Helgarpósturinn - 31.10.1985, Blaðsíða 11
flokkurinn gerir sér vonir um að
stofna flokk þar í landi. En áður en
félagarnir úr Flokki mannsins halda
til Sovét munu þeir fyrst fara til Ir-
lands, eða á fimmtudaginn 7. nóv-
ember, í því skyni að stofna bróður-
flokk þar í landi. ..
' ankafrétt: Eftir því, sem HP
hefur heyrt munu Hekla og Búnað-
arbankinn skilin að skiptum.
Tvennum sögum fer af því hvernig
þetta bar að höndum, en önnur sag-
an segir, að Heklu hafi hreinlega
verið sparkað út úr bankanum, en
hin sagan segir, að komið hafi til ein-
hvers orðaskaks, sem endaði með
þessum ósköpum. . .
irar
I ram hefur komið í Morgun-
blaðsfrétt í síðustu viku að Fridrik
Pálsson, framkvæmdastjóri Sölu-
sambands íslenskra fiskframleið-
enda (SÍF), muni bráðlega taka við
forstjórastarfi Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna (SH). Mikill slagur
hefur verið um forstjórastól SH og
er gjarnan talað um hinar ,,sjö klík-
ur“ sem hafa barist um sinn mann.
Klíkurnar skiptast mikið eftir lands-
fjórðungum og voru aðrir frambjóð-
endur til forstjórastólsins þeir Einar
K. Guðfinnsson frá Bolungarvík
og Ólafur Gunnarsson frá Nes-
kaupstað. En Friðrik varð ofan á,
eins og búist var reyndar við. . .
i
iFfri
I yrir nokkru sögðum við frá því
að Flokkur mannsins væri á förum
til Finnlands til að stofna finnskan
bróðurflokk. Nú eru félagarnir úr
Flokki mannsins komnir aftur úr
Finnlandsförinni og þótti hún takast
með miklum sóma. Fjölmiðlar í
Finnlandi sögðu frá heimsókninni,
bæði útvarp og sjónvarp og stærstu
blöðin, svo sem Huvudstadsbladet
og Helsinki Sanomaat gerðu ítar-
lega grein fyrir Flokki mannsins á
íslandi sem kallaður var „Humanist-
partiet". í ferðinni var stofnaður
finnskur Flokkur mannsins og voru
stofnfélagar eitt hundrað talsins.
Aðalástæða þess að Flokkur manns-
ins fór til Finnlands til að stofna þar-
lendan flokk er sú að komast nær
landamærum Sovétríkjanna, en
síðasta blaði sögðum við
skondna sögu af Halldóri Blöndal
og viðskiptum hans við sovéskan
sejidiráðsstarfsmann. Við gerðum
hins vegar þau mistök að rugla þeim
bræðrum Halldóri og Haraldi
saman. Sagan fjallaði sem sé um
Harald. En til að bæta úr þessu lang-
ar okkur að segja frá Islendingnum
Halldóri Blöndal. Þannig var, að í
sumar voru nokkrir íslenskir þing-
menn á ferð í Strassbourg. Þetta voru
Þorvaldur Garðar Kristjánsson,
Ingvar Gíslason, Kjartan Jó-
hannsson, Ragnar Arnalds og
svo Halldór Blöndal. Einn af við-
burðum ferðarinnar var boð hjá
norsku sendiherrahjónunum þar í
borg. Sem forréttur var borin fram
köld ýsa. Norskur sendifulltrúi baðst
afsökunar á því, að ekki væri boðið
upp á þorsk og spurði svo þing-
mennina frá íslandi hvort drukkið
væri rauðvín eða hvítvín með ýsu á
íslandi. En þá gall við í Halldóri
Blöndal: „Blávatn, takk.“ Hinir þing-
mennirnir munu hafa orðið spældir
því þá langaði í hvítvínl. . .
V
ið heyrum að AlDS-óttinn
sé tekinn að breiðast hratt út hér-
lendis sem erlendis. Þannig munu
t.d. sjúklingar sem gangast undir
blóðfrekar skurðaðgerðir farnir að
spyrja hvaðan blóðið sé sem dælt
verði í þá meðan á skurðaðgerð
stendur...
STJORNA
ÉG ÖÐRUM
STJÓRNA
ADRIR MÉR?
Einstaklingar — Stofnanir — Fyrirtæki
Nómskeið um eitt hagnýtasta hjdlpartæki
nútímasálarfræði: Transactional Analysis (boðgreiningu).
A námskeiðinu færðu:
• Skriflegt mat á leikni í samskiptum
• Mat á nvernig vinnustaður hentar þér
• Aðferðir til að greina eigin og annarra samskipti
• Markvisst hjálpartæki til að ná persónulegum árangri —
í starfi sem utan.
Leiðbeinendur eru sálfræðingarnir
Álfheiður Steinþórsdóttir Guðfinna Eydal.
Nánari upplýsingar og tilkynning þátttöku
í síma 68 70 75 kl. 10—12
Sálfræðistöðin
Komdu tll okkar á
DAGANA
UMtlELGINA
Ljúfmeti af léttara taginu
verður á boðstólum; hvers konar ostar,
auk margra forvitnilegra rétta sem bárust í samkeppnina um
„Bestu uppskriftirnar ’85“
„Bestu uppskriftimar '85"
Við kynnum nýjan glæsilegan bækling með fjölda uppskrifta
úr samkeppninni.
Kynntu þer íslenska gæóamatið
Nú hefur þú tækifæri til að kynna þér niðurstöður íslenska gæðamatsins
á ostunum sem voru teknir til mats nú í vikunni.
Ostameistararnir verða á staðnum og sitja fyrir svörum, um allt sem
lýtur að ostum og ostagerð, og bjóða þér að bragða á ostunum sínum.
Ostar á kynningarverði
Ostarnir verða seldir á kynningarverði OSTADAGANA, notaðu tækifærið.
OPIÐ HÚS
kI.I-6
laugaidag & sunnudag
að Bitruhálsi 2
Verið velkomin
OSTA- OG SMJÖRSALAN
HELGARPÓSTURINN 11