Helgarpósturinn - 14.02.1985, Side 15

Helgarpósturinn - 14.02.1985, Side 15
MSTAPÓSTURINN Kristján Jóhannsson og Kristinn Sigmundsson leiða saman hesta sína í Þjóðleikhúsinu í haust í óperunni „Grímudansleikurinn“ eftir Giuseppe Verdi: „Kristinn Sigmundsson drepur mig á svidinu“ segir Kristján Jóhannsson í vidtali við HP Kristján Jóhanns- son: „Ég hlakka mjög til samstarfs- ins við Kristin. Hann er ekki bara einstaklega góður söngvari heldur einnig afbragðs manneskja." Fyrsta verkefni Þjódleikhússins á nœsta leikári verdur ein stœrsta og vinsœlasta ópera meistara Verdis, „Grímudansleikurinrí’. / þessari uppfœrslu leiba saman hesta sína tveir fremstu söngvarar íslands, þeir Kristján Jóhannsson ogKristinn Sig- mundsson, en þetta veröur í fyrsta skipti sem þeir syngja saman í óperu. Sveinn Einarsson hefur verið ráð- inn leikstjóri Grímudansleiksins og segir hann HP að þetta sé afar kraft- mikil og spennandi ópera sem krefj- ist mikils af hverjum þeim sem henni komi nærri: „Auk sjö mjög stórra hlutverka í sýningunni og margra veigaminni er að finna í þessu stykki mannmargan kór og ballett, þannig að í þessu tilviki verður sviðið nýtt til fullnustu”. Enn hefur ekki verið ráðið í öll helstu hlutverk þessarar viðamiklu sýningar, en sem fyrr segir er ör- uggt að þá Kristján og Kristin verð- ur að finna í henni á hausti kom- anda. Kristján Jóhannsson, sem að undanförnu hefur verið að syngja í mörgum frægum óperuuppfærslum í Bandaríkjunum, var staddur hér- lendis í vikunni til að ganga frá ráðningu sinni í þetta haustverk- efni. HP náði tali af honum suður á Keflavíkurflugvelli og spurði fyrst hvernig þessi sýning legðist í hann. „Yfirmáta vel. Ég vænti þess að þetta verði mjög gaman”, en svo bætti hann við:.....erfitt líka, því það hlutverk sem ég mun fara með í þessari óperu, krefst eiginlega af manni þriggja tíma stanslauss söngs í allt að fjórum mismunandi radd- tegundum. Hlutverkið krefst snöggra skiptinga úr gamni í alvöru, frá léttúð í hádrama. En engu að síður; Verdi, þetta er mitt uppá- haldsóperuskáld”. Kristján mun fara með aðalhlut- verk í Grímudansleiknum, Ricardo. Hann segist ekki vera alls ókunnur því hlutverki: „Ég er búinn að vera að syngja þetta hlutverk allt frá því síðasta haust í Opera Columbus í Ohio, auk þess sem ég hefi tekið þátt í fleiri uppfærslum á óperuverkum Verdis á undanförnum árum, svo sem Rigoletto og La Traviata”. Grímudansleikurinn eftir Verdi fjallar um líf og ástir Gústavs þriðja Svíakonungs, og í rauninni átti aðal- persóna verksins í upphafi að heita eftir honum, en ekki Ricardo. Nafn- inu var hinsvegar breytt vegna póli- tísks þrýstings því að ekki þótti hæfa að ýfa upp konungleg sár á svo áberandi hátt. Örlög Svíakonungs voru þau að hann féll fyrir hendi af- brýðisams manns. „Kristinn Sigmundsson verður í því hlutverki að drepa mig í lok hverrar sýningar í haust á sviðinu í Þjóðleikhúsinu”, segir Kristján Jó- hannsson og bætir við með sínum snaggaralega hlátri: „Ég vona bara að Kristni sé ekki eins illa við mig og þessari persónu, sem hann leikur, var illa við Ricardo”. — Hvernig helduröu annars aö þaö veröi aö syngja á móti Kristni? „Ég hlakka mjög til samstarfsins við Kristin. Hann er ekki bara ein- staklega góður söngvari heldur einnig afbragðs manneskja". — Hvaö er langt stöan þú söngst hér heima á óperusviöi, Kristján? „Það eru orðin fjögur á síðan ...” — Tíminn líöur hratt? „Já, tíminn líður alltof hratt... Annars hefur það lengi staðið til að ég syngi hér heima í óperu á allra síðustu misserum, en það hefur bara ekki gengið upp fyrr en nú. Já, það má segja að kominn sé tími á mig til að syngja á íslensku óperu- sviði. Ég er virkilega spenntur fyrir því og út af fyrir sig mjög æstur að komast á Þjóðleikhússviðið að syngja. Mér finnst ég finna mig inn- an veggja þessa virðulega húss, auk þess sem þetta er eiginlega eina húsið á landinu þar sem hægt er að setja upp óperu með einhverjum stæl.” — Þú ert aö stíga upp t flugvélina til Ameríku. Hvar lendiröu? „Leiðin liggur að þessu sinni til New Jersey þar sem ég fer að syngja í Cavalleria Rusticana eftir Mascagni. Eftir það fer ég svo til óperunnar í Houston að syngja í Rigoletto eftir Verdi, og loks til Tulsa í Oklahoma að syngja í Toscu eftir Puccini. Mótsöngvarinn minn þar verður ungverska sópransöngkon- an Silvia Sass, sem er talin ein af tíu til fimm fremstu söngkonum heims um þessar mundir. Það er mér mikill heiður og mikils virði að fá að syngja við hlið hennar. Hún er mér meiri söngmaður og að því leyti hlakka ég einna mest til samstarfs- ins.” — Áégaö s/etta frá sögninni „aö meikaöa” í lokin, Kristján? „Nei, vertu ekkert að því. Ekki þar fyrir að mér gangi eitthvað mið- ur vestra. Þvert á móti finnst mér ég vera í góðum upptakti. Mest er um vert að ég hef yfrið nóg að gera. Kannski það segi alla sög- una.” Grímudansleikurinn eftir Verdi hefur ekki verið settur upp hérlend- is áður. Hann verður fluttur á máli höfundarins, ítölsku. Æfingar hefj- ast í júní undir stjórn Sveins Einars- sonar. Kristján Jóhannsson er hins- vegar ekki laus fyrr en í september. Og kemur þá. -SER. Nickel Mountain frumsýnd í Bíóhöllinni: Sögusviðið skalf að loknum tökum Islensk/bandaríska kvikmyndin „Nickel Mountain” verður tekin til sýningar í Bíóhöilinni um helgina. Alls unnu um tíu íslendingar við gerð hennar á síðasta ári í og við smáþorpið Coalinga í Kaliforníu, en það stendur við rætur fjallsins sem myndin ber nafn sitt af. Skammt þar frá lést kvikmyndagoðið James Dean í bílslysi, en það er önnur saga. Jakob Magnússon er framleiðandi „Nickel Mountain” en meðal ann- arra Islendinga sem unnu við verkið má nefna Sigurjón Sighvatsson sem sá um alla eftirvinnslu þess. Kvik- myndatöku annaðist David Bridges, sá hinn sami og skaut „Með allt á hreinu", en leikstjóri er Drew Den- baum og skrifaði hann jafnframt handritið að myndinni, sem er unn- ið upp úr þekktri skáldsögu rithöf- undarins Johns Gardner. Gardner lést í mótorhjólaslysi meðan á töku þessarar myndar stóð, 55 ára gamall, en hann var meðal mest metnu skáldsagnahöfunda vestra í sínu lífi. Víkur þá sögunni að David nokkr- um Shanks, milljónera frá Okla- homa, hvers hagnaður er af tölvu- framleiðslu. Hann er maðurinn á bak við það að þessi kvikmynd var gerð. í slíku uppáhaldi hefur sagan af Nickel verið hjá honum um margra ára skeið, að hann afréð að spandera monný í eins og eina bíó- útgáfu af bókinni í hitteðfyrra. Og síðasta ár hófust svo tökur. Þeim lauk sem betur fer á tilskildum tíma, því á þeim stað þar sem megin- hluti þeirra fór fram, á barmi St. Andrewssprungunnar við Nickel fjall, varð snarpur jarðskjálfti aðeins fáeinum dögum eftir að kvikmynda- tökufólkið var búið að klára sig af. Skjálftinn lagði Coalinga í eyði, auk þess sem stórsá á minnismerkinu DV-myndasafn um James Dean sem stendur þar nærri. Enn er það önnur saga. Sagan sjálf um „Nickel Mountain” er ástarsaga sem fjallar um baráttu tveggja ólíkra manna um hylli einn- ar og sömu stúlkunnar sem er á sautjánda ári og ófrísk eftir annan þeirra. Sögusviðið er fjallabyggðin í Nickel fjalli, þar sem þeir efnuðustu búa efst en snauðustu neðst, en á þann hátt er skírskotað til hinnar pýramídísku skiptingar í samfélag- inu. Aðalleikarar myndarinnar eru bandarískir og má nefna Grace Zabrisky (An Officer and a Gentle- man), Michael Cole (þekktur úr bandarískum sjónvarpsþáttum), Patrick Cassidy (bróður Davids og Shawns), en stúlkuna á sautjánda ári leikur Heather Langenkamp og er þetta hennar fyrsta hlutverk í kvikmynd. -SER. HELGARPÖSTURINN 15

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.