Helgarpósturinn - 14.02.1985, Page 10
BRÉF TIL RITSTJÓRNAR
Lög frumskógarins ríkja í sífellt
meira mæli meðal barnanna og
það við nefið á fullorðna fólkinu.
Það má ekki viðgangast. Það
verður að kenna börnunum að
umgangast hvert annað og taka
tillit til annarra. Foreldrar og
kennarar verða að horfast í augu
við það, að tilfinningar og líðan
barnsins koma ávallt í fyrsta
sæti.
Hugo Þórisson,
sálfræðingur.
Steingrímur,
Heimir og
tréveggurinn
Séra Heimir Steinsson, þjóðgarðs-
vörður á Þingvöllum, hafði sam-
band við blaðið varðandi trévegg
þann sem Steingrímur Hermanns-
son forsætisráðherra hefur reist á
opinberri lóð sumarbústaðs for-
sætisráðherra á Þingvöllum og sagt
var frá í síðasta tölublaði HP. Bústað-
ur Heimis er á næstu lóð við lóð for-
sætisráðherra og var sagt frá því í
klausunni að Heimi hafi ekki litist á
framkvæmdir forsætisráðherra og
ámálgað þær við sveitunga sína.
Heimir vill taka það fram að hann
hafi aldrei látið neitt frá sér fara um
mál þetta enda hafi hann ekkert við
umræddan trévegg að athuga.
-Ritstj.
LAUSN Á SKAKÞRAUT
A. Shinkman:
1. e8H Kxa5 2. a8R Kb5 3. He5 mát
Kc5 2. a8D Kd6 3. Dc6 mát
B. Brock
Við athugun kemur í Ijós að svartur er í leikþröng; eigi hann leik,
getur hvítur ávallt mátað í næsta leik. Þá er að koma því þannig fyrir
að hann eigi leik í þessari stöðu:
1. Kb7! Rd8+ 2. Kb8! Rc6+ 3. Ka8
Nú á svartur leik og verður að leika sig beint í mát.
Dóróthea
Magnúsdóttir
Torfi
Geirmundsson
Abyrgd
fulloröna
fólksins
í leikritinu Beisk tár Petru von
Kant, segir R.W. Fassbinder á
einum stað: „Ég held að maður-
inn sé þannig gerður, að hann
þarfnist annarrar manneskju. En
... honum hefur ekki lærst
hvernig á að lifa saman.“ Þessi
orð komu mér í hug, þegar ég las
Helgarpóstinn.
Það sem Hope Knútsson hafði
fram að færa um ofbeldi meðal
barna sannaði réttmæti þessara
orða Fassbinders.
Börnin hafa orðið fórnarlömb
„þróunar" og ég óttast að sífellt
verði erfiðara að kunna að lifa
saman.
En hvað hefur gerst? Hope
nefnir marga þætti sem máli
skipta og eru í meginatriðum
þeir, að við búum börnunum til-
veru, sem er ekki í samræmi við
þarfir þeirra.
Það er því ekki fyrst og fremst
við börnin að sakast, heldur full-
orðna fólkið. Ég vil þar með ekki
taka ábyrgðina af börnunum og
unglingunum, heldur leggja
áherslu á, að það þarf að vísa
þeim aðrar leiðir en þær sem
þau hafa „valið".
Margir telja það eflaust mjög
eðlilegan hlut að vcixa upp og
þroskast. Því miður er það ekki
svo. Það er ekkert eðlilegt við að
vera smalað saman með 25 jafn-
öldrum í eitt herbergi í 4—6 klst.
á dag. Það er ekkert eðlilegt að
vera á 40—80 mín. fresti drifin út
í nærri því hvaða veðri sem er
ásamt 500—800 öðrum börnum
og unglingum. Drifin út á leik-
völl, sem í hæsta lagi hefur leik-
tilboð fyrir 10—15% af hópnum.
Það er ekkert eðlilegt við að
alast upp sem barn og unglingur
í samfélagi, sem ekki hefur upp
á annað að bjóða en afgirt leik-
svæði með fjölþjóða leiktækj-
um.
Það mætti lengi telja það sem
hindrar eðlilegan uppvöxt barna
og unglinga. Þó hefur sú þróun,
sem átt hefur sér stað, eitt aðal-
einkenni, það er, að mannleg
samskipti hafa í vaxandi mæli
orðið undir. í staðinn koma til-
boð, sem höfða til einstaklings-
ins, svo sem videoleikir, tölvu-
leikir ýmiss konar, vasadiskó og
margs konar „einstefnu-fjöl-
miðlun. Þegar börnin kalla á at-
hygli, þá er þeim rétt einhver
tækninýjung. En það getur ekk-
ert komið í staðinn fyrir mann-
leg samskipti. Þörfin fyrir um-
hyggju og athygli er og verður til
staðar.
Þeir sem eiga börn og hafa
með börn að gera, verða að
horfast í augu við ábyrgð sína.
Drengurinn sat fyrir
Af gefnu tilefni skal það tekið
fram að drengurinn á ljósmyndinni
sem fylgdi greininni „Ofbeldi meðal
skólabarná', er birtist í síðasta tölu-
blaði HP, er greinaskrifunum með
öllu óviðkomandi og sat fyrir á
myndinni að beiðni blaðamanns og
ljósmyndara HP. -Ritstj.
Yfir 80 tegundir af hárkollum fyrir kvenfólk og mjög gott úrval af
toppum og hárkollum fyrir karlmenn. Fyrsta flokks vara á góðu verði.
UMBOÐSMENN: Jón Hjartarson, hárskeri, sími 2675, Akranesi.
Rakarastofa Sigvalda, Kaupangi, Akureyri. Sími 21898.
UPPLÝSINGASÍMI 17144
Laugavegi 24 - 2. hæð
HP
HELGARPÓSTURINN
Ritstjóri:
Ingólfur Margeirsson
Rítstjórnarf ulltrúi:
Hallgrímur Thorsteinsson
Blaðamenn: Jóhanna
Sveinsdóttir, Sigmundur Ernir
Rúnarsson og Halldór Halldórsson
Útlit: Elin Edda
Ljósmyndir: Jim Smart
Handrit og prófarkir:
Magnea Matthlasdóttir
Útgefandi: Goðgá h/f
Framkvaemdastjóri:
Hákon Hákonarson
Auglýsingar:
Steinþór Ólafsson
Innheimta:
Garðar Jensson
Afgreiðsla: Ásdls Bragadóttir
Ritstjórn og auglýsingar eru
að Ármúla 36, Reykjavlk, slmi
8-15-11. Afgreiðsla og skrifstofa
eru að Ármúla 36.
Sími 8-15-11
Setning og umbrot:
Leturval s/f
Prentun: Blaðaprent h/f
Nú er lag,
Jón!
í dag fjallar Helgarpósturinn
öðru sinni um löglegar og ólög-
legar fasteignasölur. í síðasta
blaði gerðum við glögga grein
fyrir því, að á höfuðborgar-
svæðinu væru a.m.k. 27 slíkar.
Þessar fasteignasölur eru
ólöglegar vegna þess, að þær
eru leppaðar, eins og það heitir.
Það þýðir, að eiginlegur eigandi
fasteignasölu er réttindalaus,
en aflar sér falskrar heimildar
með því að fá lánað nafn og í
sumum tilvikum þjónustu lög-
manna eða viðskiptafræðinga.
Þessir menn hafa réttindi til að
selja fasteignir samkvæmt lög-
um.
Hins vegar er um sjónarspil
að ræða, því nöfn þessara
manna eru notuð til yfirhylm-
ingar. Sjálfir sitja þeir í einhverj-
um öðrum störfum úti í bæ á
meðan réttindalaus sölumaður
rekur fasteignasöluna. Það er
svo ekki fyrr en loksins kemur
að því að ganga endanlega frá
kaupsamningi, sem lögmaður-
inn lítur við. Stundum ekki einu
sinni það.
HP hefur undanfarna viku
fengið það óþvegið hjá þeim
sem þykir að sér vegið. Það eru
eðlileg viðbrögð manna sem
vita upp á sig sökina. Þegar frá
líður munu þeir sjá að þeir hafa
verið að gera ranga hluti og lög-
mennirnir brotið gegn eigin
siðareglum.
Þegar sá tími kemur og and-
rúmsloftið hefur róazt, má bú-
ast við því að þeir taki sig sama-
n í andlitinu og fari að lögum.
En það, sem raunverulega
þarf að gerast, er að frumvarp
það til nýrra fasteignalaga, sem
lagt var fram á Alþingi í fyrra,
verði lagt fram núna næstu
daga og það afgreitt sem lög
frá Alþingi fyrir þinglausnir.
Tíminn fer að styttast.
Helgarpósturinn skorar á
Jón Helgason dómsmálaráð-
herra að taka af skarið í þessu
máli. Nú er lag. í fasteignavið-
skiptum er um að tefla milljarða
á ári hverju og það er ábyrgðar-
hluti að láta alls kyns svínarí
viðgangast ár eftir ár eftir ár.
Enda þótt HP hafi flokkað
fasteignasölurnar I löglegar og
ólöglegar, leggur blaðið engan
dóm á svörtu sauðina. Þeir eru
sjálfsagt til í báðum hópum.
Hins vegar er það mjög alvar-
legt mál, ef fasteignaviðskipti
verða látin ganga eftirlitslaust
fyrir sig, eins og verið hefur.
Neytandinn er varnarlaus í
þessum málum, eins og
ástandið er núna.
10 HELGARPÓSTURINN