Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 14.02.1985, Qupperneq 8

Helgarpósturinn - 14.02.1985, Qupperneq 8
HP greinir nánar frá ólöglegu fasteignasölunum LEPPAR RRU ÞEIR Helgarpósturinn staðhæfði í síð- asta biaði, að í Reykjavík og ná- grenni væru starfandi 27 fasteigna- sölur, sem væru reknar á fölskum forsendum. Aðferðin sem notuð er felst í því sem kallað er leppun. Leppun er það fyrirbæri þegar við- skiptafræðingur, lögfræðingur eða löggiltur fasteignasali iætur skrifa sig fyrir rekstri fasteignasöiu án þess að koma að öðru leyti nálægt rekstri hennar. Yfirleitt hafa þessir menn aðsetur annars staðar en sjálf fasteignasalan er til heimilis og í slíkum tilvikum velkist enginn í vafa um hvað er á seyði. Á hinn bóginn eru örfá tilfelli, þar sem lögmaður hefur aðsetur í sama húsi og fasteignasalan eða jafnvel á sömu hæð. Þá vandast málið. Lepp- ar viðkomandi fyrir fasteignasöluna með því að skipta sér ekkert af rekstri, upplýsingamiðlun og viðtöi- um við kaupendur og seljendur o.s.frv,? Fer hann einungis yfir samninga en lætur aðra um að semja þá? Er viðkomandi einungis á staðnum til þess að uppfylla ákvæði laga um, að löggiltur aðili standi fyr- ir fasteignasölunni, en stundar að öðru leyti önnur störf, þótt á sama stað sé? Þessum atriðum var gefinn sér- stakur gaumur, þegar HP birti grein sína um óiögiega fasteignasala. Þrátt fyrir hringingar og hótanir um málssókn og bráðskrýtna aug- lýsingu frá Almennu fasteignasöi- unni, Laugavegi 18, í Morgunblað- inu þriðjudaginn 12. febrúar, þar sem greinarhöfundur HP er kallað- ur rógberi o.s.frv., þá hefur niður- staða athugunar okkar ekki breyzt. Helgarpósturinn stendur viö þá stadhœíingu sína, að í Reykjavík séu reknar 27 ólöglegar fasteignasölur. Aö auki höfum við sterkan grun um, að í þennan hóp mœtti bœta þremur fasteignasölum og eru þœr þá orðn- ar 30 talsins eða tveimur fleiri en eru í Félagi fasteignasala. Við dróg- um úr fremur en hitt. Hvað er „staður”? Kjarni málsins er þessi: í lögum um fasteignasölu segir í 9. grein, að „leyfi til fasteignasöiu er bundið við nafn og veitir leyfishafa rétt til þess að kalla sig fasteigna- sala.“ í 3. grein sömu laga segir, að „þeir, sem hafa fengið leyfi til fast- eignasölu. . . skulu hafa opna skrifstofu á þeim stað er leyfið er veitt.“ Hafþór Ingi Jónsson, hdl., framkvæmdastjóri Lögmannafélags íslands var skrifaður fyrir fasteigna- sölu hér í bæ þar til í fyrra á sama tíma og hann gegndi núverandi starfi. Hann ritar grein í Morgun- blaðið í gær, þar sem hann gerir m.a. orðið „staður" að umræðuefni og vill skilja það þannig, að löggjaf- inn hafi átt við lögsagnarumdæmi. Ef litið er í Alþingistíðindi frá 1938 segir í athugasemd við ofangreinda 3. grein núgildandi laga: „Ákvæði þetta er sett til þess að tryggja það, að þeir, er falið hafa fasteignasala fasteign til sölu, eigi jafnan greiðan aðgang að umboðs- manni sínum, ef á þarf að halda. Er ætlazt til að lögreglustjóri haldi skrá yfir heimilisfang skrifstofa, eða fylg- ist með því á annan hátt. Þetta ákvæði verður ekki skilið á annan veg en þann, að átt sé við skrifstofuna sjálfa og markmið laga- greinarinnar sé, að skrifstofan sé á sama stað og fasteignasalan. Undir þessa túlkun tekur Þórður S. Gunnarsson hrl. sem hefur unn- ið sérstaka álitsgerð um þessi mál. Hann segir: „í samræmi við megintilgang 1. 47/1938 verður skrifstofan eða starfsstöðin að vera á sama stað og skrifstofa fasteignasölunnar. Með því að athuga málfarslega notkun orðsins „staður" er nán- ast út í hött að halda því fram að átt sé við lögsagnarumdæmi. „Hann býr á þessum stað" eða „Hann starfar á þessum stað“ þýðir ekki að hann búi eða starfi í þessu lögsagnarumdæmi, heldur t.d. búi á staðnum Reykjavík eða starfi í Húsi verzlunarinnar. Þá má t.d. benda á að Hafnar- fjarðarbær og Seltjarnarnes eru tveir staðir, en í sama lögsagnarum- dæminu. Síðan segir Þórður um margþætt- ar starfsskyidur fasteignasalans.og er vert að gefa þessum atriðum gaum í ljósi leppunarvandamálsins: Fasteignasalar eiga að stunda fasteignasölu! „Hann verður að hafa umsjón og eftirlit með þeim fasteignaviðskipt- um er fyrirtækið annast, vera til við- tals fyrir viðskiptamenn, stjórna upplýsingaöflun og upplýsingamiðl- un, yfirfara samninga og önnur skjöl. Ég vil í þessu sambandi undir- strika að í íslenskum lögum er engin heimild fyrir víðtæku framsali fast- eignasala á starfsskyldum sínum í hendur aðstoðarmanna. Ég er hins vegar jafnframt þeirrar skoðunar að ekki sé laganauðsyn í því að fast- eignasali sé meðeigandi í fasteigna- sölufyrirtæki en vísa til þess er að framan greinir um tengsl fasteigna- sala og fasteignasölu." Með þessum orðum er Þórður Gunnarsson hæstaréttarlögmaður að benda á, að skyldur fasteignasala (leyfishafans), sem stundum er bara leppur úti í bæ eða á næstu skrif- stofu, séu víðtækari en svo, að þær séu einvörðungu fólgnar í því að ganga frá samningum og vera við- staddir löggerninga. Samandregið er Þórður að segja, að skráður fast- eignasali (lögmaður, viðskiptafræð- ingur eða löggiltur fasteignasali) eigi að stunda starf sitt og seija fast- eignir og vitanlega eigi viðskipta- vinir fasteignasölunnar að eiga greiðan aðgang að viðkomandi en ekki einhverjum sölumanni einung- is. Hér er rétt að tiifæra aðra máls- grein 6. greinar frumvarps til nýrra fasteignalaga: „Fasteignasala er skylt að tii- kynna dómsmálaráðuneyti, hvar starfsstöð hans sé, en hann getur að- eins haft eina starfsstöð." (undirstr. HP). Hér er tekið af skarið um það, að lögmenn geti ekki leppað fyrir fasteignasölur. Þeir verða að vera á staðnum, á skrifstofunni. Eins og Þórólfur Halldórsson, lög- fræðingur hjá Eignamiðluninni, bendir á í viðtali við HP í dag, er ábyrgð fasteignasala gríðarleg, þar sem þeir eru að höndla með aleigu fólks. Slíkt verður ekki gert með vinstri hendinni og neytendur verða að geta treyst fasteignasölum. Og það er einmitt þess vegna sem gerðar eru ákveðnar kröfur til þess að fasteignasala geti talizt lögmæt. í þessu sambandi nægir að vitna í greinargerðina, sem fylgdi núgild- andi lögum um fasteignasölu. Þar segir m.a.: „Hinsvegar eru samningar um kaup og sölu fasteigna, með tilliti til hinna miklu verðmæta, sem hér er um að ræða, einir hinir þýðingar- mestu, sem gerðir eru manna í milli hér á landi, og virðist því full ástæða fyrir löggjafann að láta sig það nokkru skipta, hverjir geri sér at- vinnu að því að gæta hagsmuna manna við þessa löggerninga." Af þessu er morgunljóst, að þing- menn á þessum árum hafa talið fulla ástæðu til þess að sjá svo um, að hver sem væri gæti ekki stundað þessi mikilvægu viðskipti. Enda seg- ir síðan í sömu greinargerð: „Fasteignasalar not- færa sér vanþekkingu aðilja“ „Hafa orðið nokkur brögð að því, einkum hin síðari ár, að fasteigna- salar hafa notað sér vanþekkingu aðilja við húsakaup til þess að hagn- ast á því sjálfir, eða aðstoðað annan aðilja á kostnað hins. Eru jafnvel dæmi til þess, að sæmilega efnaðir menn hafi misst aleigu sína fyrir til- stilli hinna svokölluðu fasteigna- sala.“ Nú á dögum er fólk mun öruggara í fasteignaviðskiptum en árið 1938, en samt skjóta alltaf upp kollinum dæmi um einstaklinga, sem hafa orðið illa úti í fasteignaviðskiptum. Eitt þeirra vandamála, sem upp hafa komið er sú leið manna að fara í kringum lögin og fá menn úti í bæ til að leppa fasteignasöluna. Sigga langar til að selja hús og til þess að geta gert það með löglegum hætti á yfirborðinu fær hann Jón vin sinn úr skóla til að leppa fyrirtækið, því Jón er nefnilega lögfræðingur. Síð- an fer Siggi að selja. Eftir hálft ár gefst hann upp á fyrirtækinu og þá geta kaupendur og seljendur legið í því. Þá vaknar spurningin um ábyrgð, sem ekki er alltaf jafnauð- svarað. Reynt aö setja undir lekann 1976 Leppunarvandinn hefur verið til umræðu hérlendis af og til mörg undanfarin ár, en lítið verið gert. Þó var reynt að leggja ríkari áherzlu á ábyrgð fasteignasala með lagabreyt- ingu árið 1976. Það ár sendi þáverandi fulltrúi Lögreglustjórans í Reykjavík, Pétur Kr. Hafstein sýslumaður, öllum fast- eignasölum í Reykjavík bréf dagsett 8. september 1976, þarsem vakin er athygli á eftirfarandi breytingu á fasteignalögunum: „Skyit er að geta þess í öllum skjölum varðandi fasteignakaup, svo sem kauptilboðum, kaupsamn- ingum, skuldabréfum og afsölum, hver hafi samið skjöl þessi, og skal geta nafns og nafnnúmers. Enn- fremur skulu þeir, sem fasteignavið- skipti annast, geta nafns síns í aug- lýsingum, eins þótt viðskiptin séu rekin í nafni skrásetts firma." Með þessari lagabreytingu er ver- ið að tryggja það, að í auglýsingum komi fram, að iöggiltur aðilji standi að fasteignasölunni. Þannig er aug- 8 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.