Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 14.02.1985, Qupperneq 22

Helgarpósturinn - 14.02.1985, Qupperneq 22
'4 I HELGARDAGSKRÁIII Föstudagur 15. febrúar 19.15 Á döfinni. 19.25 Krakkarnir í hverfinu. 19.50 Fróttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veöur. 20.3P Áuglýsingar og dagskrá. 20.4060 ára afmælismót Skáksam- bands Islands. Skákskýringarþáttur. 20.56 Kastljós. Þáttur um innlend málefni. 21.25 ponrokk. 21.55 Njósnahnettir. Bresk heimildamynd •sem sýnir hvernig unnt er aö fylgjast með atburöum og mannvirkjum á jöröinni frá gervihnöttum stórveld- anna í himingeimnum. 22.30 Þrjár konur fá bréf. (A letter to Three Wives). Bandarísk gamanmynd frá 1949. s/h. Leikstjóri Joseph L. Mankiewicz. Aöalhlutverk: Jeanne Crain, Ann Southern, Linda Darnell og. Kirk Douglas. Þrjár konur í sama smá- bæ fá dularfullt bréf frá þokkadís staö- arins sem segist vera farin úr bænum fyrir fullt og allt ásamt eiginmanni einnar þeirra. Konurnar finna allar viö nánari athugun einhverja brotalöm á hjónabandinu og verða á nálum um eiginmenn sína. 00.10 Fróttir í dagskrárlok. Laugardagur 16. febrúar 14.45 Enska knattspyrnan. York City og Liverpool. Bein útsending frá 14.55 — 16.45. 17.20 Iþróttir. 19.25 Ævintýri H. C. Andersens. 2. Litla stúlkan meö eldspýturnar og Prinsessan á bauninni. 19.50 Fróttaágrip á táknmáli. 20.00 Fjéttir og veður. 20.25 Auglýsingar og dagskró. 20-IÉVið feöginin. 21.00 Jöllgótan. 21130 Harrý og Tontó. Bandarísk bíómynd • :ffrá 1974. Leikstjóri Paul Mazursky. Aðalhlutverk: Art Carney ásamt Ellen Burstyn, Chief Dan George, Geraldine Fitzgerald og Larry Hagman. Harrý, sem er ekkill á áttræöisaldri, er ekki lengur vært í New York. Hann leggur því land undir fót ásamt Tontó, kettin- um sínum, ( leit aö viðkunnanlegum samastað. 23.30 Dagskrórlok. Sunnudagur 17. febrúar. 16.00 Sunnudagshugvekja. Séra Hjalti Þorkelsson flytur. 16.10 Húsið ó slóttunni. 17.00 I leit aö rödd. Bresk heimildamynd. Margt fjölfatlað fólk getur hvorki tjáö hugsanir sínar í mæltu máli né rituöu. 18.00 Stundin okkar. 19.20 Hló. 19.50 Fróttaógrip ó táknmóli. 20.0Qfróttir og veöur. 20.25 Auglýsingar og dagskró. 20.40 Sjónvarp næstu viku. Umsjónar- maöur Magnús Bjarnfreðsson. 20.55 Jpkum lagiö. Lokaþáttur. 21.55pýrasta djósniö. Lokaþáttur. 22.45 Nóbelsskóldiö Jaroslav Seifert Bókmenntaverðlaun Nóbelsárið 1984 hlaut Jaroslav Seifert, 83 ára tékk- neskt Ijóöskáld. í þættinum er fjallaö um skáldið, fariö með Ijóð og sænskir sjónvarpsmenn ræöa viö Seifert í Prag. Leyfi til þess var ekki auðfengiö þar sem skáldið hefur löngum veriö yf- irvöldum í Tékkóslóvakíu óleiðitamur. Umsjónarmaður Lars Helander. Þýö- andi Jóhanna Þráinsdóttir. (Nordvis- ion — Sænska sjónvarpið). 23.30 Dagskrólok. Fimmtudagur U y 14. febrúar 19.00 Kvöldfróttir. 19.55 Daglegt mál. 20.00 Leikrit: ,,Þaö var haustið sem. . . eftir Bríeti Héöinsdóttur. Leikstjóri: Bríet Hóðinsdóttir. Leikendur: Sigrún Edda Björnsdóttir, Guðrún Ásmunds- dóttir, Pétur Einarsson, Guðrún Þ. Stephensen, Edda Þórarinsdóttir og Guðbjörg Thoroddsen. 21.15 Samleikur í útvarpssal. Guðný Guð- mundsdóttir og Snorri S. Birgisson leika saman á fiðlu og píanó 21.40 ,,Þegar miöilshæfileikar mlnir komu í Ijós." Smásaga eftir Ólaf Hauk Símonarson. Erlingur Gíslason les. 22.00. Lestur Passíusálma (10). 22.15 Veöurfregnir. Fréttir. 22.35 ,,Rósir og rím". Umsjón: Anna Ólafsdóttir Björnsson. Lesari með henni: Árni Sigurjónsson. 23.00 Músíkvaka. 23.45 Fréttir. 24.00 „Djassaö í Djúpinu" — (Bein út- sending). Hljóðfæraleikarar: Guö- mundur Ingólfsson, Guðmundur Steingrímsson, Tómas Einarsson og Þorleifur Gíslason. Kynnir: Vernharð- ur Linnet. Umsjón: Ólafur Þórðarson. 24.45 Dagskrárlok. Föstudagur 15. febrúar 07.0Ö Veðurfregnir. Fréttir. A virkum degi. 07.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur frá kvöldinu áöur. 08.00 Fréttir. 08.15 Veðurfregnir. 09.00 Fréttir. 09.05 Morgunstund barnanna. 09.20 Leikfimi. 09.45 Þingfróttir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veöurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.). 10.45 >;Þaö er svo margt aö minnast ó". 11.15Jjforguntónleikar. 12.20 Fróttir. 12.45 Veðurfregnir. 14.00 „Blessuð skepnan" eftir James Herriot. 14.30 Á lóttu nótunum. 16.00;S|réttir. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Síðdegistónleikar. 17.10 Sfðdegisútvarp. 18.45 Veðurfregnir. 19.00 Kvöldfróttir. 19.50 Daglegt mál. 20.00 Lög unga fólksins. 20.40 Kvöldva ka. Val Þórs Jakobssonar veöurfræöings „Mér sýnist kvölddagskrá útvarpsins á fimmtudaginn álitleg, annars fer það alveg eftir því hvort ég get gefið mér tíma frá félagsmálum, hvort ég hlusta þá. Yfirleitt heyri ég ekkert í útvarpinu á daginn, nema hádeg- isútvarjiið, því það er ekki haft í gangi á mínum vinnustað.Veðurstof- unni. A veðurfregnir hlusta ég lítið, enda eru þæreitthvert leiðinlegasta útvarpsefnið. Eg hlusta hinsvegar oft á kvöldvökuna, sem er mjög skemmtileg. Á laugardaginn ætla ég að hlusta á Ásgeir Blöndal Magnús- son flytja þáttinn íslenskt mál. Á Rás-2 hlusta ég ekki mikið en heyri óm frá henni hjá yngra fólki á heimilinu og líkar ágætlega. Sem áhugamaður um gervihnetti býst ég við að horfa á bresku heimildamyndina í sjón- varpinu á föstudagskvöldið, og raunar lýst mér ágætlega á alla helgar- dagskrá útvarps og sjónvarps. Ég hef bæði átt heima í Norður-Ameríku og Noregi og þótt margir vilji ekki trúa því, þá finnst mér útvarp og sjón- varp hér mun fjölbreytilegra en þar. Ekki síst eftir tilkomu Rásar-2. Það er miklu einhæfari dagskrá í útvarpi í Ameríku en hér.“ Þetta voru orð Þórs Jakobssonar veðurfræðings sem sér um valið í þessari viku. 21.30 Hljómbotn. 22.00 Lestur Passíusólma (11). 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. 22.35 Úr blöndukútnum. (RÚVAK). 23.15 Á sveitalínunni. (RÚVAK). 24.00 Fréttir. Næturútvarp frá rás 2 til kl. 03.00. Laugardagur 16. febrúar 07.00 Veðurfregnir. Fréttir. Tónleikar. Þulur velur og kynnir. 08.00 Fréttir. Morgunorð. 08.15 Veðurfregnir. 08.30 Forustugr. dagbl. (útdr.). Tónleikar. 08.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur frá kvöldinu áður. 09.00 Fréttir. Tónleikar. 09.30 Óskalög sjúklinga. (10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.) 11.20 Eitthvaö fyrir alla. Sigurður Helga- son stjórnar þætti fyrir börn. 12 20 Fróttir. 12.45 Veðurfregnir. 13.4Ö Iþróttaþóttu r. 14#0 Hór og nú. 15.16 Listapopp. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 íslenskt mál. 16.30 Bókaþóttur. 17.10 Á Óperusviðinu. 18.45 Veðurfregnir. 19.00 Kvöldfróttir. 19.35 Úr vöndu að róöa. 20.00 Útvarpssaga barnanna: „Grant skipstjóri og börn hans" eftir Jules Verne. 20.20 Harmonikuþáttur. 20.50 Sögustaðir ó Norðurlandi. Mööru- W vellir í Eyjafiröi. (RÚVAK). 21.35 Kvöldtónleikar. 22.00 Lestur Passfusólma (12). 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. 22.35 Uglan hennar Mínervu. 23.15 Óperettutónlist. 24.00 Miönæturtónleikar. 00.50 Fréttir. Næturútvarp frá rás 2 til kl. 03.00. Sunnudagur 17. febrúar 08.00 Morgunandakt. 08.10 Fréttir. 08.15 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.). 08.35 Lótt morgunlög. 09.00 Fréttir. 09.05 Morguntónleikar. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. 10.25 Stefnumót viö Sturlunga. 11.00 Messa í Bústaðakirkju. Hádegistónleikar. 12.20 Fróttir. 12.45 Veðurfregnir. 13.20 Þuríöur formaöur og Kambróns- menn. Annar þáttur. 14.30 Mjiödegistónleikar. 15.10 Meö bros ó vör. 16.00 Fréttir. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Um vísindi og fræöi. 17.00 Sfðdegistónleikar. 18.00 Vetrardagar. Jónas Guömundsson rithöfundur spjallar við hlustendur. 18.20 Tónleikar. 18.45 Veðurfregnir. 19.00 Kvöldfróttir. 19.35 Fjölmiölaþótturinn. 20.00 Um okkur. 20.50 Hljóinplöturabb. 21.30 ÚtVL<rpssagan: „Morgunverður meistaranna" eftir Kurt Vonnegut. 22.00 Tónleikar. 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. 22.35 Galdrar og galdramenn. (RÚVAK). 23.05 Djassþóttur. 23.50 Fréttir. Fimmtudagur 14. febrúar 20.00-21.00 Vinsældalisti hlustenda 21.00-22.00 Nú má óg! 22.00-23.00 Rökkurtónar. 23.00-24.00 Vör. Föstudagur 15. febrúar 10.00-12.00 Morgunþáttur. 14.00-16.00 Pósthólfið. 16.00-18.00 Léttir sprettir. HLÉ 23.15 Næturvaktin. Laugardagur 16. febrúar 14.00-16.00 Léttur laugardagur. 16.00-18.00 Milli mála. HLÉ 24.00-24.45 Listapopp. 24.45-03.00 Næturvaktin. Sunnudagur 17. febrúar 13.20-16.00 Krydd f tilveruna. 16.00-18.00 Vinsældalisti hlustenda rósar 2. SJÓNVARP eftir Ingólf Margeirsson Leyniplagg forsœtisrádherra ÚTVARP A staðnum eftir Sigmund Erni Rúnarsson Forsætisráðherra og fjármálaráðherra mættu á blaðamannafund í sjónvarpssal s.l. þriðjudagskvöld og sátu fyrir svörum varðandi aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum og stefnu hennar í heild. Eiginlega féll þessi þáttur um sjálfan sig er tíu mínútur voru liðnar af honum. Steingrímur kastaði þá þeirri bombu í sjónvarpssal, að hann hefði skráð 25 at- riði til úrlausnar í efnahagsmálum (hann veifaði meira að segja plagginu) en gæti ekki fjölyrt um ráðstafanirnar, þar sem hin dagsettu atriði hefðu ekki verið lögð fyrir samráðherra sína. „Albert hefur ekki einu sinni séð þessi atriði", sagði for- sætisráðherra brosandi. Þar með var all- ur rökréttur umræðugrundvöilur fyrir úr- ræði ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum hruninn. Ráðherrarnir fengu hins vegar nokkrar sendingar á sig sem þeir vörðu misvel. Stjórnandi þáttarins, Páll Magnússon, röskur að vanda, lagði ýmislegt til mál- anna í orrahríð blaðamanna, en þegar hann spurði Albert, hvort ríkisstjórnin mótaði ekki stefnu sína án íhlutunar mál- svara atvinnuveganna, svaraði fjármála- ráðherra, að ríkisstjórnin hefði samráð við fulltrúa atvinnuveganna. „íslandi er ekki stjórnað nema í samráði við fólkið", Steingrlmur: Ég er með lausnina I hendi mér en segi ekkert. sagði Albert án þess að sannfæringarsvip væri að finna á andlitum blaðamanna (né heldur sennilega sjónvarpsáhorfenda) við þau svör. Það kom einnig fram í máli Alberts, að ríkisstjórnin hefði varið rúm- um 1,8 milljörðum í mildandi ráðstafanir. „Þetta er ríkisstjórn fólksins", ítrekaði fjármálaráðherra. Ýmislegt bar á góma. Þórunn Gests- dóttir (DV) vildi vita um vísitölubindingu launa, sem Steingrímur sagði að yrði ekki tekin upp. „Verður þá allt verðtryggt nema launin?", spurði Oskar Guðmunds- son (Þjóðviljinn). Skattamálin voru rædd, Albert vildi ekki fjölyrða um skattalækk- unarleiðina í kjarasamningum. „Ég er ekki búinn að gefa upp neinn bolta", sagði hann og skírskotaði til lausnar far- mannadeiiunnar. Sömuleiðis voru svörin loðin er skattaeftirlit var til umræðu í ljósi skattsvika SÍS. Albert sagðist þó aldrei samþykkja hærri eignaskatt. Húsnæðis- málin tóku sinn tíma og enduðu í tómri vitleysu þar sem ráðherrarnir töluðu hvor upp í annan. Bankamálin voru langáhugaverðasti þáttur umræðunnar og þar leyndust nokkrar stórfréttir, eins og hugmynd Steingríms um að sameina Seðlabanka og Landsbanka og fyrirspurn Halldórs Halldórssonar (HP) til Steingríms, um það hvort Búnaðarbankinn og Útvegsbank- inn væru að ganga í eina sæng saman. Tillögur Steingríms um uppstokkun ráðu- neyta voru stóráhugaverðar. Mikið af umræðunni fór í orðhengilshátt og al- mennt kjaftæði og einkar áberandi að blaðamenn voru tilbúnir með einstakar spurningar en skorti yfirgripsmikla þekk- ingu til að geta fylgt eftir einstökum málaflokkum. Það vantaði einnig gamlar kanónur úr þingfréttamennskunni eins og Stefán Friðbjarnarson á Morgunblað- inu og Hauk Helgason á DV. Þeir hefðu kannski gert gæfumuninn. Fátt hrífur fréttaþyrsta mannveru jafn mikið og þegar fjallað er um mál þar sem þau eru að gerast, eða voru að gerast rétt í þessu. Á einföldu máli heitir þetta: að vera á staðnum. Af öllum fjölmiðlum er þetta áhrifa- mest í hljóðvarpi, enda gefur sú tækni, sem þar er að baki við fréttaöflun, mesta möguleika í þessu tilliti. Hún er einföld og ómannfrek og það, sem ræður úrslitum: hún skilar sér langtum fljótar til neytenda en aðrir fjölmiðlar eiga val á, þar á meðal sjónvarp, sem á íslenskan mælikvarða hefur ekki efni á þessum stæl, nema í undantekningartilvikum. í einhverri bók, sem ég las um fjölmiðl- un um daginn og man því miður ekki lengur hvað heitir, var fjallað um þetta atriði. Þar hélt höfundur fram þeirri skoð- un sinni hvað útvarpsfréttir áhrærði, að flutningur þeirra í talstofu (stúdíói) væri hreinn neyðarkostur. Fréttamennska í út- varpi væri í því fólgin að vera úti meðal fólksins í þjóðfélaginu og segja fréttirnar þaðan eins og þær kæmu fyrir á staðn- um. Hitt væri blaðamennska að safna saman efni utan af götu og vinna það síð- an inni á ritstjórnarskrifstofu, fjarri sögu- sviðinu. Þarna vildi höfundur skilja á milli. Ég er að mörgu leyti sammála höfundi að þessu leyti. Það á að vera nokkur mun- ur á milli fréttamennsku og blaða- mennsku, þótt auðvitað geti þessi fög skarast á mörgum sviðum, svo sem eins og þeim þegar verið er að rannsaka ákveðið misferli í þjóðfélaginu upp á eig- in spýtur. Þá labbar fréttamaðurinn sig auðvitað ekki sisona inn á misgjörðar- staðinn og segir fréttir þaðan af því hvernig honum gangi að sanna sektina. Það sem skilur hinsvegar hvað mest á milli blaðamennsku og fréttamennsku að þessu leyti finnst mér vera sá möguleiki hljóðvarps að gera ákveðið mál að lif- andi frétt, sem blöðunum til dæmis er næsta ómögulegt að afgreiða á annan hátt en þurran og kerfisbundinn. Með því að vera á staðnum með hljóðnemann og útvarpa beint þaðan sem eitthvað er að gerast, nær útvarpið með auðveldasta móti einhverju því mikilsverðasta í mál- inu; sjálfu andrúmsloftinu á svæðinu, spennunni, látunum. Aðeins einn mann með upptökutæki þarf til og tæknimann að auki, á meðan sjónvarpið til dæmis, getur ekki annað en breytt þessu and- rúmslofti og spennu, með öllum tækjun- um sem því fylgja,- ég nefni skæra ljós- kastara. Eðlilegt er að nefna hér dæmi til skýr- ingar. Eg skal hafa það nærtækt. Áf- mæiismót Skáksambands íslands er nú haldið á Loftleiðahótelinu. Af framan- greindu er ljóst að útvarpið á einna auð- veldast með að flytja fréttirnar þaðan á sem mest spennandi hátt. Með einföldum tæknibúnaði á það að geta fært okkur spennu andrúmsloftsins þaðan beint og milliliðalaust og ótruflað, á meðan það verður að uppistandi hjá sjónvarpinu og sólarhringsgömlu máli hjá blöðunum og þá oftast sem þurrpumpuleg upptalning á úrslitum. Á þennan hátt getur útvarpið gert jafn- vel fátæklegustu mál að stórkostlega skemmtilegum fréttum með sinni ein- földu og ómannfreku tækni. Það getur gert það að verkum, í kvöldfréttunum til að mynda, að maður finni sig í uppvask- inu mitt í atburðarás lifandi hasars úti í bæ. i 22 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.