Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 31.10.1985, Qupperneq 8

Helgarpósturinn - 31.10.1985, Qupperneq 8
I dag, fimmtudag, verdur haldinn fundur í bankaráði Útvegsbankans, þar sem bankastjórar bankans og fleiri embœttismenn hans munu skýra frá því hvernig ,,björgunar- aögeröir" þeirra vegna Hafskips- málsins gangi. Bankastjórninni hef- ur verið gefinn stuttur frestur til þess að ganga frá þessu „óþrifamáli“ og hefur HP heyrt, að miðað sé við mánaðamótin núna. Ýmislegt er upp á teningnum, en mestar líkur eru á því, að forráðamenn Hafskips verði neyddir til þess að selja fyrir- tœkið, í heilu lagi eða að hluta. Areiðanlegar heimildir HP lelja yfir- gnœfandi líkur á því, að Eimskip kaupi allan þann hluta Hafskips, sem lýtur að siglingum til og frá /s- landi. Par með er samkeppni Haf- skips á þessari leið lokið og Eimskip situr aftur eitt að megninu af farm- flutningum til og frá íslandi. „Það er vissulega inni í myndinni að Eimskip kaupi Hafskip allt,“ sagði Tómas Arnason seðlabankastjóri í samtali við HP. Aðrir, sem um þessi mál hafa fjailað vildu ekki veita neinar upplýsingar um þetta mál og báru við bankaleynd. HP er kunnugt um, að í framhaldi af störfum bankamálaneíndarinnar var bankaeftirliti Seðlabankans fal- ið að gera úttekt á bönkunum, bankakerfinu og afkomu einstakra banka. Skýrslan um Útvegsbank- ann er talin ákaflega merkileg. „Þetta er nú það svartasta, sem ég hef séð,“ sagði einn bankamaður, en annar með hærri starfsaldur sagði Björgótfur Guðmundsson: Tekur Eimskip viðöllum gámaflutningum Hafskipstil og frá Islandi? Bankastjórn og bankaráö Útvegsbankans krafsa sig út úr Hafskipsvandamálinu — pólitísk sprengja: Tómas Árnason seðlabankastjóri: „Yfirtaka Eimskips er einn möguleikinn“ hins vegar: „Hún er athyglisverð.“ Efni skýrslunnar þekkja fáir, en samkvæmt henni blasir við Útvegs- bankanum annað hvort nýtt íslands- bankahrun eða nauðsyn á vítamín- sprautu frá ríkinu upp á hundruð milljónir króna, eins og bankinn fékk raunar í kringum 1980. Sérstök úttekt hefur svo verið gerð á viðskiptum Hafskips og Út- vegsbankans og þar er staðfest, að bankinn hefur lánað Hafskipi hf. langt umfram eignir. Hér í HP stað- hæfðum við fyrr í sumar, að ótryggðar skuldir Hafskips við Út- vegsbankann næmu um 260 millj- ónum króna. Sú fullyrðing var aldrei dregin í efa. Núna gæti þessi upphæð numið allt að 400 milljón- um vegna lágs verðs á skipum um þessar mundir. En niðurstaðan hjá bankaeftirlit- inu er sú, að fyrir Útvegsbankann væri ekki um annað að ræða en að reyna að ná inn eins miklu af skuld- um Hafskips við bankann, eins og mögulega væri unnt. Eftir skrif HP snemma í júní um vægast sagt erf- iða stöðu Hafskips hafa málefni Haf- skips ver'ið mjög oft til umræðu í bankaráði og um leið ofarlega á vinnulista bankastjóranna Olafs Helgasonar, Lárusar Jónssonar og Halldórs Guðbjörnssonar. Einkum hefur þetta erfiða mál fallið i hlut Ólafs Helgasonar, sem notið hefur aðstoðar Axels Kristjánssonar aðal- lögfræðings bankans, en fáir, ef nokkur, kunna sögu þessara við- skipta betur en einmitt Axel. Það Ölafur Helgason bankastjóri Útvegsbank- ans: Hafskipsvandamálið hefur einkum hvílt á herðum hans. ■■■■eftir Halldór Halldórsson ■■■■■ helgast m.a. af því, að hann gegndi eins konar eftirlitshlutverki fyrir Út- vegsbankann, þegar syrta tók í ál- inn hjá Hafskipi og var hann tíður gestur á skrifstofum fyrirtækisins. Þá fór ekki hjá því, að bankaráð Útvegsbankans tæki við sér, þegar skýrslan um viðskiptin við Hafskip lá á borðinu. Raunar var mönnum svo brugðið, að enginn bankaráðs- mannanna mun hafa kært sig um eða þorað að hafa skýrsluna með sér útúr bankanum. Enginn þeirra vildi bera ábyrgð á því, að skýrslan lenti í höndum óviðkomandi manna. Það eitt segir sitt um inní- hald skýrslunnar. Hvað um það. Þessa dagana sitja bankastjórar Útvegsbankans, eins og ríkissáttasemjari, og ræða allar hugsanlegar leiðir til aö losna við Hafskip úr bankanum og þá í trygg- ar hendur. Og þessar tryggu hendur eru Eimskip. Komið hefur verið á fundum með Herði Sigurgestssyni forstjóra Eimskips, Þórði Sverris- syni o.fl. frá fyrirtækinu með banka- stjórninni og einnig hafa Björgólfur Guðmundsson forstjóri og Ragnar Kjartansson stjórnarformaður Haf- skips mætt á fundi í Útvegsbankan- um, þar sem þeim hafa verið kynnt- ir úrslitakostir. Út á við láta forráðamenn Haf- skips sem svo, að Útvegsbankinn geti ekki sett neina úrslitakosti. Bankinn sé sjálfur kominn í það vond mál. En samkvæmt heimild- um HP innan Hafskips munu menn þar vera uggandi og eru sumir orðn- Tómas Árnason seðlabankastjóri: Stað- festir, að ein hugmyndin um Hafskip sé sú, að Eimskip taki við öllum rekstrinum. ir sannfærðir um, að Hafskip sé búið að vera sem flutningafélag til og frá Islandi. Hins vegar vilja margir ríg- halda í Norður-Atlantshafssigling- arnar (hinar svokölluðu Trans Atlantic siglingar). Sömu menn viðurkenna, að þau viðskipti séu ekki ábatasöm (mikil velta, mikill kostnaður, hagnaður stundum eng- inn, stundum smávægilegur). En með því að halda í Trans Atlantic siglingarnar lifi Hafskips-nafnið a.m.k. í bili. Á þessum grunni megi svo taka stefnuna síðar meir. Sáttasemjarahlutverk bankastjór- anna hefur verið fólgið í því að leiða forstjóra Hafskips og Eimskips sam- an til þess að ræða hugsanleg kaup Eimskips. Ekki er talið, að Eimskip þurfi að reiða fram neitt gull vegna kaupa á Hafskipi. Hafskip sé gjald- þrota og því skipti mestu fyrir Út- vegsbankann að koma sem mestu af skuldum Hafskips við bankann á þurrt. Með þessu móti gæti Eimskip eignazt Hafskip fyrir „slikk" með því að semja um huggulegar afborg- anir af skuldum Hafskips. Nái þessir samningar í gegn verður bankinn ánægður. HP leitaði eftir því víða í banka- heiminum hvaða líkindi væru til þess, að Eimskip keypti Hafskip allt eða að hluta. Enginn taldi sig í að- stöðu til að segja af eða á um það. Hins vegar var það almennt mat manna, að innan mjög skamms tíma yrði þetta mál frágengið og Eimskip búið að kaupa Hafskip út úr allri samkeppni við fyrirtækið í ís- landssiglingum. „Þetta er spurning um einhverja daga,“ sagði heimild- armaður blaðsins, sem starfar í bankaheiminum. En hvernig svo sem menn leysa Hafskipsvandamálið breytir það engu um að Útvegsbankinn hefur teygt sig út yfir öll eðlileg mörk vegna fyrirgreiðslu til handa Haf- skipi. Bankinn tapar stórfé á þessum viðskiptum, og raunar munu dæm- in fleiri, en samt verður þessi banki áfram starfandi. Það er vegna þess að hér er um að ræða ríkisbanka og láni pólitískt skipaðir bankastjórar of mikið eða vitlaust og vanhugsað er rokið til og vitleysan falin. í þessu dæmi má heldur ekki gleyma hlutverki fyrsta formanns bankaráðs Útvegsbankans. Þetta var Albert Guðmundsson, sem þá var jafnframt formaður stjórnar Hafskips. I alvörulandi hefði sami maður aldrei gegnt þessum tveim- ur störfum á sama tíma. í alvöru- landi hefði það verið kallað hags- munaárekstur. Um þetta atriði hafa Útvegs- bankamenn fjallað einnig, en bið getur orðið á einhverjum pólitísk- um afleiðingum. Stjórnmálamenn, sem HP ræddi við, sögðu, að í raun væri spurningin um hugsanlega hlutdeild Alberts í Hafskipsvanda- málinu hin stóra spurning í þessu öllu. Vitað væri um góða vináttu hans og Björgólfs forstjóra Hafskips, stjórnarformennskan væri kunn, en nú væri loks komið að hinu mikla pólitíska uppgjöri málsins. Og sami maður spurði: Á maður að trúa því að stjórnmálamaðurinn og banka- ráðsformaðurinn Albert hafi „díri- gerað" bankastjórunum þannig, að þeir létu renna gagnrýnislaust stór- ar fjárfúlgur til stjórnarformanns skipafélagsins? En hvað sem þessu líður, virðist ljóst, að lán og ábyrgðir hafa verið veittar á grundvelli ófullnægjandi eða beinlínis rangra gagna. Þannig kemur fram í athugun bankaeftir- litsins, að eignamat Hafskips hefur ekki alltaf staðizt grandskoðun. Þetta kemur raunar heim og saman við staðhæfingu HP frá því í sumar, að ársreikningar skipafélagsins und- anfarin ár hafi ávallt verið rangir vegna þess að skipaeign félagsins (sem er uppistaðan í eignum þess) hefur verið ofmetin um tugi millj- óna. Núna vilja velviljaðir bankamenn virða Útvegsbankanum það til vor- kunnar, að verð á skipum sé ákaflega breytilegt. ÍJjessu samhengi má geta þess, að í Utvegsbankanum hefur sérstak- lega verið ræddur hlutur löggilts endurskoðanda Hafskips, en í ljós hefur komið, að hann hafi ekki alltaf beitt sömu reikningsskilavenjunni ár frá ári og virðast frávikin miðast við að fram komi hagstæðari árs- reikningur. Sitthvað fleira mætti nefna, en á fundi bankaráðs Útvegsbankans í dag, fimmtudag, skýrast málin væntanlega stórum og þá kemur jafnframt í ljós hvort Eimskip muni gleypa Hafskip, að hluta til eða allt, og Útvegsbankanum takist þannig um leið að bjarga eigin skinni — í þessu máli að minnsta kosti. 8 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.