- baði. Ekki einn einasti áhorfandi hafði farið, þrátt fyrir þessar öm- urlegu aðstæður. Við tókum af þeim 47 Impa í þessum síðustu sjö spilum. Þetta var ekkert lítilræði, því við verð- um að muna að þrír af andstæð- ingunum voru úr bláu sveitinni. Rubin og Granovetter voru þrungnir af orrustuhörku þessi síðustu spil og létu engan bilbug á sér finna. Það sem skeði var eftir- farandi: Belladonna og Garozzo sögðu sex spaða, sem voru algjör- lega vonlausir og fóru einn niður. Þar fengum við þrettán Impa. Nú voru þeir níu Impum hærri. Forqu- et og Sharif sögðu vonlaus þrjú grönd og fóru einn niður. Þar feng- um við fimm Impa og þá voru þeir fjórum Impum fyrir ofan okkur. Belladonna og Garozzo sögðu þrjá tígla, en áttu þrjú grönd. Plús tíu Impar fyrir okkur sem vorum nú sex Impum hærri en þeir. Peter og ég unnum þrjú hjörtu og Rubin og Granovetter, sem spiluðu á hin spilin, unnu þrjá spaða. Þar komu sjö Impar fyrir okkur. Nú vorum við þrettán Impum hærri. Að lok- um sögðu Rubin og Granovetter hálfslemmu i laufi og unnu hana. Þar komu tólf Impar fyrir okkur, svo nú vorum það við sem vorum tuttugu og fimm Impum hærri. Það var í næstsíðasta spilinu sem •ég var viss um að við værum búnir að vinna. Þá sló Belladonna af al- efli hnefanum í borðið og augna- tillit hans var ekki beint vinsam- legt. Hann var svo óvanur að bíða lægri hlut. Lancia-sveitin óskaði okkur hjartanlega til hamingju að lok- inni spilamennsku. Fjórir Ameríkanar ásamt Gar- ozzo, Forquet og Lee du Pont fengu sér drykk á barnum í Hilton- hótelinu. Belladonna og Sharif sáust ekki. Um það bil mánuði seinna, þeg- ar verðlaunahátíðin fór fram, var Sharif að grínast með það að hann væri fyrsti maður í Bandaríkjun- um sem hefði spilað sem meðlim- ur Lancia-sveitarinnar. Við fengum fáein glös eftir þessa athöfn, en svo fórum við Kathy á •annan góðan stað og fengum okk- ur fínan mat með góðu rauðvíni. Það var dásamlegt. Síðan fórum við á skemmtilegan dansstað. „Er eitthvað að,“ spurði Kathy. „Hvað er að þér?“ „Ég er að rembast við að reikna út hvernig hægt sé að skipta fimm bílum á milli fjögurra manna." HELGARPÓSTURINN 23

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.