Helgarpósturinn - 14.02.1985, Side 2

Helgarpósturinn - 14.02.1985, Side 2
FREJTAPOSTUR Efnahagsráðstafanir ríkisstjórnarinnar kynntar Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra og Albert Guðmundsson fjármálaráðherra kynntu s.l. föstudag þær ráðstafanir sem ríkisstjórnin hefur ákveðið í efnahagsmál- um. Þar er m.a. gert ráð fyrir að erlendar lántökur á árinu verða minnkaðar um einn milljarð og það verði gert með því að draga úr erlendum lántökum opinherra aðila s.s. Lands- virkjunar. Sparnaði og hagræðingu verði haldið áfram til að hæta stöðu ríkissjóðs. Varið verði 150—200 milljónum af nýbyggingarfé lánsfjáráætlunar til húsbyggjenda og íbúða- kaupenda sem eru í greiðsluerfiðleikum. Og sérstakri ráð- gjafarþjónustu verði komið á fót hjá Húsnæðisstofnun. í kynningunni er sérstök áhersla lögð á að samráð verði haft við aðila vinnumarkaðarins um ýmsar aðgerðir í stað beinna launahækkana í framtíðinni. Sérstakt átak verði gert í baráttunni gegn skattsvikum, stefnt verði að fækkún viðskiptabanka, o.fl. atriði eru i þessari stefnumörkun, en frekari áform um framkvæmdir hafa ekki verið kynnt, þótt forsætisráðherra segist hafa í höndum ákveðnar tillögur í 25 liðum sem ræddar verði í rikisstjórninni innan skamms. Báðstafanir stjórnarinnar gagnrýndar Efnahagsráðstafanir ríkisstjórnarinnar hafa hlotið harða gagnrýni. Bent er á að engar tillögur sé að finna varð- andi vanda sjávarútvegsins. Ráðstafanirnar séu ekkert annað en almennt orðaðar hugleiðingar um mikilvæg mark- mið, engra nýrra tekna só aflað til húsnæðismála og jafnvel er bent á í leiðara Morgunblaðsins að tillögurnar séu rýrar og í engu samræmi við þann boðskap sem forsætisráðherra flutti þjóðinni í nýársávarpi sínu. Hagfræðingur VSÍ segir að þær nægi ekki til að koma í veg fyrir það þensluástand sem blasi við í sumar. Kjaradeilur sjófarenda Verkfalli undirmanna á kaupskipum var aflétt um helg- ina, eftir að fjármálaráðherra gaf loforð um 10% skattafrá- drátt farmanna. Skrifleg atkvæðagreiðsla um sáttatillög- una, sem hljóðar uppá sömu launahækkanir og ASÍ-VSÍ sömdu um, auk H% álags, stendur nú yfir. Talið er að smám saman sé að þokast í átt til samninga í sjómannadeilunni sem stendur enn yfir. Fjölmörg félög innan Sjómannasam- bandsins hafa þó boðað til verkfalls á sunnudag. Eramkvæmdir hefjast við K-byggingu Landspítalans Á þriðjudag tók heilbrigðisráðherra fyrstu skóflustung- una að nýrri byggingu á Landspítalalóðinni. Alls er áætlað að þessi svokallaða K-bygging verði 7.600 fermetrar, þar sem gert er ráð fyrir krabbameinsdeild, deild fyrir dauð- hreinsun, skurðdeild og gjörgæslu. Norskt styrkjakerfi rýrir íslensk lífskjör Sjávarútvegsráðherra lýsti því yfir í vikunni að styrkir til sjávarútvegs i Noregi skiptu miklu fyrir hagsmuni íslend- inga. Þeir ættu m.a. sinn þátt í rýrnandi lífskjörum hér á landi. Margir þingmenn urðu til að taka undir þetta og er talið víst að málið verði tekið upp á þingi Norðurlandaráðs í næsta mánuði. Norski sjávarútvegsráðherrann segir að gagnrýni íslendinga sé byggð á misskilningi, þar sem þessir styrkir hafi engin áhrif á markaðsverð sjávarafurða. Fjöldi lækna segir upp störfum Um 100 heilsugæslu- og heimilislæknar af öllu landinu hafa afhent stjórnvöldum uppsagnir sem taka gildi eftir þrjá mánuði, hafi ekki náðst samningar í kjaradeilu þeirra og ríkisins. Meginkrafa lækna er að fá samræmingu á kjör- um allra lækna í landinu. Stórviðburður í skáklífinu Skáksamband íslands heldur upp á sextugsafmæli sitt með skákmóti sem nú stendur yfir á Hótel Loftleiðum. 12 skákmenn taka þátt í mótinu, og þar á meðal eru nokkrir er- lendir skákrisar, s.s. Artúr Júsúpov, Boris Spassky, Vlastimil Hort og Bent Larsen. Fréttapunktar • Samtök myndbandaleiga hafa mótmælt ummælum Pét- urs Sigurðsson alþingismanns um að stórfelld söluskatts- svik og önnur lögbrot sóu stunduð á myndbandaleigum hér- lendis. • Lyfjainnflutningsfyrirtækið G. Ólafsson hf. ætlar að hefja framleiðslu á frjósemishormóni úr merarblóði fyrir spendýr í apríl næstkomandi. Markaður fyrir framleiðsl- una er tryggður í þrjú ár. • Nokkrir þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa gert harð- ar athugasemdir við frumvarp til lánsfjárlaga á Alþingi. Telja þeir það vera ómarktækt vegna efnahagsráðstafana ríkisstjórnarinnar og kref jast þess að það verði endurskoð- að og lagt fram að nýju. • Kristínu Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra Alþýðu- flokksins og formanni Sambands Alþýðuflokkskvenna, hef- ur verið sagt upp störfum. Tillaga formanns um það efni var samþykkt á framkvæmdastjórnarfundi í vikunni. • Könnun Hagstofunnar hefur leitt i ljós að 52% munur er á heildarlaunagreiðslum háskólamanna hjá ríkinu annars vegar og f. hinum almenna vinnumarkaði hins vegar. • Kaupl.'i -:fnd hefur reiknað út vísitölu framfærslu- kostnaðar v.. óað við verðlag í febrúarbyrjun. Hækkun frá því í nóvember er 13,14%. íþróttir Ólympíumeistarar Júgóslavíu í handknattleik sigruðu íslenska landsliöið naumlega með eins marks mun, 23:22, í Laugardalshöllinni s.l. þriðjudagskvöld. Bæði liðin áttu mjög góðan leik og gera menn sér góðar vonir um þá tvo leiki sem eftir eru milli liðanna. Grímur og leikbrúður á la francaise ★ Einstök listasmíð við Lauga- Dominique Poulin hefur fengið Más að Laugavegi 34b (inn af veg! Franska listakonan inni á keramíkverkstæði Reynis verslun Reynis, í skúr, í bakhúsi, gengið inn sund) með smíðar sínar. Dominique mótar grímur og leikbrúður (maríonettur), fyrst úr leir, síðan úr pappír og málar, m.a. samkvæmt óskum kaupenda. Þú lýsir fyrir henni karakter og kenndum og hún vinnur út frá því. Og að sjálf- sögðu er hver gripur einstæður. Verð ótrúlega hagstætt. Dominique hefur reyndar þegar sett svip sinn á nokkrar íslenskar leiksýningar, hún gerði t.d. grímurnar í Grænfjöðrung sem Nemendaleikhúsið sýndi á liðnu hausti.-ú Fjölbreytt útgáfuþjónusta ★ Þessi mynd er ekki tekin á skrifstofu kattavinafélagsins, heldur Þuríðar Baxter sem rekur Útgáfuþjónustuna að Laugavegi 42. Hún tekur að sér allt hvað nöfnum tjáir að nefna varðandi útgáfustarfsemi, svo sem eins og að þýða og semja lengri eða styttri texta. Þuríður semur t.d. auglýsingatexta og bæklinga, og þýðir skáldverk, les yfir,betrumbætir handrit, annast hvers kyns bréfaskriftir og ritvinnslu á nýju tölvuna sína. Stefnir auk þess að eigin útgáfu. Á bréfsefni Út- gáfuþjónustunnar er norn ríðandi á kústskapti og á skrif- stofunni eru tveir kettir, Castro og Ugla. Ýmislegt bendir því til þess að Þuríður sé fjölkunnug, þótt hún þvertaki fyrir slíkt.Á Hárgreiðslu- og rakarastofa á heimsmælikvarða! ARpKgifflM Síðumúla 23. Tímapantanir sími 687960. 2 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.